Dugnaður í dagvist.
Prjónavörur afhentar Rauða krossinum
Sú hefð er komin á í dagvist að prjónað er til góðs á föstudögum.
Mikill dugnaður hefur skilað sér í prjónavöru sem Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður Hornafjarðardeildar RKÍ tók við í dag 9. apríl.
Það sem afhent var í dag eru 82 sokkapör, 39 vettlingar, 19 húfur, 1 peysa, 1 trefill og 4 þvottapokar. Auk þessa var afhentur peningur fyrir það sem dagvistarfólk hafði þegar selt hjá sér.
Hornafjarðardeild RKÍ mun bjóða þessar fallegu og vel unnu prjónavöru til sölu á opnu húsi deildarinnar sem auglýst verður síðar í apríl. Ágóðinn fer allur í Hjálparsjóð RKÍ. Síðan verður það sem af gengur sent til úthlutunar á vegum fataflokkunar RKÍ.
Það má því segja að unnið sé að góðum málefnum í dagvist sem kemur bæði samfélaginu á Höfn og þurfandi fólki um allan heim til góða.
Þeir sem eiga garn afganga eða garn sem þeir vilja gefa til góðs málefnis eru hvattir til að koma með það í dagvist í Ekrunni eða hafa samband við starfsmenn dagvistar í síma 478 2142
![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)



Skrifa athugasemd