Fréttir HSSA
Guðrún Júlía Jónsdóttir og Magnús Skúlason
Undirritun samnings milli HSSA og HSU
Guðrún Júlía Jónsdóttir framkvæmdarstjóri  og Magnús Skúlason, forstjóri HSu
Mynd 2 af 2
1 2

10.03.2010

Samstarfssamningur milli HSSA og HSu.

Í dag miðvikudaginn 10 mars, var undirritaður þjónustusamningur milli Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) og Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands (HSSA) á hjúkrunardeild HSSA.

Samningurinn felur í sér samstarf um læknisþjónustu, símsvörun og fleiri þætti.

Samkvæmt samningnum mun barnalæknir frá HSu starfa á HSSA tvo daga í mánuði. Ennfremur verður HSSA aðili að samningi um símaþjónustu á nóttunni. Frá kl.24:00 til 08:00 verður sameiginleg símsvörun, þar sem hjúkrunarfræðingar vísa símanum áfram til vakthafandi læknis ef þörf er á læknisaðstoð. Allar blóðrannsóknir, sem ekki eru gerðar á Höfn, en hægt er að gera á Rannsóknadeild HSu á Selfossi verða sendar þangað.

Þjónustusamningur kemur því til með að bæta þjónustu á HSSA, en gerir HSu jafnframt kleift að festa barnalækni í fullu starfi og styrkja og auka starfsemi rannsóknardeildar stofnunarinnar.

Þá verður tekið upp samstarf um fræðslumál og munu starfsmenn HSSA meðal annars hafa aðgang að fræðslufundum HSu og geta fylgst með auglýsingum um þá í gegnum innranet HSu.

Í samningnum er ennfremur kveðið á um, að við bráðaflutning sjúklinga á svæðinu milli Hafnar og Kirkjubæjarklausturs verði boðaður sá sjúkrabíll, sem næstur er hverju sinni, í fullu samráði við Neyðarlínuna.

Í tengslum við undirritun samningsins verða umsjónarlæknir sjúkraflutninga í heilbrigðisumdæmi Suðurlands og umsjónarmaður sjúkraflutninga HSu með fræðslu fyrir sjúkrabílstjóra, lækna og hjúkrunarfræðinga HSSA um sjúkraflutninga, bráðatilvik og um viðbragðsáætlun vegna stærri óhappa eða þegar sérstök vá steðjar að.

Aðdragandi að framangreindu samstarfi hófst í kjölfar gildistöku nýrra laga um heilbrigðisþjónustu 1. september 2007. Skv. lögunum var landinu skipt í heilbrigðisumdæmi og skipuð samráðsnefnd heilbrigðisstofnana i hverju umdæmi. Heilbrigðisumdæmi Suðurlands nær yfir þjónustusvæði heilbrigðisstofnana Suðurlands, Suðausturlands og Vestmannaeyja. Samningur HSu og HSSA, sem undirritaður var í dag, er fyrsti formlegi samningur heilbrigðisstofnana í umdæminu um aukið samstarf.

Nánari upplýsingar: Magnús Skúlason, forstjóri HSu s: 480-5100 Guðrún Júlía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri HSSA, s:478 1400

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica