Fréttir HSSA
Skjaauglysing_Tannsi_JPG_tilbuin
Tannverndarvikan

01.02.2010

Tannverndarvikan 2010

Tannvernd barna

Fyrsta vika febrúarmánaðar ár hvert er helguð tannvernd. Áhersla er lögð á mikilvægi góðrar tannheilsu og í ár beinum við sérstakri athygli að yngstu börnunum.

Hér má finna lifandi myndefni um tannhirðu barna á aldrinum 6 mánaða til 6 ára. 

Í skólaheilsugæslu er unnið að markvissri tannvernd í fræðslunni um 6-H heilsunnar og er flúorskolun í boði samkvæmt leiðbeiningum Lýðheilsustöðvar.

Ókeypis eftirlit tannlækna – Forvarnarskoðun

Vakin er sérstök athygli á því að öllum þriggja, sex og tólf ára börnum stendur til boða ókeypis eftirlit hjá tannlæknum sem vinna í umboði Sjúkratrygginga Íslands.

Hér má finna góðar myndrænar leiðbeiningar við tannburstun .

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica