Fréttir HSSA
Afmæli Jóhönnu 13. jan 2010 Ekrunni
Afmæli Jóhönnu 13. jan 2010 Ekrunni
Mynd 6 af 7
1 2 3 4 5 6 7

20.01.2010

Það er líf og fjör í Dagvist alla virka daga.

 

Það er líf og fjör í Dagvist alla virka daga. Þar sinnir fólk hinum ýmsu áhugamálum og nýtur félagsskaps hvors annars.  Nú hefur sú nýbreytin verið tekin upp að “prjóna til góðs” á föstudögum í dagvist. Þá er setið saman prjónað og spjallað, afraksturinn fer í hjálparstarf Rauða krossins. Auk þeirra sem koma í Dagvist til  Önnu, Krissu, Lísu og Svanhvítar þá er heilmikið starf Félags eldri Hornfirðinga í gangi svo að engum leiðist sem á leið hér um.

 

Þann 13. janúar sl. var slegið upp afmælisveislu. Jóhanna Þorsteinsdóttir varð þá 90 ára og gladdist hún og hennar fólk með félögum í Ekrunni. Meðfylgjandi myndir eru teknar af prjónaskapnum og í afmæli Jóhönnu. Einnig átti frænka hennar Halldóra Jónsdóttir, 85 ára afmæli þann dag.

 

Þeir sem vilja leggja dagvist lið í verkefninu prjónað til góðs með garni geta kíkt við í Ekrunni á opnunartíma dagvistar sem er alla virka daga frá 10 – 14 nema á miðvikudögum en þá er opið frá 13 -16. Eða haft samband við starfsfólk í síma 478 2142.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica