Það er líf og fjör í Dagvist alla virka daga.
Það er líf og fjör í Dagvist alla virka daga. Þar sinnir fólk hinum ýmsu áhugamálum og nýtur félagsskaps hvors annars. Nú hefur sú nýbreytin verið tekin upp að “prjóna til góðs” á föstudögum í dagvist. Þá er setið saman prjónað og spjallað, afraksturinn fer í hjálparstarf Rauða krossins. Auk þeirra sem koma í Dagvist til Önnu, Krissu, Lísu og Svanhvítar þá er heilmikið starf Félags eldri Hornfirðinga í gangi svo að engum leiðist sem á leið hér um.
Þann 13. janúar sl. var slegið upp afmælisveislu. Jóhanna Þorsteinsdóttir varð þá 90 ára og gladdist hún og hennar fólk með félögum í Ekrunni. Meðfylgjandi myndir eru teknar af prjónaskapnum og í afmæli Jóhönnu. Einnig átti frænka hennar Halldóra Jónsdóttir, 85 ára afmæli þann dag.
Þeir sem vilja leggja dagvist lið í verkefninu prjónað til góðs með garni geta kíkt við í Ekrunni á opnunartíma dagvistar sem er alla virka daga frá 10 – 14 nema á miðvikudögum en þá er opið frá 13 -16. Eða haft samband við starfsfólk í síma 478 2142.
![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)



Skrifa athugasemd