Fréttir HSSA
Kólesterólmæling
Kólesterólmæling
Ari Þorsteinsson bíður hugrakkur á meðan Ester Þorvaldsdóttir gerir örlítið gat til að taka blóð fyrir kólesterólmælingu.(úr myndasafni)

13.01.2009

Bæjarráð fagnar því að áfram er gert ráð fyrir þjónustusamningi við sveitarfélagið

Eftirfarandi bókun bæjaaráðs var gerð á síðasta bæjarráðsfundi: Bæjarráð Hornafjarðar fagnar því að áfram er gert ráð fyrir þjónustusamningi við Sveitarfélagið Hornafjörð og leggur áherslu á að ráðuneyti og viðkomandi stofnanir á vegum ríkisins einhendi sér að ljúka samningagerðinni sem fyrst. Sjálfstjórn sveitarfélaga á þessum málaflokki er mikilvæg og rökrétt næsta skref er að flytja verkefnin frá ríki til sveitarfélaga og tekjustofna með. Bæjarráð leggur áherslu á að ekki sé verði skorið meira niður á HSSA en á öðrum heilbrigðisstofnunum á landinu og óskar eftir viðræðum við heilbrigðisráðuneytið þar sem farið verður ofan í forsendur niðurskurðar á fjárlögum 2009.  Bæjarráð Hornafjarðar telur einsýnt að vegna landfræðilegrar sérstöðu Hornafjarðar verður ekki um mikla samrekstrarmöguleika að ræða milli HSSA og annarra heilbrigðisstofnana.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica