Beint í leiðarkerfi vefsins.
Landlæknir, Geir Gunnlaugsson og þrír aðrir starfsmenn embættisins voru í heimsókn hjá HSSA í gær 17. apríl. þau funduðu með stjórnendum og starfsfólki stofnunarinnar, kynntu Embætti landlæknis og kynntu sér starfsemi HSSA.
Lesa meira
Stuttur fræðslufyrirlestur um „Heilsu og vellíðan“ verður haldinn þriðjudaginn 16. apríl kl. 17:30 í Nýheimum.
Lesa meira
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands stendur fyrir tveggja helga námskeiði í hugleiðslu og streitustjórnun dagana20.-21.apríl og svo aftur 4.-5.maí. Kennt verður frá 9-17 á laugardeginum og 9-14 sunnudag . Fyrra námskeiðið er grunnnámskeið og er undanfari þess seinna.
Lesa meira
Sú nýbreytni verður tekin upp á heilsugæslustöðinni frá og með 10.apríl að bráðaerindi til vaktlæknis eftir lokun skiptiborðs verða í síma 112 í stað þess að hringja beint í vaktsíma læknis. Þar tekur sérhæfður neyðarvörður við vaktþjónustunni sem metur ástand, leiðbeinir þeim sem hringir og hefur samband við lækni ef þörf er á.
Lesa meira