Fréttir HSSA
framkvæmdir nóv-des 2012
framkvæmdir nóv-des 2012
Vaktherbergi á hjúkrunar- og sjúkradeild rifið niður.
Mynd 1 af 3
1 2 3

04.12.2012

Framkvæmdir á hjúkrunar- og sjúkradeild HSSA.

Það hefur verið umrót á hjúkrunar- og sjúkradeildinni undanfarnar tvær vikur. Unnið er að breytingum á húsnæði til að auka rými heimilisfólks auk þess sem skipt var um dúk á borðstofu. Framkvæmdirnar eru greiddar af Fasteignum ríkissjóðs en stofnunin leigir húsnæðið af þeim.

Breytingarnar felast í því að vaktherbergi starfsmanna hefur verið fjarlægt og stendur til að á því svæði verði komið upp huggulegum setkrók fyrir heimilisfólk og starfsmenn. Vaktherbergið sem slíkt hefur verið flutt inní fundarherbergi sem var við hliðina á vaktinni. Sem þrengir aðeins að, en þröngt meiga sáttir sitja.

Meðfylgjandi myndir sýna að allir hafa lagst á eitt við að gera gott úr hlutunum á meðan á framkvæmdum stendur. Þegar framkvæmdum lýkur verða settar inn nýjar myndir á vefinn fyrir áhugasama lesendur og svo er fólk auðvitað velkomið í heimsókn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica