Beint í leiðarkerfi vefsins.
Margir góðir gestir heiðra heimilisfólk á HSSA á aðventunni. Í gær 19. desember komu ættingjar og vinir í jólasamveru á hjúkrunar- og sjúkradeild. Af því tilefni var Ásbirni Þórarinssyni hárskera og Sigrúnu Sveinbjörnsdóttur snyrtifræðingi þakkað fyrir áralanga þjónustu við heimilisfólk HSSA.
Lesa meiraUndanfarið hafa verið að greinast húðsýkingar hjá heilbrigðum börnum í Reykjavík af völdum baktería sem heita Stafýlókokkus aureus (S. Aureus) sem kallaðir eru mósar.
Af því tilefni hefur sóttvarnarlæknir Landlæknisembættisins sent frá sér dreifibréf með upplýsingum um bakteríuna, smitleiðir o.fl.
Í dreifibréfinu eru gagnlegar upplýsingar um handhreinsun og fleira sem eiga erindi til okkar allra.
Lesa meira
Einar Smári Þorsteinsson, sjúkraþjálfari hóf störf á HSSA þann 1. nóvember sl. Hann tók við af Matthildi Ásmundardóttur sem tók við framkvæmdastjórastöðu stofnunarinnar á sama tíma. Einar Smári útskrifaðist sem sjúkraþjálfari vorið 2012.
Lesa meira
Sú skemmtilega hefð hefur skapast að rithöfundar sem koma til Hornafjarðar að lesa uppúr verkum sínum á aðventunni koma til okkar á hjúkrunardeildina og lesa fyrir heimilisfólk.
Lesa meira
Það hefur lengi staðið til hjá okkur að fara inn að Smyrlabjörgum og skoða breytingarnar. Og þann 4.12. 2012 létum við verða að því. Við brunuðum í hálkunni á þremur bílum og á móti okkur tók Laufey og Birna dóttir hennar. Þær fóru með okkur í nýju bygginguna og sýndu okkur hvað búið er að gera. Þarna var líka heljarinnar piparökuhús sem Laufey var búin að gera og engin smá vinna í því. Svo fengum við þvílíkar hnallþórur, kaffi og kakó
Lesa meira
Það hefur verið umrót á hjúkrunar- og sjúkradeildinni undanfarnar tvær vikur. Unnið er að breytingum á húsnæði til að auka rými heimilisfólks auk þess sem skipt var um dúk á borðstofu. Framkvæmdirnar eru greiddar af Fasteignum ríkissjóðs en stofnunin leigir húsnæðið af þeim.
Lesa meira