Fréttir HSSA

Við forum-ad-borda-i-Pakkhusinu..-haust-2012

Svipmyndir frá Dagdvöl aldraðra í Ekru - 28.11.2012 Fréttir HSSA

Þróttmikið og gott starf er unnið í Dagdvöl aldraðra í Ekrunni. Ýmis verkefni eru þar í gangi en einnig er tekið á móti góðum gestum og farið út í bæ að gera sér glaðan dag. Hér má sjá sýnishorn af því sem við er að vera og afurðir frá starfinu.

Lesa meira
 
Adalheidur með hleðslumönnunum Kristjáni og Jóni Óa sumar 2012

Þakkir frá Hafnarsókn. - 26.11.2012 Fréttir HSSA

Í sumar hafa staðið yfir framkvæmdir við stækkun á kirkjugarðinum á Höfn. Einkar vel hefur tekist til við að gera umhverfi og umgjörð garðsins fagurt og aðlaðandi.

Lesa meira
 
heimboð í Mjallhvíti 21.nóv 2012

Heimboð á dvalardeild 21. nóvember. - 21.11.2012 Fréttir HSSA

Heimilisfólk á dvalardeild gerði sér glaðan dag í gær með því að bjóða ættingjum og vinum í kaffiboð. Af því tilefni var Líknarnefnd Lions einnig boðið heim og þeim þakkað fyrir stofustóla sem Lionsklúbbur Hornafjarðar gaf deildinni. Lesa meira
 
Lönguhólar nóv 2012

Leikskólabörn í heimsókn. - 14.11.2012 Fréttir HSSA

Á dögunum fékk heimilisfólk á hjúkrunar- og sjúkradeild góða gesti í heimsókn frá leikskólanum Lönguhólum. Það er alltaf líf og fjör í þessum heimsóknum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Lesa meira
 
Nýtt lógó HSSA

Hópslysa- og viðbragðsáætlun HSSA - 13.11.2012 Fréttir HSSA

Nú er aðgengileg á vef HSSA Hópslysa- og viðbragðsáætlun stofnunarinnar. Í áætluninni segir fyrir um skipulag og stjórn aðgerða innan heilbrigðisstofnunarinnar í kjölfar atburðar sem kallar á aukin viðbrögð hennar.

Áætlunin er unnin af Áslaugu Valsdóttur, Birni Þ Sigurbjörnssyni, Ester Þovaldsdóttur og Guðrúnu Júlíu Jónsdóttur . Við gerð áætlunarinnar er meðal annars stuðst við lög um almannavarnir nr. 82/2008, lög um sóttvarnir nr. 19/1997, lög um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, lög um eiturefni og hættuleg efni nr. 52/1988 auk laga um heilbrigðisstéttir og laga um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna.

Lesa meira
 
Guðbjörg Lilja f.29.9.2012

Tvær dömur og einn piltur! - 07.11.2012 Fréttir HSSA

Guðbjörg Lilja Jóhannsdóttir fæddist þann 29. september sl. Hún var 4.950gr og 55cm við fæðingu. Foreldrar Guðbjargar Lilju eru Sigrún Ólöf Björgvinsdóttir og Jóhann Hilmar Haraldsson.

 

Drengur Gíslason fæddist 5. október sl. Hann var 4.240gr og 53,5cm við fæðingu. Foreldrar hans eru Þóra Björg Gísladóttir og Gísli Karl Ágústsson.

 

Stúlka Árnadóttir fæddist þann 24. október sl. hún var 3.545gr og 51cm við fæðingu. Foreldrar hennar eru Ragnhildur Einarsdóttir og Árni Rúnar Þorvaldsson.

Lesa meira
 
heimbod

Heimboð 25. október sl. - 05.11.2012 Fréttir HSSA

Þann 25. október sl. bauð heimilisfólk ættingjum og vinum í heimsókn á heimilið. Af því tilefni hafði starfsfólk í eldhúsi bakað rjómatertur og pönnukökur að ósk heimilisfólks. Galtt var á hjalla eins og vera ber. Kalli tók í nikkuna og var sungið af hjartans lyst.

Lesa meira
 

 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica