Matthildur Ásmundardóttir ráðin Framkvæmdastjóri HSSA
Matthildur Ásmundardóttir hefur verið ráðin Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands. Hún mun hefja störf 1. nóvember en þá lætur Guðrún Júlía af störfum..
Um leið og Matthildur er boðin velkomin til starfa þá er Guðrúnu Júlíu færðar bestu þakkir fyrir farsælt starf sem Framkvæmdastjóri HSSA.
Matthildur er með MSc í íþrótta og heilsufræði frá Háskóla íslands og BSc í sjúkraþjálfun frá sama skóla. Þá hefur Matthildur setið ýmiskonar námskeið sem tengist klínisku starfi sjúkraþjálfara.
Matthildur hefur starfað sem sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari og á Hjúkrunarheimili HSSA frá árinu 2004. Einnig hefur Matthildur haldið ýmis námskeið og hópþjálfun á sínu sviði.
Matthildur hefur einnig starfað að félagsmálum hér á Höfn, bæði í nefndarstörfum á vegum Sveitarfélagsins og verið formaður USÚ og í varastjórn UMFÍ, þá er hún formaður Landsmótsnefndar vegna Unglingalandsmóts hér á Höfn 2013.
BB

![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)



Skrifa athugasemd