Heilsuefling á HSSA!
Á Heilbrigðisstofnunni var tekin sú ákvörðun í haust að vinna að heilsueflingarstefnu fyrir vinnustaðinn.
En heilsuefling er skilgreind sem ferli sem gerir fólki kleift að hafa betra vald á og að bæta eigið heilbrigði (WHO, 1986). Til að líða vel þarf fólk að geta áttað sig á áhrifavöldum heilbrigðis í umhverfi sínu, uppfyllt þarfir sínar og að vera fært um að geta breytt eða ráðið við aðstæður sínar. Heilbrigðisstofnun leggur metnað sinn í að beita öllum tiltækum ráðum til að aðstoða starfsfólk sitt við að ná þessum markmiðum.
Af hverju heilsueflingarstefna? Við viljum stuðla að góðri starfsmannastefnu og ávinningur starfsmanna af heilsueflingu getur verið:
• Bætt heilsa
• Bætt líðan í vinnunni
• Aukin starfsánægja
• Aukin þekking á eigin líkama og heilsu
• Betri starfsmenn
Vinnustaðurinn hefur einnig ávinning af því að hafa heilbrigðari og ánægðari starfsmenn í vinnu því slíkir starfsmenn eru oft minna frá vinnu vegna veikinda, vinna betur vinnuna sína þegar þeir eru í vinnunni og endast lengur í starfi.
Vinna hófst í maí þegar stofnaður var þriggja manna hópur sem hafði það markmið að koma á heilsueflingarstefnu. Hópurinn er skipaður þeim Matthildi Ásmundardóttur, sjúkraþjálfara, Áslaugu Valsdóttur, ljósmóður og Kristjáni Guðnasyni, kokki. Stefnan hefur nú litið dagsins ljós þó það eigi eftir að yfirfara einstaka hluti. Lögð var fram aðgerðaráætlun um hvernig við viljum hrinda heilsueflingunni í framkvæmd og sett fram dagskrá fyrir árið 2012-2013. Ákveðið var að byrja með krafti í september en sá mánuður er helgaður heilsufarsmælingum, fræðslu með Eddu Björgvinsdóttur um húmor á vinnustað, virkum ferðamáta í og úr vinnu og myndun hlaupa- og gönguhóps. Einnig verður farið yfir mataræði á vinnustaðnum og gerðar nokkrar breytingar. Dagskráin verður síðan þannig að í boði verða 2 viðburðir í hverjum mánuði: fræðsla þar sem starfsmenn eru fræddir um ýmsa heilsutengda þætti ásamt því að kynna fyrir starfsmönnum flesta þá hreyfimöguleika sem í boði eru með því markmiði að hver og einn geti tileinkað sér einhverja hreyfingu fyrir lífstíð.
Má segja að árið leggist vel í starfsmenn, góð þátttaka er í hlaupa- og gönguhópinn. Einnig tóku tvö lið frá HSSA þátt í brennó keppni á Í formi mótinu ásamt því að taka þátt í ýmsum öðrum greinum á mótinu. Í kjölfarið var ákveðið að merktur yrði brennóvöllur á túninu við hjúkrunardeildina þar sem starfsmenn geta brugðið sér í brennó við hvert tækifæri. Við hlökkum til að takast á við spennandi vetur.
Matthildur Ásmundardóttir, sjúkraþjálfari!

![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)



Skrifa athugasemd