Fréttir HSSA
Ferð til Rvk. 16.04.2012
Ferð til Rvk. 16.04.2012
Boðaþing, Hrafnista í Kópavogi.
Mynd 1 af 11
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11

27.04.2012

Kynnisferð starfsmanna til Reykjavíkur!

Mánudaginn 16. apríl skelltu starfsmenn HSSA og Heimaþjónustudeildar sér til Reykjavíkur í útskriftarferð af Fagnámskeiði 2 í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Þetta voru 30 hressar konur sem kynntu sér hina ýmsu starfsemi sem tengjast þeirra störfum og gerðu sér auðvitað glaðan dag í leiðinni.

Stýrihópur Fagnámskeiðsins skipulagði ferðina í samvinnu við stjórnendur HSSA og Heimaþjónustudeildar. Sveitamennt styrkti ferðina sem gerði hópnum kleift að leigja Fokker 50 flugvél Flugfélags Íslands til ferðarinnar og rútu frá Guðmundi Tyrfingssyni í Reykjavík sem kom hópnum á milli staða.

Við komuna til Reykjavíkur var byrjað á því að heimsækja Hrafnistu í Kópavogi, Boðaþing og kynnast hugmyndafræðinni Lev & Bo sem unnið er út frá þar og heimilið skoðað. www.hrafnista.is

Eftir skoðunarferð og hádegismat í Boðaþingi skiptist hópurinn upp. Hluti hópsins skoðaði Sunnuhlíð í Kópavogi er þar er hjúkrunarheimili, dagdvöl og íbúðir aldraðra http://sunnuhlid.is/

Starfsmenn heimaþjónustudeildar sem koma að málefnum fatlaðra fóru í klúbbinn Geysi og Ás vinnustofu. www.kgeysir/is og www.as/hlutverk.is

Og ritarar heilsugæslunnar kynntu sér starfsemina í Heilsugæslunni Hamraborg Kópavogi.

Eftir þetta prógram var frjáls tími sem þátttakendur nýttu sér til skemmtunar og síðan borðuðu Hornfirsku hefðardömurnar á Höfninni hjá Brynjari Eymundssyni sem Hornfirðingum er að góðu kunnur.

Þá var lent á Hornafjarðarflugvelli um kl. 22 um kvöldið. Móttökur voru mjög góðar á öllum þeim stöðum sem voru heimsóttir. Fróðlegt var að sjá hvernig rekstur og uppbygging þjónustu er á öðrum stöðum. Þátttakendur eru alsælir með ferðina og komu heim með góðar hugmyndir um hvernig hægt sé að aðlaga og bæta enn frekar þá þjónustu sem við veitum hér á Hornafirði í dag.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica