Sumarstörf!
Heimaþjónustudeild og HSSA
Heimaþjónustudeild Hornafjarðar óskar eftir starfsfólki í sumarafleysingar í félagslegri heimaþjónustu/ heimilishjálp og dagvist aldraðara í Ekru.
Einnig óskast sjúkraliði í afleysingu í heimahjúkrun.
Upplýsingar um störfin gefur Ester Þorvaldsdóttir hjúkrunarstjóri á heilsugæslusviði í síma 470 8600 eða netfang ester@hssa.is
HSSA óskar eftir starfsmanni við sumarafleysingar í ræstingum á hjúkrunardeild frá 16. júlí n.k. Vinnutími frá 8-14 og 3ja hver helgi.
Upplýsingar gefur Ásgerður K. Gylfadóttir hjúkrunarstjóri á hjúkrunarsviði í síma 470 8630 eða netfang asgerdur@hssa.is
Starfsmaður óskast til aðstoðar umsjónarmanni HSSA. Í starfinu felst m.a. garðvinna og viðhald undir leiðsögn umsjónarmanns. Æskilegt er að umsækjendur hafi bílpróf.
Upplýsingar gefur Andrés Júlíusson umsjónarmaður fasteigna HSSA í síma 861 8452 og netfang andres@hssa.is
Umsóknareyðublað má nálgast HÉR. Umsóknarfrestur er til 16. apríl.
Launakjör samkvæmt kjarasamningum.

![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)



Skrifa athugasemd