Beint í leiðarkerfi vefsins.
Mánudaginn 16. apríl skelltu starfsmenn HSSA og Heimaþjónustudeildar sér til Reykjavíkur í útskriftarferð af Fagnámskeiði 2 í heilbrigðis- og félagsþjónustu.
Þetta voru 30 hressar konur sem kynntu sér hina ýmsu starfsemi sem tengjast þeirra störfum og gerðu sér auðvitað glaðan dag í leiðinni.
Stýrihópur Fagnámskeiðsins skipulagði ferðina í samvinnu við stjórnendur HSSA og Heimaþjónustudeildar. Sveitamennt styrkti ferðina sem gerði hópnum kleift að leigja Fokker 50 flugvél Flugfélags Íslands til ferðarinnar og rútu frá Guðmundi Tyrfingssyni í Reykjavík sem kom hópnum á milli staða.
Lesa meira
Heilbrigðisstofnunni hefur borist höfðingleg gjöf frá styrktarsjóði Kiwanisumdæmisins á Islandi og Færeyjum.
Lesa meira
Síðasta vetrardag þann 18. apríl n.k. verður vetur konungur kvaddur.
Af því tilefni sláum við upp dansleik á hjúkrunardeildinni.
Hljómsveitin Hilmar og fuglarnir munu leika fyrir dansi.
Aðstandendur heimilisfólks eru hvattir til að mæta og taka sporið með sínu fólki.
Dansleikurinn hefst kl. 15.30.
Heimaþjónustudeild Hornafjarðar óskar eftir starfsfólki í sumarafleysingar í félagslegri heimaþjónustu/ heimilishjálp og dagvist aldraðara í Ekru.
Einnig óskast sjúkraliði í afleysingu í heimahjúkrun.
Upplýsingar um störfin gefur Ester Þorvaldsdóttir hjúkrunarstjóri á heilsugæslusviði í síma 470 8600 eða netfang ester@hssa.is
HSSA óskar eftir starfsmanni við sumarafleysingar í ræstingum á hjúkrunardeil frá 16. júlí n.k. Vinnutími frá 8-14 og 3ja hver helgi.
Upplýsingar gefur Ásgerður K. Gylfadóttir hjúkrunarstjóri á hjúkrunarsviði í síma 470 8630 eða netfang asgerdur@hssa.is
Starfsmaður óskast til aðstoðar umsjónarmanni HSSA. Í starfinu felst m.a. garðvinna og viðhald undir leiðsögn umsjónarmanns. Æskilegt er að umsækjendur hafi bílpróf.
Upplýsingar gefur Andrés Júlíusson umsjónarmaður fasteigna HSSA í síma 861 8452 og netfang andres@hssa.is.
Lesa meira