Nýir hornfirðingar 2011
Heyrst hefur að bæjarbúar velti fyrir sér hve stór árgangur 2011 hafi verið!
Nú er ljóst að það fæddust 22 hornfirsk börn árið 2011.
Kynjahlutfallið var býsna ójafnt að þess sinni því að það voru 16 drengir en einungis 6 stúlkur sem litu dagsins ljós þetta árið.
Árið 2012 fer vel af stað því að von er á 8 börnum í janúar og febrúar.
Öllum hraustum konum í eðlilegri meðgöngu stendur til boða að fæða hér á staðnum, annaðhvort í þeirri fæðingaaðstöðu sem við höfum hér á HSSA eða heima hjá sér kjósi þær það heldur. Fyrir þær konur sem uppfylla þau skilyrði sem eru fyrir fæðingu utan spítala er það örugg, ódýr, auðveld og fyrirhafnarlaus leið fyrir fjölskylduna að eignast barn hér á Hornafirði.
Til gamans viljum við benda á að hér má sjá yngstu kynslóð hornfirðinga.

![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)



Skrifa athugasemd