Fréttir HSSA
Jólaball 28.12.2011
Jólaball 28.12.2011
Dansað við undirleik jólasveins.
Mynd 7 af 7
1 2 3 4 5 6 7

29.12.2011

Jólahald á hjúkrunardeild.

Í kringum jólin er brugðið út af venjulegu heimilishaldi á hjúkrunardeildinni eins og á öðrum heimilum. Flest heimilisfólk getur ekki sótt viðburði utan heimilisins og kemur það sér þá vel að bein tenging er í gegnum sjónvarp við Hafnarkirkju. Þannig geta íbúar tekið þátt í aðventukvöldi og jólatónleikum í Hafnarkirkju og messuhaldi svo eitthvað sé nefnt.

Ýmsilegt er gert til að færa jólin til íbúa. Jólasamvera var haldin 22. desember í samvinnu við góða gesti. Samkórinn og Karlakórinn Jökull hafa verið hjá okkur og börn úr Tónskóla Hornafjarðar.

Í gær 28. desember var haldið árlegt jólaball starfsmanna HSSA á deildinni var þá margt góðra gesta og kíktu þrír jólasveinar til okkar.

Auk þeirra sem upp eru taldir hafa fjölmargir aðrir verið með okkur, leikið á hljóðfæri lesið úr bókum og veitt okkur nærveru með ýmsu móti. heimilisfólk og starfsmenn hjúkrunar- og sjúkradeildar þakka þeim fjölmörgu sem átt hafa með okkur þessar góðu stundir kærlega fyrir samvinnuna.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica