Fréttir HSSA
Séra Karl Matthíasson og Ágústa Vignisdóttir
Góður gestur
Mynd 7 af 7
1 2 3 4 5 6 7

27.12.2011

Aðventan í dagvist, Ekru.

Á aðventunni hefur verið mikið að gera í dagvist eins og á öðrum stöðum. Eldri borgarar sem sækja dagvistina í Ekru hafa verið að vinna með mósaík, handavinnu að mála og ýmislegt fleira.

Bæjarbúum hefur gefist tækifæri á að sjá handverk fólksins á sýningum í menningarmiðstöðinni og á sýningu í ráðhúsinu.

Góðir gestir hafa sótt dagvistina heim á aðventunni sem og aðra daga. Þar má t.d. nefna leikskólabörn sem sýndu helgileik og settu upp jólasveinahúfur.

Jólabingóið var á sýnum stað og þökkum við kærlega stuðninginn við gjafir í jólabingóinu.

Hér til hliðar eru nokkrar myndir frá dagvistinni en starffólkið er duglegt að taka myndir og má sjá þær hér til hliðar undir tenglinum myndir - dagvist.

Gleðilega hátíð og farsælt komandi ár!

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica