Beint í leiðarkerfi vefsins.
Í haust hafa um 20 starfsmenn HSSA og hjá Málefnum fatlaðra sótt starfstengt námskeið einu sinni í viku. Áherslurnar voru annars vegar tengdar öldrun, sjúkdómum og fötlunum og hins vegar siðfræði, samskiptum og áherslum í nútíma þjónustu við fólk hvernig sem það er statt í lífinu.
Lesa meira
Fullveldisdagurinn var haldinn hátíðlegur á hjúkrunardeildinni með dansleik. Hljómsveitin Hilmar og fuglarnir léku fyrir dansi við mikla ánægju heimilsfólks og gesta.
Viðburðir sem þessir létta lund og kæta enda er takmarkað hvað heimilisfólk getur sótt af viðburðum á aðventunni út í bæ. Því er mjög gaman að fá góða gesti og skemmta sér saman.
Lesa meira
Fyrsta inflúensutilfelli vetrarins hefur verið staðfest á veirufræðideild Landspítala. Inflúensan greindist í íslenskum ferðamanni sem var að koma frá Suður-Asíu og er af stofni inflúensu A(H3) sem hefur valdið árlegri inflúensu síðastliðna áratugi.
Lesa meira