Fréttir HSSA
Kiwanis
Kiwanis
Kiwanis

30.09.2011

Kiwanis gefur heyrnamælitæki til skólaheilsugæslu.

Um sl. helgi héldu Kiwanis menn og konur, í umdæminu Ísland-Færeyjar 41. umdæmisþing hér á Höfn. Í tilefni þingsins ákvað styrktarsjóður Kiwanis að gefa nýtt heyrnarmælitæki fyrir skólahjúkrun á Hornafirði en eldra tækið var ónothæft.

Við setningu þingsins afhenti Björn Ágúst Sigurjónsson formaður styrktarsjóðsins Jónu Báru Jónsdóttur skólahjúkrunarfræðingi tækið með óskum um að það komi sér vel vegna heilsugæslu barna á Hornafirði.

HSSA þakkar Kiwanis kærlega fyrir góða gjöf sem mun nýtast vel í skólaheilsugæslu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica