Alþjóðlegi hjartadagurinn
Sunnudaginn 25. september
Sunnudaginn 25. september n.k er hinn árlegi Alþjóðlegi hjartadagur haldinn hátíðlegur. Að því tilefni hvetjum við alla til að huga að hreyfingu og hollu mataræði. Hjartaheill í samstarfi við Heilaheill og Hjartavernd standa fyrir hjartadagshlaupi 5 og 10 km í Kópavogi sem hægt er að skrá sig í á www.hlaup.is Einnig verður u.þ.b. 3. km ganga sem allir eru velkomnir í. Engin skráning fer fram í hana fólk þarf aðeins að mæta. Hlaupið hefst kl.10:00, en gangan fer af stað kl. 10:30. Hlaupið og gangan fara fram við Kópavogsvöll v/ Dalsmára.

![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)



Skrifa athugasemd