Vinnu- og hugmyndafundur um uppbyggingu og framtíð heilbrigðis- og öldrunarþjónustu á svæðinu við Víkurbraut.
í Ekrunni í dag 9. september frá kl. 13-16
Fundurinn er liður í hugmyndavinnu við stefnumótun HSSA og bæjarstjórnar, einnig fyrstu skref umhverfis- og skipulagsnefndar og bæjarstjórnar að ræða heildarskipulag svæðisins umhverfis HSSA og Ekru. Tilgangurinn er einnig að leiða saman marga aðila til þess að horfa á framtíðarskipulag og uppbyggingar möguleika svæðisins.
Dagskrá:
1. Setning og kynning á stefnumótunarvinnu HSSA og bæjarstjórnar.
2. Innlegg frá Glámu-Kím arkitektum um skipulag og uppbyggingu svæðisins.
3. Innlegg frá Húsnæðissamvinnufélaginu Búmönnum um þeirra sýn og lausnir.
4. Innlegg frá HSSA um þjónustu á svæðinu í dag og horft til framtíðar.
5. Innlegg frá Félagi eldri hornfirðinga um þeirra sýn á starfsemi og uppbyggingu svæðisins.
6. Umræður.
Fundarstjórar: Ásgeir Gunnarsson, formaður stjórnar HSSA og Gísli Sverrir Árnason, ráðgjafi hjá R3-Ráðgjöf.
Fundurinn er opinn almenningi.
![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)



Skrifa athugasemd