Beint í leiðarkerfi vefsins.
Þann 23. ágúst sl. fæddist þessi myndarlegi drengur á HSSA. Hann var 4,100gr og 55 cm. Foreldarar hans eru Matthildur Ásmundardóttir og Hjálmar Sigurðsson. Starfsfólk HSSA óskar þeim Möttu, Hjálmari, Tómasi Orra og Elínu Ásu til hamingju með drenginn.
Lesa meira
Sá hópur fólks sem flokkast sem aldraðir er mjög misleitur og jafnvel fjölbreyttari en aðrir aldurshópar, enda samansettur af mótuðum einstaklingum með fjölbreytta reynslu. Hver einstaklingur hefur lifað sínu lífi og mótast af því. Hækkandi aldur fer mis mjúklega með einstaklinginn og miklar breytingar eiga sér stað. Breytingar eins og líkamlegir eða andlegir sjúkdómar, missir og sorg eða búferlaflutningar þar sem fólk flytur í minna eigið húsnæði eða það flytur úr sínu húsnæði og inn á hjúkrunar eða dvalarheimili.
Lesa meira