Beint í leiðarkerfi vefsins.
Um sl. helgi héldu Kiwanis menn og konur, í umdæminu Ísland-Færeyjar 41. umdæmisþing hér á Höfn. Í tilefni þingsins ákvað styrktarsjóður Kiwanis að gefa nýtt heyrnarmælitæki fyrir skólahjúkrun á Hornafirði en eldra tækið var ónothæft.
Við setningu þingsins afhenti Björn Ágúst Sigurjónsson formaður styrktarsjóðsins Jónu Báru Jónsdóttur skólahjúkrunarfræðingi tækið með óskum um að það komi sér vel vegna heilsugæslu barna á Hornafirði.
Lesa meira
Í lok árs 2010 samþykkti Alþingi að veita fjármagni til HPV-bólusetningar gegn leghálskrabbameini frá og með árinu 2011 sem hluta af barnabólusetningum.
Veturinn 2011-2012 verður stúlkum sem fæddar eru 1998 og 1999 boðin þessi bólusetning og í framtíðinni verður hún í boði fyrir stúlkur í 7. bekk.
Eldri stúlkur eiga kost á að fá bóluefnið gegn lyfseðli og með því að greiða fyrir það.
Lesa meiraFundurinn er liður í hugmyndavinnu við stefnumótun HSSA og bæjarstjórnar, einnig fyrstu skref umhverfis- og skipulagsnefndar og bæjarstjórnar að ræða heildarskipulag svæðisins umhverfis HSSA og Ekru.
Lesa meira
Þann 23. ágúst sl. fæddist þessi myndarlegi drengur á HSSA. Hann var 4,100gr og 55 cm. Foreldarar hans eru Matthildur Ásmundardóttir og Hjálmar Sigurðsson. Starfsfólk HSSA óskar þeim Möttu, Hjálmari, Tómasi Orra og Elínu Ásu til hamingju með drenginn.
Lesa meira
Sá hópur fólks sem flokkast sem aldraðir er mjög misleitur og jafnvel fjölbreyttari en aðrir aldurshópar, enda samansettur af mótuðum einstaklingum með fjölbreytta reynslu. Hver einstaklingur hefur lifað sínu lífi og mótast af því. Hækkandi aldur fer mis mjúklega með einstaklinginn og miklar breytingar eiga sér stað. Breytingar eins og líkamlegir eða andlegir sjúkdómar, missir og sorg eða búferlaflutningar þar sem fólk flytur í minna eigið húsnæði eða það flytur úr sínu húsnæði og inn á hjúkrunar eða dvalarheimili.
Lesa meira