Fréttir HSSA
Stjórn HSSA, kjörnir fulltrúar, starfsmenn og ráðgjafi.
hopmynd

17.06.2011

Kynnisferð vegna stefnumótunar HSSA

Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands ásamt fulltrúa starfsmanna, framkvæmdaráði HSSA og ráðgjafa frá R3-ráðgjöf, lögðu land undir fót dagana 6 til 8 júní. Tilgangur ferðarinnar var að skoða aðbúnað og húsnæði nokkurra heilbrigðisstofnana á suður- og vesturlandi. Heimilin, stofnanirnar sem heimsótt voru, eru Klausturhólar Klaustri, Lundur Hellu, Ás Hvergerði, Jaðar Ólafsvík, Dvalarheimili aldraðra Borgarnesi, heilsugæslan Mosfellsbæ, Hjúkrunarheimili Hrafnistu við Boðaþing, Hjúkrunarheimili Grundar í Mörkinni og Heilbrigðisstofnun Suðurlands Selfossi. Einnig áttum við fund í Velferðarráðuneytinu með Guðbjarti Hannessyni ráðherra. Alls staðar var tekið á móti hópnum af mikilli gestrisni og hlýhug, lærðum við mikið af þessum heimsóknum. Mikil uppbygging á sér stað í hjúkrunarheimilum og er víðast hvar búið að útrýma fjölbýlum, eða stefnt að því á næstu misserum. Skoðunarferðin er mikilvægt innlegg í stefnumótunarvinnuna sem verið er að vinna í heilbrigðis- og öldrunarmálum hér í sveitarfélaginu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica