Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands ásamt fulltrúa starfsmanna, framkvæmdaráði HSSA og ráðgjafa frá R3-ráðgjöf, lögðu land undir fót dagana 6 til 8 júní. Tilgangur ferðarinnar var að skoða aðbúnað og húsnæði nokkurra heilbrigðisstofnana á suður- og vesturlandi. Heimilin, stofnanirnar sem heimsótt voru, eru Klausturhólar Klaustri, Lundur Hellu, Ás Hvergerði, Jaðar Ólafsvík, Dvalarheimili aldraðra Borgarnesi, heilsugæslan Mosfellsbæ, Hjúkrunarheimili Hrafnistu við Boðaþing, Hjúkrunarheimili Grundar í Mörkinni og Heilbrigðisstofnun Suðurlands Selfossi. Einnig áttum við fund í Velferðarráðuneytinu með Guðbjarti Hannessyni ráðherra.
Lesa meira