Fréttir HSSA
HSSAlogo
HSSAlogo

03.05.2011

Vilt þú taka þátt í stefnumótun í heilbrigðis- og öldrunarmálum?

Heilbrigðisstofnun Suðausturlands (HSSA) hefur nú hafið vinnu við mótun stefnu í heilbrigðis- og öldrunarmálum í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir næsta áratuginn. Gísli Sverrir Árnason hjá R3-Ráðgjöf stýrir verkefninu ásamt stjórn stofnunarinnar. Leitast verður við að móta áherslur fyrir HSSA sem nýtast við framtíðaruppbyggingu og alla starfsemi. Eitt af markmiðum verkefnisins er að leita eftir viðhorfum og áherslum íbúa sveitarfélagsins í þessum málaflokki. Í þessu skyni verður myndaður sérstakur rýnihópur íbúanna og er hér með óskað eftir áhugasömum einstaklingum til þess að taka þátt í vinnufundi rýnihópsins sem verður miðvikudaginn 18. maí kl. 16:00 – 19:00. Leitað er eftir einstaklingum af báðum kynjum, á ólíkum aldri og með búsetu bæði í dreifbýli og þéttbýli sveitarfélagsins. Áhugasamir gefi sig fram við HSSA fyrir 13. maí í síma 470 8600 eða með tölvupósti á netfanginu: hssa@hssa.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica