Fréttir HSSA
Fagnamskeid-2
Fagnamskeid-2
Útskriftarhópur úr Fagnámskeiði 2 30. mars 2011

04.04.2011

Útskrift af Fagnámskeiði fyrir starfsmenn í Heilbrigðis- og félagsþjónustu.

Frá áramótum hafa tæplega 20 starfsmenn HSSA og hjá Málefnum fatlaðra sótt starfstengt námskeið einu sinni í viku. Áherslurnar voru annars vegar tengdar öldrun, sjúkdómum og fötlunum og hins vegar siðfræði, samskiptum og áherslum í nútíma þjónustu við fólk hvernig sem það er statt í lífinu. Samkvæmt því sem lesa má úr mati þátttakendanna voru þeir almennt ánægðir með námið og töldu að það myndi stuðla að því að þeir gætu sinnt störfum sínum af meiri fagmennsku. Þekkingarnetið sá um framkvæmd námskeiðsins, það var styrkt af Landsmennt sem er fræðslusjóður Samtaka atvinnulífsins og FAS metur það til eininga inn í nám á framhaldsskólastigi. Þessi hópur sem útskrifaðist úr náminu sl. miðvikudag er helmingur þess starfsmannahóps sem situr námskeiðið. Hinn helmingurinn mun sækja sama námskeið á hausti komanda.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica