Fréttir HSSA

Zoila Ýr 19.04.2011

Zoila Ýr er fædd! - 26.04.2011 Fréttir HSSA

Þessi myndarlega stúlka sem fengið hefur nafnið Ziola Ýr Pepito Mantilla fæddist þann 19. apríl sl. Hún var 3.000gr og 48cm. Foreldarar Zoilu Ýrar eru Amor Joy Magno Pepito og Bobby Falcon Mantilla. Lesa meira
 
Hólmarsdóttir f.13.04.2011

Stúlka Hólmarsdóttir er fædd! - 19.04.2011 Fréttir HSSA

Þessi myndarlega stúlka fæddist þann 13. apríl sl. Hún var 3.030gr og 48 cm við fæðingu. Foreldar dömunnar eru Heiða Vilborg Sigurbjörnsdóttir og Hólmar Unnsteinsson.

Lesa meira
 
HSSA_logo

Fundur með rekstraraðilum hjúkrunarheimila í heilbrigðisumdæmi Suðurlands - 15.04.2011 Fréttir HSSA

Samráðsnefnd heilbrigðisumdæmis Suðurlands fundaði í gær 14. apríl með rekstararaðilum hjúkrunarheimila í umdæminu. Fundurinn var haldinn á Hvolsvelli og voru Guðrún Júlía Jónsdóttir framkvæmdarstjóri sem situr í samráðsnefndinni og Ásgerður K. Gylfadóttir hjúkrunarstjóri á hjúkrunarsviði á fundinum.

 

Megin dagskrá fundarins var um vistunarmat og lyfjanotkun á hjúkrunarheimilum. Einnig var rætt um hugsanlega samstarfsverkefni milli heimila og samskipti við ríkisvaldið. 

Þá spurðist framkvæmdastjóri HSSA um aðbúnað á hjúkrunarheimilum í umdæminu með tilliti til einbýla og fjölbýla. Þar kom fram að hvergi er hlutfall einbýla jafn lágt og á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands en þau eru tvö af sextán herbergjum hjá okkur.

Lesa meira
 
Fagnamskeid-2

Útskrift af Fagnámskeiði fyrir starfsmenn í Heilbrigðis- og félagsþjónustu. - 04.04.2011 Fréttir HSSA

Frá áramótum hafa tæplega 20 starfsmenn HSSA og hjá Málefnum fatlaðra sótt starfstengt námskeið einu sinni í viku. Áherslurnar voru annars vegar tengdar öldrun, sjúkdómum og fötlunum og hins vegar siðfræði, samskiptum og áherslum í nútíma þjónustu við fólk hvernig sem það er statt í lífinu. Samkvæmt því sem lesa má úr mati þátttakendanna voru þeir almennt ánægðir með námið og töldu að það myndi stuðla að því að þeir gætu sinnt störfum sínum af meiri fagmennsku. Lesa meira
 
Hjúkrunardeild

Sumarvinna á HSSA! - 02.04.2011 Fréttir HSSA

Nú erum við farin að huga að sumrinu og ráðningu afleysingafólks.

Þau störf sem eru í boði er umönnun í vaktavinnu á bæði hjúkrunar- og sjúkradeild og dvalardeild. Vaktavinna í eldhúsi og í ræstingu. Félagsstarf með öldruðum á hjúkrunar- og sjúkradeild og í dagvist. Móttökuritari á heilsugæslu og starfsmaður í félagslegri heimaþjónustu þ.e. heimilishjálp.

Lesa meira
 

 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknis eftir lokun skiptiborðs er 865 8900.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica