Fréttir HSSA
Þorrablót 2011
Þorrablót 2011
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

01.02.2011

Þorrablót heimilisfólks HSSA

Það var mikið fjör og gaman á hjúkrunar- og sjúkradeild HSSA sl. fimmtudag. Þá var haldið árlegt þorrablót heimilisfólks. Að sjálfsögðu var boðið uppá þorramat, skemmtidagskrá og svo dansað á meðan þróttur leyfði. Góðir gestir tóku þátt í skemmtidagskránni sem séra Sigurður kr. Sigurðsson stjórnaði. Stakir jakar sungu undir stjórn Guðlaugar Hestnes, Guðbjartur Össurarson flutti gamanmál, Agnes Ingvarsdóttir og Snorri Snorrason fluttu minni kvenna og karla. Hljómsveitin Hilmar og fuglarnir léku svo undir dansi og fengu Sædísi Stefánsdóttur sem gestasöngvara. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var þetta mjög gaman og þökkum við öllum þeim sem eyddu deginum með okkur fyrir komuna en auk þeirra sem upp eru taldir skemmtu aðstandendur heimilsfólks sér með okkur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknavaktar eftir lokun skiptiborðs er 112.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica