Fréttir HSSA

Nýtt lógó HSSA
Nýtt lógó HSSA

31.01.2011

Hópleit Krabbameinsfélags Íslands

Í mars nk. verður legháls- og brjóstakrabbameinsleit á vegum Krabbameinsfélags Íslands á Hornafirði. Þær konur sem eiga að koma í skoðun verða látnar vita með bréfi frá félaginu.

Breytingar hafa verið gerðar á starfsreglum leitarinnar en bil milli frumustroka við hópleit hefur verið lengt úr tveimur árum í fjögur ár hjá konum 40 ára og eldri, svo fremi þessar konur hafi fyrir þann aldur verið með fimm eðlileg frumustrok og þar af tvö á síðustu sex árum.

Engar breytingar hafa verið gerðar varðandi brjóstamyndatökur. Það skal ítrekað að allar konur sem koma eiga í skoðun fá bréf þar að lútandi.

Á vef Krabbameinsfélagisns http://krabb.is má nálgast upplýsingar og fræðslu um allt er tengist þessum málum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknis eftir lokun skiptiborðs er 865 8900.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica