Fréttir HSSA

drengur Gunnarsson f. 04.01.12

Fyrsta barn ársins 2012 - drengur Gunnarsson! - 10.01.2012 Fréttir HSSA

Þann 4. janúar sl. fæddist fyrsti Hornfirðingur ársins á heimili sínu hér á Höfn. Drengurinn var 3.720 gr og 51 cm. Foreldrar hans eru Guðbjörg Guðlaugsdóttir og Gunnar Ingi Valgeirsson. En til gamans má geta þess að Guðbjörg náði því einnig að vera fyrsti Hornfirðingur síns fæðingarárs!

Lesa meira
 
Valgeirsdóttir f.10.05.2011

Nýir hornfirðingar 2011 - 03.01.2012 Fréttir HSSA

Heyrst hefur að bæjarbúar velti fyrir sér hve stór árgangur 2011 hafi verið!

 

Lesa meira
 
drengur Bjarnason f.18. 12 2011

drengur Bjarnason fæddur 18. des 2011! - 03.01.2012 Fréttir HSSA

Þessi myndarlegi drengur fæddist þann 18. desember 2011. Áætlaður fæðingardagur var í byrjun janúar svo honum lá heilmikið á að koma í heiminn! Drengurinn var 3.570gr og 51 cm við fæðingu. Foreldrar eru Erla Rún Guðmundsdóttir og Bjarni Ingvar Bergsson.

Lesa meira
 
Jólasveinn og Snorri Gíslason

Jólahald á hjúkrunardeild. - 29.12.2011 Fréttir HSSA

Í kringum jólin er brugðið út af venjulegu heimilishaldi á hjúkrunardeildinni eins og á öðrum heimilum. Flest heimilisfólk getur ekki sótt viðburði utan heimilisins og kemur það sér þá vel að bein tenging er í gegnum sjónvarp við Hafnarkirkju.

Þannig geta íbúar tekið þátt í aðventukvöldi og jólatónleikum í Hafnarkirkju og messuhaldi svo eitthvað sé nefnt. Ýmsilegt er gert til að færa jólin til íbúa.

Jólasamvera var haldin 22. desember í samvinnu við góða gesti. Samkórinn og Karlakórinn Jökull hafa verið hjá okkur og börn úr Tónskóla Hornafjarðar.

Í gær 28. desember var haldið árlegt jólaball starfsmanna HSSA á deildinni var þá margt góðra gesta og kíktu þrír jólasveinar til okkar.

Lesa meira
 
Englakól leikskólabarna

Aðventan í dagvist, Ekru. - 27.12.2011 Fréttir HSSA

Á aðventunni hefur verið mikið að gera í dagvist eins og á öðrum stöðum. Eldri borgarar sem sækja dagvistina í Ekru hafa verið að vinna með mósaík, handavinnu að mála og ýmislegt fleira.

Lesa meira
 
jolamynd

Lyfjaendurnýjanir - opnunartími heilsugæslu. - 20.12.2011 Fréttir HSSA

Nú þegar jólin eru á næsta leiti viljum við minna ykkur á að endurnýja lyf í tíma.

Einnig er vert að vekja athygli á að þeir sem hafa hækkaðan blóðþrýsting eða hjartasjúkdóma ættu að gæta hófsemi í neyslu reyktra og saltaðrar matvöru.

 

Athugið að lokað er á heilsugæslunni á Þorláksmessu.

Vaktþjónusta í síma 8658900.

Lesa meira
 
drengur Sævarsson f.26.11.11

Ægir Þór Sævarsson er fæddur! - 12.12.2011 Fréttir HSSA

Þessi myndarlegi drengur fæddist þann 26. nóvember sl. Hann var 18 merkur og 54 cm við fæðingu. Foreldrar drengsins eru Hulda Björk Svansdóttir og Sævar R. Guðmundsson.

Lesa meira
 
d-vitamin

D-vítamin (öðru nafni kalsíferól) - 06.12.2011 Fréttir HSSA

Skortur á D vítamíni er frekar algengur vandi hér á landi. Í mörgum frumum líkamans ( t.d. hjarta – bris –tauga – ónæmis og beinfrumum) eru viðtakar fyrir D vítamín.

 

Lesa meira
 
Fagnámskeid hópur 2

Útskrift af Fagnámskeiði fyrir starfsmenn í Heilbrigðis- og félagsþjónustu. - 02.12.2011 Fréttir HSSA

Í haust hafa um 20 starfsmenn HSSA og hjá Málefnum fatlaðra sótt starfstengt námskeið einu sinni í viku. Áherslurnar voru annars vegar tengdar öldrun, sjúkdómum og fötlunum og hins vegar siðfræði, samskiptum og áherslum í nútíma þjónustu við fólk hvernig sem það er statt í lífinu.

Lesa meira
 
1. des skemmtun 2011

Dansað inní desember. - 02.12.2011 Fréttir HSSA

Fullveldisdagurinn var haldinn hátíðlegur á hjúkrunardeildinni með dansleik. Hljómsveitin Hilmar og fuglarnir léku fyrir dansi við mikla ánægju heimilsfólks og gesta.

Viðburðir sem þessir létta lund og kæta enda er takmarkað hvað heimilisfólk getur sótt af viðburðum á aðventunni út í bæ. Því er mjög gaman að fá góða gesti og skemmta sér saman.

Lesa meira
 
Bolusetning 2009

Inflúensan er komin til landsins! - 02.12.2011 Fréttir HSSA

Fyrsta inflúensutilfelli vetrarins hefur verið staðfest á veirufræðideild Landspítala. Inflúensan greindist í íslenskum ferðamanni sem var að koma frá Suður-Asíu og er af stofni inflúensu A(H3) sem hefur valdið árlegri inflúensu síðastliðna áratugi.

Lesa meira
 
Ólafur Ægir Ólafsson f. 02.11.2011

Ólafur Ægir Ólafsson er fæddur! - 01.12.2011 Fréttir HSSA

Þessi myndar drengur sem fengið hefur nafnið Ólafur Ægir fæddist 2. nóvember sl. Hann var 3.240gr og 49 cm við fæðingu. Foreldrar Ólafs Ægis eru Harpa Særós Magnúsdóttir og Ólafur Jónsson. Lesa meira
 
Pillur

Höfðu frumkvæði að vinnu lyfjagæðavísa - 21.11.2011 Fréttir HSSA

HSSA hefur ásamt nú öðrum hjúkrunar- og dvalarheimilum haft frumkvæði að vinnu lyfjagæðavísa sem hafa nú verið birtir á vef Landlæknis embættisins. Sigurður Helgason læknir aðstoðar starfsmenn HSSA við þessa vinnu og færum við honum kærar þakkir fyrir það.

Lesa meira
 
Dansleikur 19. nóv 2010

Fjölskyldudagur heimilisfólks HSSA - 25.10.2011 Fréttir HSSA

Fimmtudaginn 27. október býður heimilisfólk aðstandendum sínum í heimsókn til að gera sér glaðan dag sama. Boðið hefst kl. 15 en þá mun starfsemin og sú dægrastytting sem er í boði hjá okkur verða kynnt. Einnig verður rætt um gildi heimsókna þegar aldurinn færist yfir og færni minnkar. Spilað verður á harmónikku og sungið með aðstoð góðra gesta.

Lesa meira
 
Ragna Stefánsdóttir og drengur Hjálmarsson

Kynslóðir mætast. - 11.10.2011 Fréttir HSSA

Það er gleði og ánægja á hjúkrunardeildinni þegar lítil börn koma í heimsókn með foreldrum sínum. Meðfylgjandi myndir eru teknar við slík tækifæri. Ragna Stefánsdóttir heldur á syni Matthildar sjúkraþjálfa á annarri myndinni en á hinni er Jóna Margrét að greiða Bertu. Börnin komu með henni í því tilefni sem gleður og kætir heimilisfólk og starfsmenn. Lesa meira
 
Tryggvi Sigurðsson 2

Fyrsti veggur vetrarins á Bókasafninu - 06.10.2011 Menning

Tryggvi Sigurðsson frá Fagurhólsmýri í Öræfum á fyrsta Vegg vetrarins. Tryggvi er fæddur þann 6. Október árið 1931. Hann byrjaði að mála undir leiðsögn í Dagvist eldri borgara á Hornafirði árið 2010 og á veggnum ber að líta hluta af málverkum hans.

Lesa meira
 
Kiwanis

Kiwanis gefur heyrnamælitæki til skólaheilsugæslu. - 30.09.2011 Fréttir HSSA

Um sl. helgi héldu Kiwanis menn og konur, í umdæminu Ísland-Færeyjar 41. umdæmisþing hér á Höfn. Í tilefni þingsins ákvað styrktarsjóður Kiwanis að gefa nýtt heyrnarmælitæki fyrir skólahjúkrun á Hornafirði en eldra tækið var ónothæft.

 

Við setningu þingsins afhenti Björn Ágúst Sigurjónsson formaður styrktarsjóðsins Jónu Báru Jónsdóttur skólahjúkrunarfræðingi tækið með óskum um að það komi sér vel vegna heilsugæslu barna á Hornafirði.

Lesa meira
 
Starfsfólk bólusett

Árleg inflúensubólusetning hefst 3. október n.k. - 28.09.2011 Fréttir HSSA

Bólusetning gegn inflúensu hefst mánudaginn 3 október n.k á heilsugæslustöð Hornafjarðar. Bólusett er virka daga frá kl 11-12. og 13.-14. til 7 október. Eftir það virka daga milli kl 11-12. Ekki þarf að panta tíma. Lesa meira
 
hjartaheill

Alþjóðlegi hjartadagurinn - 23.09.2011 Fréttir HSSA

Sunnudaginn 25. september n.k er hinn árlegi Alþjóðlegi hjartadagur haldinn hátíðlegur. Að því tilefni hvetjum við alla til að huga að hreyfingu og hollu mataræði. Lesa meira
 
Bólusetningar

HPV-bólusetning gegn leghálskrabbameini. - 13.09.2011 Fréttir HSSA

Í lok árs 2010 samþykkti Alþingi að veita fjármagni til HPV-bólusetningar gegn leghálskrabbameini frá og með árinu 2011 sem hluta af barnabólusetningum.

 

Veturinn 2011-2012 verður stúlkum sem fæddar eru 1998 og 1999 boðin þessi bólusetning og í framtíðinni verður hún í boði fyrir stúlkur í 7. bekk.

 

Eldri stúlkur eiga kost á að fá bóluefnið gegn lyfseðli og með því að greiða fyrir það.

Lesa meira
 
Ekran

Vinnu- og hugmyndafundur um uppbyggingu og framtíð heilbrigðis- og öldrunarþjónustu á svæðinu við Víkurbraut. - 09.09.2011 Fréttir HSSA

Fundurinn er liður í hugmyndavinnu við stefnumótun HSSA og bæjarstjórnar, einnig fyrstu skref umhverfis- og skipulagsnefndar og bæjarstjórnar að ræða heildarskipulag svæðisins umhverfis HSSA og Ekru.

Lesa meira
 
drengur Ragnarsson f. 9.8.2011

drengur Ragnarsson er fæddur! - 05.09.2011 Fréttir HSSA

Þessi myndarlegi drengur, sonur Jónu Margrétar Jónsdóttur og Ragnars Más Alfredssonar fæddist þann 9. ágúst sl. Drengurinn var 3,655 gr og 49 cm. Starfsfólk HSSA óskar foreldrum og stóru systur til hamingju með drenginn. Lesa meira
 
drengur Hjálmarsson f. 23.08.2011

drengur Hjálmarsson er fæddur! - 02.09.2011 Fréttir HSSA

Þann 23. ágúst sl. fæddist þessi myndarlegi drengur á HSSA. Hann var 4,100gr og 55 cm. Foreldarar hans eru Matthildur Ásmundardóttir og Hjálmar Sigurðsson. Starfsfólk HSSA óskar þeim Möttu, Hjálmari, Tómasi Orra og Elínu Ásu til hamingju með drenginn.

Lesa meira
 
Steingrímur og Ragnheiður

Listin að eldast með reisn. - 02.09.2011 Fréttir HSSA

Sá hópur fólks sem flokkast sem aldraðir er mjög misleitur og jafnvel fjölbreyttari en aðrir aldurshópar, enda samansettur af mótuðum einstaklingum með fjölbreytta reynslu. Hver einstaklingur hefur lifað sínu lífi og mótast af því. Hækkandi aldur fer mis mjúklega með einstaklinginn og miklar breytingar eiga sér stað. Breytingar eins og líkamlegir eða andlegir sjúkdómar, missir og sorg eða búferlaflutningar þar sem fólk flytur í minna eigið húsnæði eða það flytur úr sínu húsnæði og inn á hjúkrunar eða dvalarheimili.

Lesa meira
 
Halla Sigurðardóttir, Íris Gísladóttir, Ragnheiður Rafnsdóttir og Valgerður Hanna Úlfarsdóttir

Ný útskrifaðir hjúkrunarfræðingar! - 30.08.2011 Fréttir HSSA

Þann 11. júní sl. útskrifuðust þær Halla Sigurðardóttir, Íris Gísladóttir, Ragnheiður Rafnsdóttir og Valgerður Hanna Úlfarsdóttir með BS gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri. Þær stöllur hafa stundað nám sitt í fjarnámi héðan frá Hornafirði síðustu fjögur árin.

 

Við hjá HSSA erum stolt og ánægð með að hafa fengið þær í vinnu sem hjúkrunarfræðinga við stofnunina en Íris staldraði stutt við í þetta sinn. Hún býr nú í Noregi með fjölskyldu sinni og vinnur við hjúkrun þar.

Lesa meira
 
Hjúkrunardeild

Starfsfólk óskast í aðhlynningu á hjúkrunar- og sjúkradeild!! - 23.08.2011 Fréttir HSSA

Starfsfólk óskast í aðhlynningu á hjúkrunar- og sjúkradeild frá og með 1. sept n.k. Um er að ræða vaktavinnu aðra hverja helgi. Tilvalið með námi eða annarri vinnu. Laun eru samkvæmt samningi Sveitarfélagsins við AFL starfsgreinafélag. Starfshlutfall 20%.

Lesa meira
 
drengur Einarsson 12. júlí 2011

drengur Einarsson er fæddur! - 02.08.2011 Fréttir HSSA

Þessi myndarlegi piltur fæddirst þann 12. júlí sl. Hann var 3.430gr og 52 cm við fæðingu. Foreldrar hans eru Eva S. Ragnarsdóttir og Einar Björn Einarsson. Lesa meira
 
Óskarsson f. 5. júlí 2011

Ari Jökull er fæddur! - 02.08.2011 Fréttir HSSA

Þessi myndarlegi drengur sem fengið hefur nafnið Ari Jökull fæddist þann 5. júlí sl. Hann var 3.745 gr og 52 cm við fæðingu. Foreldrar Ara Jökuls eru Íris H. Jóhannsdóttir og Óskar Arason. Lesa meira
 
Dominyka F.28. júní 2011

Dominyka er fædd! - 02.08.2011 Fréttir HSSA

Þessi myndarlega stúlka, Dominyka fæddist þann 28. júní sl. Hún var 2.522 gr og 48 cm. Foreldrar hennar eru Vita Mogylaite og Marius Kaminkas.

Lesa meira
 
hjolagarpurinn

Hjólað kringum landið - dagbókarfærsla. - 08.07.2011 Fréttir HSSA

Einar Þ. Samúelsson hjólar nú kringum landið undir slagorðinu "Á sumu má sigrast". Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að hjóla svo langa vegalengd.

Á þessari slóð http://asumumasigrast.is/dagbok má fylgjast með dagbók Einars sem núna er staddur á Hornafirði. Á sumu má sigrast er áheitasöfnun fyrir aðstandendur Bjargar Guðmundsdóttur og bróður hennar Kristinn Guðmundssonar.

Lesa meira
 
Stjórn HSSA, kjörnir fulltrúar, starfsmenn og ráðgjafi.

Kynnisferð vegna stefnumótunar HSSA - 17.06.2011 Fréttir HSSA

Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands ásamt fulltrúa starfsmanna, framkvæmdaráði HSSA og ráðgjafa frá R3-ráðgjöf, lögðu land undir fót dagana 6 til 8 júní. Tilgangur ferðarinnar var að skoða aðbúnað og húsnæði nokkurra heilbrigðisstofnana á suður- og vesturlandi. Heimilin, stofnanirnar sem heimsótt voru, eru Klausturhólar Klaustri, Lundur Hellu, Ás Hvergerði, Jaðar Ólafsvík, Dvalarheimili aldraðra Borgarnesi, heilsugæslan Mosfellsbæ, Hjúkrunarheimili Hrafnistu við Boðaþing, Hjúkrunarheimili Grundar í Mörkinni og Heilbrigðisstofnun Suðurlands Selfossi. Einnig áttum við fund í Velferðarráðuneytinu með Guðbjarti Hannessyni ráðherra. Lesa meira
 
Örvarsson f.01.06.2011

Drengur Örvarsson er fæddur! - 10.06.2011 Fréttir HSSA

Þessi myndarlegi drengur fæddist þann 1. júní sl. Hann var 3.730 gr og 51 cm. Foreldrar drengsins eru Elín Dögg Haraldsdóttir og Örvar Hugason. Lesa meira
 
Daniel Már 7. maí 2011

Daniel Már er fæddur! - 25.05.2011 Fréttir HSSA

Þessi myndarlegi drengur sem fengið hefur nafnið Daniel Már fæddist þann 7. maí sl. Hann var 4.520 gr og 54 cm við fæðingu. Foreldrar drengsins eru Joanna Skrzypkowska og Ágúst M. Ágústsson. Lesa meira
 
Hjólað í vinnuna 2011

Hjólað í vinnuna! - 16.05.2011 Fréttir HSSA

Starfsfólk HSSA tekur þátt í átakinu Hjólað í vinnuna. Þessar skemmtilegu myndir voru teknar á plani við starfsmannainngang á hjúkrunardeild nú fyrir helgi. Hjólagrindin full en bílaplanið svo til autt!

Lesa meira
 
loftdýna 2011

Góðar gjafir! - 16.05.2011 Fréttir HSSA

Hjúkrunar- og sjúkradeild HSSA hafa borist góðar gjafir nú síðustu mánuðina og viljum við koma kærum þökkum á framfæri fyrir hlýhug í garð deildarinnar og stofnunarinnar í heild.

Lesa meira
 
Valgeirsdóttir f.10.05.2011

Stúlka Valgeirsdóttir er fædd! - 11.05.2011 Fréttir HSSA

Þessi myndarlega dama fæddist þann 10. maí sl. Hún var 3.480 gr og 50 cm. Foreldarar hennar eru Þórhildur Vala Sigursveinsdóttir og Valgeir Jónsson. Lesa meira
 
Jóna Bára og Ásgerður

Íbúar Sveitarfélagsins eru hvattir til þess að gefa kost á sér - 11.05.2011 Fréttir HSSA

Heilbrigðisstofnun Suðausturlands (HSSA) hefur nú hafið vinnu við mótun stefnu í heilbrigðis- og öldrunarmálum í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir næsta áratuginn.

Lesa meira
 
Jónsdóttir f.06.05.2011

Stúlka Jónsdóttir er fædd! - 10.05.2011 Fréttir HSSA

Þessi myndarlega stúlka fæddist þann 6. maí sl. Hún var 3.470 gr og 49 cm. Foreldrar dömunar eru Katrín S. Guðmundsdóttir og Jón K. Guðmundsson. Lesa meira
 
HSSAlogo

Vilt þú taka þátt í stefnumótun í heilbrigðis- og öldrunarmálum? - 03.05.2011 Fréttir HSSA

Heilbrigðisstofnun Suðausturlands (HSSA) hefur nú hafið vinnu við mótun stefnu í heilbrigðis- og öldrunarmálum í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir næsta áratuginn. Gísli Sverrir Árnason hjá R3-Ráðgjöf stýrir verkefninu ásamt stjórn stofnunarinnar. Leitast verður við að móta áherslur fyrir HSSA sem nýtast við framtíðaruppbyggingu og alla starfsemi. Eitt af markmiðum verkefnisins er að leita eftir viðhorfum og áherslum íbúa sveitarfélagsins í þessum málaflokki.

Lesa meira
 
Zoila Ýr 19.04.2011

Zoila Ýr er fædd! - 26.04.2011 Fréttir HSSA

Þessi myndarlega stúlka sem fengið hefur nafnið Ziola Ýr Pepito Mantilla fæddist þann 19. apríl sl. Hún var 3.000gr og 48cm. Foreldarar Zoilu Ýrar eru Amor Joy Magno Pepito og Bobby Falcon Mantilla. Lesa meira
 
Hólmarsdóttir f.13.04.2011

Stúlka Hólmarsdóttir er fædd! - 19.04.2011 Fréttir HSSA

Þessi myndarlega stúlka fæddist þann 13. apríl sl. Hún var 3.030gr og 48 cm við fæðingu. Foreldar dömunnar eru Heiða Vilborg Sigurbjörnsdóttir og Hólmar Unnsteinsson.

Lesa meira
 
HSSA_logo

Fundur með rekstraraðilum hjúkrunarheimila í heilbrigðisumdæmi Suðurlands - 15.04.2011 Fréttir HSSA

Samráðsnefnd heilbrigðisumdæmis Suðurlands fundaði í gær 14. apríl með rekstararaðilum hjúkrunarheimila í umdæminu. Fundurinn var haldinn á Hvolsvelli og voru Guðrún Júlía Jónsdóttir framkvæmdarstjóri sem situr í samráðsnefndinni og Ásgerður K. Gylfadóttir hjúkrunarstjóri á hjúkrunarsviði á fundinum.

 

Megin dagskrá fundarins var um vistunarmat og lyfjanotkun á hjúkrunarheimilum. Einnig var rætt um hugsanlega samstarfsverkefni milli heimila og samskipti við ríkisvaldið. 

Þá spurðist framkvæmdastjóri HSSA um aðbúnað á hjúkrunarheimilum í umdæminu með tilliti til einbýla og fjölbýla. Þar kom fram að hvergi er hlutfall einbýla jafn lágt og á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands en þau eru tvö af sextán herbergjum hjá okkur.

Lesa meira
 
Fagnamskeid-2

Útskrift af Fagnámskeiði fyrir starfsmenn í Heilbrigðis- og félagsþjónustu. - 04.04.2011 Fréttir HSSA

Frá áramótum hafa tæplega 20 starfsmenn HSSA og hjá Málefnum fatlaðra sótt starfstengt námskeið einu sinni í viku. Áherslurnar voru annars vegar tengdar öldrun, sjúkdómum og fötlunum og hins vegar siðfræði, samskiptum og áherslum í nútíma þjónustu við fólk hvernig sem það er statt í lífinu. Samkvæmt því sem lesa má úr mati þátttakendanna voru þeir almennt ánægðir með námið og töldu að það myndi stuðla að því að þeir gætu sinnt störfum sínum af meiri fagmennsku. Lesa meira
 
Hjúkrunardeild

Sumarvinna á HSSA! - 02.04.2011 Fréttir HSSA

Nú erum við farin að huga að sumrinu og ráðningu afleysingafólks.

Þau störf sem eru í boði er umönnun í vaktavinnu á bæði hjúkrunar- og sjúkradeild og dvalardeild. Vaktavinna í eldhúsi og í ræstingu. Félagsstarf með öldruðum á hjúkrunar- og sjúkradeild og í dagvist. Móttökuritari á heilsugæslu og starfsmaður í félagslegri heimaþjónustu þ.e. heimilishjálp.

Lesa meira
 
Franz Reynir 16.03.2011

Franz Reynir er fæddur! - 30.03.2011 Fréttir HSSA

Þessi myndarlegi drengur sem fengið hefur nafnið Franz Reynir fæddist þann 16. mars sl. Hann var 3.730gr og 51 cm. Foreldrar hans eru Elisabeth Kruger og Rögnvaldur Reynisson.

Lesa meira
 
Gísli Sverrir Árnason og Ásgeir Gunnarsson

Stefnumótun HSSA - 29.03.2011 Fréttir HSSA

Í dag 29. mars skrifuðu Ásgeir Gunnarsson formaður Stjórnar HSSA og Gísli Sverrir Árnason hjá R3-Ráðgjöf ehf undir samning um stefnumótunarvinnu fyrir Heilbrigðisstofnun Suðausturlands.

Lesa meira
 
drengur Sigurjónsson 11.03.2011

Drengur Sigurjónsson er fæddur! - 17.03.2011 Fréttir HSSA

Þessi myndarlegi drengur fæddist þann 11. mars sl. Hann var 3345 gr og 50 cm við fæðingu. Foreldrar drengsins eru Jóna Stína Bjarnadóttir og Sigurjón M. Skúlason. Lesa meira
 
Matthias Guðmundsson f. 28.02.2011

Matthias er fæddur! - 14.03.2011 Fréttir HSSA

Þessi myndarlegi drengur sem fengið hefur nafnið Matthias fæddist þann 28. febrúar sl. hann var 4.155gr og 53 cm við fæðingu. Foreldrar Matthiasar eru Mahder Zewdu Kebede og Guðmundur Ragnarsson. Lesa meira
 
Stúlka Gudmundsdóttir f. 17/2 2011

Stúlka Guðmundsdóttir er fædd! - 01.03.2011 Fréttir HSSA

Þessi myndarlega stúlka fæddist þann 17. febrúar sl. Hún var 3.205 gr og 51 cm. Foreldrar hennar eru Heiðrún Högnadóttir og Guðmundur Gunnarsson. Lesa meira
 
drengur Björnsson f.08.02.2011

Drengur Björnsson er fæddur! - 15.02.2011 Fréttir HSSA

Þessi myndarlegi drengur fæddist þann 8. febrúar sl. Hann var 3.175gr og 50cm við fæðingu. Foreldrar hans eru Þórey Bjarnadóttir og Björn B. Þorbergsson. Lesa meira
 

 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknis eftir lokun skiptiborðs er 865 8900.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica