Fréttir HSSA

Ferð til Rvk. 16.04.2012

Kynnisferð starfsmanna til Reykjavíkur! - 27.4.2012 Fréttir HSSA

Mánudaginn 16. apríl skelltu starfsmenn HSSA og Heimaþjónustudeildar sér til Reykjavíkur í útskriftarferð af Fagnámskeiði 2 í heilbrigðis- og félagsþjónustu.

Þetta voru 30 hressar konur sem kynntu sér hina ýmsu starfsemi sem tengjast þeirra störfum og gerðu sér auðvitað glaðan dag í leiðinni.

 

Stýrihópur Fagnámskeiðsins skipulagði ferðina í samvinnu við stjórnendur HSSA og Heimaþjónustudeildar. Sveitamennt styrkti ferðina sem gerði hópnum kleift að leigja Fokker 50 flugvél Flugfélags Íslands til ferðarinnar og rútu frá Guðmundi Tyrfingssyni í Reykjavík sem kom hópnum á milli staða.

Lesa meira
 
Heyrnarmælingatæki frá Kiwanis

Kiwanis gefur heyrnarmælingartæki. - 25.4.2012 Fréttir HSSA

Heilbrigðisstofnunni hefur borist höfðingleg gjöf frá styrktarsjóði Kiwanisumdæmisins á Islandi og Færeyjum.

Lesa meira
 
1. des skemmtun á hjúkrunardeild

Dansleikur á hjúkrunardeild! - 13.4.2012 Fréttir HSSA

Síðasta vetrardag þann 18. apríl n.k. verður vetur konungur kvaddur.

Af því tilefni sláum við upp dansleik á hjúkrunardeildinni.

Hljómsveitin Hilmar og fuglarnir munu leika fyrir dansi.

Aðstandendur heimilisfólks eru hvattir til að mæta og taka sporið með sínu fólki.

Dansleikurinn hefst kl. 15.30.

 

 

Tilkynningar

Enginn viðburður fannst skráður.



Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknis eftir lokun skiptiborðs er 865 8900.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica