Veitingar
Á Hótel Höfn er fjölbreytt veitingaþjónusta. Í boði á matseðlum er allt frá pizzum og upp í klassa steikur og humarétti. Séreinkenni á matseðlum okkar eru humarréttir en þetta svæði er þekkt fyrir humarveiðar og á borðum heimamanna hefur humar verið hversdagsmatur í gegnum tíðina.
Við sinnum hverskyns veisluþjónustu hvort sem það er ferming, erfidrykkja, afmæli og fleira í sölum okkar jafnt sem veislum upp á Vatnajökli, við Jökulsárlón eða út í eyjum hér í firðinum.
Við reynum að sinna öllum óskum sem eru innan skynsemismarka.
Ósinn
Á neðri hæð hótelsins er Ósinn, þar er hægt að fá pizzur, skyndibita, humarrétti og steikur.
Hótelsalur

Á efri hæð hótelsins er huggulegur 150 manna salur með lúxusbar.

![[Málverkasýning Elísabetar Þorsteinsdóttur]](/media/auglysingar/MalverkasyningHnappur.jpg)
![[Barnastarf Menningarmiðstöðvar]](/media/auglysingar/BarnastarfHnappur.jpg)
![[Upplýsingamiðstöð]](/media/auglysingar/infoCenter.jpg)
![[Gönguleiðir í Ríki Vatnajökuls]](/media/auglysingar/GonguferdirHnappur.jpg)
![[Mennning og söfn]](/media/auglysingar/hnappursyningar.jpg)
![[Afþreying]](/media/auglysingar/SundlaugHnappur.jpg)



