Hornfirsk skata aldrei betri en nú
Fyrir margan íslendinginn er skötuát á Þorláksmessu jafn heilagt og hangikjötið er á jólunum. Svo eru aðrir sem loka öllum gluggum og mega ekki heyra á skötuna minnst.
Skötuelskendum til bjargar þá býður Hótel Höfn upp á skötu í hádeginu eins og undanfarin ár. Kokkarnir Óðinn Eymunds, Gísli Már og Dóri hafa staðið í ströngu við undirbúning og segja skötuna í ár vel kæsta og algert góðgæti.
Þess má geta að Dóri kom heim frá Englandi þar sem hann býr nú tímabundið m.a. til að taka þátt í skötuævintýrinu á hótelinu
Allt hráefni sem notað er á hótelinu kemur héðan úr héraði. Allir skötuelskendur sem ekki geta borðað skötu heima í dag geta farið upp á hótel og gætt sér á þessu lostæti og þeir sem ekki vilja skötuna geta farið á pizzahlaðborðið í neðri salnum. Húsið opnar kl. 11:30.

![[Málverkasýning Elísabetar Þorsteinsdóttur]](/media/auglysingar/MalverkasyningHnappur.jpg)
![[Barnastarf Menningarmiðstöðvar]](/media/auglysingar/BarnastarfHnappur.jpg)
![[Upplýsingamiðstöð]](/media/auglysingar/infoCenter.jpg)
![[Gönguleiðir í Ríki Vatnajökuls]](/media/auglysingar/GonguferdirHnappur.jpg)
![[Mennning og söfn]](/media/auglysingar/hnappursyningar.jpg)
![[Afþreying]](/media/auglysingar/SundlaugHnappur.jpg)



