Hótel Höfn

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Fréttir Hótel Höfn
Fiskirí undirbúningur
Fiskirí undirbúningur
Ágúst Reynirsson nemi á Hótel Höfn með ál sem verið er að matreiða fyrir Fiskirí
Mynd 1 af 2
« Fyrri Næsta »
1 2

Fiskirí á Hótel Höfn um helgina

15.09.2006

Nú um helgina 15.-17. september verður efnt til viðamikillar hátíðar, Fiskirís, um allt land. Metfjöldi veitingastaða tekur þátt í hátíðinni, eða áttatíu víðs vegar um land. Fiskmeti og sjávarfang verður í hávegum haft á sérstökum Fiskirís-matseðli þessa helgi. Staðirnir sníða sér stakk eftir vexti og ákveða hvers konar réttir verða í boði og á hvaða verði. Með fjölbreyttri flóru er því unnt að höfða til allrar þjóðarinnar, þannig að hver og einn finni eitthvað við sitt hæfi. Hér í Sveitarfélaginu er það Hótel Höfn sem bíður gestum í smáréttaveislu á "Fiskirí" föstudag, laugardag og sunnudag frá kl. 18 alla dagana. Auk 10 smárétta tapasstemningu bíður hótelið að sjálfsögðu upp á matseðil hússins þar sem er m.a. að finna fisk og humarrétti.


Í viðtali við Fiskirí bæklinginn sem dreift var í öll hús á landinu segir Óðinn Eymundsson að "Humarinn er aðall Hótels Hafnar" enda Höfn aðalhumarveiðipláss landsins frá upphafi en hér var fyrst byrjað að verka humar". Á veitingastaðnum Ósnum á Hótel Höfn er Jón Sölvi Ólafsson yfirkokkur. Hann lifir og hrærist í matreiðslu sjávarrétta og brá sér meira að segja á sjó í nokkur ár til að kynnast enn betur því sem hafið færir okkur og nú leikur hann sér á marga lund með hráefnið. "Sérstök humarsíða er í matseðli Óssins. Þar má velja bæði ódýra og dýra humarrétti: humarpizzu og -pasta, humarborgara og allt upp í smjörsteikta humarhala. Hér er humar fyrir alla! Í ofanálag fær fólk svo að njóta útsýnis sem er engu líkt, jöklarnir skarta sínu fegursta og fjallahringurinn og
Hornafjörðurinn eru engu lík". Ekkert af þessu bregst á Fiskiríi í september segir í vitalinu í lokin.


10 Smáréttirnir sem verða í boði á Hótel höfn eru:

1. Reyktur áll á eggjahræru og rúgbrauði
2. Sjávarétta súpa með nýbökuðu brauði.
3. Steiktur saltfiskur á nýrri kartöflu
4. Marineraður skötuselur í sætum chili-læmsafa
5. Grillaður humar með hvítlaukssósu
6. Hörpuskel í appelsínusósu
7. Humar seyði í bolla
8. Risarækja á marineruðum fetaosti og cherri-tómötum með sætum lauk
9. Ofnbakaður silungur á smjörsteiktu snittubrauði
10.Crembrulle og kaffitár

Kr. 3650.- Borðapantanir í síma 478 1240

Á vefnum; www.fiskiri.is, er hægt að nálgast frekari upplýsingar um þátttakendur
í hátíðinni á landsvísu.

Senda grein

 
Þú ert hér: Forsíða > Ferðaþjónusta > Fyrirtæki > Hótel Höfn > Hótel Höfn > Fréttir Hótel Höfn

Forsíða

  • Fréttir
  • Atvinna
  • Humar
  • Verslanir
  • Félagasamtök
  • Veitingastaðir
  • Fyrirtækjaskrá
  • Pistlar og pólitík
  • Samgöngur
  • Hvar eru þau núna?
  • Myndasafn
  • Létt grín
  • Fuglar
  • Tekinn tali
  • Jólagestir

Tungumál

  • Dansk
  • Deutsch
  • English

Þú ert hér: Forsíða > Ferðaþjónusta > Fyrirtæki > Hótel Höfn > Hótel Höfn > Fréttir Hótel Höfn

Um Hótel Höfn

  • Forsíða Hótel
  • Fréttir Hótel Höfn
  • Ágrip af sögu
  • Staðsetning
  • Gisting
  • Veitingar
  • Myndasafn
  • Ráðstefnur og fundir
  • Hafa samband

Hótel Höfn | Víkurbraut | 780 Hornafirði | TEL 478 1240 | Fax 478 1996 | info@hotelhofn.is

Við vekjum athygli á

[Málverkasýning Elísabetar Þorsteinsdóttur]

Málverkasýning

[Barnastarf Menningarmiðstöðvar]

Barnastarf

[Upplýsingamiðstöð]

Upplýsingamiðstöð

[Gönguleiðir í Ríki Vatnajökuls]

Gönguleiðir

[Mennning og söfn]

Menning og söfn

[Afþreying]

Afþreying

 

Bandarísku heildsalarnir í góðu yfirlæti á Hótel Höfn Hornafjarðarmáninn við Hótel Höfn Pallurinn/ The patio Lobster
Þetta vefsvæði byggir á Eplica