SkjáVarp
Panta auglýsingar
Hægt er að panta auglýsingar hér á vefnum alla daga vikunnar, allan sólarhringinn með því að senda tölvupóst á skjavarp@skjavarp.is eða hringja í 478 1111 alla virka daga frá 09:00 til 17:00. Auglýsing birtist eigi síðar en daginn eftir að hún berst til Hátíðni.
Gott er að í tölvupóstinum sé tekið fram:
- Texti auglýsingar
- Hvenær á auglýsingin að fara í loftið
- Hvaða daga á hún að birtast.
- Ef mynd á að fylgja með í auglýsingunni eða útbúa á bakgrunn þá þarf að senda myndina með sem fylgiskjal ( 1024x768 pix, 72 res) eða senda tengil á hana ef hún er aðgengileg á netinu.
- Hægt er að senda inn hugmynd um hvað á að vera í bakgrunn og við munum sjá til þess að útbúa hann.
Fyrir þá sem vilja senda inn tilbúna auglýsingu:
- Auglýsingin þarf að vera á "jpg" eða "gif" formati og í stærðinni 1024x768 pix og 72 punktar.
- Hægt er að senda bakgrunn og við setjum inn textann á bakgrunninn, ef svo er þá er best að fá textann í tölvuskeytinu (e-mail) eða textaskjal sem fylgiskjal.
- Ath. auðvelt er að breyta texta auglýsingar, dæmi "Viðburður verður á laugardag kl.17 ", á miðnætti föstudags þá breytist texti í útsendingu í "Viðburður verður í dag kl.17".
Tengt efni:



