SkjáVarp

Hornafjörður séð úr lofti

Dreifikerfið

  

SkjáVarp er sent út á sjónvarpssendi yfir Höfn og nágrenni og nær útsending þess til um 96% íbúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Einnig er sent út á sérstakri sjónvarpsrás á Kapalkerfi SjónHorns sem nær um alla Höfn.

Skjávarp er sent út á netinu og er aðgengilegt á forsíðu RíkiVatnajokuls.is ("SkjáVarp í beinni").

Skjávarp næst á öllum sjónvarpstækjum á Hornafirði hvort sem áhorfandi er tengdur kapalkerfinu eða með venjulegt sjónvarpsloftnet.

Með tilkomu útsendingar SkjáVarps á netinu ná nú nær allir íbúar Sveitarfélagsins Hornafjarðar útsendingu SkjáVarps sem og aðrir landsmenn hvar sem þeir eru staddir með internetaðgang.

Til að bæta enn útbreiðslu SkjáVarps þá eru uppsettir Skjávarpsskjáir í öllum helstu þjónustufyrirtækjum á Höfn

Eftirfarandi fyrirtæki eru með SkjáVarpsskjá:

  • Miðbær, verslunarmiðstöð við Litlubrú
  • Nýheimar, sem er aðsetur Menningarmiðstöðvarinnar, Framhaldsskólans, Nýsköpunarmiðstöðvarinnar, Háskólasetursins, Þekkingarnet Austurlands o.fl.
  • Útibú Landsbanka Íslands við Hafnarbraut
  • Sparisjóður Hornafjarðar og nágrennis
  • Söluskáli Olís /Ellingsen við Hafnarbraut
  • Kaffi Hornið, veitingastaður við Hafnarbraut
  • Ráðhús Hornafjarðar við Hafnarbraut
  • Þjónustumiðstöðin við tjaldstæðið
  • Heilbrigðisstofnun Suð-austurlands
  • Íslandspóstur við Hafnarbraut
  • Hótel Höfn, móttaka
  • Verslunin Lónið við Víkurbraut
  • Hornafjarðarflugvöllur, biðsalur farþega.
  • N1 Þjónustustöð við Vesturbraut
  • Sindrahúsið, við Hafnarbraut
  • Heppuskóli, opið rými nemenda
  • Efnalaug/verslun Dóru 

    


 
SkjáVarpsauglýsing SkjáVarpsauglýsing SkjáVarpsauglýsing SkjáVarpsauglýsing
Þetta vefsvæði byggir á Eplica