Hafnarskóli fréttir

Friðarloginn tendraður í Hafnarskóla
Friðarloginn tendraður í Hafnarskóla
Mynd 1 af 2
1 2

Friðarloginn frá Betlehem

19.12.2003

Í gær komu skátar með friðarlogann frá Betlehem í Hafnarskóla.  Þar gáfu þeir nemendum afleggjara af loganum sem logað hefur óslitið frá því um 300 e. K. er hann var kveiktur í Betlehem. Á miðvikudagskvöldið gáfu þeir einnig afleggjara af loganum á tónleikum unga fólksins í Nýheimum. Friðarloginn frá Betlehem er:
 Gjöf
 Ljós sjálfstæðis
 Ljós samhyggju
 Ljós friðar og vináttu 
 Ljós þeirra sem hjálpa
 Ljós fyrir þjáða og einmana
 Ljós skilnings á þörfum hvers annars
 Notaðu það þar sem þú vilt kveikja ljós öðrum til gleði!

Þetta er í annað skiptið sem komið er með friðarlogann til Hornafjarðar en skátahreyfingin stendur fyrir því að koma loganum um landsbyggðina fyrir jólin. Þess á milli er loginn geymdur í Sankti Jósefskirkju. Þar sem jólafrí er að hefjast í skólanum var starfsfólk Hótelsins beðið að varðveita logann næstu daga. Þar geta Hornfirðingar nálgast afleggjara af friðarloganum frá Betlehem næstu daga.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica