Hafnarskóli fréttir

Nokkrir nemendur Hafnarskóla taka lagið
Nokkrir nemendur Hafnarskóla taka lagið
Mynd 1 af 2
1 2

Jólasöngur á sal

08.12.2003

Nemendur Hafnarskóla hittust á sal í hádeginu í dag og sungu saman jólalög. Gaman var að heyra krakkana syngja hvert jólalagið á fætur öðru af mikilli innlifun og oft með miklum raddstyrk. Þetta er í annað skiptið sem krakkarnir stilla saman jólastrengina í söng því s.l föstudag voru jólalögin sungin og er stefnt að því að hittast nokkrum sinnum í viðbót á sal fram að jólum og syngja jólalög, enda fátt betra til að komast í jólaskapið en fallegur söngur.

Í síðustu viku var rithöfundakynning í skólanum og mættu þau Jón Kalmann Stefánsson sem las úr bók sinni Snarkið í stjörnunum og Silja Aðalsteinsdóttir sem las úr Madonnubókunum. Upplestur rithöfunda er árviss viðburður í skólanum og hafa krakkarnir mjög gaman af þessum heimsóknum.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica