Hafnarskóli fréttir
Friðarloginn frá Betlehem
Í gær komu skátar með friðarlogann frá Betlehem í Hafnarskóla. Þar gáfu þeir nemendum afleggjara af loganum sem logað hefur óslitið frá því um 300 e. K. er hann var kveiktur í Betlehem. Á miðvikudagskvöldið gáfu þeir einnig afleggjara af loganum á tónleikum unga fólksins í Nýheimum. Friðarloginn frá Betlehem er:
Gjöf
Ljós sjálfstæðis
Ljós samhyggju
Ljós friðar og vináttu
Ljós þeirra sem hjálpa
Ljós fyrir þjáða og einmana
Ljós skilnings á þörfum hvers annars
Notaðu það þar sem þú vilt kveikja ljós öðrum til gleði!
Þetta er í annað skiptið sem komið er með friðarlogann til Hornafjarðar en skátahreyfingin stendur fyrir því að koma loganum um landsbyggðina fyrir jólin. Þess á milli er loginn geymdur í Sankti Jósefskirkju. Þar sem jólafrí er að hefjast í skólanum var starfsfólk Hótelsins beðið að varðveita logann næstu daga. Þar geta Hornfirðingar nálgast afleggjara af friðarloganum frá Betlehem næstu daga.
