Hafnarskóli fréttir

Krakkar í Hafnarskóla sleppa blöðrunum
Krakkar í Hafnarskóla sleppa blöðrunum

Blöðrur á loft

11.11.2003

Samevrópsk Comeniusarvika er haldin dagana 10. ? 14. nóvember. Af því tilefni voru nokkrir skólar vítt og breytt um Evrópu valdir til að sleppa blöðrum, í því skyni að vekja athygli á því starfi sem unnið er í mörgum skólum. Hafnarskóli er einn af þessum skólum og slepptu krakkarnir á annað hundrað blöðrum á loft kl. 13:10 í dag. Mikill fjöldi var á hólnum við Hafnarskóla og góð stemming og fjör hjá krökkum sem kennurum. Á sama tíma slepptu hinir skólarnir sem valdir voru í Evrópu sínum blöðrum á loft.

Comeniusarvikan er haldin annað hvert ár víðs vegar um Evrópu á vegum framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins. Markmið þessarar viku er að þátttakendur í áætluninni fái tækifæri til að koma niðurstöðum verkefna sinna á framfæri og eins að kynna áætlunina öllu skólafólki. Yfir helmingur íslenskra skóla á grunn- og framhaldsskólastigi hafa tekið þátt í Comeniusar samstarfi með evrópskum skólum.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica