Hafnarskóli fréttir
Fimm úr Hafnarskóla - Nýsköpunarkeppni grunnskóla
Frétt úr Hafnarskóla
Nú dregur til úrslita í Nýsköpunarkeppni Grunnskólanemenda 2003. Inn komu um 2000 hugmyndir. 52 hugmyndir komust áfram eftir yfirferð matsnefndar og er hugmyndasmiðum þessara hugmynda boðið í vinnusmiðjur. Í vinnusmiðjunum vinna þeir áfram með hugmyndir sínar, gera plaköt, sem sett verða á sýningu, líkön og e.t.v. frumgerðir. Verðlaunanefnd fer síðan yfir hugmyndirnar og fer verðlaunaafhending fram þann 5. október í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli v/Vídalínskirkju, Garðabæ kl. 14.00. 9 hugmyndir fá verðlaun og mun Forseti Íslands afhenda verðlaunin.
Eftir verðlaunaafhendinguna verður gengið í Hönnunarsafnið, Lyngási 7-9 Garðabæ, þar sem sýningin verður opnuð. Af þeim 52 hugmyndum sem komust áfram voru 5 úr Hafnarskóla. Það voru þau Aleksandra Vrbaski með örbylgjuofn, Freyr Sigurðarson með bókasjálfsala, Pálmi Geir Sigurgeirsson með sápukúlurafmagnsbíl, Þóra Björg Ingvadóttir með kennaratæki og Andri Snær Þorsteinsson með jólasveinavélmenni sem komust áfram með sínar hugmyndir í vinnusmiðjur. Við í Hafnarskóla erum afskaplega stolt af þessum nemendum okkar sem og nýsköpunarkennaranum Eiríki Hanssyni og óskum þeim góðs gengis með uppfinningarnar.
