Hafnarskóli fréttir
Lengd viðvera fyrir yngstu nemendurna
Á komandi skólaári mun verða boðið upp á lengda viðveru hjá börnum í 1. - 4. bekk grunnskólanna á Hornafirði. Sveitarfélagið ákvað að bjóða upp á þessa auknu þjónustu til að koma á móts við óskir foreldra. Fyrsta skóladaginn koma börnin í fylgd foreldra en síðan mun börnum úr Nesjaskóla verða ekið með skólarútunni í Hafnarskóla.
Boðið verður upp á þessa þjónustu milli kl. 14:00 - 17:00 alla daga nema föstudaga en þá verður opið milli kl. 12:20 og 17:00. Umsjónarmaður við lengda viðveru verður Súsanna Torfadóttir. Ekki er að efa að þessi ráðstöfun á eftir að létta undir hjá mörgu foreldrinu og eins auka öryggi yngstu barnanna sem sum hver hafa þurft að vera ein heima vegna vinnu foreldranna. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð hér á vefnum.