Hafnarskóli fréttir
Í skólanum, í skólanum er skemmtilegt að vera
Hafnarskóli verður settur mánudaginn 25. ágúst og hefst kennsla á þriðjudaginn. Arnbjörg Stefánsdóttir skólastjóri sagði að nemendur yrðu 163 sem er 7 nemendum færra en á seinasta skólaári og hafa nemendur ekki verið færri frá því grunnskólinn á Hornafirði var þrískiptur. Búið er að ganga frá ráðningu starfsfólks og verða kennarar 17 talsins að meðtöldum stjórnendum, þar af eru sjö leiðbeinendur en fjórir þeirra eru í kennaranámi.
Arnbjörg sagði það áhyggjuefni hversu fáir réttindakennarar sæktust eftir stöðum við skólann. Í vetur verður haldið áfram þróun þemavinnu og samþættingar námsgreina eins og undanfarin ár. Þemavinnan hefur sett skemmtilegan svip á skólastarfið og eru nemendur og foreldrar almennt mjög ánægðir með hvernig til hefur tekist. Sú nýbreytni var tekin upp s.l. skólaár að bjóða foreldrum upp á að fá sendar tilkynningar og fréttabréf skólans í tölvupósti og verður sá háttur einnig hafður á í vetur. Stór hluti foreldra nýtir sér þessa bættu þjónustu skólans, sem er ólíkt skilvirkari en blessaðir miðarnir sem stundum vildu gleymast eða tínast í hinu ógurlega djúpi skólatöskunnar.
