Hafnarskóli fréttir

Danssýning hjá 4. bekk

Danskennsla - 18.4.2005 Hafnarskóli fréttir

Danskennslan hjá Jóni Pétri endaði í dag með danssýningu fyrir foreldra 4. bekkjar. Krakkarnir hafa verið afar duglega að dansa og skemmt sér konunglega. Jón Pétur sagðist geta gefið þeim hæstu einkun fyrir vikuna. Dansvika sem þessi verður vonandi árlegur viðburður hjá okkur og á næsta ári stefnum við að því að bæði 4. og 5. bekkur dansi. |nl| Lesa meira
 
Kátir krakkar í Hafnarskóla

Evrópuverkefnið í fullum gangi - 23.12.2003 Hafnarskóli fréttir

Nemendur Hafnarskóla eru þátttakendur í evrópuverkefninu “School for the future” og nú hafa nemendurnir, foreldrar þeirra og kennarar skrifað inn á heimasíðu verkefnisins þar sem þau skrifa um jólin og lestur. Eitt af því sem krakkarnir hafa skrifað um eru jólasveinarnir okkar og þar sem þetta er evrópuverkefni er allt skrifað á ensku og þá heita sveinarnir okkar þrettán: Sheep worrier, Gully gawk, Stubby, Spoon licker, Pot licker, Bowl licker, Door slammer, Skyr glutton, Sausage stealer, Window peeper, Door sniffer, Meat hook og Candle beggar. Lesa meira
 
Friðarloginn tendraður í Hafnarskóla

Friðarloginn frá Betlehem - 19.12.2003 Hafnarskóli fréttir

Í gær komu skátar með friðarlogann frá Betlehem í Hafnarskóla. Þar gáfu þeir nemendum afleggjara af loganum sem logað hefur óslitið frá því um 300 e. K. er hann var kveiktur í Betlehem. Á miðvikudagskvöldið gáfu þeir einnig afleggjara af loganum á tónleikum unga fólksins í Nýheimum. Friðarloginn frá Betlehem er: Gjöf Ljós sjálfstæðis Ljós samhyggju Ljós friðar og vináttu Ljós þeirra sem hjálpa Ljós fyrir þjáða og einmana Ljós skilnings á þörfum hvers annars Notaðu það þar sem þú vilt kveikja ljós öðrum til gleði! Lesa meira
 
Nokkrir nemendur Hafnarskóla taka lagið

Jólasöngur á sal - 8.12.2003 Hafnarskóli fréttir

Nemendur Hafnarskóla hittust á sal í hádeginu í dag og sungu saman jólalög. Gaman var að heyra krakkana syngja hvert jólalagið á fætur öðru af mikilli innlifun og oft með miklum raddstyrk. Þetta er í annað skiptið sem krakkarnir stilla saman jólastrengina í söng því s.l föstudag voru jólalögin sungin og er stefnt að því að hittast nokkrum sinnum í viðbót á sal fram að jólum og syngja jólalög, enda fátt betra til að komast í jólaskapið en fallegur söngur. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica