Beint í leiðarkerfi vefsins.
Miðvikudaginn 15.maí lögðum við að stað í hina langþráðu Öræfaferð. Við byrjuðum á því að stoppa í Hrollaugshólum, teygðum aðeins úr okkur og borðuðum nesti. Þóra sagði fyrstu tröllasöguna sína en þær áttu eftir að verða nokkrar. Því næst keyrðum við í Hofgarð þar sem við losuðum okkur við dótið okkar og héldum svo áfram í Skaftafell. Þar gengum við upp að Svartafossi í sól og blíðu, borðuðum nesti og börnin fengu að vaða. Þeim fannst vatnið svolítið kalt í fyrstu en létu sig hafa það og skemmtu sér konunglega. Á leiðinni til baka sáum við Sel, Bölta og Lambhaga. Þegar við komum niður að þjónustumiðstöðinni sóluðum við okkur aðeins og horfðum svo á myndband um hlaupið í Skeiðará 1996.
Það er orðið að venju þegar 3. bekkur fer í sitt árlega skólaferðalag í Öræfin að fara í kajakasiglingu í Hofsnesi. Þetta er mikið ævintýri fyrir krakkana en þau sigla niður læk fyrir neðan Hofsnes. Ekki er hægt annað að sjá á myndunum af þeim að þeir hafi skemmt sér afar vel.
Lesa meiraReynir Snær í 1. bekk kom í skólann í dag með krabbadýr sem pabbi hans kom með af sjónum. Reynir Snær var alveg með nöfnin á þeim á hreinu en krabbinn með göddunum heitir trjónukrabbi, hinn heitir töskukrabbi, humar og sá sem býr í kuðungnum heitir einbúi. Reynir var svo elskulegur að fara í aðrar stofur og leyfa fleiri bekkjum að njóta. Það er vel þegið að fá svona sendingar í skólann og gaman þegar foreldrar hugsa til okkar.
Undanfarrnar vikur hafa börnin í 2. S verið að læra um mannslíkamann. Til þess að læra um líkamann hafa þau meðal annars lesið bækurnar Komdu og skoðaðu líkamann, Eggið hennar mömmu, ásamt ýmsum myndabókum og netefni. Þetta var ákaflega skemmtilegt og fróðlegt þemaverkefni og enduðu börnin vinnuna á þvi að bjóða foreldrum sínum á sýningu þar sem verkefnið var kynnt með lestri, leik og söng. Nemendur stóðu sig með eindæmum vel og voru áhorfendur sammála um að þetta hefði verið hin besta sýning, bæði fróðleg og skemmtileg.
Lesa meira