Fréttir Grunnskóli

3. bekkur í Öræfum

3.bekkur ferðast um Öræfasveit - 18.5.2013 Fréttir Grunnskóli

Miðvikudaginn 15.maí lögðum við að stað í hina langþráðu Öræfaferð.  Við byrjuðum á því að stoppa í Hrollaugshólum, teygðum aðeins úr okkur og borðuðum nesti.  Þóra sagði fyrstu tröllasöguna sína en þær áttu eftir að verða nokkrar.  Því næst keyrðum við í Hofgarð þar sem við losuðum okkur við dótið okkar og héldum svo áfram í Skaftafell.  Þar gengum við upp að Svartafossi í sól og blíðu, borðuðum nesti og börnin fengu að vaða.  Þeim fannst vatnið svolítið kalt í fyrstu en létu sig hafa það og skemmtu sér konunglega.  Á leiðinni til baka sáum við Sel, Bölta og Lambhaga.  Þegar við komum niður að þjónustumiðstöðinni sóluðum við okkur aðeins og horfðum svo á myndband um hlaupið í Skeiðará 1996.

Lesa meira
 
3. bekkur í Öræfum

Kajakaferð í Öræfunum - 17.5.2013 Fréttir Grunnskóli

Það er orðið að venju þegar 3. bekkur fer í sitt árlega skólaferðalag í Öræfin að fara í kajakasiglingu í Hofsnesi. Þetta er mikið ævintýri fyrir krakkana en þau sigla niður læk fyrir neðan Hofsnes. Ekki er hægt annað að sjá á myndunum af þeim að þeir hafi skemmt sér afar vel.

Lesa meira
 
Krabbar

Krabbar og kuðungar - 16.5.2013 Fréttir Grunnskóli

Reynir Snær í 1. bekk kom í skólann í dag með krabbadýr sem pabbi hans kom með af sjónum. Reynir Snær var alveg með nöfnin á þeim á hreinu en krabbinn með göddunum heitir trjónukrabbi, hinn heitir töskukrabbi, humar og sá sem býr í kuðungnum heitir einbúi. Reynir var svo elskulegur að fara í aðrar stofur og leyfa fleiri bekkjum að njóta. Það er vel þegið að fá svona sendingar í skólann og gaman þegar foreldrar  hugsa til okkar.

Lesa meira
 
2. S í vorverkum

2. S býður foreldrum í heimsók - 15.5.2013 Fréttir Grunnskóli

Undanfarrnar vikur hafa börnin í 2. S verið að  læra um mannslíkamann. Til þess að læra um líkamann hafa þau meðal annars lesið bækurnar Komdu og skoðaðu líkamann, Eggið hennar mömmu, ásamt ýmsum myndabókum og netefni. Þetta var ákaflega skemmtilegt og fróðlegt þemaverkefni og enduðu börnin vinnuna á þvi að bjóða foreldrum sínum á sýningu þar sem verkefnið var kynnt með lestri, leik og söng. Nemendur stóðu sig með eindæmum vel og voru áhorfendur sammála um að þetta hefði verið hin besta sýning, bæði fróðleg og skemmtileg.

Lesa meira
 
3. bekkur á Seljavöllum

Nautaferð hjá 3. bekk - 14.5.2013 Fréttir Grunnskóli

Einn af föstum liðum í skólastarfinu eru ferðir í sveitina til að skoða og kynnast mismunandi búskaparháttum. 3. bekkur fór í eina slíka ferð á Seljavelli til að skoða kúabú. Það er óhætt að segja að þessar ferðir hitti í mark og ekki skemmir fyrir að vera boðið í kleinur og nýja mjólk í lok skoðunnarferðar.

Lesa meira
 
1 bekkur og Kiwanis

Kiwanis færir 1. bekk hjólreiðahjálma - 14.5.2013 Fréttir Grunnskóli

Það eru margir sem hugsa til okkar í skólanum um þessar mundir og í dag komu Barði, Geir, Haukur og Stefán félagar úr Kiwanisklúbbnum Ós færandi hendi en þeir gáfu 1. bekkingum hjólahjálma. Undanfarin ár hafa Kiwanisklúbbarnir og Eimskip staðið saman að þessu verkefni til að efla öryggi barna í umferðinni. Við minnum á að notkun hjólreiðahjálma barna 14 ára og yngri er bundin í lög og er á ábyrgð forráðamanna barna. Lesa meira
 
1. bekkur fær vesti

Allir öruggir heim - 14.5.2013 Fréttir Grunnskóli

Slysavarnafélagið Landsbjörg í samvinnu við Alcoa Fjarðarál, Dynjanda ehf, EFLA verkfræðistofu, Eflingu stéttafélag, HB Granda, Isavia, Landsvirkjun, Neyðarlínuna, Tryggingamiðstöðina, Umferðarstofu og Þekkingu gefa öllum grunnskólum á landinu endurskinsvesti til að nota í vettvangsferðum barna í 1. bekk. Um 4400 börn eru í árganginum á landinu öllu.
Heitið á verkefninu er "Allir öruggir heim" og er tilgangurinn að efla öryggi yngstu skólabarnanna í ferðum utan skólans.

Lesa meira
 
Hjólahjálmar

5. bekkur fékk hjólahjálma að gjöf - 14.5.2013 Fréttir Grunnskóli

Þær Ingibjörg, Kristín, Sigríður, Ingibjörg Lúcía og Fjlóla félagar í Slysavarnardeildinni Framtíðinni komu og fræðu nemendum í 5. bekk hjólahjálma að gjöf. Þetta er í þriðja sinn sem þetta er gert og er verkefnið styrkt af Húsasmiðjunni. Eins og við öll vitum er hjálmanotkun barna 14 ára og yngri bundin í lög og er það því skylda forráðamanna barna að sjá til þess að börnin noti hjálma þegar þau eru á hjóli. Lesa meira
 
Umhverfisdagur vor 2013

Umhverfisdagur í Grunnskóla Hornafjarðar - 10.5.2013 Fréttir Grunnskóli

Í dag var hinn árlegi umhverfisdagur hjá Grunnskóla Hornafjarðar og fóru nemendur út um allan bæ að tína rusl. Fjörið byrjaði kl. 10:00 og var tínt rusl í tvo tíma og að því loknu hittust allir hópar við Hafnarskóla en þar voru grillaðar pylsur ofan í mannskapinn og má segja að allir hafi tekið hressilega til matar síns. Að loknu matarhléi fóru krakkarnir í Heppuskóla að hjálpa til við að flytja allt af efrihæð skólans

Lesa meira
 
3. bekkur og slökkviliðið

Verðlaun fyrir eldvarnargetraun - 8.5.2013 Fréttir Grunnskóli

3. bekkur fór og heimsótti slökkviliðið í tilefni af því að Tómas Nói hafði hafði hlotið verðlaun og viðurkenningu vegna þátttöku í eldvarnargetraun LSS. LSS eða Landssamband slökkviliðs- og sjúkrafluttningamanna standa árlega fyrir eldvarnarviku í grunnskólum landsins rétt fyrir jólin. Að þessu sinni fékk Tómas Nói verðlaun en ástæðan fyrir því hversu seint þau skila sér eru að verðlaunin erum búin að gera víðreist um landið og hafa komið við bæði á Norðurlandi og Snæfellsnesi en þau skiluðu sér að lokum í réttar hendur. Verðlaunin að þessu sinni er Ipod, reykskinjari og verðlaunaskjal Lesa meira
 
itrottad6

7.G. duglegust í þrautabraut - 30.4.2013 Fréttir Grunnskóli

Miðvikudaginn 24. apríl var haldin íþróttadagur fyir 7.–10. bekk grunnskólans. Settar voru upp fjórar stöðvar og voru þær í skólanum, íþróttahúsinu, Bárunni og sundlauginni.

Lesa meira
 
4. bekkur

Börn hjálpa börnum - 18.4.2013 Fréttir Grunnskóli

Nemendur í 4.H tóku þátt í söfnuninni „Börn hjálpa börnum“ núna í apríl.  Söfnunin er á vegum ABC barnahjálpar og rennur söfnunarféð til bágstaddra barna í þróunarlöndunum.

Lesa meira
 
Fuglaskoðun

Vinir skoða fugla - 18.4.2013 Fréttir Grunnskóli

Miðvikudaginn 17 apríl fóru vinabekkirnir 2. S, 7. R og 7. G í fuglaskoðunarferð í Óslandið ásamt kennurum sínum. Veður var með eindæmum gott og margir fuglar á flugi.

Lesa meira
 
2. bekkur S

Bréf til bæjarráðs og bæjarstjóra frá 2.S - 16.4.2013 Fréttir Grunnskóli

Í vetur hafa börnin í 2. S verið í umferðarfræðslu í skólanum. Umferðarfræðslan byggist að miklu leyti á verkefnavinnu, umræðum og æfingum. Við höfum einnig fengið lögregluna í heimsókn til okkar.

Lesa meira
 
skidi

Gaman í Oddsskarði - 12.4.2013 Fréttir Grunnskóli

Nemendur í 8. bekk skelltu sér í skíðaferð í Oddsskarð á dögunum. Lagt var í hann á mánudagsmorgni og brunað beint í Oddsskarð þar sem skíðað var fram eftir degi.

Lesa meira
 
Oddskarð 4. og 5. apríl 2013

Myndir úr skíðaferð 6. bekkjar í Oddskarð - 9.4.2013 Fréttir Grunnskóli

Í síðustu viku fór 6. bekkur í skíðaferð í Oddskarð. Lagt var snemma af stað á fimmtudagsmorguninn og komið á áfangastað um hádegi.

Lesa meira
 
barnab

Alþjóðlegur dagur barnabókarinnar - 4.4.2013 Fréttir Grunnskóli

Í dag er alþjóðlegur dagur barnabókarinnar, fæðingardagur H.C. Andersen. Í tilefni dagsins var lesin sagan „Stóri bróðir“ eftir Friðrik Erlingsson og var hægt að hlýða á lesturinn á Rás 1. Við í grunnskólanum nutum þess að hlusta á upplesturinn og skipti þá ekki máli í hvaða tíma nemendur voru eins og myndirnar bera með sér. Lesa meira
 
Vikuhátíð 2. S mars 2013

Vikuhátíð 2.S - 26.3.2013 Fréttir Grunnskóli

2. S hélt vikuhátíð á föstudaginn.  Þetta var afar skemmtileg hátíð með fjölbreyttri dagskrá. Nemendur sögðu nokkra góða brandara, Anna Lára, Siggerður Egla, Aníta Rannveig og Laufey Ósk sungu lagið ég á líf en Andrea Sól, Amylee, Sóley Dröfn, Þóra Lind og Kristel Björk dösuðu frumsaminn dans við lagið.

Lesa meira
 
Ferðakynning hjá 5. E

Ferðakynning í 5. E - 22.3.2013 Fréttir Grunnskóli

Á fimmtudaginn buðu nemendur í 5.E ættingjum sínum á ferðakynningu þar sem verið var að klára verkefni í landafræði um Ísland.
Nemendur kynntu fyrir gestum nokkra spennandi staði,  í öllum landshlutum, í Reykjavík og á hálendinu, sem gaman væri að heimsækja í sumar.  
Í lok kynningarinnar var keppt í því að þekkja byggðamerki þar sem bæði börn og fullorðnir kepptu saman.

Lesa meira
 
Árshátíð 2013

Árshátíð Grunnskóla Hornafjarðar  2013 - 17.3.2013 Fréttir Grunnskóli

Í liðinni viku var árshátíð skólans haldin í íþróttahúsinu. Að þessu sinni bar hátíðin heitið Götugengi, gatan hans Stefáns og er þá vísað í að nemendur á unglingastigi fluttu tónlist úr þekktum söngleikjum og notuðu nafnið Götugengi en nemendur á yngrastigi fluttu lög við texta eftir Stefán Jónsson. Tónskóli Hornafjarðar sá um allan undirleik og lokalag hátíðarinnar en nemendur skólans sýndu stomp af mikilli snilld. Það má segja að allir í skólunum komi að hátíðinni með einum eða öðrum hætti og eins og gefur að skilja er oft mikið fjör í undirbúninginum.

Lesa meira
 
arshatid3

Árshátíð grunnskólans - 14.3.2013 Fréttir Grunnskóli

Árshátíð Grunnskóla Hornafjarðar verður haldin í dag fimmtudag kl 17:00 í íþróttahúsinu við Heppuskóla. Húsið opnar kl 16:45. Bekkir með oddatölu númeri ásamt 10. bekk sjá um skemmtiatriðin. 2. og 4. bekkur sjá um skreytingarnar með aðstoð 6. bekkjar sem gerði einnig aðgöngumiða og auglýsingar. 8. bekkur sér um veitingarnar.

Lesa meira
 
Þórbergs maraþon

Nemendur skólans taka þátt í Þórbergs-maraþoni - 14.3.2013 Fréttir Grunnskóli

Í tilefni af 125 ár afmæli Þórbergs Þórðarsonar var haldið Þórbergs-maraþon á vegum Háskólasetursins og Menningarmiðstöðvarinnar.

Lesa meira
 
Undirbúningur árshátíðar

Árshátíð Grunnskóla Hornafjarðar - 13.3.2013 Fréttir Grunnskóli

Árshátíð Grunnskóla Hornafjarðar verður haldin á morgun fimmtudag kl 17:00 í íþróttahúsinu við Heppuskóla. Húsið opnar kl 16:45.
Undirbúningur er í fullum gangi og allir hafa hlutverki að gegna við hátíðina. Bekkir með oddatölu númeri ásamt 10. bekk sjá um skemmtiatriðin. 2. og 4. bekkur sjá um skreytingarnar með aðstoð 6. bekkjar sem gerði einnig aðgöngumiða og auglýsingar. 8. bekkur sér um veitingarnar. Við biðjum nemendur um að sitja hjá foreldrum sínum á árshátíðinn því það þarf að gæta þess að hafa gott hljóð þannig að allir fái notið.

Lesa meira
 
skolahreystir-001

Unnu hraðabrautina - 12.3.2013 Fréttir Grunnskóli

Skólahreysti var haldin á Egilsstöðum s.l. mánudag og tók vaskur hópur nemenda úr Grunnskóla Hornafjarðar þátt í keppninni. Æfingar hafa staðið yfir í vetur undir styrkri stjórn Sindra Ragnarssonar.

Lesa meira
 
Vikuhátíð 5. Á

Vikuhátíð 5. Á - 8.3.2013 Fréttir Grunnskóli

5. Á hélt vikuhátíð fyrir okkur núna í vikunni. Þarna stigu margir listamenn á svið og er óhætt að segja að húmorinn hafi verið alsráðandi. Það voru sagðir brandarar, Eydís Arna samdi dans við lagið I´ll be there for you úr Friends þáttunum sem hún fékk bekkjarsystur sínar til að dansa með sér og Hildur Margrét var öflug við danskennsluna með henni. Ingunn Ósk samdi skáldsöguna Kalli klikkhaus sem var færð í leikbúning og sá hún ásamt Þorsteini um hlutverk sögumanna. Gréta Sól og Axel Elí voru í hlutverkum foreldranna Rebekku og Alexanders , Hildur Margrét lék kennarann Ölmu,  Arnrún lék Gunnu litlu, Bjartur lék Karl Alexsandersson , Vignir var Villi hrekkjusvín,

Lesa meira
 
Heppuskóli

Starfskynningar í 10. bekk grunnskólans - 7.3.2013 Fréttir Grunnskóli

Fimmtudaginn 23. febrúar sl. hófust starfskynningar hjá nemendum í 10. bekk sem verða einu sinni í viku það sem eftir er skólaársins.

Lesa meira
 
Sigurvegarar á Suð-Austurlandi í Stóru upplestrarkeppninni 2013

Úrslit Stóru upplestrarkeppninnar - 4.3.2013 Fréttir Grunnskóli

Í dag fór fram lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar á Suð-Austurlandi í Hafnarkirkju. Markmið upplestrarkeppni í 7. bekk grunnskóla er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði. Lesa meira
 
2013-02-20-13.56.29-vef Grunnskóli Hornafjarðar

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar - 4.3.2013 Fréttir

Í dag 4.mars keppa  nemendur í 7. bekk Grunnskóla Djúpavogs, Grunnskólans í Hofgarði og Grunnskóla Hornafjarðar á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem fer fram í Hafnarkirkju kl. 15

Lesa meira
 
2013-02-20-13.56.29-vef Grunnskóli Hornafjarðar

Skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar - 25.2.2013 Fréttir Grunnskóli

Nú er lokið skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar. Hún fór fram í Nýheimum þar sem sextán nemendur kepptu um að komast á lokahátíðina sem verður í Hafnarkirkju næsta mánudag kl. 15:00.

Lesa meira
 
2013-02-20-13.56.29-vef Grunnskóli Hornafjarðar

Bekkjarkeppni stóru upplestrarkeppninnar - 20.2.2013 Fréttir Grunnskóli

Nú er lokið bekkjarkeppni stóru upplestrarkeppninnar. Sextán nemendur komust áfram og keppa þeir sín á milli n.k. mánudag í Nýheimum kl. 13:00. Þá munu tíu nemendur komast áfram og taka þátt í lokakeppninni sem haldin verður í Hafnarkirkju 4. mars.

Lesa meira
 
Öskudagur í Grunnskólanum 2013

Öskudagur - 13.2.2013 Fréttir Grunnskóli

Mikið var um að vera í Grunnskóla Hornafjarðar á öskudaginn eins og lög gera ráð fyrir. Fyrir hádegi skemmti yngra stig skólans sér í íþróttahúsinu og eftir hádegi voru haldnir „Fáránleikar“ hjá eldra stigi.

Lesa meira
 
IMG_9493

Þorrablót nemenda - 2.2.2013 Fréttir Grunnskóli

Þorrablót nemenda í 8. – 10. bekk var haldið síðasta dag janúarmánaðar og eins og undan farin ár sáu 10. bekkingar um framkvæmdina. Boðið var upp á frábær skemmtiatriði og auðvita var flutt minni karla og kvenna sem og nemenda. Þegar skemmtidagskráin var tæmd tóku krakkarnir til við dansinn við taktfasta tónlist plötusnúða kvöldsins.

Lesa meira
 
3. S vikuhátíð

Vikuhátíð 3. S - 1.2.2013 Fréttir Grunnskóli

3. S hélt fyrstu vikuhátíð ársins í gær, fimmtudag. Dagskráin þeirra var fjölbreytt en þar var frumsamið leikrit eftir þær Aðalheiði Sól, Thelmu Rut, Selmu Ýr og Tinnu Maríu en leikritið heitir Giftingin og dularfulla nafnið. Með aðalhlutverkin fóru þau Aðalheiður Sól og Tómas Nói og Ethel María var sögumaður. Birkir Snær, Sævar Rafn, Líney Sif, Steinar Logi, Ólafur og Hekla Karen, Tinna María, Selma Ýr, Shahid, Ólöf  Ósk, Eiður Ingi, Sigurður Helgi, Kacper og Júlíana Rós léku og lásu brandara.

Lesa meira
 
Heppuskóli

Fáðu já - 30.1.2013 Fréttir Grunnskóli

Í dag var nemendum í  7. – 10. bekk sýnd stuttmyndin Fáðu já og voru umræður í öllum bekkjum á eftir. Myndin er 20 mínútna löng og er liður í því að skýra mörkin milli kynlífs og ofbeldis fyrir unglingum í grunnskólum landsins, vega upp á móti áhrifum kláms og klámvæðingar, brjóta ranghugmyndir á bak aftur og innræta sjálfsvirðingu í nánum samskiptum.

Lesa meira
 
Bóndadagur 2013

Bóndadagurinn í skólanum - 25.1.2013 Fréttir Grunnskóli

Í dag er fyrsti dagur þorra, bóndadagurinn og samkvæmt hefð sem skapast hefur í skólanum hlupu stákarnir kringum skólana í annarri buxnaskálminni og stelpurnar hvöttu þá áfram af miklum krafti. Þetta er gamall siður þar sem piltar hlupu kringum bæinn sinn íklæddir annnarri buxnaskálminni til að bjóða þorrann velkominn. Þegar fjör færist í leikinn eru nokkrir sem taka sprettinn á brókinni og verður þá oft keppni um það hver fer flesta hringina. Í lok skóladagsins var samsöngur þar sem nemendur sungu nokkur lög sem tilheyra þorranum og nýju ári. Lesa meira
 
2. bekkur

Umferðafræðsla  í 2. S - 25.1.2013 Fréttir Grunnskóli

Nú erum við í 2. S búin að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið í umferðarfræðslunni í haust. Lögreglan kom í heimsókn til okkar í vikunni og fór með okkur í göngutúr, rifjaði upp umferðarreglurnar og gaf börnunum endurskinsmerki. Að heimsókninni lokinni skrifuðu börnin litla sögu í ritunarbækur sínar. Hér má sjá eina söguna:

Lögregluheimsóknin.

Í morgun kom löggan kát og hress til að kenna okkur umferðarreglurnar. Við fórum út að labba með lögregluþjóninum og hann kenndi okkur að stoppa, líta til beggja hliða og hlusta. Við fengum líka endurskinsmerki.

Kveðja, 2. S


Lesa meira
 
Liðin fjögur frá Grunnskóla Hornafjarðar jan 2013

Legókeppnin - 22.1.2013 Fréttir Grunnskóli

Föstudaginn 18. janúar lögðum við því af stað til Reykjavíkur en keppa átti á laugardeginum. Áskorunin þetta árið var „Lausnir fyrir eldri borgara“. Keppnin snýst aðallega um að hanna, byggja og forrita róbot sem leysir þrautir á þrautabraut. Einnig þarf að flytja rannsóknarverkefni og dagbók fyrir dómara.

Lesa meira
 
2013-01-19-14.28.50-vef hvatningarliðið

Nemendur í 7. bekk stóðu sig frábærlega í legókeppninni - 22.1.2013 Fréttir Grunnskóli

Á laugardaginn kepptu allir nemendur í  7. bekk í First Legó Leagu keppninni í Háskólabíó. Keppt var í fjórum liðum, níu nemendur í hverju liði og höfðu liðin gefið sér nöfnin, The Smurfs, The Stars, The  Ice Cool Beans og The Lobsters.  Þema keppninnar í ár var lausnir fyrir eldri borgara og í keppninni eru sigurvegararnir valdir út frá 6 atriðum sem flest tengjast þemanu.

.

Lesa meira
 
Við lesum

Við lesum ...... - 22.1.2013 Fréttir Grunnskóli

Harpa  Lind og Gréta Sól hafa verið að lesa bækurnar um hana Fíusól en þær eru eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur. Stelpurnar segja að Fíasól sé svona ruslastelpa sem nennir aldrei að greiða sér eða taka til í herberginu sínu og stundum vill hún bara ganga í bleiku.  Fíasól lendir í ýmsum ævintýrum hittir forsetann, sjóræningja, slasast og skipuleggur fjáraflanir. Mjög skemmtilegar bækur segja þær stöllur enda er Harpa Lind búin að lesa allar bækurnar og Gréta Sól er langt komin

Lesa meira
 
Foreldrasyning í hjá legóhópnum

7. bekkur keppir í legó - 18.1.2013 Fréttir Grunnskóli

Á morgun 19. janúar keppir 7. bekkur í First Lego League keppninni í Reykjavík.  Þetta er í 8. skiptið sem skólinn tekur þátt í þessari keppni en nú er það gert með talsvert öðru sniði.  Nú fara allir nemendur bekkjarins í keppnina og keppa í fjórum liðum en fram til þessa hefur einungis eitt 10 manna lið farið.

Lesa meira
 
Selma ýr í 3. S

Ég er að lesa... - 15.1.2013 Fréttir Grunnskóli

Selma Ýr í 3. S hefur verið að lesa bækurnar Fúsi froskagleypir og Gúmmí-Tarsan eftir Ole Lund Kirkegaard.

Lesa meira
 
Sigjón Atli

Ég er að lesa... - 8.1.2013 Fréttir Grunnskóli

Sigjón Atli í 5. E hefur gaman af því að lesa. Hann fékk nokkrar bækur í jólagjöf m.a. bókina Kafteinn Ofurbrók og tiktúrurnar í Tappa Teyjubrók en það er nýjasta bókinn um þá félaga Georg og Harald og undarleg uppátæki þeirra. Sigjón Atli segir að hann sé  búinn að lesa allar bækurnar í seríunni og að þær séu spennandi og afar fyndnar.  

Lesa meira
 
Litlu jólin 2012

Litlu jólin - 29.12.2012 Fréttir Grunnskóli

Litlu jólin voru haldin miðvikudaginn 18. des í Sindrabæ. Litlu jólin eru einskonar uppskeruhátíð á þeim verkefnum sem við höfum verið að vinna að á aðventunni í skólanum. En á aðventunni er lögð meiri áhersla en vanalega, á söng, tónlist, leiklist og föndur ýmisskonar svo eitthvað sé nefnt. á litlu jólunum sjá 2. 4. og 6 bekkur um atriðin auk 7. bekkjar  og svo er dansað í kringum jólatréð en Kristín Jóhannesdóttir sér um undirleik og nemendur 6. bekkjar sjá um forsöng.

Lesa meira
 
jolabio_6

Jólabíó í Grunnskólanum - 19.12.2012 Fréttir Grunnskóli

Aðventan hefur verið skemmtilegur tími í skólastarfinu. Ýmislegt hefur verið í boði fyrir nemendur og starfsfólk m.a. jólasöngur í frímínútum og jólasveinadagur.

Lesa meira
 
Bókakynning

Ég er að lesa.... - 19.12.2012 Fréttir Grunnskóli

Hermann Þór er í 4. bekk og hann er að lesa bækurnar um Bert eftir Anders Jacobsson og Sören Olsson.

Lesa meira
 
1. bekkur og Sparisjóðurinn

Jólapakkar til yngstu nemendanna - 19.12.2012 Fréttir Grunnskóli

Anna Halldórsdóttir og Anna María Ríkharðsdóttir komu í heimsókn og færðu 1. bekkingum jólapakka frá Sparisjóðnum en það er siður sem sjóðurinn hefur haldið í mörg ár.

Lesa meira
 
Bókakynning

Ég er að lesa..... - 18.12.2012 Fréttir Grunnskóli

Anna Lára í 2. S hefur gaman af því að lesa. Nú í desember er hún að lesa bókina Grýla gamla og jólasveinarnir, nýjar grýlusögur handa 5- 9 ára börnum. Þessi bók er eftir Kristján Jóhannsson og er myndskreytt af Bjarna Jónssyni listmálara.

Lesa meira
 
Bokakynning

Við erum að lesa... - 18.12.2012 Fréttir Grunnskóli

Vigdís María og Íris Mist í 5. E eru að lesa bækurnar Forngripasafnið, Náttúrugripasafnið og Listverkasafnið en þessar bækur eru eftir Sigrúnu Eldjárn en bækur hennar njóta mikilla vinsælda hjá nemendum skólans.

Lesa meira
 
Rýmingaræfing

Nemendur æfa rýmingu skólans - 17.12.2012 Fréttir Grunnskóli

Í síðustu viku æfðu nemendur sig í að rýma skólann. Þessi æfing er gerð til að æfa viðbrögð við eldsvoða og er gerð einu sinni á ári.

Lesa meira
 
Ronja

Ronja Ræningjadóttir - 13.12.2012 Fréttir Grunnskóli

5. E setti upp söngleikinn Ronja Ræningjadóttur en Erna Gísladóttir umjónarkennari bekkjarins færði þessa sígildu sögu Astrid Lindgren í söngleikjabúning en lögin voru fengin úr annari uppfærslu. Kristín Jóhannesdóttir sá um undirleik.  Rósa Elísabet fór með hlutverk Ronju og Gabríel Tandri lék Birki vin hennar. Írís Mist og Júlíus léku foreldra Ronju og Steinun Erla og Sigursteinn Már léku foreldra Birkis. Björgvin Freyr lék  Skalla-Pétur, Vigdís María og Harpa Lind voru sögumenn og nornirnar voru leiknar af Birnu og Selmu. Eyþór Ari, Sigjón Atli og Jósavin brugðu sér í hin ýmsu hlutverk í leikritinu s.s. rassálfa og ræningja. Sérstakir sviðs-og tæknimenn sýningarinnar vou þeir félagar Axel Orri og Steindór Már.

Lesa meira
 
Ég les

Ég er að lesa..... - 8.12.2012 Fréttir Grunnskóli

Bjartur Máni í 5. Á er að lesa bækurnar Eyja Gullormssins, Eyja Glerfisksins og Eyja Sólfuglsins eftir Sigrúnu Eldjárn sem eru eins konar þríleikur.

Lesa meira
 
evropa-kynning2

Evrópulöndin kynnt hjá 7. bekk - 1.12.2012 Fréttir Grunnskóli

Nemendur í 7.bekk settu upp sýningu fyrir foreldra á afrakstri þeirrar vinnu sem þeir höfðu unnið í landafræðitímum.

Lesa meira
 
Vinaball-044-vef

Vinaball í Sindrabæ - 30.11.2012 Fréttir Grunnskóli

Í gær héldu nemendur í 8.-10. bekk árlegan fullveldisfagnað í Sindrabæ undir heitinu vinaball enda vinadagur í skólanum í gær. .i

Lesa meira
 
1 desember

Í tilefni af 1. desember - 30.11.2012 Fréttir Grunnskóli

Í tilefni af 1. desember sem er á morgun er sparifatadagur í skólanum. Nemendur og starfsfólk mættu í sínu fínasta pússi og svo hittust allir og sungu saman nokkur þjóðleg lög. En söngnum er þar með ekki lokið því núna kl 11:15 er samsöngur þjóðarinnar af tilefni þessa að í dag er dagur íslenskrar tónlistar. Við setjumst við útvarpstækin og syngjum saman þrjú lög

Lesa meira
 
Vinadagur

Vinadagur - 30.11.2012 Fréttir Grunnskóli

Í gær var vinadagur í Grunnskóla Hornafjarðar. Á vinadegi hittast vinabekkir en það eru 1. og 6. bekkur, 2. og 7. bekkur, 3. og 8. bekkur, 4. og 9. bekkur og 5. og 10. bekkur.

Lesa meira
 
spurningakeppni_5

10.K. vann spurningakeppnina - 29.11.2012 Fréttir Grunnskóli

Í Heppuskóla hefur nemendaráð skólans staðið fyrir spurningakeppni milli bekkja skólans. Spurningakeppnin hefur verið háð í löngufrímínútunum og hefur verið hart en heiðarlega barist. Það var síðan 10.K. sem stóð uppi sem sigurvegari og óskum við þeim til hamingju með árangurinn. Nemendafélagið á heiður skilinn fyrir að brydda upp á ýmsum viðburðum í frímínútum og vonandi verður framhald þar á. Lesa meira
 
3. bekkur

Eldvarnarvika - 28.11.2012 Fréttir Grunnskóli

Þessa vikuna er eldvarnarvika en það er fræðsluvika sem Landsasamband slökkviliðs- og sjúkraflutningsamanna stendur fyrir og einn liður í henni er að heimsækja 3. bekki í grunnskólum landssins. Í gær komu þeir Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri og Borgþór Freysteinsson eldvarnarfulltrúi í heimsókn og fræddu nemendur í 3. bekk um brunavarnir. Nemendur tóku þátt í getraun og fengu  bækur gefins bæði til skemmtunar og fróðleiks auk þess fengu þau vasaljós og límmiða með neyðarnúmerinu 112. Lesa meira
 
Kristján Bjarki

Ég er að lesa.. - 27.11.2012 Fréttir Grunnskóli

Kristján Bjarki í 6. H er að lesa bækurnar Óvættaför eftir Adam Blade.

Lesa meira
 
4. GH vikuhatid

Hátíð hjá 4 GH - 20.11.2012 Fréttir Grunnskóli

Nemendur í Grunnskóla Hornafjarðar halda áfram með vikuhátíðirnar sínar og að þessu sinni var það 4. GH sem sá um hátíðina.

Lesa meira
 
Dagur islenskrar tungu

Ljóð og smásögur á degi íslenskrar tungu - 16.11.2012 Fréttir Grunnskóli

Hér birtist ljóðið Sumarlok eftir Berglindi Óttarsdóttur en hún vann fyrstu verðlaun í ljóða og smásagnakeppni Menningarmiðstöðvarinnar og Grunnskóla Hornafjarðar.  Signý Ingvadóttir var kynnir og hélt utan um keppnina í skólanum.

Lesa meira
 
Dagur islenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu - 16.11.2012 Fréttir Grunnskóli

Í dag var haldið upp á dag íslenskrar tungu en hann er haldinn á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Sú hefð hefur skapast hjá Menningarmiðstöðinni og Grunnskóla Hornafjarðar að efna til ljóða og smásagnakeppni í tilefni af deginum. Undirbúningurinn fer þannig fram að nemendur 4. – 10. bekkjar yrkja ljóð eða semja smásögu. Dómnefnd í skólanum velur úr verkunum og þau verk sem komast áfram eru lesin upp á degi íslenskrar tungu í Nýheimum.  Menningarmiðstöðin skipar dómnefnd sem velur þrjú bestu verkin og fá höfundarnir viðurkenningarskjal.

Lesa meira
 
Songstund

Söngurinn ómar - 16.11.2012 Fréttir Grunnskóli

Í Hafnarskóla höfum við það fyrir venju að safnast saman með vissu millibili og syngja. Í haust undirbjuggum við samsöngin á þann hátt að hver bekkur fékk að velja sér lag sem er sungið í þessum söngstundum okkar.

Lesa meira
 
Tilraunir i 1.bekk

Vísindamenn í 1. bekk - 13.11.2012 Fréttir Grunnskóli

Undanfarnar vikur hafa nemendur í fyrsta bekk verið í tilrauna þema. Þeir hafa gert tilraunir með stöðurafmagn, þéttleika vatns auk þess sem þeir bjuggu til eldfjall. Með verkefninu voru nemendur að æfa sig að fylgja fyrirmælum, vinna saman og bíða þar til röðinn kæmi að þeim. Nemendur stóðu sig afbragðs vel og skemmtu sér konunglega eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Lesa meira
 
dagur gegn einelti 2012 í GH

Vinátta, virðing og góð samskipti - 8.11.2012 Fréttir Grunnskóli

Í tilefni af degi gegn einelti 8. nóvember mynduðu nemendur og starfsfólk skólans vinakeðju milli skólahúsanna og elstu nemendurnir teygðu sig einnig í áttina að FAS þangað sem þeir stefna á næstunni. Þegar keðjan var komin kölluðu nemendur vinátta, virðing og góð samskipt.

Lesa meira
 
Umferdafraedsla-vef

Margir gangandi og hjólandi en of fáir spenntir - 6.11.2012 Fréttir Grunnskóli

Slysavarnakonur á Hornafirði voru með umferðakönnun í samstarfi við Umferðastofu og Slysavarnafélagið Landsbjörg 18.október s.l.

Lesa meira
 
Landsbyggdarvinir-001-a-vef GH 2012

Heimabyggðin mín, nýsköpun, heilbrigði og forvarnir - 5.11.2012 Fréttir Grunnskóli

Heimabyggðin mín, nýsköpun, heilbrigði og forvarnir er heiti á verkefni sem kynnt var af Fríðu Völu Ásbjörnsdóttur fyrir nemendum í 7. - 10. bekk í dag. Verkefnið er unnið í samstarfi við Landsbyggðarvini Reykjavíkur og nágrennist og miðar að því að efla heimabyggðina og nýta sköpunarkraft unga fólksins til þess.

Lesa meira
 
Danssyning 2012

Dansað í rafmagnsleysi - 2.11.2012 Fréttir Grunnskóli

Í dag lauk dansviku í Grunnskóla Hornafjarðar. Nemendur hafa æft af kappi alla vikuna undir styrkri stjórn Jóns Péturs og  að venju líkur vikunni með danssýningu sem foreldrum er boðið á. Þegar sýningin hófst var  Íþróttahúsið fullt af nemendum og foreldrum sem biðu spenntir eftir að sjá og sýna. Framan af sýningu gekk allt eins og til stóð en um miðbik sýningarinnar gripu veðurguðirnir í taumana. Rafmagnið fór af og þá voru góð ráð dýr. Ekkert ljós og engin tónlist, ekki það besta þegar um danssýningu er að ræða. En Jón Pétur lét þetta ekki slá sig út af laginu og danssýningunni var haldið áfram með dyggri aðstoð foreldra og nemenda

Lesa meira
 
Göngum í skólann

Göngum í skólann - 2.11.2012 Fréttir Grunnskóli

Grunnskóli Hornafjarðar tók þátt í verkefninu göngum í skólann eins og undanfarinn ár. Verkefnið gengur út á að hvetja nemendur til að ganga eða hjóla í skólann ásamt því að þeir fengu heim með sér hreyfidagbók þar sem þeir skráðu hjá sér all hreyfingu í eina viku.

Lesa meira
 
dans6

Dans, dans, dans - 1.11.2012 Fréttir Grunnskóli

Í vikunni hefur staðið yfir danskennsla í grunnskólanum. Eins og undan farin ár er það Jón Pétur frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru sem kennir börnunum fótafimina. Hjá nemendum í 1. – 7. bekk er dansinn skylda en val hjá eldri bekkingum. Föstudaginn 2. nóvember verður danssýning kl. 12:30 í íþróttahúsinu.

Lesa meira
 
Aðalfundur foreldrafélags GH 2012

Aðalfundur foreldrafélagsins - 25.10.2012 Fréttir Grunnskóli

Aðalfundur foreldrafélagsins var haldinn fimmtudaginn 18. október síðastliðinn. Aðalefni fundarins var fyrirlestur hjá Hugo Þórissyni sálfræðing en síðan tóku við almenn fundarstörf. Góð mæting var á fundinn og góður rómur gerður að fyrirlestri Hugos. Fundargerð aðalfundarins má finna hér.

Lesa meira
 
utivist3

Kræklingur í skólanum! - 23.10.2012 Fréttir Grunnskóli

Nemendur í útivistar- og útimatreiðsluvali lögðu land undir fót um daginn og skelltu sér austur í Hamarsfjörð.

Lesa meira
 
EKKI MEIR!

Ekki meir! - 19.10.2012 Fréttir Grunnskóli

Mánudaginn 22. október kl. 16.30 – 18.00 verður fræðsluerindi um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála í Nýheimum. Það er Æskulýðsvettvangurinn, samstarfsvettvangur Ungmennafélags Íslands, Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sem stendur fyrir þessu fræðsluerindi.

Lesa meira
 
Trúarbragðafræði

Trúarbragðafræði í 5. E - 18.10.2012 Fréttir Grunnskóli

Mikil hátíðarhöld voru í 5. E þegar nemendur buðu foreldrum sínum í heimsókn til að skoða verk sem unnin voru í Trúarbragðafræði. 
Krakkarnir voru búin að fræðast um Kristna trú, Búddatrú, Gyðingdóm, Hindúatrú og Islamstrú. Þau gerðu glærusýningu sem þau sýndu foreldrum.

Lesa meira
 
Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda 2012

Lentu í 3ja sæti í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda - 15.10.2012 Fréttir Grunnskóli

Afhending verðlauna fór fram í lokahófi Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda um helgina en keppnin var nú haldin í 21. sinn. Athöfnin fór fram í Háskólanum í Reykjavík. Lesa meira
 
Húgó Þórisson

Hugo Þórisson sálfræðingur á aðalfundi Foreldrafélags - 15.10.2012 Fréttir Grunnskóli

Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskóla Hornafjarðar verður haldinn fimmtudaginn 18. október n.k. 
Lesa meira
 
Vikuhatid  6. H

Fyrsta vikuhátíð vetrarins - 12.10.2012 Fréttir Grunnskóli

Í gær hélt 6. H fyrstu vikuhátíð vetrarins. Umstangið var mikið eins og verður gjarna þegar hátíðirnar eru haldnar. Nemendurnir sömdu  leikrit , dans og söngtexta og svo var æft í marga daga. Fyrstar á svið voru Stefanía og Konný en þær sýndu dans sem þær sömdu við lagið Starship. Oddleifur, Hafsteinn, Auðunn og Einar Karl sýndu töfrabrögð og til að tryggja að áhorfendur sæju sem best þá tóku þeir galdrana upp á myndband og sýndu á stóru tjaldi um leið og þeir framkvæmdu þá á sviðinu. Nokkrar stelpur í bekknum sömdu leikrit sem allir gátu fengið að taka þátt í.

Lesa meira
 
umferðarfræðsla 2. bekkur

Umferðafræðsla í 2. bekk - 5.10.2012 Fréttir Grunnskóli

Þessa dagana er 2. S að fræðast um umferðina og öryggi fótgangandi barna í umferðinni. Þátttaka í umferð er órjúfanlegur hluti þess að vaxa og þroskast. Mikilvægt er að börn tileinki sér sem fyrst réttar og viðeigandi reglur um hegðun  í unferð til að tryggja sem best öryggi þeirra.

Lesa meira
 

Afmælisráðstefna FAS og Nýheima - 4.10.2012 Fréttir

Vel heppnuð og vel sótt afmælisráðstefna Nýheima og FAS um mennta og menningamál var haldin í fyrirlestrasal Nýheima. Í upphafi ráðstefnunnar var undirrituð viljayfirlýsing um eflingu á starfi Nýheima á sviði menningar, menntunar, rannsókna og nýsköpunar.

Lesa meira
 
Haustfagnadur-1

Haustfagnaður - 1.10.2012 Fréttir Grunnskóli

Haustfagnaður var haldin s.l. fimmtudag í Sindrabæ þar sem nemendur í 8. – 10. bekk skemmtu sér saman. Nemendur í 9. bekk sjá um haustfagnaðinn og var ekkert til sparað hjá krökkunum þetta árið. Skemmtiatriði, skreytingar og tónlist voru eins og best verður á kosið og var ekki annað að sjá en að flestir skemmtu sér vel.

Lesa meira
 
bekkjarkv.4

Fín föt, hattar og gleraugu - 28.9.2012 Fréttir Grunnskóli

Bekkjarkvöld var haldið í vikunni hjá 7. bekk og tókst það í alla staði vel hjá krökkunum. Þema kvöldsins var "Fín föt, hattar og gleraugu". Stelpurnar notuðu gærdaginn til þess að skreyta og vinna skemmtiatriði á meðan strákarnir tóku að sér bakkelsið og uppsetningu á veislusal.

Lesa meira
 
5. bekkur í kartöflugarðinum

Kartöfluupptaka - 26.9.2012 Fréttir Grunnskóli

Í dag fóru 5. bekkingar ásamt kennurum sínum í skólagarðana til að taka upp kartöflur en þar með kláruðu þau verkið því áður höfðu 2. – 4. bekkur farið og tekið upp sinn hluta. Í vor var skólanum úthlutað plássi í garðinum til kartöfluræktar.

Lesa meira
 
heimsókn frá Hí í GH sept 2012

7. bekkur fékk heimsókn frá Háskóla Íslands - 24.9.2012 Fréttir Grunnskóli

Í síðustu viku fékk skólinn góða heimsókn þegar fulltrúar frá verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands komu til okkar.

Lesa meira
 
Fingrasetning

Æfingar í fingrasetningu - 18.9.2012 Fréttir Grunnskóli

í upplýsingatækni í 6. bekk er verið að æfa fingrasetningu. Ein kennslustund á viku er tekin í æfingarnar og ekki annað hægt að segja en að námið gangi vel.

Lesa meira
 
Nemendaráð Heppuskóla

Nemendaráð Heppuskóla - 14.9.2012 Fréttir Grunnskóli

Síðustu daga hefur staðið yfir kosning í nemendaráð Heppuskóla og á hver árgangur tvo fulltrúa í ráðinu. Þau sem voru kosin eru: Guðrún Ása Aðalsteinsdóttir og Guðný Árnadóttir úr 7. bekk, Ester Lý Pauladóttir og Kristófer Daði Kristjánsson úr 8. bekk, Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir og Sigrún Birna Steinarsdóttir úr 9. bekk og Þorkell Ragnar Grétarsson og Kristján Vilhelm Gunnarsson úr 10. bekk. Lesa meira
 
haustrigning

Haustrigning - 3.9.2012 Fréttir Grunnskóli


Þessir ungu menn undu sér vel í rigningunni í dag en það minnir okkur á að í skólanum förum við út í frímínútunum þó það rigni og því þarf að gæta þess að börnin komi vel klædd í skólann

Lesa meira
 
Berjaferd i Haukafell

Berjaferð í Haukafell - 30.8.2012 Fréttir Grunnskóli

Í dag fóru nemendur 1.-4. bekkjar í Haukafell en það er hefð fyrir því að yngstu bekkir skólans fari í berjaferð að hausti. Óhætt er að segja að veðrið hafi leikið við nemendur og starfsfólk í ferðinni en það var stafalogn og sólskin allan tíman eins og hægt er að sjá á myndunum sem fylgja.  Í Haukafelli var hitað kakó, borðað nesti, tínd ber og farið í leiki.

Lesa meira
 
Gonguferd i Loni

Haustganga Grunnskóla Hornafjarðar. - 29.8.2012 Fréttir Grunnskóli

Í dag fóru 5.- 10. bekkur ásamt starfsfólki í hina árlegu gönguferð skólans og eins og áður voru tvær leiðir í boði. Annarsvegar að ganga frá Stafafelli yfir í Hvannagil eða að ganga frá Raftagili að Hvannagili eftir veginum.

Lesa meira
 
Ferð í Suðursveit  haust 2011

Skólastarf að hefjast í Grunnskóla Hornafjarðar - 20.8.2012 Fréttir Grunnskóli

Nú er undirbúningur fyrir skólastrarf vetrarins á fullu og stutt í að nemendur mæti í skólann. Fimmtudaginn 23. ágúst og föstudaginn 24. ágúst er skólasetning og líkt og undanfarin haust mæta nemendur með foreldrum sínum í viðtal við umsjónarkennara. Búið er að senda út tölvupóst til foreldra þar sem þeir eru beðnir um að staðfesta tíma. Mánudaginn 27. ágúst hefst kennsla samkvæmt stundarskrá og í þeirri viku er gert ráð fyrir að fara í gönguferð og verður hún nánar auglýst síðar.

Lesa meira
 
Hornsílin, The Glaciers í Mannheim 2012

Hornsílin, The Glaciers kominn heim - 13.6.2012 Fréttir Grunnskóli

Hornsílin eða The Glaciers eins og lególið Grunnskóla Hornafjarðar kallaði sig á erlendri grundu er nú komið heim úr mikilli ævintýraferð og allir sælir og glaðir. Liðið tók þátt í opna First Lego league Evrópumótinu sem var haldið í  Mannheim í Þýskalandi dagana 6. til 9. júní. Lesa meira
 
Legóhópurinn í Leifsstöð 2012

Legóhópurinn mættur til Mannheim - 6.6.2012 Fréttir Grunnskóli

Þá er Legóhópurinn okkar mættur til Mannheim í Þýskalandi þar sem First Lego League fer fram.

Lesa meira
 
Heppuskóli

Skólaslit Grunnskóla Hornafjarðar - 1.6.2012 Fréttir Grunnskóli

Skólaslit Grunnskóla Hornafjarðar verða í Íþróttahúsinu á Höfn föstudaginn 1. júní kl. 16:00. Þetta verða fimmtu skólaslit skólans en hann tók formlega til starfa 2007 við sameiningu Nesja-, Hafnar- og Heppuskóla. Í vetur stunduðu 286 nemendur nám við skólann í 15 bekkjardeildum.

Lesa meira
 
humar GH 2012

Sýning í Miðbæ á afrakstri þemavinnu - 31.5.2012 Fréttir Grunnskóli

Frá kl. 11:00-13:00 í dag fimmtudag verður sýning á afrakstri þemavinnu í 8. og 9. bekk grunnskólans í Miðbæ. Allir Hornfirðingar eru hvattir til að líta á sýninguna en á henni eru hugmyndir nemenda um það hvernig þeir vilja sjá Humarhátíðina í framtíðinni auk þess sem þeir segja frá því hvernig hún er.

Lesa meira
 
Unicef-vor-2012-044

Unicef, hlaupið til góðs - 29.5.2012 Fréttir Grunnskóli

Í dag hlupu nemendur skólans hið árlega UNICEF hlaup. Fyrir helgi fóru áheitaumslögin heim og í dag koma krakkarnir með spjaldið sem sýnir hversu marga hringi var hlaupið. Umslögunum á að skila í skólann á morgun eða á fimmtudag.UNICEF var stofnað 1946  innan Sameinuðu þjóðanna

Lesa meira
 
Hjóla- og hjálmadagur hjá 6. bekk

Reiðhjóladagaur Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Sjóvá. - 25.5.2012 Fréttir Grunnskóli

Slysavarnafélagið Landsbjörg, í samstarfi við Sjóvá, hefur í vikunni verið að hitta krakka í 6. bekk grunnskóla landsins og fræða þau um notkun á reiðhjólahjálmum, skyldubúnað reiðhjóla og merkingu umferðarmerkja.

Lesa meira
 
Drápsklettar, 6. bekkur

Gróður og róður - 25.5.2012 Fréttir Grunnskóli

Á miðvikudaginn fór 6. bekkur á skógræktarsvæðið við Drápskletta og settu niður 420 plöntur undir dyggri leiðsögn Herdísar Harðardóttur frá Skógræktarfélagi Austur-Skaftafellssýslu. Í ferðinni var einnig Rannveig Einarsdóttir

Lesa meira
 
Hluti af 10.-bekk í GH 2011-2012

Hornafjarðardeild Rauða krossins býður 10. bekk á skyndihjálparnámskeið - 25.5.2012 Fréttir Grunnskóli

Hornafjarðardeild Rauða krossins hefur í nokkur ár boðið 10. bekk á skyndihjálparnámskeið

Lesa meira
 
Reykir GH vor 2012

Á Reykjum er líf og fjör - 23.5.2012 Fréttir Grunnskóli

Nemendur í 7. bekk Grunnskóla Hornafjarðar ásamt nemendum úr Grunnskólanum í Hofgarði dvelja þessa vikuna í skólabúðum að Reykjum í Hrútafirði.

Lesa meira
 
Himingeimurinn 3. bekkur

3. HS og himingeimurinn. - 18.5.2012 Fréttir Grunnskóli

„Komdu og skoðaðu himingeiminn“ heitir verkefnið sem 3. bekkur hefur unnið að undanfarnar vikur.  Í verkefninu er leitast við að láta börnin öðlast skilning og yfirsýn yfir alheiminn sem samþætt kerfi.

Lesa meira
 
breytingar3

Breytingar í fullum gangi í Heppuskóla - 18.5.2012 Fréttir Grunnskóli

Núna er breytingar á neðri hæð Heppuskóla komnar í fullan gang. Verkinu á að vera lokið fyrir skólabyrjun í haust. Nemendur í 10. bekk hafa flutt sig um set og nema nú fræðin í FAS en aðrir bekkir eru eftir sem áður í Heppuskóla.

Lesa meira
 
4. E í Ekru

Ungir og aldnir vinna saman - 14.5.2012 Fréttir Grunnskóli

4. E í Grunnskólanum fór í heimsókn í Ekruna á síðasta þriðjudag og höfðu mjög gaman að. Eldri borgarar í dagvistinni kenndu krökkunum að búa til gjafakort eins og þau hafa gert um nokkuð skeið og fóru allir heim með kortin sín sælir og glaðir.

Lesa meira
 
Vikuhátíð 4. H

Marsbúa cha cha cha - 13.5.2012 Fréttir Grunnskóli

4. H hélt síðustu vikuhátíð vetrarins í Sindrabæ nú í byrjun maí. Krakkarnir voru með skemmtilega og fjölbreytta dagskrá en þar flutti Ingunn Ósk frumsamin ljóð, Sindri Blær las frumsamda örsögu, allir nemendur bekkjarins tóku þátt í leikriti sem heitir Greindarprófið,

Lesa meira
 
Svínaferð á Miðsker

Heimsókn að Miðskeri - 11.5.2012 Fréttir Grunnskóli

Miðvikudaginn 9.maí fór 2.bekkur að skoða svínabúið hjá Pálínu og Sævari á Miðskeri.  Þar sáum við fullt af svínum og grísum af hinum ýmsu stærðum og gerðum.

Lesa meira
 
Listahátíð 5 M

Listahátíð 5. M - 11.5.2012 Fréttir Grunnskóli

Krakkarnir í 5. M hafa ekki setið auðum höndum í vetur . Fimmtudaginn 10. maí var foreldrum boðið að sjá afrakstur verkefna sem unnin hafa verið að í ýmsum greinum. 

Lesa meira
 
vikuhatid-5.M vor 2012

Skólaráð og foreldrasamstarf - 11.5.2012 Fréttir Grunnskóli

Í gær var síðasti fundur skólaráðs á þessu skólaári en nýtt skólaráð verður kosið að hluta næsta haust. Hlutverk skólaráðs er mikilvægt því það kemur að öllum meiriháttar ákvörðunum innan skólans og er umsagnaraðili um skólastarfið almennt

Lesa meira
 
veb

Valhefti veturinn 2012-2013 - 9.5.2012 Fréttir Grunnskóli

Bæklingi fyrir valgreinar á næsta skólaári hefur verið dreift til nemenda í 7. – 10. bekk og kennir þar margra grasa og má með sanni segja að nemendur fái úr mörgu að velja á næsta skólaári. Reynt er að hafa valið sem fjölbreyttast og þannig uppsett að það höfði til sem flestra og allir fái val við hæfi.

Lesa meira
 
Heppuskóli

Blátt áfram í heimsókn - 8.5.2012 Fréttir Grunnskóli

Á mánudaginn fékk Grunnskóli Hornafjarðar góða heimsókn. Guðrún Helga Bjarnadóttir frá samtökunum Blátt áfram kom til okkar og hélt fyrirlestra fyrir nemendur í 5. – 10. bekk. Alls voru lífsleikni tímarnir 6 þar sem nemendum var skipt upp í hópa, eftir bekkjum og kyni.

Lesa meira
 
Heimsokn i Ekru

4. bekkur í heimsókn í Ekrunni. - 3.5.2012 Fréttir Grunnskóli

Í liðinni viku fór 4. H í heimsókn í dagvist aldraðra. Krakkarnir kynntu þar verkefni sem þau hafa unnið í vetur um Móse og ferð Ísraelsmanna yfir eyðimörkina. Heimsóknin hófst á kynningu þar sem við spjölluðum um ættir okkar og uppruna og reyndum að finna út hvort einhverjir væru skyldir hver öðrum.  Áður höfðu krakkarnir í 4 E farið í heimsókn og fara aftur næsta þriðjudag. Þetta var afar skemmtilegt og við hlökkum til að koma aftur.

Lesa meira
 
laugar

Á heimleið frá Laugum - 27.4.2012 Fréttir Grunnskóli

Núna er að ljúka dvöl  9. Bekkjar að Laugum í Sælingsdal. Dvölin hefur gengið vel fyrir sig og margt fyrir krakkana að gera. Áætlað er nemendur komi heim um klukkan 20:30, en stoppað verður á Hvolsvelli og borðað. Lesa meira
 
Picture-979

9. bekkur á Laugum í Sælingsdal - 24.4.2012 Fréttir Grunnskóli

Þessa vikuna dvelja krakkarnir í 9. bekk í ungmennabúðum UMFÍ að Laugum í Sælingsdal. Krakkarnir fóru vestur á sunnudaginn og tók ferðin 9 klukkustundir.

Lesa meira
 
Tonlist fyrir alla

Tónlist fyrir alla - 18.4.2012 Fréttir Grunnskóli

Á mánudag fékk Grunnskóli Hornafjarðar heimsókn frá Tónlist fyrir alla sem er sjálfstætt starfandi stofnun en rekin á vegum Mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Lesa meira
 
Vikuhatid hja 3 bekk

Sáttmálasöngur 3. HS - 30.3.2012 Fréttir Grunnskóli

Í Grunnskóla Hornafjarðar störfum við eftir uppeldisstefnunni „uppeldi til ábyrgðar“. Hluti af þeirri vinnu er að hver bekkur velur sér gildi eða kjörorð sem hann kýs að hafa að leiðarljósi yfir veturinn. Börnin vinna með  kjörorðin á margvíslegan hátt og 3. HS valdi að syngja  sín kjörorð. Bekkurinn  setti  kjörorðin í texta og valdi sér lagið Á íslensku má alltaf finna svar.

Lesa meira
 
4. bekkur

4. bekkur fær viðurkenningarskjöl - 30.3.2012 Fréttir Grunnskóli

Krakkarnir i 4. bekk hafa lokið söfnuninni fyrir abc-barnahjálp en það er orðin venja að 4. bekkur taki þátt í þeirri söfnun ár hvert og um leið fræðast krakkarnir um hagi barna í öðrum löndum. Í  ár söfnuðust 120.265 krónur og viljum við þakka bæjarbúum fyrir góðar móttökur.


Lesa meira
 
Paskar í 1. bekk

Páskar í 1. bekk - 30.3.2012 Fréttir Grunnskóli

Í þessari viku hefur skólastarfið verið óhefðbundið. Á fimmtudag var hinn árlegi hreinsunardagur  og í dag , föstudag,  buðu nemendur 1.SÞ foreldrum sínum að koma í heimsókn. Foreldrar og nemendur föndruðu saman skraut fyrir páskana og má segja að börn og fullorðnir hafi haft gaman af. Það er alltaf gaman að fá heimsókn í skólann og hvetjum við foreldra  til þessa að líta við sem oftast .

Lesa meira
 
veb-uppldj

Sigur í Stóru upplestrarkeppninni - 30.3.2012 Fréttir Grunnskóli

Stóra upplestrakeppnin var haldin á Djúpavogi, miðvikudaginn 28. mars. Þar kepptu nemendur í 7.bekk frá Djúpavogi, Hornafirði og úr Öræfum.

Lesa meira
 
Hreinsunardagur mars 2012

Hreinn bær og sól skein í heiði - 29.3.2012 Fréttir Grunnskóli

Í dag var okkar árlegi hreinsunardagur sem haldinn er í samstarfi við sveitarfélagið.  Það má með sanni segja að veðrið hafi leikið við okkur þar sem hita met var slegið.  Bænum var skipt niður á árganga sem fóru um og týndu rusl . Starfsfólk skólans er sammála um að bærinn hafi aldrei áður verið svona hreinn og lítið um rusl og telja margir að það megi rekja til þess að Björn Jónsson í áhaldahúsinu hefur unnið ötullega að því í vetur að halda bænum hreinum.

Lesa meira
 
itrottadagur

Stígvélakast, pönnukökubakstur og körfubolti - 25.3.2012 Fréttir Grunnskóli

Á  föstudaginn héldum við okkar árlega íþróttadag.  Dagurinn fer þannig fram að öllum nemendum skólans er skipt upp í 17 hópa og núna eru nemendur að fara í þriðja sinn í sama hópinn sem við höfum kosið að kalla vinahóp.

Lesa meira
 
skolahr-veb7

Kepptu í skólahreysti á Egilsstöðum, - 23.3.2012 Fréttir Grunnskóli

Nemendur í Grunnskóla Hornafjarðar kepptu í skólahreysti á Egilsstöðum, 15. mars s.l. Þau sem kepptu fyrir skólann voru: Sigmar Þór Sævarsson, Alrún Irene Stephensdóttir, Birkir Þór Hauksson og Anna Soffía Ingólfsdóttir.

Lesa meira
 
Undirbuningur arshatidar

Hafið bláa hafið - 20.3.2012 Fréttir Grunnskóli

Fimmtudaginn 22. mars verður árshátíð Grunnskóla Hornafjarðar haldin í íþróttahúsinu.  Árshátíðin sem ber heitið Hafið bláa hafið hefst kl 17:00 og húsið opnar kl 16:15. Aðgangseyrir er kr 500 en þó aldrei meira en kr 1000 á fjölskyldu. Ágóðinn rennur í ferðasjóð nemenda.  Allir  velkomnir.

Lesa meira
 
matr-veb8

Matreiðslukeppni 2012 - 20.3.2012 Fréttir Grunnskóli

Þann 12. mars s.l. var haldin matreiðslukeppni í grunnskólanum fyrir nemendur í 9. og 10. bekk.

Lesa meira
 
arshatid 2012

Bakað, skreytt, sungið og spilað - 19.3.2012 Fréttir Grunnskóli

Undirbúningur fyrir árshátíð skólans  er nú í fullum gangi.   Allir árgangar sem eru í heimilsfræði -smiðju er búnir að baka fyrir stóra daginn en boðið verður upp á kökur, kaffi og djús eins og áður.   2. og 4.bekkur sjá um að búa til skreytingar í samræmi við þemað sem að þessu sinni er hafið.      6. bekkur er að undirbúa sýningu á verkefni sem þau hafa verið að vinna að undanförnu en það heitir einnig Hafið og verður sýningin sett upp í íþróttahúsinu fyrir árshátíðina.

Lesa meira
 
Paskaungar í heimsókn

Páskaungar í heimsókn - 16.3.2012 Fréttir Grunnskóli

Í dag fengum við góða gesti í skólann Þegar Alla Fanney kom með hænuunga úr Grænahrauni til að sýna okkur.  Ungarnir vöktu að vonum mikla lukku og viljum við þakka henni kærlega fyrir þess heimsókn.  Í leiðinni viljum við í Grunnskólanum

Lesa meira
 
5. M vikuhatid

Hátíðardagskrá í boði 5. M - 15.3.2012 Fréttir Grunnskóli

Miðvikudaginn 14. mars var vikuhátíð hjá 5. M í Grunnskóla Hornafjarðar. Í boði var mjög metnaðarfull dagskrá sem var í höndum bekkjarins.

Lesa meira
 
skidi-vebb10

Skíðaferð í Oddskarð - 13.3.2012 Fréttir Grunnskóli

Þann 7. – 8. mars fórum við krakkarnir í 8. bekk ásamt farastjórunum, Ingibjörgu, Sigurborgu og Sævari í skíðaferð í Oddskarð.

Lesa meira
 
abc barnahjalp

Börn hjálpa börnum - 8.3.2012 Fréttir Grunnskóli

Í dag og næstu daga munu nemendur í 4.bekk ganga í hús og safna peningum. Söfnun þessi er á vegum abc-barnahjálpar. Í ár er verið að safna fyrir skólahúsnæði og heimavist fyrir börn í Kenya og Pakistan

Lesa meira
 
veb-ski2

Á skíðum skemmti ég mér..... - 7.3.2012 Fréttir Grunnskóli

Nemendur í 8. bekk ásamt starfsfólki héldu í Oddskarð í dag til að skerpa á skíðafærninni.

Lesa meira
 
skidaferd 6 bekkjar

Skíðaferð 6. bekkjar - 6.3.2012 Fréttir Grunnskóli

Fimmtudaginn 1. mars lögðum við af stað frá Hornafirði um kl. 8:30 og komum í Oddsskarð rétt fyrir hádegi. Það var sól og blíða sem tók á móti okkur í skarðinu og var mikil tilhlökkun í hópnum að drífa sig af stað í brekkurnar. Allir byrjuðu í barnabrekkunni og síðan færðu þeir sem voru reyndari sig yfir í stóru brekkuna. Krakkarnir máttu varla vera að því að fá sér nesti svo mikill var hugurinn í að nota góða veðrið og tækifærið til að skíða.

Lesa meira
 
karfa1

Körfuboltamót - 5.3.2012 Fréttir Grunnskóli

Þá er nemendafélagið komið af stað með enn eitt mótið og nú er keppt í körfubolta. Keppnin fer fram í frímínútunum kl. 9:30 og er leikinn einn leikur á dag.

Lesa meira
 
1 bekkur heldur hatid

1 bekkur stígur á svið - 4.3.2012 Fréttir Grunnskóli

Síðasta fimmtudag lukum við skóladeginum með því að fara í Sindarbæ og horfa á vikuhátíð 1. bekkjar. Nemendur bekkjarins voru búnir að setja saman heilmikla dagskrá sem þeir fluttu fyrir okkur.

Lesa meira
 
2 bekkur heldur vikuhatid

Vikuhátíð hjá 2. bekk - 4.3.2012 Fréttir Grunnskóli

2. S sá um vikuhátíð nú á dögunum. Krakkarnir sögðu brandara, sungu og svo voru lagðar fyrir gátur en þeir fengu Helgu sem er stuðningsfulltrúi í skólanum til að sitja fyrir svörum. Það má segja að gáturnar voru nokkuð flóknar og ekki alltaf auðvelt að koma auga á hið augljósa svar en Helga stóð sig með stakri prýði.

Lesa meira
 
2 bekkur heldur vikuhatid

Umboðsmaður barna í Nýheimum í dag kl.17 - 29.2.2012 Fréttir Grunnskóli

Í dag er sérfræðingur frá umboðsmanni barna í heimsókn hjá okkur. Hann verður með erindi fyrir foreldra í fyrilestrarsal Nýheima kl. 17:00 við hvetjum alla sem geta til að mæta.  Nemendur og starfsfólk skólans munu hitta hann í dag á skólatíma.

Lesa meira
 
vindagur 28. mars

Í fljúgandi góðum félagsskap í skólanum - 28.2.2012 Fréttir Grunnskóli

Á vinadegi í skólanum unnu nemendur þvert á bekki í öllum krókum og kimum skólans. Viðfangsefni vinahópanna var að búa til flugdreka og gekk það glimrandi vel þar til átti að láta þá fljúga. Þá var komið logn en það var svo sem allt í lagi því nú geta vinahóparnir hist aftur til að láta flugdrekana fljúga. Nemendur stóðu sig með afbrigðum vel og voru 72 flugdrekar afrakstur dagsins þar sem markmiðið var að kynnast og vera vinaleg hvert við annað.  Það verður spennandi þegar hægt verður að fara út og láta flugdrekana fljúga.

Lesa meira
 
vinavika

Vinadagur í grunnskólanum - 27.2.2012 Fréttir Grunnskóli

Á morgun, þriðjudag er vinadagur í skólanum þá vinnum við í hópum þvert á aldur.

Lesa meira
 
Skólakeppni

Skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar - 27.2.2012 Fréttir Grunnskóli

Þá er lokið skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar en hún fór fram í Nýheimum á mánudagsmorgun. 

Lesa meira
 
Starfskynning-vef

Starfskynningar í 10. bekk - 24.2.2012 Fréttir Grunnskóli

23. febrúar byrjuðu nemendur í 10. bekk í starfskynningum og munu þær standa fram undir miðjan maí.

Lesa meira
 
Oskudagsfjor 2012

Kötturinn sleginn úr tunnunni og marserað á öskudaginn. - 23.2.2012 Fréttir Grunnskóli

Við höldum áfram að segja frá því sem við höfum fyrir stafni á öskudaginn.  Samkvæmt hefð er kötturinn sleginn úr tunnunni. Í það verk eru notuð  bæði ekta síldartunnur úr við og pappakassar. 

Lesa meira
 
Oskudagur 2012

Hæfileikakeppni  á öskudaginn - 22.2.2012 Fréttir Grunnskóli

Á öskudaginn förum við í íþróttahúsið og gerum okkur ýmislegt til gamans. Einn liðurinn er t.d hæfileikakeppni en þá koma nemendur fram og sýna hæfileika sína í leik, dansi, söng og hljóðfæraleik svo eitthvað sé nefnt.

Lesa meira
 
öskudagur í Heppuskóla

Mikið um að vera á öskudegi - 22.2.2012 Fréttir Grunnskóli

Mikið var um að vera í skólanum á öskudag. Sitthvor dagskráin var fyrir yngra og eldra stig en á báðum stigum skemmtu nemendur sér stór vel.

Lesa meira
 
Oskudagur-i-Heppuskola-052-vef

Bekkjarkeppni stóru upplestrarkeppninnar - 22.2.2012 Fréttir Grunnskóli

Á þriðjudaginn var bekkjarkeppni stóru upplestrarkeppninnar.  Tólf nemendur komust áfram og keppa þeir aftur næsta mánudag.

Lesa meira
 
Leikskolinn i heimsokn feb 2012 (17)

Brúum bilið - 18.2.2012 Fréttir Grunnskóli

Nýtt form hefur verið tekið upp á svokölluðum vorskóla sem hugsað hefur verið sem aðlögun leikskólabarna að grunnskóladvöl sinni.

Lesa meira
 
handb_veb1

Handboltamóti lokið, 9.N. meistarar - 15.2.2012 Fréttir Grunnskóli

Í dag var leikið til úrslita á handboltamóti sem staðið hefur yfir í nokkurn tíma í skólanum. Í úrslitaleiknum áttust við lið 9.N. og lið kennara. Viðureignin var gífurlega spennandi en þó voru kennarar með undirtökin framan af en náðu samt aldrei að slíta lið 9.N. frá sér. Með miklu harðfylgi náðu leikmenn 9.N. að jafna leikinn og varð því að grípa til framlengingar. Strax í upphafi framlengingar var ljóst hvert stefndi og áttu leikmenn 9.N. ekki í teljandi vandræðum með að klára þá rimmu. Lesa meira
 
Getraun slokkvilidsinsn 005

Arna Ósk hlaut verðlaun í jólagetraun slökkviliðsins - 15.2.2012 Fréttir Grunnskóli

Í síðustu viku var dregið í slökkviliðsgetraun sem börnin í 3. HS tóku þátt í fyrir jól.

Lesa meira
 
Leggur og skel 03

Leggur og skel - 13.2.2012 Fréttir Grunnskóli

4. bekkur er að byrja á námsefni sem heitir Komdu og skoðaðu íslenska þjóðhætti en þar er fjallað um líf og störf fólks á Íslandi fyrr á öldum.

Lesa meira
 
Viltu vera vinur minn á Facebook

Viltu vera vinur minn á Facebook - 7.2.2012 Fréttir Grunnskóli

Í gærkvöldi frumsýndi leikhópur Grunnskólans leikritið Viltu vera vinur minn á Facebook eftir Önnu Brynju Baldursdóttur í leikstjórn Kristínar Gestsdóttur.  Leikritið er sýnt í Sindrabæ og er næsta sýning í kvöld þriðjudag kl. 20:00.  Sýningin stendur í rúmar 30 mínútur og það kostar 500 kr inn á sýninguna.

Lesa meira
 
veb-thorrabl-4

Þorrablót - 7.2.2012 Fréttir Grunnskóli

Þorrablót nemenda í 8. – 10. bekk var haldið í Sindrabæ fyrstu vikuna í febrúar. Það voru nemendur í 10. bekk sem sáu um skemmtiatriðin sem voru svo vægt sé til orða tekið „frábær“. Skemmtiatriðin fjölluðu að mestu um kennara og var greinilegt að hópurinn hafði lagt mikla vinnu í að gera þau sem best úr garði. Einnig var minni karla og kvenna flutt og var það gert með glæsibrag eins og allt annað hjá krökkunum þetta kvöld.

Lesa meira
 
Snjór á Höfn - GH 7. feb 2011

Annarskil í Grunnskóla Hornafjarðar - 31.1.2012 Fréttir Grunnskóli

Nú er komið að annarskilum. Vetrarönn að ljúka og vorönn tekur við. Föstudaginn 3. febrúar  er viðtalsdagur þar sem nemendur ásamt foreldrum mæta í viðtal við umsjónarkennara.

Lesa meira
 
veb_dans2

Dansinn dunar - 27.1.2012 Fréttir Grunnskóli

Valhópur í freestyle sýndi afrakstur vinnu sinnar í síðust viku. Það voru þær  Yrsa Ír Scheving, Birta Karlsdóttir, Katrín María Sigurðardóttir, Bryndís Arna Halldórsdóttir og Íris Björk Rabanes sem sýndu samnemendum sínum flotta og vel útfærða dansa. Það var auðheyrt að bæði nemendur og starfsfólk höfðu gaman af, enda uppskar hópurinn mikið lófaklapp í lokinn. Lesa meira
 
Verkefni um Mose i 4. bekk

Foreldrar í hádegisheimsókn - 23.1.2012 Fréttir Grunnskóli

Á föstudaginn var buðu nemendur fjórða bekkjar foreldrum sínum og ömmum í heimsókn í skólann. Tilefnið var lok verkefnisins um Móse og ferð hans með þjóð sína yfir eyðimörkina til fyrirheitna landsins. Undanfarnar vikur hafa nemendur unnið að verkefninu með þeim hætti að fyrst voru sögurnar um Móse lesnar, næst drógu nemendur myndir úr Biblíum upp á glærur sem var síðan varpað upp á stóran pappír á veggnum.

Lesa meira
 
Bondadagurinn 2012

Bóndadagur í skólanum - 20.1.2012 Fréttir Grunnskóli

Í Grunnskóla Hornafjarðar hefur lengi verið við lýði sá siður að drengirnir hlaupa hringinn í kringum skólann með annan fótinn í buxnaskálminni. Þetta þykir afar spennandi, sérstaklega á yngra stiginu en þeir eldri eru einnig duglegir að taka þátt. Stelpurnar taka þátt með því að hvetja strákana óspart áfram.

Lesa meira
 
veb_7456

Handbolti í Heppuskóla - 19.1.2012 Fréttir Grunnskóli

Á sama tíma og „strákarnir okkar“ keppa á EM halda nemendur í Heppuskóla handboltamót þar sem keppt er í tveim riðlum. Það er nemendafélagið sem stendur fyrir þessu móti sem haldið er í fyrstu frímínútum hvers dags.

Lesa meira
 
Nes snjor í mars

Starfsdagur í skólanum - 11.1.2012 Fréttir Grunnskóli

Föstudaginn 13. janúar er starfsdagur hjá starfsfólki skólans og því frí hjá nemendum.
 
Jólakveðja 2010

Jólin koma - 20.12.2011 Fréttir Grunnskóli

Í dag voru stofujól í Grunnskóla Hornafjarðar og að þeim loknum hófst jólafrí. Grunnskóli Hornafjarðar vill senda nemendum, foreldrum og starfsfólki innilegar óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Við þökkum samstarfið á árinu sem er að líða. Lesa meira
 
3 HS jolatresparty

Lestrarátak og piparkökur í 3 bekk grunnskólans - 17.12.2011 Fréttir Grunnskóli

Í byrjun desember ákváðu börnin í 3. HS að fara í lestrarátak. Átakið stóð í 2 vikur og á þeim tíma lásu börnin 245 bækur!

Lesa meira
 
veb-skak-001

Skák - 16.12.2011 Fréttir Grunnskóli

Eitt af því sem boðið hefur verið upp á í vali nemenda er skák. Sigurður Örn Hannesson hefur séð um að uppfræða krakkana um töfra skáklistarinnar og hver veit nema að skáksnillingar framtíðarinnar séu þarna á ferðinni. Tímabilinu lauk  með skákmóti. Sigurvegari var Kristján Vilhelm Gunnarsson, í öðru sæti var Halldór Hrannar Brynjúlfsson og í því þriðja Hjörvar Ingi Hauksson.  

Lesa meira
 
syning-i-Sindrabae-og-frimin-015-vef

Söngur og leikrit í Sindrabæ og spil og púsl í frímínútum - 15.12.2011 Fréttir Grunnskóli

Í gær var sýning í Sindrabæ fyrir nemendur í 7. - 10. bekk. Það voru nokkrir samnemendur þeira sem sungu fyrir þá og sýndu leikrit.

Lesa meira
 
Sveinbjörg og Alex Freyr í GH

Góðir gestir í heimsókn hjá okkur í Grunnskóla Hornafjarðar - 10.12.2011 Fréttir Grunnskóli

Það er gaman að segja frá því að Sveinbjörg Zophoníasdóttir og Alex Freyr Hilmarsson heimsóttu krakkana í 5. - 10. bekk fimmtudaginn 8. des.

Lesa meira
 
veb-skautar-027

Allir á skauta - 9.12.2011 Fréttir Grunnskóli

Undanfarið hefur verið hagstætt veður til að fara á skauta. Nemendur í grunnskólanum ásamt
kennurum sínum hafa verið dugleg við að sanna snilli sína á skautasvellinu og hafa margir bekkir lagt leið sína á svellið hjá „Hrossó“.

Lesa meira
 
3 bekkur i smiðju

3. bekkur í smiðju - 2.12.2011 Fréttir Grunnskóli

Tíminn er svo fljótur að líða og nú erum við hálfnuð í myndmennta- og heimilisfræðismiðjunum  og rúmlega það.  Börnin hafa staðið sig afskaplega vel og eru dugleg að vinna, vandvirk og taka vel eftir.
Í myndmenntinni erum við búin að ræða um myndbyggingu og mála mynd í kjölfarið, mála blöð og nota í klippimyndir, þar sem við skoðuðum formfræði vel og töluðum um formin.  Við höfum  verið að vinna pöddumyndir, puttastimpla og byrja á límþrykki. 

Lesa meira
 
veb-hljodkerfi-038

Hljóðkerfi í skólann - 2.12.2011 Fréttir Grunnskóli

Á dögunum færðu félagar í Lionsklúbbi Hornafjarðar ásamt foreldrafélagi skólans, skólanum að gjöf forláta hljóðkerfi ásamt hljóðnemum. Hljóðkerfið er nett og þægilegt að koma því upp þegar á þarf að halda. Við afhendinguna fluttu nemendur skólans nokkur lög við góðar undirtektir. Lesa meira
 
spurningakeppni Grunnskólanna 2011

Spurningakeppni Grunnskóla - 2.12.2011 Fréttir Grunnskóli

Þann 30.nóvember fóru 4 einstaklingar úr 10.bekk í til að taka þátt í Spurningarkeppni Grunnskólann en fjórðungskeppnin var haldin á Egilstöðum.

Lesa meira
 
rithofundar-veb4

Rithöfundakynning í grunnskólanum - 2.12.2011 Fréttir Grunnskóli

Rithöfundarnir Bryndís Björgvinsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson og Arnþór Gunnarsson litu við í gær og heilsuðu upp á krakkana.

Lesa meira
 
veb-myndm1

Skrímsli og furðuverur - 28.11.2011 Fréttir Grunnskóli

Skrímsli hafa sést á ferðinni í myndmenntastofunni. Eitt skrímslið var klætt bláum kufli og var með rauð grimmdarleg augu.

Lesa meira
 
kaffikvöld

Kaffihúsakvöld - 25.11.2011 Fréttir Grunnskóli

Nemendur í 10. bekk héldu kaffihúsakvöld þar sem þau sýndu foreldrum sínum afrakstur vinnu sinnar um Lónsöræfaferðina sem farin var í lok september.

Lesa meira
 
veb-vinab6

Vinabekkir - 24.11.2011 Fréttir Grunnskóli

Í tilefni af vinavikunni hafa ákveðnir bekkir tengst sem vinabekkir. Í dag heimsóttu t.d. nemendur í 2. bekk vinabekk sinn sem er 7. bekkur. Krakkarnir föndruðu saman, þar sem þau eldri aðstoðuðu yngri krakkana, eða öfugt. Einnig var gripið í spil ásamt því að spjalla saman. Þessi heimsókn tókst í allastaði mjög vel og færði þessa tvo aldurshópa örugglega nær hvor öðrum.

Lesa meira
 
Grunnskóli Hornafjarðr 2011

Draumaskólinn minn - 22.11.2011 Fréttir Grunnskóli

Þriðjudagurinn 22. nóvember hófst með óvenjulegu sniði í Grunnskóla Hornafjarðar því nýir bekkir (hópar) höfðu þá verið búnir til þvert á árganga. Unnu þessir hópar saman fram eftir morgni og var eitt af verkefnunum DRAUMASKÓLINN MINN.  Verkefnið er hluti af vinnu í vinaviku í skólanum og er afraksturinn til sýnis á Menningarmiðstöðinni.

Lesa meira
 
Vinavika GH 2011

Vinavika í skólanum - 21.11.2011 Fréttir Grunnskóli

Í morgun hófst vinavika í skólanum með því að nokkrir nemendur úr 10. bekk og nemendaráði settu hurðaspjöld á útidyr bæjarbúa með vinakveðjum frá nemendum skólans. .

Lesa meira
 
Vikuhatid 6 RE

Hátíð í boði 6. RE - 17.11.2011 Fréttir Grunnskóli

Í dag sá 6. RE um vikuhátíð, það var að vonum mikið fjör. Kynnar hátíðarinnar voru Ýrena og Leli.  Inga Sóley og Ylfa sungu lag og  Hekla, Guðrún Ása og Tinna dönsuð  slæðudans með. Bjarmi flutti brandara og Óliver og Aðalsteinn léku auglýsingabrandara. Elva, Dagbjört og Ýrena sögðu líka brandara. Tískusýningin var auðvita á sínum stað. Ýrena, Tinna, Díana og Dagbjört sungu eitt lag og svo stóðu Bjarmi og Aðalsteinn fyrir æsispennandi spurningakeppni.

Lesa meira
 
Dagur islenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu - 16.11.2011 Fréttir Grunnskóli

Í dag var haldið upp á dag íslenskrar tungu í Grunnskólanum. Einn liður í því er smásagna og ljóða samkeppni sem Grunnskólinn og Menningarmiðstöðin standa að. Nemendur í 4. – 10. bekk semja ljóð eða sögu og dómnefnd velur úr nokkur verk sem nemendur síðan flytja í Nýheimum. .

Lesa meira
 
Ugla í heimsókn

Ugla í heimsókn í Hafnar- og Heppuskóla - 15.11.2011 Fréttir Grunnskóli

Þeir Esjar og Sigbjörn sem eru í áhöfn Ásgríms Halldórssonar komu í heimsókn í Hafnar-og Heppuskóla með uglu sem þeir sýndu nemendum. Uglan vakt að vonum mikla athygli enda sjaldséðir slíkir gestir.

Lesa meira
 
Vikuhatid hja 3 bekk

Vikuhátíð í boði 3.HS - 14.11.2011 Fréttir Grunnskóli

Á föstudaginn var sá 3. bekkur um að halda vikuhátíð skólans. Hátíðin var að vanda haldin í Sindrabæ. Krakkarnir buðu upp á fjöruga og fjölbreytta dagskrá með dansi, söng, bröndurum að ógleymdri tískusýningu. Olivia og Kjartan sáu um að kynna dagskrána og gerðu það af stakri prýði. Við upphaf og lok hátíðarinnar fengu krakkarnir salinn með sér í fjöldasöng  og er óhætt að segja að allir hafi tekið vel undir.

Lesa meira
 
dodgeball

Beygjuboltamót - 11.11.2011 Fréttir Grunnskóli

Í þessari viku hófst byrjaði beygjuboltamót (dodgeballmót) á milli bekkja í Heppuskóla. Keppnin fer fram í frímínútum og keppa tveir bekkir á dag þessa vikuna. Undanúrslit og úrslit verða síðan í næstu viku. Það er nemendafélag skólans sem stendur fyrir þessari keppni. Góð stemning var á fyrsta leik í morgun og greinilegt að bæði keppendur sem og áhorfendur skemmtu sér vel. Lesa meira
 
10.bekkur

Að hafa kjark til að þora að vera jákvæður - 8.11.2011 Fréttir Grunnskóli

Dagurinn 8. nóvember er tileinkaður baráttu gegn einelti og afleiðingum þess. Einelti er dauðans alvara og til að koma í veg fyrir það þarf umræðan að vera opin og jákvæð.

 
Vikuhatid hja 6 RV

Vikuhátíð hjá 6 RV - 7.11.2011 Fréttir Grunnskóli

 Í liðinni viku hélt 6.RV vikuhátíð fyrir nemendur og starfsfólk í Hafnarskóla. Hátíðin var að venju haldin í Sindrabæ. Krakkarnir héldu úti afar skemmtilegri og fjölbreyttri dagskrá og má með sanni segja að þau hafi vakið stormandi lukku. Arndís og Svandís sáu um að kynna atriðin og fyrstar á svið voru Sigurborg og Guðný sem spiluðu tvö lög á klarinet fyrir áhorfendur.

Lesa meira
 
Lego

Hornsílin á lokasprettinum - 4.11.2011 Fréttir Grunnskóli

Legóhópur Grunnskóla Hornafjarðar, Hornsílin æfa sig af kappi þessa dagana fyrir hina árlegu legókeppni. Keppni fer fram í Reykjavík 12. nóvember og er spenningurinn að stig magnast í hópnum.

Lesa meira
 
Grunnskólinn 66° N

Grunnskóli Hornafjarðar tekur þátt í myndbandakeppni 66°N - 3.11.2011 Fréttir Grunnskóli

Í dag 2. nóvember opnar fyrir netkosningu í myndbandakeppni 66°N en nemendur úr Grunnskóla Hornafjarðar eiga eitt myndband í þeirri keppni. 

Lesa meira
 
Spurningakeppni

Spurningakeppni - 28.10.2011 Fréttir Grunnskóli

Í löngufrímínútunum undanfarna daga hefur farið fram spurningakeppni á milli bekkja í Heppuskóla. Keppnin hefur verið hin besta skemmtun og eru nemendur jafnt sem starfsfólk ánægt með framtakið og á nemendafélag skólans hrós skilið. Í næstu viku verður síðan úrslitakeppnin og eigast þá við nemendur úr 7.E., 8.I., 9.K. og 10. bekk. Lesa meira
 
Sudursveit-4-og-5-bekkur-mai-2010-003

Leiðsagnarmat, viðtalsdagur og vetrafrí - 28.10.2011 Fréttir Grunnskóli

Nú er búið að opna fyrir leiðsagnarmatið inni á mentor.is þannig að nemendur geta byrjað að fylla það út með foreldrum sínum. Fimmtudaginn 3. nóv. er viðtalsdagur en öll viðtöl fara fram í Hafnarskóla. Föstudaginn 4.nóv. er starfsdagur kennara og þá er frí hjá nemendum og mánudaginn 7. nóv. er vetrafrí. Skólinn hefst þriðjudaginn 8. nóv. samkvæmt stundaskrá.

 
Völuspá Grunnskólinn okt 2011

Völuspá - 25.10.2011 Fréttir Grunnskóli

Í dag sýndi Möguleikhúsið Völuspá í Íþróttahúsinu fyrir nemendur í 9. og 10. bekk og nemendur FAS.  Leikritið Völuspá byggir á hinni fornu Völuspá og veitir áhorfendum sýn inn í hugmyndaheim heiðinnar goðafræði. Þar segir m.a. frá fróðleiksfýsn Óðins, græðgi í skáldamjöðinn, forvitni hans um nútíð og framtíð, Fenrisúlfi, Baldri, Loka, Hugin og Munin og ótal fleiri persónum.

Lesa meira
 
Dansvika

Dansvika að baki - 25.10.2011 Fréttir Grunnskóli

Árleg dansvika í Grunnskóla Hornafjarðar er nú að baki, en henni lauk með frábærri danssýningu s.l. föstudag. Jón Pétur sem hefur komið hingað og kennt dans undanfarin ár var hæst ánægður með unga fólkið okkar, enda stóðu krakkarnir sig einstaklega vel.

Lesa meira
 
Dans

Danssýning - 20.10.2011 Fréttir Grunnskóli

 

Á morgun, föstudaginn 21. október  er  danssýning fyrir foreldra og forráðamenn í íþróttahúsinu. Sýningin hefst kl 12.30 og nemendur fara heim að lokinni sýningu.

 
Dansvika

Dansvika - 18.10.2011 Fréttir Grunnskóli

Núna stendur yfir hin árlega dansvika í Grunnskóla Hornafjarðar. Það er  Jón Pétur frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru sem sér um kennsluna eins og undanfarin ár. Almenn ánægja er hjá krökkunum og gaman að sjá hvernig þau leggja sig fram við að læra sporin. Skyldumæting er hjá 1. – 7. bekk en 8. – 10. bekkur hefur val um hefðbundna kennslu eða dans. Lesa meira
 
Fyrsta vikuhatidin

Fyrsta vikuhátíð vetrarins - 16.10.2011 Fréttir Grunnskóli

Í liðinni viku var haldin fyrsta vetrahátíð vetrarins en það var 4.bekkur E sem reið á vaðið að þessu sinni. Boðið var upp á fjölbreytta skemmtun þar sem allir sem tóku þátt skemmtu sér konunglega og á það við bæði um áhorfendur sem og listamennina sjálfa.

Lesa meira
 
Kynningarfundur 2011 í 8. - 10. b

Aðalfundur foreldrafélags Grunnskóla Hornafjarðar - 11.10.2011 Fréttir Grunnskóli

Aðalfundur foreldrafélags Grunnskóla Hornafjarðar var haldinn í matsal skólans þriðjudaginn 4. október síðastliðinn. Ágætis mæting var á fundinn þar sem farið var yfir starf síðasta árs með töluverðri áherslu á fræðslufund Guðrúnar Jónsdóttur frá Heimili og skóla sem haldinn var 22. september á vegum foreldrafélagsins.

Lesa meira
 
Þemadagur

Þemadagur - 9.10.2011 Fréttir Grunnskóli

Á föstudaginn var rautt þema í 7. – 10. bekk  og mættu bæði nemendur og kennarar í viðeigandi lit. Það er nemendafélag skólans sem stendur fyrir þessari uppákomu og var virkilega gaman að sjá hversu margir tóku þátt. Í löngufrímínútunum var síðan boðið upp á lifandi tónlist þar sem bæði nemendur og kennarar létu ljós sitt skína.

Lesa meira
 
3.-HS---Abraham-og-Sara--verkefni-021

3. bekkur í skemmtilegu verkefni - 7.10.2011 Fréttir Grunnskóli

Undanfarnar vikur hafa nemendur í 3. HS verið að lesa um ættfeður Ísraelsmanna. Eftir að hafa lesið um Abraham og Söru og ferðalag þeirra með ættingja sína og allar sínar eigur, var ráðist í að búa til stóra veggmynd af þessu ferðalagi.

Lesa meira
 
10.bekkur

Lónsöræfaferð 10.bekkjar - 6.10.2011 Fréttir Grunnskóli

Eftir samræmduprófin, miðvikudaginn 21.september fór 10.bekkur í Grunnskóla Hornafjarðar í þriggja daga ferð í Lónsöræfin. 19 nemendur voru í þessari ferð og voru Berglind  Steinþórsdóttir, Jón Bragason og Kristján Örn Ebenezarson leiðsögumenn í þessari ferð. Ferðin byrjaði á því að ganga niður Illakamb til að komast í skálann sem við gerðum að okkar heimahúsi í heilar 2 nætur. Þegar við höfðum komið okkur fyrir í skálanum og fengið okkur næringu fórum við í göngu  upp með Þilgili.

Lesa meira
 
Haukafell-1-4-bekkur

Skólafærninámskeið fyrir foreldra 1. bekkinga - 5.10.2011 Fréttir Grunnskóli

Fimmtudaginn 6. október verður haldinn fyrsti hluti skólafærninámskeiðs fyrir foreldra 1. bekkinga Grunnskóla Hornafjarðar. Námskeiðið verður í matsal skólans og stendur frá kl. 20:00 – 22:00. Vonast er eftir því að allir foreldrar mæti á námskeiðin og fræðist um námið og vinnustað barna sinna. Dagskrá námskeiðsins er eftirfarandi:

Lesa meira
 
nemendur

Skólafærninámskeið fyrir foreldra 7. bekkinga - 3.10.2011 Fréttir Grunnskóli

Í kvöld verður haldið skólafærninámskeið fyrir foreldra 7. bekkinga í Grunnskóla Hornafjarðar. Námskeiðið er haldið í Heppuskóla og hefst kl. 19:30 og því líkur kl. 21:30. Það er von okkar að allir foreldrar 7. bekkinga mæti og eigi með okkur ánægjulega og fræðandi kvöldstund.

Dagskrá skólafærninámskeiðsins er eftirfarandi:

Lesa meira
 
Vestmannaeyjar haust 2011

Áttundi bekkur í Vestmannaeyjum - 30.9.2011 Fréttir Grunnskóli

Í síðustu viku fór 8. bekkur í skólaferðalag til Vestmannaeyja. Ferðin tókst í allastaði vel og lék veðrið við ferðalangana sem fengu að upplifa eyjarnar í sól og blíðu.

Lesa meira
 
hjol i skola

Gengið og hjólað í rigningunni - 30.9.2011 Fréttir Grunnskóli

Nú er lokið hinni vikulöngu bekkjarkeppni skólans í Göngum í skólann verkefninu og því minnum við á að nú þarf að skila hreyfidagbókinni  til umsjónarkennara.

Lesa meira
 
Grunnskolanemendur

Fræðslufundur Heimilis og skóla - 22.9.2011 Fréttir Grunnskóli

Foreldrafélag Grunnskóla Hornafjarðar stendur fyrir fræðslufundi Heimilis og skóla í Nýheimum í kvöld kl. 20:00 Vinnum saman að velferð barnanna okkar og fjölmennum á fundinn.

 
vef-010

Af Vestmannaeyjaförum og öðrum ferðalöngum - 21.9.2011 Fréttir Grunnskóli

Nemendur í 8. bekk  eru núna í skólaferðalagi í Vestmannaeyjum. Þau héldu af stað í gær ásamt þremur starfsmönnum frá skólanum. .

Lesa meira
 
Nyskopunarkeppnin

Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda - 19.9.2011 Fréttir Grunnskóli

Þann 11. september fór fram verðlaunaafhending  Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda en hún var haldin í  20. sinn.

Lesa meira
 
Sudursveit september 2011

4. og 5. bekkur heimsóttu Suðursveit. - 18.9.2011 Fréttir Grunnskóli

Í síðustu viku fóru 4. og 5. bekkur í námsferð í Suðursveit.  Ferð þessi er farin annað hvert ár og er með þeim hætti að annan daginn er farið á Hala en hinn daginn er gengið inn í Þröng en þá er gengið inn að Breiðamerkurjökli meðfram Fellsfjalli og gist er í Hrollaugsstöðum. Í þetta sinn byrjuðum við á Hala þar sem Þórbergssafnið var skoðað undir leiðsögn Þorbjargar Arnórsdóttur , fiskeldið skoðað hjá Fjölni Torfasyni og farið í ratleik sem settur hefur verið upp bæði með sögulegum fróðleik og fróðleik um örnefni.

Lesa meira
 
nemendarad

Kosið í nemendaráð - 15.9.2011 Fréttir Grunnskóli

Síðustu daga hefur staðið yfir kosning í nemendaráð
Heppuskóla og á hver árgangur tvo fulltrúa í ráðinu. Þau sem voru kosin eru: Jóel Ingason og Brandur Ingi Stefánsson úr 7. bekk, Sigrún Salka Hermannsdóttir og Sigríður Gísladóttir úr 8. bekk, Anna Birna Elvarsdóttir og Hafþór Snorrason úr 9. bekk og Arnar Freyr Valgeirsson og Ragnar Magnús Þorsteinsson úr 10.bekk. Þetta er glæsilegur hópur og óskum við þeim velfarnaðar í þeim verkefnum sem framundan eru.

Lesa meira
 
ferdalag 6- 7 bekkur

Frábær ferð í Öræfi - 9.9.2011 Fréttir Grunnskóli

Nemendur í 6. og  7. bekk fóru í námsferð í Öræfin í vikunni sem er að líða. Lagt var af stað frá Hafnarskóla á þriðjudagsmorguninn og var það hress og kátur hópur nemenda sem og starfsmanna sem steig um borð í rúturnar. Fyrsta stopp var við Jökulsárlón þar sem kíkt var í nestispokana og hópurinn viðraður. Næsti áfangastaður var Hofgarður þar sem vistir voru bornar í hús og að því loknu var stefnan tekin á Skaftafell

Lesa meira
 
Haustfagnaður í GH 2011 - ÞT

Haustfagnaður - 9.9.2011 Fréttir Grunnskóli

Nemendur í 8. – 10. bekk héldu árlegan haustfagnað sinn í Sindrabæ í gærkvöldi.

Skemmtunina hófst með kjúklingahlaðborði og endaði á rífandi góðu diskóteki en í millitíðinni voru skemmtiatriði í boði 9. bekkinga sem báru veg og vanda af kvöldinu.

Í tilefni dagsins var einn tími á skóladeginum í gær tekinn í leiki og spil þar sem allir í 7. – 10. bekk gátu valið sér viðfangsefni.

Lesa meira
 
Haukafell-1-4-bekkur

Berjaferð í Haukafell - 8.9.2011 Fréttir Grunnskóli

Í dag, fimmtudag fóru nemendur í 1. – 4. bekk í berjamó og eins og svo oft áður var stefnan tekin í Haukafell. Veður var ágætt, örlítið svalt en í Haukafelli er alltaf hægt að finna sér skjól.

Lesa meira
 
Hlaupið á Sindarvöllum

Göngum, hlaupum, hjólum í skólann. - 7.9.2011 Fréttir Grunnskóli

Miðvikudaginn 7. september kl. 10.00 verður Göngum í skólann verkefnið formlega sett af stað  í Síðuskóla á Akureyri.

Lesa meira
 
veb_2

Gengið fyrir Horn - 1.9.2011 Fréttir Grunnskóli

Í vikunni fóru 5. – 10. bekkur í hina árlegu gönguferð skólans  að þessu sinni var ákveðið að ganga fyrir Horn. Ferðin hófst á rútuferð út að Firði og þaðan var gengið yfir að Horni.

Lesa meira
 
skolaslit-018-vef

Skólasetning grunnskólans - 17.8.2011 Fréttir Grunnskóli

Skólasetning í Grunnskóla Hornafjarðar verður 24. og 25. ágúst. Skólasetning fer fram með þeim hætti að umsjónarkennarar boða nemendur og foreldra í viðtal þar sem markmið vetrarins verða rædd. 

Lesa meira
 
Frumurnar í Delft 2011

Frumurnar komnar heim - 11.6.2011 Fréttir Grunnskóli

Lególið Grunnskóla Hornafjarðar, sem tók þátt í opnu Evrópumóti FLL (First Lego league) er komið heim. Keppnin fór fram í Delft í Hollandi og var hin skemmtilegasta.
Lesa meira
 
Starfsfólk GH á Albir

Kvennahlaup á Spáni - 4.6.2011 Fréttir Grunnskóli

Konur úr Grunnskóla Hornafjarðar hlupu kvennahlaupið í eldsnemma í morgun á Spáni en hópur af starfsfólki skólans er statt þar þessa dagana á námskeiði og í skólaheimsóknum. 

Lesa meira
 
unicef-2010-056

Unicef- hreyfingin - 1.6.2011 Fréttir Grunnskóli

Grunnskóli Hornafjarðar tók þátt í Unicef-hreyfingunni eins og undanfarin ár. Í ár voru það krakkarnir í 1. – 9. bekk sem tóku þátt, því 10. bekkur var í skólaferðalagi. 

Lesa meira
 
Sigurliðið Frumurnar í 7. bekk GH

Frumurnar hefja keppni á morgun - 31.5.2011 Fréttir Grunnskóli

Frumurnar hefja keppni í Delft í Hollandi á morgun.  Frumurnar eru legóhópur Grunnskólans, skipaður 10 nemendum úr 7. bekk, sem vann legókeppnina á Íslandi í nóvember.  Nú fara Frumurnar sem fulltrúar Íslands til Hollands þar sem þær taka þátt í Evrópukeppninni. 

Lesa meira
 
Skólaslit Grunnskóla Hornafjarðar 2011

Skólaslit í Grunnskóla Hornafjarðar - 31.5.2011 Fréttir Grunnskóli

Grunnskóla Hornafjarðar var slitið í fjórða sinn 30. maí í íþróttahúsi Hafnar.  Dagskrá skólaslitanna hófst á götuleikhúsi fyrir utan íþróttahúsið og eldgosasýningu en að henni lokinni færði fólk sig inn í íþróttahúsið, í hlýjuna því heldur napurt var þennan dag. 

Lesa meira
 
2. SÞ 2011 Byggðasafn og Jöklasafn

Vordagar hjá 2. bekk SÞ - 30.5.2011 Fréttir Grunnskóli

2. bekkur SÞ hefur lagt land undir fót undanfarna daga og skoðað söfnin í bænum. Við byrjuðum á að skoða verbúðina í Miklagarði í tengslum við þemaverkefni um hafið sem bekkurinn var að vinna að.

Lesa meira
 
skolaslit-018-vef

Skólaslit kl. 17:00 mánudaginn 30. maí - 27.5.2011 Fréttir Grunnskóli

 

Grunnskóla Hornafjarðar verður slitið við hátíðlega athöfn í Íþróttahúsinu á Höfn kl. 17:00 mánudaginn 30. maí.

Lesa meira
 
10. bekkur GH vor 2011

Höfn, umhverfisvænn heilsubær og eldfjallavinna - 26.5.2011 Fréttir Grunnskóli

Dagskrá síðustu daga skólans fór heldur betur úr skorðum á unglingastiginu þegar gos hófst í Grímsvötnum.

Lesa meira
 
Grunnskóli Hornafjarðar 2011

Frumurnar á leið til Hollands - 19.5.2011 Fréttir Grunnskóli

Nú er heldur betur farið að styttast í að legóhópurinn Frumurnar fari á Evrópumótið í legó en mótið fer fram í Delft í Hollandi 2. – 4. júní.

Lesa meira
 
Öræfaferð hjá 3. bekk 2011 Grunnskóla Hornafjarðar

Öræfaferð hjá 3.bekk vor 2011 - 18.5.2011 Fréttir Grunnskóli

Mánudaginn 16. maí fór 3. bekkur  í vorferð í Öræfin, þegar við vorum búin að ná í matinn á Víkina og súkkulaðikökuna í bakaríið þá lögðum við af stað í ferðalagið okkar. 

Lesa meira
 
Háskólalestin í Grunnskóla Hornafjarðar 2011

Háskólalestin í heimsók í Grunnskóla Hornafjarðar - 13.5.2011 Fréttir Grunnskóli

Í dag voru allir nemendur í 7. - 10. bekk skólans, ásamt nemendum frá Djúpavogi og Hofgarði í Háskóla unga fólksins sem ferðast um landið með Háskólalestinni í tilefni 100 ára afmælis Háskóla Íslands.  Þetta var einstaklega skemmtilega heimsókn og nutu nemendur þess að læra japönsku, táknmál, latínu, sjúkraþjálfun, stjörnufræði, kynjafræði eða nýsköpun.  Á morgun veður Háskólalestin síðan með dagskrá fyrir almenning í Nýheimum.

Lesa meira
 
Vorhátíð GH 2011

Vorhátíð á eldra stigi - 13.5.2011 Fréttir Grunnskóli

Í gær hélt eldar stigið vorhátíð sína með pompi og prakt.  Samkvæmt venju var kvöldið tileinkað 10. bekk og sá 9. bekkur um allan undirbúning og utanumhald.  Foreldrar 9. bekkinga grilluðu hamborgar fyrir allan hópinn og DJ Óli Geir sá um að halda uppi stuðinu á ballinu. En myndir segja meira en mörg orð.

Lesa meira
 
Vikuhátíð hjá 4. bekk í maí 2011

Vikuhátíðir - 11.5.2011 Fréttir Grunnskóli

Nemendur skólans hafa verið duglegir við að sinna sviðslistum í vetur. Með reglulegu millibili hafa verið haldnar svokallaðar vikuhátíðir á yngra stig þar sem hver árgangur eða einstakir bekkir hafa stigið á svið og skemmt sjálfum sér og skólafélögum sínum með margvíslegum hætti. Vikuhátíðin hefur oftast verið haldin í Sindrabæ en einnig í skólastofum og nú í vikunni nýtti 4.M sér vorblíðuna og bauð til útileikhúss þar sem hin ýmsu sirkusatriði voru á dagskrá. Bæði flytjendur og áhorfendur nutu sýningarinnar og veðurblíðunnar og hlakka til næstu vikuhátíðar.  

Lesa meira
 

Tímabundin tannlæknaþjónusta tekjulágra foreldra/forráðamanna - 11.5.2011 Fréttir Grunnskóli

Vakin er athygli á verkefninu „Tímabundin tannlæknaþjónusta fyrir börn tekjulágra foreldra/forráðamanna“  http://www.tr.is/tannvernd-barna/. Jafnframt er bent á að þessi þjónusta er tímabundin og því þarf að bregðast við.

Upplýsingar á pólsku eru einnig á vef Reykjvíkurborgar: http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-4449/7620_read-26280/

Umsóknarfrestur er til 1. júní.   

Lesa meira
 
Útimatreidsla í GH vorið 2011

Fréttir frá útieldhúsi - 9.5.2011 Fréttir Grunnskóli

 

Við erum ekki búin að vera heppin með veður síðustu fimmtudaga og verið frekar erfitt að finna skjól enn síðasta fimmtudag var ákveðið að nota rústirnar fyrir ofan Miklagarð til að glóðarsteikja pítsulengjur. Það eru allir mjög áhugasamir og duglegir í þessum hópi og bíða spenntir eftir því að komast á sjóstangarveiði.

Kveðja frá útieldhúsi

Lesa meira
 
Foreldraheimsókn í 2.SÞ

Foreldrar í heimsókn - 15.4.2011 Fréttir Grunnskóli

Fimmtudaginn 14. apríl og föstudaginn 15. apríl buðu nemendur í 2. SÞ foreldrum sínum í heimsókn. Börnin gátu valið um þrjú mismunandi verkefni til að vinna að með foreldrum sínum meðan á heimsókninni stóð og að sjálfsögðu var heitt á könnunni fyrir kaffiþyrsta foreldra  Lesa meira
 
5. bekkur á æfingu fyrri árshátíð

Árshátíðarundirbúningur á fullu - 24.3.2011 Fréttir Grunnskóli

Nú er allt á öðrum endanum í  skólanum því nemendur og starfsmenn eru á fullu við að leggja lokahönd á undirbúnig fyrir árshátíð skólans sem hefst kl. 17:30 í Íþróttahúsinu í dag.

Lesa meira
 
Stóra upplestrarkeppnin

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar á Suð-Austurlandi - 23.3.2011 Fréttir Grunnskóli

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar  á Suð-Austurlandi fór fram í Hafnarkirkju í dag. Þar lásu 11 nemendur úr 7. bekk þriggja grunnskóla á svæðinu; Grunnskóla Djúpavogs, Grunnskóla Hornafjarðar og Grunnskólanum í Hofgarði.  Lokahátíðir eru haldnar í hverjum landshluta fyrir sig og veita Sparisjóðirnir verðlaun þremur efstu keppendunum.   

Lesa meira
 
6 bekkur í GH

6. bekkur í Oddsskarði - 23.3.2011 Fréttir Grunnskóli

 

Nemendur 6. bekkjar eru búnir að eiga góðar stundir í Oddsskarði á skíðum. Þau voru mætt í fjallið um hádegi í gær og skíðuðu fram undir kvöld. Þá tók við hin sívinsæla skíðaskála dvöl sem klikkaði ekki frekar en venjulega. Krakkarnir hafa verið ágætlega heppin með veður en svolítill vindur er búinn að vera hjá þeim. Skíðað verður til hádegis í dag og er áætluð heimkoma þeirra á milli 16:00 og 17:00.

Lesa meira
 
8.-K-med-kennaranum-sinum

Háskóli unga fólksins á ferð um landið - 22.3.2011 Fréttir Grunnskóli

Háskóli unga fólksins, HUF, hefur verið starfræktur á vegum Háskóla Íslands frá árinu 2004 og notið mikilla vinsælda.. Í tilefni aldarafmælis HÍ 2011 verður starfsemi HUF með hátíðarsniði og skólinn á faraldsfæti.   Þar ber hæst  ferð Háskóla unga fólksins með svokallaðri Háskólalest sem heimsækir níu áfangastaði á landinu í samstarfi við Rannsóknarsetur HÍ á landsbyggðinni, grunnskóla, sveitarfélög o.fl.

Lesa meira
 
Stóra upplestrarkeppni í GH 2011

Stóra upplestrarkeppnin í fullum gangi - 14.3.2011 Fréttir Grunnskóli

Í marsmánuði ár hvert lýkur Stóru upplestrarkeppninni í 7. bekk en hún hefst formlega á degi íslenskrar tungu 16. nóvember.  Markmiðið með keppninni er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði og víst er að margir afburðalesarar hafa komið fram á sjónarsviðið í keppninni. 

Lesa meira
 
Öskudagur 2011 GH y

Hæfileikakeppni, marsering og margt fleira - 9.3.2011 Fréttir Grunnskóli

Yngri börnin í skólanum bíða öskudags með óþreyju og finnst gaman að hittst í skólanum og skoða búningana hvert hjá öðru og gera skemmtilega hluti saman. 

Lesa meira
 
Öskudagur 2011 GH e

Sýning í Sindrabæ, fáránleikar og pönnukökur - 9.3.2011 Fréttir Grunnskóli

Á öskudag var breytt út af hefðbundnu skólastarfi eins og vera ber. Á unglingastiginu voru nemendur úr leiklistarsmiðju, söngvavali og freestyle með stórglæsilega sýningu í Sindrabæ.  Einnig var keppt í fáránleikum en þeir snúast um að keppa í óhefðbundnum íþróttagreinum og að lokum buðu stúlkur úr 9. bekk upp á pönnurkökur í lok dagsins. Skemmtilegur dagur þar sem flestir náðu að rifja upp barnið í sér jafnt nemendur sem starfsmenn.

Lesa meira
 
Víkingasveitin

Blús í Sindrabæ - 4.3.2011 Fréttir Grunnskóli

Í morgun var nemendum skólans boðið á blús í Sindrabæ þar sem Bigband Tónskólans steig á stokk í tilefni þess að um helgina verður Norðurljósablús á Hornafirði. Í Víkingsveitinni eru nokkrir nemendur úr skólanum og svo fengu aðrir að spreyta sig í nokkrum lögum.  Allir skemmtu sér konunglega á blúsnum og þakkar skólinn aðstandendum Norðurljósablús kærlega fyrir blúsinn.

Lesa meira
 
Tölvukennsla

Tölvukennsluvefur - 28.2.2011 Fréttir Grunnskóli

Sett hefur verið upp ný heimasíða í Upplýsinga- og tæknimennt fyrir eldra stigið eða nemendur Heppuskóla. Farið er inn á þessa heimasíðu hér eða á tenglinum efst til hægri hér til hliðar sem heitir Upplýsinga og tæknimennt. Megin tilgangur síðunnar er að veita upplýsingar um tölvukennsluna í 7. - 10. bekk og hvernig smiðjurnar eru uppsettar.

Lesa meira
 
Skólahreysti í GH 2011

Skólahreystidagur - 28.2.2011 Fréttir Grunnskóli

Undankeppni fyrir Skólahreysti var haldin síðastliðinn fimmtudag og fengu allir nemendur að prófa þrautirnar. Um morguninn fengu yngri bekkirnir að fara í gegnum hraðabraut, strákarnir fengu svo að fara í upphífingar og dýfur en stelpurnar spreyttu sig í armbeygjum og í að hanga. Eftir hádegi var svo komið að keppninni sjálfri. Fjölmargir keppendur mættu til leiks úr 7.-10. bekk.

Lesa meira
 
Á þorra í GH 2011

Þorraþræll á næsta leyti - 19.2.2011 Fréttir Grunnskóli

Þá er þorrinn að renna sitt skeið, sól tekin að hækka á lofti og konudagur á sunnudag.160;

Lesa meira
 
Snjór á Höfn - GH 7. feb 2011

Snjór - snjór - snjór - 7.2.2011 Fréttir Grunnskóli

Mikið fjör hefur verið í frímínútunum í dag, krakkarnir nýttu sér snjóinn og mættu margir með snjóþotur og sleða til að renna sér á.

Lesa meira
 
Árshátíð 2010

Skýrsla vegna úttektar á skólanum - 1.2.2011 Fréttir Grunnskóli

Nú hafa starfsmenn matsfyrirtækisins Hitt og þetta skilað inn skýrslu sem unnin var vegna úttektar á skólanum.  Skýrslan er aðgengileg hér og hvetjum við þá sem eru áhugasamir um skólastarf á Hornafirði að kynna sér hana.  Í skólanum verður skýrslan notuð til að styrkja innviði skólans og er ýmsar gagnlegar ábendingar að finna í henni. 

Lesa meira
 
Berjaferð haust 2010 í Haukafell

Foreldranámskeið um hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar - 12.1.2011 Fréttir Grunnskóli

Nú er að fara af stað foreldranámskeið um hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar.  Námskeiðið er nú haldið í annað sinn og er opið öllum foreldrum . Námskeiðið er 5 skipti, einn og hálfur tími í senn í matsal Grunnskólans og verður á  þriðjudagskvöldum klukkan 20:00 eftirfarandi daga;  

Lesa meira
 
Jólakveðja 2010

Gleðilega jól og farsælt komandi ár - 20.12.2010 Fréttir Grunnskóli

Starfsfólk Grunnskóla Hornafjarðar óskar nemendum, foreldrum og Skaftfellingum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þakkar samstarfið á árinu sem er að líða.

Lesa meira
 
Kveðjuhóf Droplaugar

Droplaug kvödd - 17.12.2010 Fréttir Grunnskóli

Um áramót lætur Droplaug Jónsdóttir af störfum hjá skólanum eftir rúmlega 24 ára farsælt starf og sest í helgan stein.
Lesa meira
 
Jólasöngur 2010

Nú nálgast jólin - 16.12.2010 Fréttir Grunnskóli

Jólaundirbúningurinn stendur nú sem hæst í grunnskólanum. Litlu jólin og pakkaballið verða fimmtudaginn 16. desember, jólabíó verður í Heppuskóla og vikuhátíð í Hafnarskóla þann 17. og mánudaginn 20. desember endum við skólaárið með því að eiga ljúfa stund saman á stofujólum.

Lesa meira
 
Sigurliðið Frumurnar í 7. bekk GH

Frumurnar sigruðu Legókeppnina - 15.11.2010 Fréttir Grunnskóli

Frumurnar, lið Grunnskóla Hornafjarðar sigraði hina árlegu First Lego League keppni sem haldin var í Keili í Keflavík, laugardaginn 13. nóvember.

Lesa meira
 
Norræni loftslagsdagurinn í GH 2010

Norræni loftslagsdagurinn - 13.11.2010 Fréttir Grunnskóli

Í tilefni af Norræna loftslagsdeginum 11. nóvember söfnuðust nemendur og starfsfólk skólans saman á sparkvellinum undir íþróttahúsinu og önduðu að sér ferska loftinu.

Lesa meira
 
Komdu og skoðaðu í kistuna mína

Íslenskir þjóðhættir í 4. bekk - 5.11.2010 Fréttir Grunnskóli

Það var mikið um að vera hjá 4. bekk M í gær. Krakkarnir hafa verið að læra um íslenska þjóðhætti og af því tilefni voru þau með sýningu fyrir vini og vandamenn á verkefnum sínum. 

Lesa meira
 
Forvarardagurinn 2010 í Grunnskóla Hornafjarðar

Forvarnardagurinn - 3.11.2010 Fréttir Grunnskóli

Í dag var Forvarnardagurinn haldinn á landsvísu og fengu nemendur 9.bekkjar boð um að taka þátt. Að sjálfsögðu tók okkar grunnskóli boðinu og í tilefninu af því fóru fyrstu tveir tímarnir í að vinna ákveðna hópavinnu. 

Lesa meira
 
Göngum í skólann

Göngum í skólann - 26.10.2010 Fréttir Grunnskóli

Nú er ný lokið átakinu Göngum í skólann. Nemendur og starfsfólk  í Grunnskóla Hornafjarðar tóku þátt í átakinu og eitt af því sem var gert hér var að senda hreyfidagbók heim með hverjum nemanda. Tæplega 60% nemenda skilaði hreyfibókinni aftur í skólann.

Lesa meira
 
Stodvum-einelti

Stöðvum einelti - 25.10.2010 Fréttir Grunnskóli

ÞÉR ER BOÐIÐ AÐ SÆKJA BORGARAFUND

Í EINELTISÁTAKINU STÖÐVUM EINELTI!

Fundurinn verður haldinn 28. október kl. 20:00

í Nýheimum á Höfn í Hornaf irði. Jafningjafræðslufundur

verður haldinn þar á undan kl. 18:00 fyrir

efstu bekki grunnskólans.

Lesa meira
 
Danssýning i GH 22. okt 2010

Glæsileg danssýning - 25.10.2010 Fréttir Grunnskóli

Á föstudaginn var glæsileg danssýning í íþróttahúsinu í lok dansvikunnar.  Þá sýndu um 240 nemendur dansa sem þeir höfðu æft í vikunni og það var ekki laust við að áhorfendur sem voru gríðarmargir fengju gæsahúð þegar allur hópurinn dansaði tvo dansa saman í lokin.  Svo frábært var það. 

Lesa meira
 
Dansæfing í okt 2010

Danssýning í íþróttahúsinu á föstudag - 20.10.2010 Fréttir Grunnskóli

Danssýning hjá nemendum skólans verður í íþróttahúsinu á Höfn föstudaginn 22. október kl. 13:00.  Í vikunni hafa allir nemendur í 1. - 7. bekk æft dans og langflestir nemendur 8.-10. bekkjar þar sem dansinn er val.  Foreldrar og aðrir áhugasamir dansunnendur velkomnir.

Lesa meira
 
Stjórn foreldrafélagsins 2010-2011

Frá aðalfundi foreldrafélagsins - 12.10.2010 Fréttir Grunnskóli

Aðalfundur foreldrafélagsins var haldinn í matsal Grunnskólans þriðjudaginn 5. október.  Formaður, Kolbrún Þ.Björnsdóttir, bauð fundargesti velkomna og Barnakór Hornafjarðar tók svo við og söng nokkur lög fyrir fundargesti undir styrkri stjórn Kristínar Jóhannesdóttur tónmenntakennara. Lesa meira
 
Heimsókn 4 bekkjar í dagvist aldraðra

Brúum kynslóðabilið - OLE2 - 1.10.2010 Fréttir Grunnskóli

Það var handagangur í öskjunni á mánudaginn 27. september og í dag þegar nemendur úr 4. bekk Grunnskóla Hornafjarðar heimsótti dagvist aldraðra.

Lesa meira
 
10. bekkur á Lónsöræfum haustið 2010

Ferð á Lónsöræfi með 10. bekk - 1.10.2010 Fréttir Grunnskóli

Það voru þrjátíu og fimm nemendur úr 10. bekk Grunnskóla Hornafjarðar ásamt fjórum kennurum og Jóni Bragasyni sem fóru í þriggja daga ferð í Lónsöræfi þann 22.-24. september.

Lesa meira
 
Nýsköpunarkeppni 2010 - keppendur úr Grunnskóla Hornafjarðar

Úrslit í nýsköpunarkeppninni - 21.9.2010 Fréttir Grunnskóli

Okkar fólki gekk aldeilis vel í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda. Arndís Ósk Magnúsdóttir sigraði í hönnunarflokknum en hún hannaði nýja gerð af stiga til að fara yfir girðingu. Jóel Ingason lenti í þriðja sæti í flokknum orka og umhverfi auk þess sem hann fékk að opna sýningu inn á afrakstur vinnusmiðjunnar með forseta Íslands. 

Lesa meira
 
Glima í GH 15. sept 2010

Glímukynning - 20.9.2010 Fréttir Grunnskóli

Miðvikudaginn 15. september kom Ólafur Oddur Sigurðsson margfaldur íslandsmeistari í glímu í heimsókn til okkar. Hann kom á vegum Glímusambands íslands í þeim tilgangi að kynna íslenska glímu en Ólafur hefur farið vítt og breitt um landið að kynna glímuna.

Lesa meira
 
Nýsköpunarkeppni 2010 - keppendur úr Grunnskóla Hornafjarðar

Nýsköpunarkeppni grunnskóla - 15.9.2010 Fréttir Grunnskóli

Dagana 16. - 19. september fara fram úrslit í Nýsköpunarkeppni grunnskóla.  Fjörutíu og fjórir krakkar komust í úrslit, þar af fjórir úr Grunnskóla Hornafjarðar. Að þessu sinni bárust 1600 hugmyndir allstaðar af landinu svo að Hornfirðingar mega vera sáttir við sinn hlut.

Lesa meira
 
Endalausidalurinn 1. sept 2010

Endalausidalurinn 1. sept - 15.9.2010 Fréttir Grunnskóli

Rúmlega fjörutíu manns gengu Endalausadalinn sem liggur á milli Laxárdals í Nesjum og Lóns. Farið var á þremur litlum rútum inn á Laxárdal, þar safnaðist hópurinn saman og farið var yfir það helsta sem hafa ber í huga í fjallgöngu.

Lesa meira
 
Berjaferð haust 2010 í Haukafell

Ferð í Haukafell - 15.9.2010 Fréttir Grunnskóli

Farið var í mjög skemmtilega berjaferð í Haukafell miðvikudaginn 1. september. Farið var á rútum með alla úr 1. – 4. bekk. Við byrjuðum á að fá okkur epli þegar við komum á staðinn og á eftir fengum við heitt kakó. Allir nutu þess að borða úti í náttúrunni enda var veðrið mjög gott. Sólin skein og við fengum 15° hita.

Lesa meira
 
nemendarað 2010

Nemendaráð og Miðgarðsráð - 10.9.2010 Fréttir Grunnskóli

Í tengslum við haustfagnað nemenda á unglingastigi var kosið í nemendaráð skólans og Miðgarðsráð.  Auk þess sem bekkjarkvöld var hjá 7. bekk og haustfagnaður hjá 8. - 10. bekk þá tóku unglingarnir forskot á sæluna og fóru í spil og leiki í síðast tíma dagsins. 

Lesa meira
 
Skalatindar-1.-sept-4

Göngu- og berjadagur 1. september - 5.9.2010 Fréttir Grunnskóli

Miðvikudaginn 1. september var göngu- og berjadagur í skólanum. Yngstu fjórir árgangarnir fóru í berjamó í Haukafell en hinir fóru í gönguferð og voru þrjár leiðir í boði.  Það var Bergárdalurinn, Endalausidalurinn og Skálatindarnir.

Lesa meira
 
Bergardalur-1.-sept-1

Skólastarf komið í gang, áhersla á heilsueflandi skóla - 3.9.2010 Fréttir Grunnskóli

Nú er skólastarf komið í fullan gang og fyrsta vikan um garð gengin.  Nemendur og starfsmenn komu hressir og endurnærðir eftir sumarfríið, fullir starfsorku. Um miðjan ágúst sátu starfsmenn skólans tvö námskeið saman, annað um uppeldi til ábyrgðar og hitt um samskipti á vinnustað og mótun góðs starfsumhverfis. 

Lesa meira
 
Sudursveit-5b-054

Skólasetning haustið 2010 - 9.8.2010 Fréttir Grunnskóli

Skólasetning Grunnskóla Hornafjarðar fer fram 26. og 27. ágúst næstkomandi.  Þá verða nemendur og foreldrar boðaðir í viðtal til umsjónarkennara þar sem málefni vetrarins verða rædd. 

Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu mánudaginn 30. ágúst

Lesa meira
 
skolaslit- 2010, Grunnskóla Hornafjarðar 049-vef

Skólaslit Grunnskólans - 2.6.2010 Fréttir Grunnskóli

Grunnskóla Hornafjarðar var slitið 31. maí síðastliðinn.  Þá var þriðja starfsári skólans að ljúka en hann var stofnaður við sameiningu Nesja-, Hafnar og Heppuskóla sumarið 2007.  28 nemendur útskrifuðust úr 10. bekk að þessu sinni  en nemendur við skólann voru rúmlega 300 í vetur og starfsmenn um 55. 

Lesa meira
 
Skólaferðalag 7.b. 2010

Dagur tvö í Vestmannaeyjum - 28.5.2010 Fréttir Grunnskóli

Dagurinn var hreint frábær..... hér er búið að ganga um eyjuna hitta innfædda, fara á safn, sigla kringum eyjuna, og spranga.... já og ekki má gleyma brjáluðu trambolín rennibrautinni....

Lesa meira
 
IMG_3063

Öskufjúk í Eyjum - 27.5.2010 Fréttir Grunnskóli

Nemendur í 7. bekk er nú í skólaferðalagi í Vestmannaeyjum.  Stuttu eftir að þau komu þangað í gær fór að vinda og brast þá á öskufjúk. . 

Lesa meira
 
skolamyndir-049[1]

Öræfaferð 3. bekkjar - 27.5.2010 Fréttir Grunnskóli

Þann 17. maí fór 3. bekkur í skólaferðalag í Öræfin. Ferðin hófst þó á Jöklasafninu þar sem Guðný Svavarsdóttir tók á móti hópnum. Safnið var skoðað gaumgæfilega en að því loknu var lagt í hann í frekar mikilli rigningu. Nesti var borðað að Hrollaugsstöðum og var þá regnið það mikið að nokkrir fundu sér skjól undir aftanívagni rútunnar.

Lesa meira
 
myndir-af-myndakorti-21.-mai-2010-021-vef

Íþróttadagur í grunnskólanum - 26.5.2010 Fréttir Grunnskóli

Mikið hefur verið um að vera í skólanum á íþróttadegi.  Öllum bekkjum var blandað saman og búnir til nýir hópar þvert á bekki.  Í hópunum leystu nemendur hinar ýmsu þrautir allt frá suduku upp í að klifra upp kaðlana í íþróttahúsinu.

Lesa meira
 
Matreidslukeppni-004-vef

Matreiðslukeppni grunnskólans - 20.5.2010 Fréttir Grunnskóli

Í gær fór fram matreiðslukeppni 9. og 10. bekkinga í skólanum.  Fimm lið mættu til keppni og var hörð barátta um hvert stig.  Keppendur áttu að elda forrétt þar sem uppistaðan var humar, aðalrétt þar sem uppistaðan var bleikja og eftirrétt að eigin vali.  Það voru svo sannarlega girnilegir réttir sem voru bornir á borð og erfitt fyrir dómarana að gera upp á milli liðanna. 

Lesa meira
 
oraefi-vef

Námsferði í Öræfin hjá 6. og 7. bekk - 18.5.2010 Fréttir Grunnskóli

Á dögunum fóru nemendur í 6. og 7. bekk í námsferði í Öræfin þar sem áhersla var lögð á að nemendur fræddust um umhverfið og lærðu að gera ýmiskonar mælingar og tilraunir.  Hér á eftir fer frásögn þriggja nemenda úr ferðinni.

Lesa meira
 
Hulda-Laxdal

Hulda Laxdal, nýr skólastjóri við grunnskólann - 12.5.2010 Fréttir Grunnskóli

Hulda Laxdal hefur verið ráðinn skólastjóri við grunnskóla Hornafjarðar í stað Þorvaldar Viktorssonar sem látið hefur af störfum sökum veikinda.  Hulda lauk íþróttakennaraprófi frá Íþróttakennaraskóla Íslands árið 1980 og hefur starfað nánast óslitið við kennslu síðan auk þess að bæta við sig ýmiskonar menntun.  2003 lauk hún BS prófi í íþróttafræði og heilsuþjálfun, 2006 lauk hún Dipl.Ed prófi í menntunar og uppeldisfræðum með áherslu á stjórnun menntastofnana og núna vinnur hún að meistaraprófsritgerð um sömu mál. 

Lesa meira
 
unicef-2010-010

Nemendur styrkja gott málefni - 11.5.2010 Fréttir Grunnskóli

Á föstudaginn var haldið hið árlega Unicef-hlaup sem Grunnskóli Hornafjarðar hefur tekið þátt í undanfarin ár. Nemendur safna áheitum og fá gjarnan greitt fyrir hvern hring sem þeir hlaupa á hlaupabrautinni.

Lesa meira
 
Sudursveit-5b-054

4. og 5. bekkur í Suðursveit - 8.5.2010 Fréttir Grunnskóli

Í vikunni fóru 4. og 5. bekkur Grunnskóla Hornafjarðar og Grunnskólans í Hofgarði í námsferð í Suðursveit. Gist var á Hrolllaugsstöðum, gengið inn í Þröng og þar komist í snertingu við Breiðamerkurjökul.

Lesa meira
 
Danssýning 2010

Danssýning - 2.5.2010 Fréttir Grunnskóli

Þá er frábærri dansviku lokið í skólanum og lauk henni með danssýningu þar sem fjöldinn allur af foreldrum og öðrum aðstandendum mætti og fylgdist með nemendum dansa. 

Lesa meira
 
Gjof-fra-Kvenfelaginu-i-Nesjum-23.-mai-015

Gjöf til skólans frá kvenfélaginu Vöku í Nesjum - 23.4.2010 Fréttir Grunnskóli

Kvenfélagið Vaka í Nesjum hefur gefið skólanum útileikföng fyrir allt að 100.000 kr.  Á hreinsunardeginum í dag vígðum við dótið en það samanstendur af allskyns útileikföngum sem öll eiga það þó sameiginlegt að stuðla að aukinni hreyfingu barna.

Lesa meira
 
Hreinsunardagur-23.-mai-005-vef

Hreinsunardagur í grunnskólanum - 23.4.2010 Fréttir Grunnskóli

Í morgun (föstudag) fóru nemendur og starfsmenn skólans út af örkinni og hreinsuðu bæinn þ.e. fyrir utan þann hluta sem útskriftarhóp FAS hafði verið úthlutað.

Lesa meira
 
7.-K---reyklaus

Reyklaus skemmtun í Sindrabæ á laugardag kl. 16:00 - 22.4.2010 Fréttir Grunnskóli

7.bekkur K er að taka þátt í keppni sem kallast Reyklaus bekkur 2010.  Keppnin felst á því að bekkurinn verður að vera reyklaus (að enginn reykir).  Svo fylgist kennarinn með og sendir staðfestingu að allir séu reyklausir í bekknum.

Lesa meira
 
Laugar 2010-900-vef

Laugar 2010 - 21.4.2010 Fréttir Grunnskóli

Við lögðum af stað á sunnudagsmorgni 11. apríl kl 11:00, ferðinni var haldið á Laugar í Sælingsdal þar sem til stóð að dvelja í skólabúðum í eina viku.

Lesa meira
 
Saevar-Orn-med-svaka-eld-2

Götuleikhús - 21.4.2010 Fréttir Grunnskóli

Götuleikhúshópurinn í 9. og 10. bekk stefnir á að sýna listir sínar á skólaslitunum í vor en í hópnum eru krakkar sem eru í leiklistarsmiðju á þessu tímabili. Undirbúningurinn felst í að æfa sig í ýmsum brellum og brögðum og nú erum við t.d. að æfa okkur með eldinn.

Lesa meira
 
Árshátíð 2010

Flestir hlæja a ha ha ha ha - 26.3.2010 Fréttir Grunnskóli

Árshátíð grunnskólans var í gærkvöldi og heppnaðist að flestra mati vel.  Þetta er í fyrsta skipti sem hún er haldin í íþróttahúsinu en salurinn var afar hátíðlegur með nýju drapperingunum og gulum brosköllum.

Lesa meira
 
5. bekkur á æfingu fyrri árshátíð

Árshátíðarundirbúningur á fullu - 25.3.2010 Fréttir Grunnskóli

Nú eru nemendur og starfsmenn að leggja lokahönd á árshátíðarundirbúning.  Eftir hádegið verður generalprufan og lokafrágangur á sal en kl. 17:30 byrjar árshátíðn sjálf. 

Lesa meira
 
Ómar Ragnarsson

Árshátíð - 23.3.2010 Fréttir Grunnskóli

Árshátíð Grunnskóla Hornafjarðar verður haldin fimmtudaginn 25. mars næstkomandi í íþróttahúsinu. Sýningin hefst klukkan17:30. Þema árshátíðarinnar að þessu sinni verða lög eftir Ómar Ragnarsson. Aðgangseyrir er 1000 kr á fjölskyldu.Veitingar verða veittar á staðnum.

Allir velkomnir !

Lesa meira
 
Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar - 17.3.2010 Fréttir Grunnskóli

Í dag lauk Stóru upplestrarkeppninni á lokahátíð í Hafnarkirkju.  Þar leiddu saman hesta sína þeir 11 keppendur sem best hafa staðið sig í Grunnskóla Hornafjarðar og í Grunnskóla Djúpavogs.  Keppnin var bæði skemmtileg og spennandi og náðu nemendur úr Grunnskóla Hornafjarðar í þrjú efstu sætin en Sparisjóðurinn gefur verðlaun þremur bestu lesurunum.   Alrún Irene Stephensdóttir fór með sigur af hólmi, í öðru sæti var Guðrún Ósk Gunnarsdóttir og í þriðja sæti var Hafþór Snorrason.  Sérstök aukaverðlaun hlaut Bjartur Elí Egilsson frá Grunnskóla Djúpavogs. 

Lesa meira
 
Páll Ólafsson

Jákvæð samskipti - 16.3.2010 Fréttir Grunnskóli

Miðvikudaginn 3. mars koma Páll Ólafsson félagsráðgjafi í heimsókn til okkar og ræddi um jákvæð samskipti.  Hann hélt tvo fyrirlestra, annan fyrir foreldra og hinn fyrir starfsmenn auk þess sem hann hitti stýrihópa í skólanum og leikskólunum.  Páll talar um jákvæð samskipti út frá hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar og heimsókn hans var virkilega góð innspýting fyrir þá sem á hlýddu.  Hér má nálgast foreldrafyrirlestur Páls.

Lesa meira
 
6.-bekkur-a-skidum

Skíðaferð í Oddsskarð - 16.3.2010 Fréttir Grunnskóli

Nú er 6. bekkur að renna sér á skíðum í Oddsskarði í blíðskaparveðri og góðu færi.  Þau fóru í gærmorgun á skíði og koma heim síðdegis í dag.  Í síðustu viku fór 8. bekkurinn á skíði og var líka mjög heppinn með veður og skíðafæri. 

Lesa meira
 
Stora-upplestrarkeppnin-002-a-vef

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar - 12.3.2010 Fréttir Grunnskóli

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar verður í Hafnarkirkju miðvikudaginn 17. mars kl. 14:00.  Nemendur í 7. bekk Grunnskóla Djúpavogs og Grunnskóla Hornafjarðar keppa. 

Allir velkomnir.

Skólaskrifstofa Hornafjarðar

Lesa meira
 
010vefur

Staða skólastjóra við Grunnskólann laus - 12.3.2010 Fréttir Grunnskóli

Í Morgunblaðinu um helgina er auglýst eftir skólastjóra við Grunnskóla Hornafjarðar því eins og foreldrar vita hefur Þorvaldur Viktorsson sagt starfi sínu lausu.  Hér geta þeir sem áhuga hafa á starfinu séð auglýsinguna.

Lesa meira
 
Ferdin-ad-Horni-003-vef

Ferð út að Horni - 11.3.2010 Fréttir Grunnskóli

Í dag og í gær fóru allir nemendur grunnskólans í ferð út að Horni að skoða víkingabæinn sem hefur verið byggður þar. 

Lesa meira
 
Blus,-Rokkurbandid-046

Blús fyrir grunnskólanema - 5.3.2010 Fréttir Grunnskóli

Í morgun var öllum nemendum grunnskólans boðið á blústónleika í Sindrabæ í tilefni Norðurljósablúshátíðarinnar sem er hér á Höfn um helgina.  Það var Rökkurbandið sem sá um skemmtunina og nutu bæði ungir og aldnir stundarinnar.   

Lesa meira
 
Skolahreysti-026a-vef

Skólahreysti - 5.3.2010 Fréttir Grunnskóli

Austurlandsriðillinn í skólahreysti 2010 var að venju haldinn á Egilstöðum og voru það þau Anna Mekkín Reynisdóttir, Einar Ásgeir Ásgeirsson, Gunnar Örn Olgeirsson og Karen Björg Halldórsdóttir sem kepptu fyrir hönd okkar í Grunnskóla Hornafjarðar.

Lesa meira
 
Stora-upplestrarkeppnin-038-a-vef

Skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar - 5.3.2010 Fréttir Grunnskóli

Miðvikudaginn þriðja mars var skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar í salnum í Nýheimum.  Þeir sem komust áfram í skólakeppninni munu keppna í lokakeppninni sem fram fer í Hafnarkirkju 17. mars en það eru Alrún Irene, Anna Birna, Guðrún Ósk, Hafþór, Haukur Ingi, Inga Kristín, Karólína, Katrín María og Þorkell Ragnar.

Lesa meira
 
Stora-upplestrarkeppnin-002-a-vef

Stóra upplestrarkeppnin - 26.2.2010 Fréttir Grunnskóli

Bekkjarkeppni stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk var í vikunni og komust eftirfarandi nemendur áfram. Hafþór Snorrason, Karolina Darnowska, Katrín María Sigurðardóttir, Steinunn Rán Bengtsdóttir, Alrún Irene Stephensdóttir, Anna Birna Elvarsdóttir, Guðrún Ósk Gunnarsdóttir, Haukur Ingi Agnarsson, Inga Kristín Aðalsteinsdóttir, Lilja Karen Björnsdóttir, Sævar Ingi Ásgeirsson og Þorkell Ragnar Grétarsson. 

Lesa meira
 
Halldor-Jorgenson-006-vef

Framkvæmdastjóri Microsoft spjallaði við 6. og 7. bekk og foreldra þeirra - 23.2.2010 Fréttir Grunnskóli

Mánudaginn 22. febrúar kom Halldór Jörgensson framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi í heimsókn til Hafnar.  Markmið hans með ferðinni var að fjalla um nýsköpun á sviði upplýsingatækni og almenna byggðaþróun og viðskiptatækifæri við heimamenn.  Einnig hitti hann nemendur í 6. og 7. bekk og fjallaði um netöryggi barna, unglinga og foreldra.

Lesa meira
 
fostudagshatid-4r-029

Föstudagshátíð - 22.2.2010 Fréttir Grunnskóli

Í Grunnskólanum höldum við áfram með hinar hefðbundnu föstudagshátíðir og eru nokkrir bekkir búnir að sýna sína hátíð.  Þetta er alltaf jafn gaman og mikil tilhlökkun sérstaklega hjá þeim sem að hátíðinni standa í það og það skiptið. Lesa meira
 
Oskudagur-i-Heppuskola-058-vef

Meira af öskudegi - 18.2.2010 Fréttir Grunnskóli

Unglingarnir hafa ekki síður gaman af öskudegi en yngri börnin þó þau vilji stundum gera hlutina öðru vísi.  Margir nemendur á unglingastigi mættu í búning á öskudag og hæfileikakeppnin sem haldin var í tilefni dagsins tókst vel og eru margir upprennandi listamenn í skólanum.

Lesa meira
 
oskudagur-2010-111

Öskudagur - 17.2.2010 Fréttir Grunnskóli

Það er búið að vera mikið fjör í skólanum í dag, öskudag. Nemendur og starfsfólk mættu í grímubúningu og mátti sjá allskonar undarlegar persónur og furðuverur á ferð. Dagurinn hófst á æfingum fyrir samkomuna í íþróttahúsinu en þar tóku krakkarnir lagið auk þess sem þeir tóku þátt í hæfileikakeppni.

Lesa meira
 
Allir-med-a-prjonunum-001

Prjónakvöld hjá starfsfólki grunnskólans - 12.2.2010 Fréttir Grunnskóli

Á dögunum var boðað til svokallaðs prjónakvölds hjá starfsfólki grunnskólans.  Þar mættu rúmlega tuttugu starfsmenn með það sem þeir höfðu á prjónunum en það var æði misjafnt.  Sumir prjónuðu, einhverjir saumuðu út, heklunál var á lofti og svo var orkerað. 

Lesa meira
 
IMG_4382-vef

Bingókvöld í Heppuskóla - 10.2.2010 Fréttir Grunnskóli

Síðastliðinn þriðjudag ákváðum við nemendur í 9.bekk að halda bingókvöld til styrktar Laugarferðarinnar okkar og gekk það bara mjög vel, margir mættu og stemningin var góð. Við fórum í fyrirtækin á svæðinu og voru þau öll til í að styrkja okkur um vinninga.

Lesa meira
 
Skjaauglysing_Tannsi_JPG_tilbuin

Tannverndarvikan 2010 - 1.2.2010 Fréttir HSSA

Fyrsta vika febrúarmánaðar ár hvert er helguð tannvernd. Áhersla er lögð á mikilvægi góðrar tannheilsu og í ár beinum við sérstakri athygli að yngstu börnunum.

Lesa meira
 
Bondadagur--vef

Bóndadagur gengur í garð - 22.1.2010 Fréttir Grunnskóli

Að venju buðu hraustir drengir í skólanum "þorra í garð" að gömlum sið með því að hlaupa eða hoppa kringum skólann, sumir berfættir, á brókinni eða í annarri buxnaskálminni og sumir jafnvel berir að ofan.

Lesa meira
 
Hafur_001

Þrívíddarhönnun og hljóð - 7.1.2010 Fréttir Grunnskóli

Um helgina skipta nemendur skólans um smiðju og í dag luku nú fimmtán nemendur í 9. og 10. bekk námskeiði í tölvum sem kallast Þrívíddar hönnun og hljóð.

Lesa meira
 
jolasongur-1-3-bekkur-7.des-005-vef

Gleðilega jólahátíð - 18.12.2009 Fréttir Grunnskóli

Starfsfólk Grunnskóla Hornafjarðar óskar nemendum, foreldrum og Skaftfellingum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þakkar samstarfið á árinu sem er að líða.

Lesa meira
 
Sparisjodur-jol-014

Jólagjöf frá Sparisjóðnum. - 17.12.2009 Fréttir Grunnskóli

Sú hefð hefur skapast undanfarin ár að Sparisjóðurinn færir 1.bekk jólagjöf.  Þetta er alltaf tilhlökkunarefni og á dögunum birtust Anna og Margrét og afhentu pakkana.

Hafi Sparisjóðurinn þakkir fyrir.

Lesa meira
 
Mannamot-a-adventunni-070

Mannamót á aðventunni í 7. - 10. bekk - 15.12.2009 Fréttir Grunnskóli

Á aðventunni var haldið mannamót fyrir nemendur í 7. - 10. bekk.  Albert Eymundsson sá að sjálfsögðu um mótið og stjórnaði ríflega 100 nemendum skörulega en dagana á undan hafði hann aðstoðað nemendur og kennara við að rifja upp eða læra Hornafjarðarmanna. 

Lesa meira
 
Bio-027

Jólabíó á aðventunni - 15.12.2009 Fréttir Grunnskóli

Föstudaginn 11. desember var jólabíó í fyrir 7. - 10. bekk í skólanum.  Nemendur fengu að koma með nammi eins og í alvöru bíói og notfærðu þeir sér það óspart.  Einnig máttu þeir koma með teppi og kodda til að koma sér vel fyrir en bíóið var í holinu á neðri hæðinni.

Lesa meira
 
A-adventunni-i-Heppuskola-001-vef

Jólasöngur á aðventunni - 15.12.2009 Fréttir Grunnskóli

Í Heppuskóla hafa nemendur og starfsmenn sungið saman á aðventunni í holinu á neðri hæðinni.  Villi (Vilhjálmur Magnússon) tölvu- og myndmenntakennari hefur leitt sönginn en margir hafa gripið í hljóðfæri honum til stuðnings.

Lesa meira
 
Bekkjartenglar09-10-002

Stjórnarfundur í foreldrafélgi Grunnskólans - 3.12.2009 Fréttir Grunnskóli

Miðvikudaginn 2. desember var almennur fundur hjá bekkjartenglum í foreldrafélagi Grunnskólans.  Góð mæting var á fundinn þar sem vetrarstarfið var rætt, aðkoma foreldra að forvarnarvinnu, aukinn kostnaður við ferðalög nemenda og margt fleira.

Lesa meira
 
fordun Hopurinn

Förðun og tíska - 2.12.2009 Fréttir Grunnskóli

Stúlkur í valáfanganum Förðun og tíska komu saman s.l. þriðjudagskvöld og héldu kynningar um förðun og tísku mismunandi tímabila. 

Lesa meira
 
Heimsókn í Nýheima í opinni viku 09

Opnir dagar í Hafnarskóla - 18.11.2009 Fréttir Grunnskóli

Á opnum dögum á barnastigi er lögð áhersla á umhverfismennt og atvinnulíf á Hornafirði.  Á miðviku- og fimmtudag fara 1.-4. bekkir í Geitafell í náttúruskoðun þar sem m.a. rannsakaðir eru steinar og jurtir.  En sömu daga kanna 5.-6. bekkur  atvinnulífið á Hornafirði og heimsækja fyrirtæki og vinna síðan plakat og frétt um einstök fyrirtæki sem birtast bæði á heimasíðu og í Eystrahorni.

Lesa meira
 
Nýsköpunar- og hönnunardagar í Grunnskóla Hornafjarðar 09

Nýsköpunar- og hönnunardagar á unglingastigi - 18.11.2009 Fréttir Grunnskóli

Í morgun hófust nýsköpunar- og hönnunardagar í Heppuskóla.  Nemendur og starfsmenn voru búnir að sanka að sér allskonar dóti sem hægt er að nota til að örva hugmyndaflugið því það þarf aldeilis að nota þegar kemur að nýsköpun og hönnun. 

Lesa meira
 
Dagur-islenskrar-tungu-001

Dagur íslenskrar tungu - 18.11.2009 Fréttir Grunnskóli

Á degi íslenskrar tungu 16. nóvember fer Stóra upplestrarkeppnin af stað í grunnskólum landsins. Hún er haldin meðal 7. bekkinga á landinu öllu og munu þeir æfa sig í upplestri næstu vikur og mánuði. 

Lesa meira
 
Hlaturjoga-010-vef

Hlæjum til að gera lífið léttara! - 12.11.2009 Fréttir Grunnskóli

Síðustu morgna hefur Valgerður Snæland komið í Heppuskóla og verið með hláturjóga kl. 7:30 á morgnana. 

Lesa meira
 
brautin-07.11

Smartís í legókeppni - 10.11.2009 Fréttir Grunnskóli

Legókeppnin (FLL)  fór fram nú um helgina í Keili á gamla varnarsvæðinu í Keflavík. Grunnskóli Hornafjarðar sendi auðvitað lið til keppni. Liðið í ár kallar sig Smartís og stóð sig með prýði. Verðlaun voru veitt í eftirfarandi flokkum; besta lausn í þrautabraut, besta hönnun á vélmenni,  besta skemmtiatriðið, besta rannsóknarverkefnið, besta dagbókin (ferilskráningin),  besta liðsheildin og svo að sjálfsögðu FLL meistarar 2009.

Lesa meira
 
blodberg-explosion

Blóðberg - 5.11.2009 Fréttir Grunnskóli

Í 9. A hafa nemendur verið að lesa saman bókin Blóðberg eftir Ævar Örn Jósepsson.  Í tengslum við lestur bókarinnar vinna nemdur hópverkefni og eitt þeirra var sýnt í frímínútum í Heppuskóla í gær.  Þá sungu og spiluðu nokkrir nemendur frumsamið lag Explosion.

Lesa meira
 
50s-(2)

Förðun og tíska - 23.10.2009 Fréttir Grunnskóli

Stúlkur í valáfanganum Förðun og tíska komu saman á miðvikudagskvöldið og héldu kynningar um förðun og tísku mismunandi tímabila. 

Lesa meira
 
gengid-i-skolann-001-vef

Gengið í skólann - 18.10.2009 Fréttir Grunnskóli

Nú er  verkefninu Göngum í skólann lokið en það stóð frá 9. september til 9. október. Þetta verkefni gekk mjög vel og mikil þátttaka var bæði hjá nemendum og starfsmönnum. Eina vikuna fórum við í smá keppni þar sem við skráðum hjá okkur hverjir gengu eða hjóluðu í skólann og voru verðlaun í boði.

Lesa meira
 
Kartoflur sept 09 005

Viðbragðsáætlun vegna inflúensufaraldurs - 15.10.2009 Fréttir Grunnskóli

Eins og Hornfirðingum er kunnugt þá varð svínaflensu vart á Íslandi í sumar og virðist hún heldur vera að færast í aukana.  Öllum skólum voru send fyrirmæli og leiðbeiningar um að gera viðbragðsáætlun ef til faraldrar kæmi og þar sem veikindi hafa verið færast í aukana í kringum okkur þá þykir okkur rétt að birta viðbragðsáætlunina.  Hún verður hér á heimasíðunni undir liðnum Skólastarfið en einnig er hægt að nálgast hana hér.  Rétt er að taka fram að veikindi eru með minna móti í skólanum hjá okkur í dag.

 
kollumuli-11

Kollumúli - 2.10.2009 Fréttir Grunnskóli

Síðastliðinn miðvikudag fórum við í 10unda bekk í þriggja daga ferð í Kollumúla í Lónsöræfum. Árni Rúnar, Berglind, Kiddi litli og Jón Braga voru fararstjórar ferðarinnar. Lagt var af stað frá skólanum snemma á miðvikudagsmorgun, farið var á tveimur bílum sem voru ekki í vandræðum með að koma okkur yfir Skyndidalsána.

Lesa meira
 

Bjössi bangsi - 1.10.2009 Fréttir Grunnskóli

Dagana 28. september til 1. október  var Bjössi bangsi í heimsókn hjá 1. NS, en Bjössi bangsi hefur ferðast víða og heimsótt marga. Bjössi bangsi fór í frímínútur með krökkunum og einnig fór hann með þeim í mBjossi-bangsiatsalinn í hádeginu. Hann var mjög duglegur að borða og tók virkan þátt í öllu skólastarfi, t.d. tónmennt og ensku

Lesa meira
 
kollumuli-2

Ferð á Lónsöræfi - 25.9.2009 Fréttir Grunnskóli

10. bekkur er kominn heim úr tveggja daga ferð á Lónsöræfi. Farið var snemma á miðvikudagsmorgun og komið heim um hádegi í dag. Gengið var um Víðibrekkusker, Tröllakróka og víðar. Veður var gott fyrir utan rok síðustu nótt. Í næstu viku kemur ferðasagan ásamt fleiri myndum.

Lesa meira
 
Nýsköpunarkeppni grunnskóla

Auður Lóa með gull í Nýsköpunarkeppninni - 21.9.2009 Fréttir Grunnskóli

Auður Lóa Gunnarsdóttir gerði sér lítið fyrir og hneppti gullið í Nýsköpunarkeppni grunnskóla. 

Lesa meira
 
pizza

Danskir grunnskólanemar í heimsókn - 21.9.2009 Fréttir Grunnskóli

Um síðustu helgi voru 36 danskir nemendur úr 8. bekk í  Vestervangskolen, ásamt 4 kennurum, í heimsókn hjá 8. bekkingum í Grunnskóla Hornafjarðar. 

Hópurinn kom um miðjan dag á föstudag og skoðaði Jöklasafnið áður en þau komu sér fyrir í skólastofum í Heppuskóla, þar sem þau sváfu.  Þá drifu þau sig í sund í boði sveitarfélagsins ásamt hornfirsku 8. bekkingunum. Þar gafst færi á að spjalla aðeins áður en hóparnir, sá danski og sá íslenski borðuðu saman pizzur á Hótel Höfn um kvöldið. 

Lesa meira
 
Kartoflur sept 09 005

Haustverkin - 18.9.2009 Fréttir Grunnskóli

 

Undanfarna daga hafa nemendur í yngstu bekkjum skólans farið inn í Nes til að taka upp kartöflur en að venju settu krakkarnir niður kartöflur í vor.

Lesa meira
 
Busadagur 002 vef

Nýnemadagur - 11.9.2009 Fréttir Grunnskóli

Þegar skóli byrjaði í ágúst var ein fyrsta spurningin sem kennarar og skólastjóri á unglingastigi fengu, „hvenær verður busað?“

Lesa meira
 
Norraena skolahlaupid 002 vef

Norræna skólahlaupið - 9.9.2009 Fréttir Grunnskóli

Í dag tóku nemendur grunnskólans þátt í Norræna skólahlaupinu í einstaklega miklu blíðviðri. Samtals fóru nemendur skólans 1349,5 km, gangandi og hlaupandi og sú vegalengd næstum jafn löng hringveginum. 

Lesa meira
 
Nemendarad09 002 vef

Nemendaráð skólans - 4.9.2009 Fréttir Grunnskóli

Í vikunni kusu nemendur í 7. - 10. bekk í Nemendaráð skólans.  Í ár er það skipað eftirtöldum nemendum:

Lesa meira
 
Dagbjort og Salvor

Í skólanum er skemmtilegt að vera, líka eftir skóla - 3.9.2009 Fréttir Grunnskóli

Miklar breytingar hafa átt sér stað í skólastarfi frá fyrra ári og ber þar hæst að skólahald í Nesjaskóla hefur verið lagt niður. Lesa meira
 
nyskopun 001 vef

Nýsköpunarkeppni grunnskóla - 2.9.2009 Fréttir Grunnskóli

Tveir nemendur úr Grunnskóla Hornafjarðar komust áfram í vinnusmiðjur í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna nú í haust, þær Auður Lóa Gunnarsdóttir og Selma Björt Stefánsdóttir.

Lesa meira
 
badmintonhopur

Val á unglingastigi farið af stað - 1.9.2009 Fréttir Grunnskóli

Í dag fór valið af stað á unglingastiginu.  Á fyrsta tímabili sem stendur fram í lok október er boðið upp á gifs, boltavali, badminton, förðun og tísku, matreiðslu, útivist, kvikmyndagerð og legó.    Skipulagið í kringum valið er margskonar og eru tveir hópar í sumu valinu.  Sumir mæta bara á þriðjudögum á meðan aðrir þurfa að vinna mikið í stuttan tíma t.d. kvikmyndahópurinn sem þarf að ljúka sinni vinnu fyrir næstu mánaðarmót. 

Lesa meira
 

Opnu húsi í Hafnarskóla frestað - 25.8.2009 Fréttir Grunnskóli

Opnu húsi í Hafnarskóla sem vera átti í dag er frestað um óákveðinn tíma þar sem breytingum á húsinu er ekki enn lokið.  Lesa meira
 
010vefur

Skólasetning 24. ágúst - 14.8.2009 Fréttir Grunnskóli

Skólasetning í Grunnskóla Hornafjarðar mánudaginn 24. ágúst  

1.     – 3. bekkur  kl. 16:00 – í Hafnarskóla

4.   – 6. bekkur kl. 18:00 – í Hafnarskóla

7.  – 10. bekkur kl. 20:00 - í Heppuskóla

Lesa meira
 
Kennaranamskeid vef

Skólastarf hafið - 14.8.2009 Fréttir Grunnskóli

Síðustu daga hefur starfsfólk grunnskólans setið á námskeiðum til að undirbúa starf vetrarins.  Fyrra námskeiðið var sameiginlegt með leikskólunum en það fjallaði um lestur og lesfærni og voru leiðbeinendur á því Helga Sigurmundsdóttir og Steinunn Torfadóttir.  Síðara námskeiðið var um uppeldi til ábyrgðar en þar var Guðlaug Erla Gunnarsdóttir leiðbeinandi. 

Lesa meira
 
Heimsokn fra Hellu 002

Heimsókn starfsfólks Grunnskólans á Hellu - 4.6.2009 Fréttir Grunnskóli

Í gær kom starfsfólks Grunnskólans á Hellu í heimsókn til að kynna sér hvað við værum að gera markvert í skólanum hér.  Auk þess að sýna þeim Heppuskóla þá sögðum við þeim frá nokkrum þáttum skólastarfsins, s.s. uppeldi til ábyrgðar, Need verkefninu sem skólinn er aðili að og legó- og nýsköpunarvinnu. 

Lesa meira
 
Picture 003

Miklar framkvæmdir í Hafnarskóla - 2.6.2009 Fréttir Grunnskóli

Miklar framkvæmdir standa nú yfir í Hafnarskóla.  Verið er að breyta tveimur elstu hlutum skólans þannig að 1. – 3. bekkur skólans rúmist hér út á Höfn

Lesa meira
 
075vefur

Hátíðleg skólaslit - 2.6.2009 Fréttir Grunnskóli

Margt var um mannin á skólaslitum Grunnskóla Hornafjarðar sem fóru fram við hátíðlega athöfn þann 29. maí. 

Lesa meira
 
006vefur

Vorið er komið og grundirnar .... - 30.5.2009 Fréttir Grunnskóli

Ferðir og ferðalög einkenna vordaga skólanna. Engin undantekning hefur verið á því þetta vorið.

Lesa meira
 
Ferdalag 18 og 19 mai 3. bekkur 197

Öræfaferð - 22.5.2009 Fréttir Grunnskóli

Á mánudaginn var fór 3. bekkur í ferðalag í Öræfin. Lagt var að stað frá Nesjaskóla um kl 9 og keyrt eins og leið lá í Hrollaugshóla sem eru neðan við Reynivelli. Þar var stoppað, borðað nesti og fleytt kerlingum í ánni. Næsta stopp var við Háöldu og þar voru gígarnir skoðaðir og krakkarnir fengu góða útrás við að hlaupa upp og niður gígsbrekkurnar.

Lesa meira
 
Unicef hlaupið 2009

Áheitahlaup Unicef - 22.5.2009 Fréttir Grunnskóli

Það var mikil hlaupagleði sem einkenndi skóladaginn í dag hjá nemendum Grunnskólans

Lesa meira
 
Hjolahjalmar fra Kiwanis 003

Kiwanis gefur hjólreiðahjálma. - 20.5.2009 Fréttir Grunnskóli

Einn af vorboðum okkar eru Kiwanis-menn en undanfarin ár hafa þeir komið og fært 1. bekkingum hjólreiðahjálma og er þetta gert í samstarfi við Eimskip hf.

Lesa meira
 
undirb019

Val í 7. - 10. bekk veturinn 2009 - 2010 - 12.5.2009 Fréttir Grunnskóli

Í dag var nemendum í 7. - 10. bekk kynnt val sem þeim stendur til boða næsta vetur.  Nemendur fengu í hendur valbæklinga og næsta miðvikudag 20. maí verða þeir að hafa skilað inn valinu.  Hér getið þið séð valbækling fyrir 7. og 8. bekk og hér fyrir 9. og 10. bekk.

Lesa meira
 
skolaheims2

Góðir gestir í heimsókn... - 11.5.2009 Fréttir Grunnskóli

Það er alltaf gaman að fá góða gesti en í síðustu viku var Hafnarskóli hinn gamli heimsóttur af nemendum Nesjaskóla sem ætla að hefja þar nám næsta haust.

Lesa meira
 
fuglaskodun 5 mai 2009 041

Fuglaskoðunarferð hjá 4. bekk - 8.5.2009 Fréttir Grunnskóli

Þann 5. maí s.l. fór 4.bekkur í fuglaskoðunarferð. Binni fuglafræðingur bauð okkur og kennurunum því við erum að byrja að læra um fugla í náttúrufræði. Við fengum blöð með nokkrum fuglum og svo áttum við að merkja X við þá fugla sem við sáum.

Lesa meira
 
halldor og roslin vef

LEIKFERÐ LOPA Á LEIKLISTARHÁTIÐ ÞJÓÐLEIKS - 8.5.2009 Fréttir Grunnskóli

Fimmtudaginn 23. apríl kl. 12.00 lagði 14 manna hópur leikara í Leikhópnum Lopa af stað frá Hornafirði. Stefnan var tekin á Egilsstaði þar sem hópurinn átti að sýna 2 tvö leikrit á Leiklistarhátið Þjóðleiks dagana 24. – 26. apríl.

Lesa meira
 
danaveldi vef 1

Ferðasaga Klakanna - 6.5.2009 Fréttir Grunnskóli

Hittumst á flugvellinum um fimmleytið, tékkuðum okkur inn og röltum svo í fríhöfninni, fengum okkur að borða. 

Lesa meira
 

www.klakarnir10.blogcentral.is - 3.5.2009 Fréttir Grunnskóli

Á slóðinni www.klakarnir10.blogcentral.is blogga Klakarnir okkar um ferð sína til Kaupmannahafnar.  Í dag er síðasti dagur keppninnar og bíðum við spennt eftir að heyra frá þeim.  Klakarnir koma heim á þriðjudaginn.  Lesa meira
 
Legóhópurinn

Klakarnir lagðir af stað til Kaupmannahafnar - 29.4.2009 Fréttir Grunnskóli

Nú eru Klakarnir lagðir af stað í keppnisferðina til Kaupmannahafnar þar sem þau munu taka þátt í Evrópumótinu í Legó Childrens Climate Call. 

Lesa meira
 
Hreinsunardagur

Skóli á grænni grein - 24.4.2009 Fréttir Grunnskóli

Á miðvikudag kom Orri Páll Jóhannsson starfsmaður hjá Landvernd í heimsókn í Grunnskólann.

Lesa meira
 
Fjórðu bekkingar

Börn hjálpa börnum - 4.4.2009 Fréttir Grunnskóli

Fjórðu bekkingar tóku þátt í söfnuninni Börn hjálpa börnum á dögunum og söfnuðu samtala 80.835 krónum. 

Lesa meira
 
Hornafjarðarmannamót

Pákamannamót - 3.4.2009 Fréttir Grunnskóli

Í dag var haldið páskamannamót í Hornafjarðarmanna í 4. - 7. bekk.  Spilað var í tveimur hópum og á sitt hvorri hæðinni og tóku allir nemendur þátt. 

Lesa meira
 
Kátakot

Kátakot - 2.4.2009 Fréttir Grunnskóli

Eins og flestir bæjarbúar vita þá standa fyrir dyrum miklar breytingar í Grunnskólanum.  Eitt af því sem breytist er að lengda viðveran færist út í lausu kennslustofurnar bak við skólann. 

Lesa meira
 
P3265337vefur

Af árshátíð - 30.3.2009 Fréttir Grunnskóli

Árshátíðarviku Grunnskóla Hornafjarðar er nú lokið. Mikið var um dýrðir og gleði. Nemendur unnu leiksýningar úr verkum Torbjörns Egners. Og sýndu svo á tveim sýningum s.l. fimmtudag.

Lesa meira
 

Heilræði til foreldra fermingarbarna frá SAFT - 30.3.2009 Fréttir Grunnskóli

Til foreldra fermingarbarna,

Tölvur hafa verið vinsælar fermingargjafir síðustu ár og því vilja Heimili og skóli og SAFT vekja athygli foreldra á að þó að barnið eignist sína eigin tölvu minnkar ekki ábyrgð foreldra hvað jákvæða, ábyrga og uppbyggilega notkun barna þeirra á nýmiðlum varðar.

Lesa meira
 

Vandræði við að opna vefpóst - 30.3.2009 Fréttir Grunnskóli

Nú nýlega var allur Microsoft Office pakkin í skólanum uppfærður úr 2003  í 2007 árgerðina sem þýðir að þeir sem ekki hafa Office 2007 pakkann geta lent í vandræðum með að opna viðhengi frá okkur.

Lesa meira
 
P3254648 vef

Dans í Grunnskólanum - 26.3.2009 Fréttir Grunnskóli

Nú stendur yfir dansvika í Grunnskólanum og á milli þess sem nemendur æfa atriði fyrir árshátíðina og búa til skreytingar þá dansa þau af miklum krafti.

Lesa meira
 
undirb017

Árshátíð Grunnskóla Hornafjarðar - 24.3.2009 Fréttir Grunnskóli

Árshátíð Grunnskóla Hornafjarðar verður fimmtudaginn 26. mars í Sindrabæ.  Tvær sýningar verða fyrir nemendur og foreldra, sú fyrri kl. 17:30 og sú síðari kl. 19:00.  Nemendum og foreldrum í 1. - 5. bekk er beint á fyrri sýninguna en eldri nemendum og foreldrum þeirra á seinni sýninguna.  Þema sýningarinnar er Thorbjörn Egner og leikverk hans. 

Lesa meira
 
Skolasetning_015_a_vef_-

Foreldrakönnun - 24.3.2009 Fréttir Grunnskóli

Könnun var lögð fyrir foreldra á viðtalsdegi í febrúar.  Markmiðið var að kanna viðhorf foreldra til ýmissa þátta er varða skólann, s.s. sameiningu, upplýsingamiðlun, foreldraviðtöl, upphaf og lok skólaárs, sérfræðiþjónustu, flutning á skólastigunum og uppeldisstefnuna “uppeldi til ábyrgðar”.  Niðurstöður úr könnuninni notum við til að bæta skólastarfið. Lesa meira
 
IMG_1630

Skólapúlsinn - 19.3.2009 Fréttir Grunnskóli

 Í vetur höfum við í Grunnskólanum tekið þátt í sjálfsmatsverkefni sem nefnist Skólapúlsinn.  Þetta verkefni kannar hug nemenda til þriggja þátta í skólastarfinu, þ.e. virkni nemenda í skólanum, líðan þeirra og skóla- og bekkjaranda

Lesa meira
 
Leikhús

Leikhópurinn Lopi með frábærar sýningar - 12.3.2009 Fréttir Grunnskóli

Magnús J. Magnússon hefur enn einu sinni gert kraftaverk með krökkunum okkar sem við ættum ekki að láta fram hjá okkur fara

Lesa meira
 
100_8364vefur

Upplestrarkeppnin - 12.3.2009 Fréttir Grunnskóli

Stóru upplestrarkeppninni er nú lokið. Sigurvegari varð Auður Gautadóttir frá Djúpavogi, Heiðdís Anna Marteinsdóttir lenti í öðru sæti en í því þriðja varða Ragnar Magnús Þorsteinsson bæði úr Grunnskóla Hornafjarðar.

Lesa meira
 
deanferellvefur

Kontrabassar og furðuhljóðfæri - 12.3.2009 Fréttir Grunnskóli

Í gær fékk Grunnskóli Hornafjarðar til sín góðan gest en það var bassaleikarinn Dean Farrel.

Lesa meira
 
leikhopur i vali 005 a vef

Valhópur í leiklist sýnir afrakstur vinnunnar - 9.3.2009 Fréttir Grunnskóli

Í dag sýndi valhópurinn sem var í leiklist á miðstiginu afraksturinn frá síðasta tímabili á sal. Þau léku, sungu og og voru með afbragðs skemmtiatriði. 

Lesa meira
 
skak 007 a vef

Skák í grunnskólanum - 9.3.2009 Fréttir Grunnskóli

Um helgina var boðið upp á skákkennslu á vegum Skákskóla Íslands og var það Davíð R. Ólafsson sem kom og hafði umsjón með námskeiðinu.  Á föstudaginn fór Davíð í alla bekki grunnskólans og talaði við nemendur um skák og hvatti þá til að mæta í kennsluna á laugardag. 

Lesa meira
 
Skólakeppni stóru upplestrarkeppninnar

Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk - 9.3.2009 Fréttir Grunnskóli

Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar fer fram í Hafnarkirkju miðvikudaginn 11. mars kl. 16 og er hún opin öllum.  Við athöfnina munu 11 nemendur úr 7. bekk, sem valdir hafa verið úr Grunnskóla Hornafjarðar og Grunnskóla Djúpavogs, lesa sögur og ljóð

Lesa meira
 
Lopi_blekking_029vefur

Leikhópurinn Lopi frumsýnir tvö ný leikrit - 9.3.2009 Fréttir Grunnskóli

Næstkomandi miðvikudag frumsýnir Leikhópurinn Lopi tvö ný leikrit. Þetta eru leikritin ÍSVÉLIN eftir Bjarna Jónsson og DÚKKULÍSA eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur.

Lesa meira
 
Nes 6 mars 2 N 020

Árið 2009 að hætti 2. bekkinga. - 8.3.2009 Fréttir Grunnskóli

 

Á föstudaginn var sá 2.N um föstudagshátíð skólans. Þemað að þessu sinni var eins konar dagatal þar sem farið var yfir alla mánuði ársins bæði nútímaheiti þeirra og þau gömlu, árstíðir og einnig merkisdaga og viðburði.

Lesa meira
 
skakkennsla

Skákkennsla um helgina fyrir nemendur Grunnskólans - 6.3.2009 Fréttir Grunnskóli

Davíð R. Ólafsson skákkennari heimsótti alla bekki grunnskólans í dag og kynnti þessa frábæru íþrótt skák fyrir nemendum.

Lesa meira
 
Mugison og a vef

Mugison í Grunnskólanum - 6.3.2009 Fréttir Grunnskóli

Það var mikið blúsað í Grunnskólanum í dag þegar Mugison heimsótti alla skólana og spilaði og söng fyrir krakkana.

Lesa meira
 

Vandræði við að opna viðhengi úr skólanum - 4.3.2009 Fréttir Grunnskóli

Nýlega var Microsoft Office pakkin í Grunnskólanum uppfærður í 2007 útgáfuna.  Við það hafa margir sem ekki eru með þá útgáfu lent í vandræðum með að lesa skjöl (viðhengi) úr skólanum.  Hér koma leiðbeiningar til þeirra sem vilja ráða bót á þeim vanda. 

 

Þeir sem eru með Microsoft Office 2003 í tölvum sínum og geta ekki lesið skjöl  sem eru búin til í Office 2007 hafa möguleika á að sækja forrit sem gerir þeim tölvum mögulegt að lesa Microsoft Office 2007 skjöl. Forritið heitir File-format-converter Office 2007 og er hægt að sækja hér http://www.rikivatnajokuls.is/hatidni/thjonusta/hugbunadur

 

 
Skólakeppni stóru upplestrarkeppninnar

Skólakeppni stóru upplestrarkeppninnar - 3.3.2009 Fréttir Grunnskóli

Skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Nýheimum. Þar lásu 12 nemendur bæði bundinn og óbundinn texta. Lesa meira
 
Öskudagur 2009

Öskudagur - 25.2.2009 Fréttir Grunnskóli

 

Öskudagurinn rann upp, með tilheyrandi hlaupum á heimilum Hornfirðinga og annarra landsmanna. Greiða, mála, klæða snyrta ofl. ofl. ofl. smáverk sem þarf að inna af hendi áður en lagt er af stað í skólann. Búningar í algleymingi. Grunnskóli Hornafjarðar tók á móti skrautlegu fólki í morgun. Við ætlum að láta myndirnar tala sýnu máli en um 400 myndir voru teknar. Ekki er mögulegt að setja allt á netið en

Lesa meira
 
Oskudagur Nes feb 09 010

Öskudagsfár í Nesjunum - 25.2.2009 Fréttir Grunnskóli

Nesjaskóla var öskudagurinn haldin hátíðlegur eins og vera ber. Við hófum daginn á hefðbundinni kennslu en eftir nestistímann tók við spila- og leikjatími fram að mat.

Lesa meira
 
Hreindýraferð 2009

Hreindýr við Drápskletta - 25.2.2009 Fréttir Grunnskóli

Þriðjudaginn 24.febrúar fórum við gangandi út að Drápsklettum með kennurunum okkar Rósu og Þórhildi og íþróttakennaranum okkar Sævari. Í mörg ár hefur skólinn verið að rækta tré út við Drápskletta en núna voru komin hreindýr

Lesa meira
 
Siglingin heim 004

Siglingafræði í 2. N - 23.2.2009 Fréttir Grunnskóli

Eins og flestir vita er verið að ferja nýtt skip fyrir Skinney-Þinganes HF alla leið frá Kaohsiung í Taiwan. Einn af skipverjunum, Margeir, er pabbi hennar Margrétar í 2. bekk. Lesa meira
 

Viðtalsdagur 19. febrúar - skipulagsdagur 20. febrúar - 18.2.2009 Fréttir Grunnskóli

Þá fara nemendur og kennari yfir stöðu mála og markmið eru sett fyrir næstu önn.  Nú þegar hafa nokkrir foreldrar verið boðaðir í viðtöl þar sem mikið annríki er oft hjá umsjónarkennurum á viðtalsdegi. 

Lesa meira
 
Mer_finnst_rigningin_god_003

Grunnskóla lýkur fyrr en vanalega 23. og 27. feb - 18.2.2009 Fréttir Grunnskóli

 

Mánudaginn 23. febrúar og föstudaginn 27. febrúar lýkur skólanum fyrr vegna námskeiðs hjá starfsfólki.

Lesa meira
 
Stóra upplestrarkeppnin

Bekkjarkeppni stóru upplestrarkeppninnar - 13.2.2009 Fréttir Grunnskóli

Nemendur í 7. bekk taka þátt í Stóru upplestrarkeppninni eins og undanfarin ár. 

Lesa meira
 
IMG_1696

112 dagurinn - 12.2.2009 Fréttir Grunnskóli

 

Í gær 11. Febrúar var 112 dagurinn haldinn í 5. sinn og að þessu sinni var dagurinn tileinkaður börnum og ungmennum, öryggi þeirra og velferð með það að leiðarljósi að kynna neyðarnúmerið og starfsemi aðila sem því tengist.

Lesa meira
 
Nes 3. H 02

Nýtt leikár hafið !! - 11.2.2009 Fréttir Grunnskóli

 

Það má segja að nýtt leikár sé hafið í Nesjaskóla en 3. HG reið á vaðið með fyrstu leiknu föstudagshátíðina á nýju ári.

Lesa meira
 
Nes 325

Fréttir úr Nesjaskóla - 11.2.2009 Fréttir Grunnskóli

 Það má segja að Þorrinn hafi verið vænn við okkur þetta árið, logn en frost alla daga. Ekki byrjaði árið  illa en það var hlýtt í upphafi eins og sjá má á myndum af fótboltakrökkunum sem teknar voru 9. janúar.

Lesa meira
 
Nes 196

1. S hélt föstudagshátíð í desember - 10.2.2009 Fréttir Grunnskóli

Í desember síðastliðnum hélt 1. S föstudagshátíð sem að venju vakti mikla lukku.

Hér koma nokkrar myndir af þeirri hátíð.

Lesa meira
 
Picture 010vefur

Rennum okkur á skautum ! - 5.2.2009 Fréttir Grunnskóli

Nemendur á miðstigi skelltu sér á skauta í gær.

Lesa meira
 
Kartöflur teknar upp

Dagur leikskólans - 4.2.2009 Fréttir Grunnskóli

Þann 6.febrúar 2009 er dagur leikskólans haldinn um allt land og ætlum  við leikskólarnir á Höfn að gera okkur dagamun í tilefni dagsins.

Lesa meira
 
thorri09 039vef

Á annarri buxnaskálminni! - 23.1.2009 Fréttir Grunnskóli

Fyrsti dagur þorra er í dag og var honum fagnað með ýmsum hætti í Grunnskólanum.

Lesa meira
 
009_a_vef

Bóndadagur á morgun - 22.1.2009 Fréttir Grunnskóli

Á morgun 23. janúar er bóndadagur.  Þá gera grunnskólanemar sér dagamun.  Drengir á miðstiginu hoppa á öðrum fæti í kringum skólann í annarri brókarskálminni og bjóða þannig þorra velkominn.  Einnig ætla 7. bekkingar að vera með skemmtun á sal og svo verður spilaður manni að hornfirskum sið. 

Lesa meira
 
5._H_a_sal_007

Frétt dagsins - 22.1.2009 Fréttir Grunnskóli

Þorsteinssyni og Hjalta Vignissyni. Fulltrúar Nýsköpunarmiðstöðvar eru staddir hér til að kynna starf Nýsköpunarsmiðstöðvar á Hornafirði

Lesa meira
 
jol08_012vefur

Litlu jólin eru stór - 19.12.2008 Fréttir Grunnskóli

Nemendur og kennarar Grunnskóla Hornafjarðar héldu litlu jólin hátíðleg í gær. Mikið var um dýrðir og skemmtanir. Nemendur og starfsfólk Grunnskóla Hornafjarðar óskar öllum gleðilegra jóla og þakkr fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða. Lesa meira
 
heimsokn_19._des_Nyskopunarmidstod_003

Heimsókn Nýsköpunarmiðstöðvar - 19.12.2008 Fréttir Grunnskóli

Í morgun komu fulltrúar frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands í heimsókn í Grunnskólann ásamt Ara Þorsteinssyni og Hjalta Vignissyni. Fulltrúar Nýsköpunarmiðstöðvar eru staddir hér til að kynna starf Nýsköpunarsmiðstöðvar á Hornafirði og munu verða með kynningu á henni í Nýheimum í dag. Heimsóknin í Grunnskólann tengdist nýsköpunarstarfinu þar og þeim árangri sem legóhóparnir hafa verið að ná. Klakarnir sýndu þeim legóverkefnið sem þeir sigruðu keppnina með og leist þeim afar vel á það. Lesa meira
 
tonlistfyriralla2vefur

Breytingar á skipulagi Grunnskóla Hornafjarðar - 18.12.2008 Fréttir Grunnskóli

Eins og flestum er kunnugt ákvað bæjarstjórn Hornafjarðar að flytja 1. til 3. bekk Grunnskóla Hornafjarðar út á Höfn n.k. haust. Unnið hefur verið að þessum breytingum í vetur og mun 1. - 6. bekkur verða í Hafnarskóla en 7. - 10. bekkur í Heppuskóla. Einnig samþykkti bæjarstjórn að fækka skólastjórum við skólann úr þremur í tvo og deildastjórum úr tveimur í einn. Lesa meira
 
temajolvefur2

Þemavika unglingastig Grunnskóla Hornafjarðar / sýning í dag! - 18.12.2008 Fréttir Grunnskóli

Í þemaviku unlgingastigs Grunnskóla Hornafjarðar hefur hefðbundið skólastarf verið brotið upp og unnið er þvert á bekki og árganga, gott er fyrir nemendur að breyta til, svona í mesta skammdeginu. Þemavikan inniheldur ákveðin þema, eins og nafnið gefur til kynna, en nú eru það jólin í víðum skilningi Þar geta nemendur valið sér ýmsa hópa til að vinna í. Það er mjög misjafnt hvað margir sækja hvern hóp. Blaðahópurin er til dæmis fámennur en fatahönnunnin fjölmenn. Lesa meira
 
HPIM0334vefur

Nemendur Grunnskóla Hornafjarðar skrifa ritdóma. - 17.12.2008 Fréttir Grunnskóli

Nú í jólaösinni ætla nemendur á mið- og efstastigi grunnskólans að gerast spekingar og skrifa ritdóma um nýútkomnar bækur fyrir börn og unglinga. Ritdómarnir verða birtir á heimasíðu grunnskólans fram að jólum og lengur ef þurfa þykir. Mikill áhugi er á lestri þessa dagana og þá ekki hvað síst á nýjum bókum hjá nemendum skólans. Nýafstaðin heimsókn rithöfunda á öll skólastig kynnti vel undir þeim áhuga og þá hefur opnun bókasafnsins í Heppuskóla mælst sérlega vel fyrir og auðveldar nemendum þar aðgengi að bókum. Lesa meira
 
15._des_002_a_vef

Jólagetraun og jólasöngur - 15.12.2008 Fréttir Grunnskóli

Á hverju ári efnir Umferðarstofa til jólagetraunar hjá nemendum í 1. - 5. bekk. Á samveru á sal í dag voru vinningshafar dregnir úr réttum svörum í 4. og 5. bekk. Í fjóraða bekk var það Jóel Ingason sem var dreginn úr og hlaut í verðlaun bókina Eyja sólfuglsins eftir Sigrúnu Eldjárn. Í 5. bekk var það Dagur Snær Guðmundsson sem var dreginn út og hlaut í verðlaun bókina Steindýrin eftir Gunnar Theodór Eggertsson. Lesa meira
 
syningIMG_5369

Trúarbragðasýning og jólasamvera - 10.12.2008 Fréttir Grunnskóli

Á mánudaginn 8. desember var trúarbragðarsýning hjá 7. M. Krakkarnir buðu foreldrum sínum og gerðu glærusýningu, bæklinga um trúarbrögðin hindú, búddha, íslam, gyðingadóm og kristni sem eru 5 helstu trúarbrögð heims. Einnig settu þau upp muni sem tengjast trúarbrögðunum og voru í viðeigandi búningum. Lesa meira
 
pakki_undir_jolatred_008_a_vef

Jólapakkar undir jólatréð í Kringlunni - 9.12.2008 Fréttir Grunnskóli

Mánudaginn 8. desember stóð foreldrafélag Grunnskólans fyrir söfnun á jólapökkum undir jólatréð í Kringlunni. Mælst var til þess að sem flestir gæfu aukapakka þessi jól sem færi undir jólatréð í Kringlunni og Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp Íslands sjá svo um að úthluta. Nemendur og foreldrar söfnuðust saman í Sindrabæ þar sem miðum á pakkana var deilt út og síðan var farið með þá á pósthúsið. Lesa meira
 
4b08_troll_019_a_vef

Lesblinda - hvað er hægt að gera? - 8.12.2008 Fréttir Grunnskóli

Á Menntavísindasviði Háskóla Íslands er sífellt unnið að rannsóknum á námi og kennslu. Nú hefur starfsfólk þar kynnt sér nýjar aðferðir við inngrip við lestrarvandamálum og á morgunvaktinni á Rás 1, 8. desember var viðtal við Steinunni Torfadóttur þar sem hún sagði frá því í hverju þessi inngrip felast. Lesa meira
 
Lopi_blekking_029vefur

Frábær ,,Blekking - 5.12.2008 Fréttir Grunnskóli

Nú hefur leikhópurinn Lopi lokið sýningum á leikritinu Blekking eftir Magnús J. Magnússon. Sýningum lauk með tveimur skólasýningum þar sem öllum nemendum í 4. - 10. bekk var boðið á leikritið. Nemendur voru flestir afar ánægðir með sýninguna og sem dæmi má nefna að í 4. - 7. bekk misstu áhorfendur aldrei athyglina þær 70 mínútur sem sýningin stóð enda stanslaust eitthvað skemmtilegt um að vera á sviðinu. Hér er leiklistargagnrýni frá nemanda í 5. bekk. Lesa meira
 
rithofundar_003vefur

Jólin koma með rithöfundunum - 4.12.2008 Fréttir Grunnskóli

Kærkomin heimsókn rithöfunda var í Grunnskóla Hornafjarðar í dag, en lesið var upp í Nesjaskóla, Hafnarskóla og Heppuskóla. Þetta hefur verið árviss viðburður hjá okkur í desember og er orðin hefð í undirbúningi jólanna. Rithöfundarnir skiptu sér niður á aldursstig og las Sigrún Eldjárn fyrir yngsta stig og miðstig úr bókinni, ,,Eyju Sólfuglsins". Á miðstigi las einnig Jóna Á. Gísladóttir úr bók sinni ,,Sá einhverfi". Jóna las einnig á elsta stiginu en auk hennar lásu þar; Sjón úr bók sinni ,,Rökkurbýsnir", Guðmundur Andri Thorsson úr bókinni ,,Segðu mömmu að mér líði vel" og Þórunn Valdimarsdóttir úr ljóðabókinni "Loftnet klóra himin". Lesa meira
 
6._O_skemmtun_a_sal_1._des_001_a_vef

90 ára afmæli fullveldisins minnst í Grunnskólanum - 1.12.2008 Fréttir Grunnskóli

Að venju var haldið upp á fullveldisdaginn í Grunnskólanum. Unglingarnir tóku forskot á sæluna og voru með fullveldisfagnað á föstudagskvöldið þar sem hljómsveitin Rottweiler kom og lék fyrir dansi með þeim. Á yngri stigunum hittust nemendur og sungu saman og á miðstiginu var 6. Ó auk þess með sýningu og sagði okkur svoldið frá fullveldinu og öðru markverðu sem gerðist árið 1918 þegar Ísland hlaut fullveldi. Hér á eftir kemur textinn sem 6. Ó flutti í tilefni dagsins. Hann er okkur öllum góð lesning og minnir okkur á hve harða baráttu Íslendingar hafa oft þurft að heyja, til að komast af. Lesa meira
 
Klakar_a_Hotelinu_021_a_vef

Bæjarstjórn býður legóhópnum í pizzu á Hótelið - 28.11.2008 Fréttir Grunnskóli

Eins og flestir muna eftir þá sigraði legóhópurinn Klakarnir First Lego Leagu keppnina sem haldin var 8. nóvember síðastliðinn og vann sér um leið inn rétt til þátttöku á Evrópumótinu í Kaupmannahöfn í byrjun maí á næsta ári. Bæjarstjórn bauð Klökunum ásamt fylgdarmönnum í keppninni í pizzu á Hótelinu í gær í tilefni sigursins. Þar tók hópurinn vel til matar síns enda pizzur sívinsælar hjá þessum aldurshópi. Um leið og bæjarstjórinn óskaði Klökunum til hamingju með árangurinn þá hafði hann orð á því að það væri sérstaklega gaman að bjóða þeim út að borða því honum þætti pizzur líka svo góðar. Lesa meira
 
3._HG_rittjalfi_001

Ritþjálfi í skólanum - 27.11.2008 Fréttir Grunnskóli

Nú í haust höfum við verið að æfa fingrasetningu með notkun ritþjálfa. Við æfðum okkur daglega í u.þ.b. tvær vikur. Þetta er góð aðferð við að kenna fingrasetningu og gaman að fylgjast með hvað krakkarnir eru fljót að komast upp á lag með þetta. Lesa meira
 
Nes_nov_08_024

Föstudagsgleðin heldur áfram - 26.11.2008 Fréttir Grunnskóli

Við höldum áfram með föstudagshátíðirnar í Nesjaskóla og síðastliðinn föstudag var það 1. B sem þreytti frumraun sína á sviðinu. Eins og gefur að skilja þá er mikill spenningur hjá nemendum við undirbúninginn og ekki síst hjá þeim yngstu sem búnir eru að fylgjast með eldri nemendum halda sína hátíðir. Lesa meira
 
tonlistfyriralla1vefur

Rífandi fjör í Hafnarkirkju.... - 19.11.2008 Fréttir Grunnskóli

Sjaldan hefur myndast jafnmikið fjör í Hafnarkirkju en á tónleikum þar s.l. mánudag. Grunnskóla Hornfjarðar var boðið á ,,Tónlist fyrir alla". Þar komu fram fjórir landsþekktir tónlistarmenn, þau Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Gunnar Hrafnsson, Björn Thoroddsen og Ásgeir Óskarsson dagskráin byggir á íslenska þjóðlaginu "Ljósið kemur langt og mjótt", en tónlistarmennirnir, undir forystu Ólafíu Hrannar fara með lagið í "reisu" um heiminn í stíl og látbragði. Sérstaklega fannst nemendum mikið til koma þegar lagið var sett í rífandi ,,þunga rokks" útsetningu. Ekki varð það leiðinlegra þegar það var rappað og fengu nokkrir að spreyta sig með Ólafíu Hrönn í míkrafóninn. Lesa meira
 
lego_val_023vefur1

Legohópurinn þakkar fyrir sig - 19.11.2008 Fréttir Grunnskóli

Eins og flestum er kunnugt unnu Klakarnir, lið Grunnskóla Hornafjarðar Íslandskeppnina í First Lego League. Þar með varði liðið titil skólans frá í fyrra og tryggði sér rétt til að taka þátt í Evrópukeppninni sem haldin verður í Danmörku í maí á næsta ári. Einn af yfirmönnum keppninnar sagði að það væri skrítið að lið frá sama skóla skyldi vinna annað árið í röð en Klakarnir hefðu einfaldlega verið langbesta liðið. Einnig vann liðið bikar fyrir bestu liðsheildina. Nú vilja þau koma á framfæri þakklæti til Jóns Bakara og Nettó fyrir góðan stuðning. Keppnisandinn hefur ekkert minkað því nú er verið að undirbúa Evrópukeppnina en þau eru staðráðin í að fara og keppa. Lesa meira
 
6._nov_2008_001_a_vef

Raddböndin þanin í Heppuskóla - 12.11.2008 Fréttir Grunnskóli

Föstudaginn 7. nóvember tóku nemendur Heppuskóla lagið eftir hádegi, þetta var aldeilis flottur og kraftmikill kór og hann Elvar Bragi kom í skólann og spilaði undir á gítar. Nokkrir nemendur voru búnir að útbúa söngbók sem sungin var spjaldanna á milli. Þetta gerði mikla lukku og það var gott að koma saman og þenja raddböndin á þennan háttinn. Á föstudaginn seinasta var spiluð félagsvist í skólanum, nemendur í 8.-10. bekk spiluðu saman á 21 borði. Úrslit voru tilkynnt í dag og það var Alex Freyr í 10.A sem var hæstur af körlunum, hæst af konunum var Sverrir Brimar í 10.B, hann spilaði sem sagt sem kona. Þeir fengu pizzu í vinning frá Hótelinu. Lesa meira
 
Legóhópurinn

Klakarnir unnu First Lego League - 8.11.2008 Fréttir Grunnskóli

Klakarnir, lið Grunnskóla Hornafjarðar vann í dag Íslandskeppnina í First Lego League. Þar með varði liðið titil skólans frá í fyrra og tryggði sér rétt til að taka þátt í Evrópukeppninni sem haldin verður í Danmörku í maí á næsta ári. Einn af yfirmönnum keppninnar sagði að það væri skrítið að lið frá sama skóla skyldi vinna annað árið í röð en Klakarnir hefðu einfaldlega verið besta liðið. Í liði klakanna eru þau Agnar Jökull Imsland Arason, Darri Snær Nökkvason, Guðrún Kristín Stefánsdóttir, Heiðdís Anna Marteinsdóttir, Jóhann Klemens Björnsson, María Hjördís Karlsdóttir, Marteinn Eiríksson, Ragnar Magnús Þorsteinsson, Þorsteinn Geirsson, Una Guðjónsdóttir. Þau eru öll nemendur í 7. bekk en í skólanum hefur skapast sú venja að nemendur þess bekkjar taki þátt í keppninni. Liðstjórar Klakanna eru þau Eiríkur Hansson sem hefur verið liðstjóri allra 7. bekkjar liðanna sem farið hafa í þessa keppni og Magnhildur Gísladóttir umsjónarkennari bekkjarins. Lesa meira
 
Legóhópurinn

Klakarnir keppa í Lego - 8.11.2008 Fréttir Grunnskóli

Þegar þetta er skrifað eru Klakarnir lið Grunnskóla Hornafjarðar að ljúka fyrstu umferð í keppninni Lego hönnunarkeppni 2008 í Öskju við Sturlugötu í Reykjavík. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu á netinu fyrir þá sem hafa áhuga. Úrslita er að vænta klukkan 16 í dag en. Liðið hefur sína eigin bloggsíðu þar sem þau hafa haldið út dagbók um verkefnið og hvernig það hefur gengið fyrir sig s.l. mánuði. Allir eru sigurvegarar. Lesa meira
 
6._nov_2008_046vefur

Forvarnardagurinn 2008 - 7.11.2008 Fréttir Grunnskóli

Í gær fimmtudaginn 6. nóvember tóku 9. bekkir Grunnskóla Hornafjarðar þátt í forvarnardeginum. Dagurinn er á vegum UMFÍ, ÍSÍ og Bandalags íslenskra skáta og ætlaður fyrir 9. bekki grunnskóla. |nl|Nemendurnir byrjuðu á því að horfa á myndband sem gefið er út í tilefni dagsins þar sem þjóðþekktir einstaklingar tala um forvarnir og gildi íþrótta og samveru við foreldra. Síðan unnu nemendur í hópum og svöruðu spurningunum Lesa meira
 
Nes_okt_08_015

Hvernig urðu hljóðfærin til ? - 3.11.2008 Fréttir Grunnskóli

Við fengum góðan gest í heimsókn til okkar í Nesjaskóla á föstudaginn en þá kom Jóhann Morávek skólastjóri Tónskólans með fullt af hljóðfærum í farteskinu. Hann ræddi við nemendur skólans um það hvernig hljóðfæri urðu til í upphafi og um leið sýndi hann nokkrar gerðir af hljóðfærum og leyfði okkur að heyra hvernig þau hljóma jafnframt því að hann spilaði af geisladiskum tóndæmi. Lesa meira
 
MMH_safna1

Læra að nýta sér bókasöfnin í leik og starfi - 30.10.2008 Fréttir Grunnskóli

Nú er safnkennslan hafin í Grunnskóla Hornafjarðar en hún felst í því að kenna nemendum skólans leiðir til að nýta sér bókasöfnin í leik og starfi. Nemendum er meðal annars kennt að nota bókasafnskerfið Gegni til að finna hvar bækur og gögn eru staðsett í bókasöfnunum ásamt því að afla upplýsinga úr bókum og af neti. Farið er í heimsókn á Bókasafn Menningarmiðstöðvar en þar eru leyst ýmis verkefni og kíkt í skjalageymslu sýslunnar. Þá fá nemendur afhentan bækling um skólabókasafnið en þar er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar. Lesa meira
 
3.D_fostudagshatid_001vef

Föstudagur í Nesjaskóla - 27.10.2008 Fréttir Grunnskóli

Á síðasta föstudag var það 3. D sem sá um að skemmta okkur með leik og söng á hinni hefðbundnu föstudagshátíð skólans. Krakkarnir hófu dagskrána á því að stelpurnar sungu lagið Do re me, næst voru fluttir brandarar af ýmsu tagi. Hekla, Tinna, Díana og Inga Sóley sömdu dans og sýndu. Helgi, Óliver, Aðalsteinn, Sigurður og Bjarmi sungu lagið Hífum í bræður, voða flottir strákar, skiptust á að syngja einsöng, Því næst komu stelpurnar með blokkflauturnar og spiluðu og sungu lagið Lesa meira
 
itrottadagur_167__a_vefur

Íþróttadagur í 8. - 10. bekk - 20.10.2008 Fréttir Grunnskóli

Laugardaginn 18. október var haldinn íþróttadagur fyrir nemendur í 8. 10. bekk og foreldra þeirra. Bekkjartenglar og nokkrir nemendur skólans sáu um skipulagningu og var hún til fyrirmyndar. Sett var upp þrautabraut sem nemendur hönnuðu og áttu bæði foreldrar og nemendur að fara í gegnum hana á tíma. Keppnisskapið var sko aldeilis til staðar jafnt hjá nemendum sem og foreldrum. Besti tíminn hjá fullorðnum í brautinni var 37 sekúndur og 33 sekúndur hjá nemendum. Lesa meira
 
Nes_fostudagsh_2.N_004vef

Föstudagshátíð í Nesjaskóla. - 15.10.2008 Fréttir Grunnskóli

Síðast liðinn föstudag sá 2. N um föstudagshátíð skólans. Hátíðin hófst á því að krakkarnir léku Fiðlu-Hansa á flautu og síðan komu þau fram hvert á eftir öðru og sögðu brandara, gátur og sögðu bráðskemmtilega rímbrandara sem má teljast nýtt í brandara flórunni. Þau fluttu svo leikrit um Bakkabræður og las Auðunn fyrir okkur söguna á meðan Benjamín Glói, Einar Karl, Kristján Bjarki og Laufey túlkuðu persónurnar. Malín og Sara Kristín lásu einnig söguna um Ketillaugu og Skeggja í Skeggey, Jóhann las frumsamda Lesa meira
 
Gongum_i_skolann_011_a_vef

Göngum í skólann - 8.10.2008 Fréttir Grunnskóli

85% nemenda í 4. - 10. bekk Grunnskólans gekk eða hjólaði í skólann í dag. Af eðlilegum ástæðum var erfitt fyrir nemendur í 1. - 3. bekk að taka þátt í þessu verkefni en þeir koma bara sterkari inn síðar.  Gísli Skarphéðinn Jónsson skar sig þó sérstaklega úr en hann hjólaði í skólann alla leið innan frá Stapa eða u.þ.b. níu kílómetra.  Frábært afrek það. 

 Þetta er í fyrsta skiptið sem Grunnskólinn hér tekur þátt í "Göngum í skólann" verkefninu.  Þetta er alþjóðlegt verkefni með yfir 40 þátttökulöndum og mörgum milljónum barna.  Fyrsti dagur þess var 10. september og svo lauk því í dag 8. október.  Þar sem grunnskólinn leggur áherslu á heilsueflingu í skólastarfinu þá verður þetta örugglega árviss viðburður og þó ekki hafi viðrað vel undanfarnar vikur í Hornafirði hefur þátttaka verið mjög góð.

Lesa meira
 
Nes_fostudagsh_3.H_013_a_vef

Föstudagshátíð í Nesjaskóla - 8.10.2008 Fréttir Grunnskóli

Síðasta föstudag var undirritaður svo ljónheppin að vera staddur í Nesjaskóla þegar föstudagshátíðin fór fram. Föstudagshátíðir eru hugsaðar með þeim hætti að bekkirnir eru með dagskrá fyrir skólann á föstudögum. Og þennan tiltekna föstudag var það 3. HG sem sá um hátíðina! Það ríkti mikil eftirvænting í litla salnum þegar hátíðin hófst. Fyrstu bekkingarnir sem ekki höfðu upplifað svona hátíð sátu einbeittir og spenntir. Annarsbekkingar ögn reyndari og vissu betur og nemendur í þriðja D sem vissi þetta allt. Á bak við var þriðji. HG, einbeittur, spenntur og með smá frumsýningarkvíði. Dagskráin hófst á kynningu sem níu nemendur fluttu, hver með smá bút úr kynningunni. Þau voru einbeitt og ákveðin og gáfu tóninn hvað varðaði hátíðina. Lesa meira
 
Namskeid_med_Magna_001_a_vef

Nýtt starfsfólk á námskeiði - 8.10.2008 Fréttir Grunnskóli

Í dag situr nýtt starfsfólk í Grunnskóla Hornafjarðar á námskeiði með Magna Hjálmarssyni um Uppeldi til ábyrgðar. Á námskeiðinu er farið í grundvallaratriði uppbyggingarstefnunnar sem byggir á því að að skapa skilyrði til að börn geti lært af mistökum sínum, snúið aftur til hópsins og vaxið við hverja raun. Lesa meira
 
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Borgarafundi með menntamálaráðherra frestað - 7.10.2008 Fréttir Grunnskóli

Opnum borgarafundi sem vera átti með menntamálaráðherra kl. 20:00 miðvikudagskvöldið 8. október er frestað um óákveðinn tíma. Lesa meira
 
Skolasetning_004_a_vef_-

Opinn borgarafundur með menntamálaráðherra - 6.10.2008 Fréttir Grunnskóli

Í kjölfar Menntaþings stendur menntamálaráðuneytið fyrir kynningarfundum um nýja menntastefnu um land allt í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og Heimili og skóla. Einnig hefur ráðuneytið kynnt nýja menntastefnu á haustþingum Félags grunnskólakennara. Framundan er mikilvægt starf við að móta áherslur í framkvæmd nýrrar menntastefnu og hvetur menntamálaráðuneytið alla til að leggja sitt af mörkum. Kynningarfundir um nýja menntastefnu eru öllum opnir og er skólafólk, kennarar, nemendur, foreldrar og annað áhugafólk um menntakerfið sérstaklega hvatt til að mæta á fundina, hlýða á erindi og taka þátt í umræðum. Lesa meira
 
Nes_sept_08_029_a_vef

Námskeið fyrir foreldra og forráðamenn 1. bekkinga - 1.10.2008 Fréttir Grunnskóli

Námskeið fyrir foreldra og forráðmenn 1. bekkinga var haldið í Nesjaskóla þriðjudaginn 30. september. Námskeiðið hófst á því að Þorvaldur skólastjóri bauð gesti velkomna og rakti í örstuttu máli það sem framundan væri. Að því loknu ræddi Sigríður, annar umsjónarkennarinn í 1. bekk um lestrarnám, hvernig það væri byggt upp, fór í gegnum aðferðarfræðina og nefndi ýmsar gagnlegar aðferðir og leiðir til að efla lestur og lesáhuga. Brynja, hinn umsjónarkennarinn 1. bekkinga ræddi síðan um stærðfræðikennsluna á svipuðum nótum og Sigríður um lestrarnámið. Lesa meira
 
Truarbragdafradi_i_7._bekk_003_a_vef

Samfélagsfræði í 7. bekk - 29.9.2008 Fréttir Grunnskóli

Við í 7. bekk erum að læra um trúarbrögð. Við höfum horft á tvær myndir um gyðingdóminn og Islam. Í tölvutíma höfum við farið á netið og leitað okkur upplýsingar um trúarbrögðin, við höfum föndrað bækur með fullt af myndum sem bið skýrum síðan frá. Þegar við vorum að læra um kristna trú bjuggum við til glugga eins og er á mörgum kirkjum og teiknuðum kross í miðjuna, lituðum og skrifuðum Faðir vorið. Lesa meira
 
001_a_vef

Samstarfssamningur Grunnskólans og Framhaldsskólans - 29.9.2008 Fréttir Grunnskóli

Grunnskóli Hornafjarðar og Framhaldsskóli Austur-Skaftafellssýslu hafa endurnýjað samstarfssamning sem hefur það að markmiði að gera nemendum Grunnskólans fært að hefja nám á framhaldsskólastigi áður en þeir hafa lokið grunnskólanámi. Það geris með tvennu móti. Annars vegar stunda nemendur nám í valáföngum og fer kennslan fram í FAS, sem greiðir kostnað við þá kennslu. Hins vegar stunda nemendur nám í framhaldsáföngum þar sem kennslan fer fram í Grunnskólanum og sveitarfélagið stendur þá straum af kostnaði við þá kennslu. Samningur GH og FAS er í anda nýrra grunnskólalaga þar sem lögð er áhersla á sveigjanleika milli skólastiga þannig að grunnskólanemendur geti hafið framhaldsskólanám á meðan þeir eru í grunnskóla. Þess má geta að samstarf Grunnskólans og FAS hefur staðið frá því árið 2000 svo segja má að þessir skólar hafið verið vel í stakk búnir til að taka við þessu ákvæði nýrra grunnskólalaga. Lesa meira
 
Uti_i_rigningu_001_a_vef

Nú rignir hann - 26.9.2008 Fréttir Grunnskóli

Síðustu daga höfum við Skaftfellingar ekki farið varhluta af haustrigningunum. Ekkert lát virðist vera á þeim og það er reynsla okkar að þær geti staðið linnulítið fram að jólum. Við í Grunnskólanum erum ákveðin á því að það sé gott að vera úti hvernig sem viðrar og því fara nemendur okkar í 1. - 7. bekk út í flestum frímínútum, sama hve rignir mikið. Það er helst ef með rigningunni fylgir mikill vindur að við leyfum nemendum að vera inni. Það er hinsvegar nokkur misbrestur á því að nemendur komi með regngallana með sér í skólann en þeir gera lítið gagn á snaga í forstofunni heima. Þess má líka geta að töluvert er um að nemendur séu í vindgöllum en þeir hafa lítið að segja í svona rigningu. Nú er ekkert annað en gúmístígvélin og regngallinn sem gildir. Lesa meira
 
4bekkur_agust_08_017vef

Grímusull!!! - 25.9.2008 Fréttir Grunnskóli

Valhópur í grímusulli er starfandi við Grunnskólann, það var forvitnilegt að fá að vita hvað þau eru að gera í sullinu þannig að við fengum Sejlu og Guðrúnu í 6. bekk til að lýsa þessu nána. "Við krakkarnir í grímusullinu erum að búa til grímur. Við notum ýmist blöðrur eða álpappír. Þeir sem nota blöðrur blása upp blöðru á stærð við hausinn á sér, en þeir sem nota álpappír móta álpappírinn við augun og nefið. Við rífum niður dagblöð og dýfum í Lesa meira
 
Arsenal_treyja

Arsenalklúbburinn þakkar fyrir góðar móttökur - 24.9.2008 Fréttir Grunnskóli

Forsvarsmenn Arsenalklúbbsins á Íslandi komu hér helgina 12. - 14. september til að heiðra minningu Tómasar Inga Ingvarssonar sem hefði orðið 11 ára þann 14. september. Þeir færðu Grunnskóla Hornafjarðar treyju áritaða af leikmönnum Arsenal en klúbburinn fær eina slíka treyju á ári. Það voru 6. bekkingar og foreldrar þeirra sem tóku við bolnum fyrir hönd skólans ásamt Ólöfu Ósk og Sævari Þór. Knattspyrnudeildin sá um dagskrá með gestum og var þetta hin skemmtilegasta stund. Forsvarsmenn Arsenalklúbbsins færðu áhangendum Arsenal á Hornafirði ýmislegt smálegt með merki félagsins. Þeir vilja hér með koma á framfæri þökkum fyrir góðar móttökur á Hornafirði og fyrir skemmtilegan dag. Heiður og Ingvar fá þakkir fyrir höfðinglegar móttökur og Hótel Höfn fyrir góða þjónustu og liðlegheit. Lesa meira
 
001_a_vef

Nýnemadagur - 24.9.2008 Fréttir Grunnskóli

Nemendur 10. bekkjar sáu um vígslu nýnema inn í elsta stigið. Um morguninn var 8. bekkingum bannað að sitja í mjúkum sófum setustofunnar. Fram að hádegi var þetta það eina sem busarnir þurftu að ganga í gegnum, en eftir hádegi byrjuðu herlegheitin. 10. bekkingar sáu um að farða, greiða og klæða busana í búninga sem samanstóð af ruslapokum og hárneti. Síðan var þrammað í íþróttahúsið og busarnir sungu sérvalin lög eins og í leikskóla er gaman og stubbarnir. Í íþróttahúsinu þurftu þeir að tilbiðja 10. bekkingana og leika listir sínar. Farið var í ýmsa leiki, spurningakeppni, fílafótbolta og fl. Að lokum var knattspyrnuleikur á milli 10. bekkinga og kennara. Auðvitað unnu kennararnir leikinn 4:0 (að vísu voru Lesa meira
 
2_vef_steinunn

Ljósmyndir í tölvum - 18.9.2008 Fréttir Grunnskóli

Í Grunnskólanum er starfræktur í vali ljósmyndahópur, þar er verið að vinna með stafrænar ljósmyndir úr umhverfinu og er ætlunin að hafa ljósmyndasýningu á göngum skólans þegar vinnu lýkur. Nokkur þemu eru í gangi en það er mynd af speglun í umhverfi, lit, hvað minnir á skólann, auga ofl. alls eru 17 krakkar á aldrinum 9 ára til 12 ára í hópnum. Mikið er að gera þegar hópurinn er að vinna, mikið spurt og spáð. Myndirnar eru flestar í vinnslu ennþá en nokkrar þeirra birtast hér með, ekki náðist að setja inn myndir frá öllum en allflestum. Aðrar myndir birtast síðar. Lesa meira
 
DSC03552_feghurd_vef

Foreldrafélag Grunnskóla Hornafjarðar - 18.9.2008 Fréttir Grunnskóli

Miðvikudaginn 17. september voru bekkjartenglar og stjórn foreldrafélagsins boðuð á fund og farið yfir starfsemi s.l. vetrar og hvað væri framundan í starfi foreldrafélagsins. Ný stjórn var kosin og er hún þannig skipuð: Aðalmenn eru: Erla Berglind Antonsdóttir, Anna Kristín Hauksdóttir og Ragnheiður Sigjónsdóttir. Varamenn eru: Sólveig María Hauksdóttir og Jóna Bára Jónsdóttir. Á heimasíðu skólans www.hornafjordur.is/grunnskoli/foreldrar er hægt að sjá hverjir eru bekkjartenglar hvers árgangs. Ef foreldrar hafa hugmyndir að fyrirlestrum eða öðru er áhugavert gæti verið fyrir foreldrafélagið vinsamlegast komið því til skila til stjórnarinnar. Við minnum á slóðina www.heimiliogskoli.is til fróðleiks fyrir foreldra/forráðamenn nemenda. Lesa meira
 
utivist_hlaup_132_vefur

Göngum í skólann - 17.9.2008 Fréttir Grunnskóli

Verkefnið ,,Göngum í skólann"- hófst miðvikudaginn 10. sept. s.l. Grunnskóli Hornfjarðar er þátttakandi og hvetur þá sem geta komið því við að ganga eða hjóla í skólann. Þessu verkefni lýkur svo formlega á alþjóðlega "Göngum í skólann" - deginum miðvikudaginn 8. október. Í ár verður lögð áhersla á að börn gangi eða hjóli til og frá skóla. Markmið verkefnisins eru meðal annars: Lesa meira
 
IMG_1930_avef

Landnemar - 17.9.2008 Fréttir Grunnskóli

Í Grunnskóla Hornafjarðar hefur tíðkast að vinna í þemaverkefnum. Þá aðallega í samfélagsfræðigreinum. Nú er 5. S lagður af stað í Landnám Íslands. Nemendur skrifuðu frétt og tóku myndir. |nl|Núna er 5.S byrjaður að vinna við þemaverkefni um landnema sem flúðu Noreg og komu til Íslands.Við ætlum að fylgjast með för Leifs heppna Eiríkssonar. Núna erum við að búa til vestur hluta Noregs og skreytum hann með fjöllum, fossum, trjám, grasi, húsum, dýrum, bátum og fiskum. Lesa meira
 
Er_Sindri_ekki_bestur

Í minningu Tómasar Inga - 10.9.2008 Fréttir Grunnskóli

Laugardaginn 13. sept. n.k. munu forsvarsmenn Arsenalklúbbsins koma á Hornafjörð. Þeir munu taka þátt í uppskeruhátíð Sindra í 5. 6. og 7. flokki. Ástæðan fyrir komu þeirra er að þeir vilja heiðra minningu Tómasar Inga Ingvarssonar Arsenal aðdáanda með því að færa 6. bekk til eignar treyju áritaða af leikmönnum Arsenal. En næsta sunnudag 12. sept. hefði Tómas Ingi orðið 11 ára. Lesa meira
 
nemendarad_003

Nemendaráð Grunnskóla Hornafjarðar - 10.9.2008 Fréttir Grunnskóli

Innan grunnskólans er starfrækt nemendaráð sem er skipað fulltrúum nemenda í 6. - 10. bekk. Í 6. - 10. bekk kjósa nemendur sér einn fulltrúa í hverjum bekk í nemendaráðið. Fyrsti fundur vetrarins var svo haldinn í dag og skiptu þá nemendur með sér verkum. Formaður er Óskar Þór Ingvarsson og varaformaður Lesa meira
 
heppu_bokasafn_002_vefur

Betri þjónusta við nemendur - 5.9.2008 Fréttir Grunnskóli

Verið er að setja upp bókasafnsútibú í Heppuskóla en það er Menningarmiðstöðin sem vinnur að því. Lesa meira
 
nesjaskoli_bejamo_hlaup_202_vefur

Norræna skólahlaupið - 5.9.2008 Fréttir Grunnskóli

Nú hafa nemendur Grunnskóla Hornafjarðar lokið við að hlaupa Norræna skólahlaupið. Allir taka þátt og lágmarksvegalengd er 2,5 km. Þessi uppákoma hefur verið árviss og fá nemendur viðurkenningaskjöl fyrir þátttaka. Þetta er samvinnuverkefni milli Norðurlanda og er sett á til að efla vitund barna og kennara um nauðsyn hreyfingar. Lesa meira
 
Auður Lóa Gunnarsdóttir

Nýsköpunarkeppni Grunnskólanna - 4.9.2008 Fréttir Grunnskóli

Auður Lóa Gunnarsdóttir 7.M frá Stórabóli komst áfram í Nýsköpunarkeppni Grunnskólanna. Auður Lóa var með hugmynd sem hún kallar sveitin. En það er tölvuleikur sem miðar út frá íslenskri sveit og störfum sem þar þarf að sinna. Það að komast áfram er stór sigur út af fyrir sig, en í þessum áfanga taka þátt 53 nemendur allstaðar af að landinu og verða þeir í vinnusmiðju þar sem þeir fá hjálp við að útfæra hugmyndirnar í framleiðsluform. Lesa meira
 
Skolasetning_001_a_vef

Skólasetning í Grunnskólanum - 25.8.2008 Fréttir Grunnskóli

Skólasetning í Grunnskólanum fór fram s.l. fimmtudag. Nemendum og foreldrar mættu með börnum sínum og áttu stund með umsjónarkennurum og farið var í gegn um þau hlutverk sem við eigum í kennslustofunni og í skólanum. Mjög góð mæting var og sköpuðust skemmtilegar umræður um hlutverkin og tilgang þeirra. Lesa meira
 
Starfsdagar_haustid_08_046_a_vef

Námskeið um fjölbreytt námsmat - 20.8.2008 Fréttir Grunnskóli

Í dag tók starfsfólk Grunnskólans fyrstu skrefin í þróunarverkefni sem ber snýst um að bæta námsmat skólans og gera það fjölbreyttara. Skrefin sem tekin voru í dag fólust í því að Ingvar Sigurgeirsson prófessor við menntasvið Háskóla Íslands (áður KHÍ) kom og hélt fyrirlestur um fjölbreytt námsmat og sýndi ýmis dæmi um það. Með því kveikti hann ýmsar hugmyndir hjá starfsfólki sem nú þegar er byrjað að velta fyrir sér hvaða þætti það mun leggja áherslu á í vetur. Þróunarverkefnið mun standa í allan vetur og geta bæði nemendur og foreldrar vænst þess að finna breytingar á fyrirkomulagi námsmats þegar frá líður. Lesa meira
 
Krossbajarskard_001_a_vef

Skólasetning í Grunnskóla Hornafjarðar - 13.8.2008 Fréttir Grunnskóli

Skólasetning í Grunnskóla Hornafjarðar fimmtudaginn 21. ágúst kl. 17:00 - 19:00. Nemendur mæta með foreldrum sínum hver í sinn skóla. 

Á skólasetningu verður farið yfir helstu atriði í skólastarfinu, nýjar skólareglur, námstilhögun í hverjum árgangi fyrir sig ásamt fleiri mikilvægum atriðum. Foreldrar eru vinsamlegast beðnir um að mæta með börnum sínum og láta yngri börnin þá ganga fyrir. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 25. ágúst.

Lesa meira
 
Mer_finnst_rigningin_god_003

Laus störf við Grunnskóla Hornafjarðar - 13.8.2008 Fréttir Grunnskóli

Kennara eða leiðbeinanda vantar í 100 % starf í textilmennt (handmennt) á mið- og unglingastig á næsta skólaári.  Launakjör samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga við KHÍ.  Skólaliða vantar í 100 % starf í Grunnskóla Hornafjarðar, Hafnarskóla. Hann þarf að geta hafið störf sem fyrst. Starf skólaliða felst fyrst og fremst í ræstingum og eftirliti með nemendum. Launakjör samkvæmt kjarasamningi sveitarfélagsins við stéttarfélög. Umsóknum skal skilað til skólastjóra þar sem fram koma upplýsingar um aldur og reynslu. Frekari upplýsingar gefur skólastjóri í síma 470 8440 / 899 5609, thorgunnur@hornafjordur.is

Lesa meira
 
Föstudagshátíð 1. M

Skólaráð - 13.8.2008 Fréttir Grunnskóli

Samkvæmt nýjum grunnskólalögum hefur foreldra- og kennararáð verið lagt niður en í stað þess skal kosið Skólaráð við alla skóla. Í grunnskólalögunum segir m.a. "Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda. Skólanefnd, sbr. 6. gr., getur með samþykki sveitarstjórnar falið skólaráðum einstakra skóla ákveðin verkefni þessu til viðbótar. Lesa meira
 
tungumalanamskeid_4728_a_vef

Tungumál sem samskiptamiðill - 11.6.2008 Fréttir Grunnskóli

Tungumál sem samskiptamiðill var heiti á námskeiði sem haldið var í Grunnskólanum 9. og 10. júní. Námskeiðið var ætlað þeim sem koma að tungumálakennslu hvort heldur sem er í kennslu eða stuðningi. Kennsluaðferðir í tungumálum hafa breyst mikið á síðustu árum og nú þegar farið er að kenna ensku alveg niður í fyrst bekk er mikilvægt að fá nýjar og ferskar hugmyndir. Það var Samuel C. Lefever lektor í ensku við KHÍ sem var leiðbeinandi á námskeiðinu sem tókst í alla staði mjög vel. Lesa meira
 
Nes_mai_unicef_064

Unicef hreyfingin - 10.6.2008 Fréttir Grunnskóli

Í lok maí tóku nemendur í 2. – 6. bekk grunnskólans þátt í Unicef-hreyfingunni svokallaðri. Þessir nemendur hlupu og gengu samtals 619,6 km og söfnuðu um leið áheitum. Áheitin skiluðu sér vel og samtals söfnuðu nemendurnir 294.642 krónum. Söfnunarféð úr UNICEF-hreyfingunni fer í alþjóðlegan sjóð UNICEF og er nýtt þar sem þörfin er mest hverju sinni. Við megum koma með tillögu um það í hvað okkar söfnunarfé rennur en hér fyrir neðan er langur listi af mögulegum verkefnum. Ef þið viljið hafa áhrif á valið þá endilega látið Sævar Þór Gylfason vita með því að senda honum tölvupóst á nefangið saevar@hornafjordur.is. Lesa meira
 
Skolaslit_002_a_vef

Fyrstu skólaslit í Grunnskóla Hornafjarðar - 4.6.2008 Fréttir Grunnskóli

Skólaslit Grunnskóla Hornafjarðar fóru fram við hátíðlega athöfn í Íþróttahúsinu á Höfn 3. júní. Mikið fjölmenni var í Íþróttahúsinu enda nemendur um 330 og starfsmenn ríflega 60. Auk hefðbundinna dagskráratriða á skólaslitum voru ýmis tónlistaratriði allt frá einsöng upp í Lúðrasveit. Hápunktur skólaslitanna var þó útskrift 10. bekkinga en í ár luku 35 nemendur grunnskólaprófi. Þess má geta að af þeim luku 33 einum eða fleiri áföngum úr FAS meðfram grunnskólanáminu. Þetta voru áfangar í t.d. þýsku, dönsku, spænsku, grunnteikningu, bókfærslu og ferðamálafræði. Námið í FAS byggir á samstarfsamningi sem gerður var milli Grunnskólans og FAS og skilar þessi samningur sér betur og betur með hverju árinu.  Lesa meira
 
Krossbajarskard_001_a_vef

43 á Ketillaugarfjall- skólaslit á morgun - 2.6.2008 Fréttir Grunnskóli

Þau enduðu þetta skólaár svo sannarlega með stæl nemendurnir sem fóru á Ketillaugarfjall í dag. 4- 8. bekkur gekk Krossbæjarskarð en 39 nemendur og 4 starfsmenn tóku smá lykkju á leiðina og skelltu sér upp á Ketillaugarfjall. Lagt var af stað í blíðskaparveðri í morgun og þrátt fyrir að sólin hyrfi fljótt bak við ský var blíðskaparveður og gott útsýni allan tímann. Á morgun verða svo fyrstu skólaslit Grunnskólans við hátíðlega athöfn í Íþróttahúsinu á Höfn og hefjast þau kl. 17:00. Lesa meira
 
Hopurinn_i_eyjum_a_vef

Vestmannaeyjafarar - 30.5.2008 Fréttir Grunnskóli

7. bekkur kemur heim milli sjö og hálf átta í kvöld. Úbbs, nei, þau ákváðu að skella sér í sund á Klaustri og koma ekki fyrr en um 20:30. Ef fólk vill fá nánari upplýsingar þá er hægt að hringja í Eygló í síma 8462227.
 
Hjoladagur_i_5._bekk_017_a_vef

Það er leikur að læra - 30.5.2008 Fréttir Grunnskóli

Síðust daga skólans er oftar brugðið út af hefðbundnu skólastarfi en gengur og gerist yfir veturinn. Sérstaklega á það við um yngri bekkina. Þá er farið að hlýna úti og þolinmælin oft orðin lítil við bóknámið. Þrátt fyrir að bókinni sé sleppt hætta nemendur ekki að læra heldur verður námið meira verklegt og félagslegt. Það er aldrei of mikil áhersla lögð á að þetta nám er jafn mikilvægt og allt annað nám og á þessum dögum eru margir nemendur að vinna sína stærstu sigra. Lesa meira
 
Unicef_hlaup_002_a_vef

Unicef hreyfing í 2. - 6. bekk - 30.5.2008 Fréttir Grunnskóli

Í dag tóku nemendur í 2. - 6. bekk þátt í svokallaðri Unicef hreyfingu. Hún felst í því að nemendur hreyfa sig í ákveðinn tíma og safna með því pening sem rennur til Unicef til hjálpar börnum í neyð. Fyrir nokkrum dögum fóru þessir nemendur heim með umslög þar sem þeir söfnuðu velunnurum sem hétu á þá að fyrir hvern hring sem viðkomandi gengi eða hlypi á íþróttavellinum fengi hann ákveðna upphæð. Lesa meira
 
Hopurinn_i_eyjum_a_vef

7. bekkingar hafa það gott í Vestmannaeyjum - 29.5.2008 Fréttir Grunnskóli

Eins og Hornfirðingar vita þá reið sterkur jarðskjálfti yfir Suðvesturland nú rétt fyrir kl. fjögur. Jarðskjálftinn sem var 6. 1 á Richter átti upptök sín suðvestur af Selfossi. Í Vestmannaeyjum fannst skjálftinn vel sérstaklega hjá þeim sem voru innandyra. Flestir 7. bekkingarnir okkar sem eru í skólaferðalagi í Vestmannaeyjum voru hinsvegar úti við og sumir urðu hans ekki einu sinni varir. Lesa meira
 
Hopurinn_i_eyjum_a_vef

Vestmannaeyjar ,,here we come” - 29.5.2008 Fréttir Grunnskóli

Veðurguðirnir eru að taka vel á móti okkur í Vestmannaeyjum, hér höfum við átt góðan dag og skoðað það sem dregur ferðamanninn að. Í Herjólfi var svaka gaman, veltingur og fjör. Einhverjir urðu órólegir í maganum en aðrir sváfu og enn aðrir spiluðu. Ferðalagið hófst klukkan 05:15 við íþróttahúsið. Frekar syfjuð og lúin. Kennarar náðu þó að mæta á réttum tíma, og nemendur. Þó svo að allir hafi verið syfjaðir sofnaði enginn, fyrr en í Herjólfi. Við borðuðum nesti á Núpstað, teygðum úr okkur á Hvolsvelli og náðum ferjunni á tilsettum tíma. |nl|Á morgun förum við í siglingu og skoðum Skansinn, spröngum, skoðum Náttúrugripasafnið og förum í sund..... ;) ;) |nl| Lesa meira
 
jolasamv_hepp_a_vef

Starfskynning og skyndihjálp fyrir nemendur í 10. bekk - 28.5.2008 Fréttir Grunnskóli

Vikuna 13. – 16. maí vorum við nemendur í 10. bekk ekki í venjulegri kennslu í skólanum. Þessir dagar skiptust niður á fyrirlestra frá fyrirtækjum og skyndihjálp hjá honum Guðbrandi Jóhannssyni. Þriðjudagurinn fór í það að fyrst kynnti Guðmundur fyrir okkur það sem við vorum að fara að gera. Siðan var haldið út í Galdur ehf. og Sigurður og Heiðar kynntu fyrir okkur starfsemi fyrirtækisins og sögu. Þar fórum við líka í myndatöku og útkomuna mátti sjá framan á Eystrahorni þá vikuna. Svo fórum við í skyndihjálp sem var mjög fræðandi. Lögreglan átti svo seinasta fyrirlestur dagsins eða hann var meira svona fundur eða spjall. Lesa meira
 
7,_bekkur,_bekkjarkvold_001_a_vef

Málningarvinna - 28.5.2008 Fréttir Grunnskóli

Nemendur á miðstigi grunnskólans urðu þess heiðurs aðnjótandi í vor að fá að mála rústirnar niður á Heppu og síðustu daga hafa þeir dundað sér við það ásamt Sigga Palla myndmenntakennara. Málningaþjónustan sá um að grunna veggina á meðan nemendur höfðu samkeppni í hverjum árgangi um mynd sem ætti að fara á veggina. Hver árgangur fékk síðan að mála einn vegg. Í sólinni síðustu daga dunduðu nemendur sé svo við að mála og tengdist myndefnið hjá öllum hafinu. Lesa meira
 
Nes umhverfisdagur

Umhverfis og útidótadagur í Nesjum - 26.5.2008 Fréttir Grunnskóli

Síðastliðinn föstudag var mikið um að vera í Nesjaskóla. Nemendur skólans fóru á leiksýningu í Mánagarði og sáu Smagarðsdýpið mikla. Þennan dag var einnig hinn árlegi umhverfisdagur en þá er tekið til, stéttar sópaðar, gróðursett tré og kartöflur settar niður auk þess sem sú hefð hefur skapast að 3. bekkur tekur að sér að mála girðinguna umhverfis Sunnuhvol. Lesa meira
 
IMG_1811

Leiksýning í Mánagarði, Smargagðsdýpið mikla - 23.5.2008 Fréttir Grunnskóli

Í dag, föstudag, fóru nemendur Hafnar- og Nesjaskóla á leiksýningu hjá hinu alþjóðlega Hypno leikhús frá Berlín. Sýningin var í boði Listahátíðar Reykjavíkur og Listvinasjóðs Hornafjarðar Sýningin heitir Smagarðsdýpið mikla, eða "Um Marvintýri Purbijan Ranjan Biswas og gríðarlega forvitnisáráttu hans". Í verkinu var boðið uppá sérstaka blöndu af tónlist, brúðuleik og sjónlist í sýningunni. Fylgst var með sjávarskjaldbökunni Purbijan í leit hans að því hvað leynist á botni hafsins. Á leið sinni kynnist hann mörgum skrítnum og áhugaverðum dýrum og er fylgt eftir af tígrishákarlinum dularfulla Sigurkarli Margleypi hinum Þriðja. Eftir því sem kafað er dýpra, verður hafið myrkara og verurnar yfirnáttúrulegri. Lesa meira
 
P1010297

3. bekkur í Öræfaferð - 23.5.2008 Fréttir Grunnskóli

Mánudagsmorguninn 19. maí lögðum við í 3.bekk af stað í ferðalag. Við byrjuðum á því að stoppa við Brunnhólskirkju og fórum þar inn og skoðuðum kirkjuna og fræddumst aðeins um kirkjur og messuhald, okkur fannst kirkjan lítil og mjög falleg. Næsta stopp var í Hrollaugsstaðaskóla þar sem við fengum að fara inn að borða nestið okkar því það var svo mikil rigning og ekki gott að setjast út í blautt grasið. Lesa meira
 
Herdasmot_17._mai_08_005_a_vef

5 nemendur í úrslit í þríþraut FRÍ - 22.5.2008 Fréttir Grunnskóli

Frjálsíþróttasamband Íslands stendur fyrir þríþraut sem nemendum í 6. og 7. bekk gefst kostur á að taka þátt í. Nemendur keppa þá í þremur íþróttagreinum, 400 m hlaupi, hástökki og kúluvarpi og ræður samanlagður árangur úrslitum. 47 grunnskólar tóku þátt víðsvegar af landinu og 64 nemendur komust í úrslit. Lesa meira
 
Nes_08__fostudagsh_2_HL_005_a_vef

Vorskóli fyrir börn fædd 2002 - 22.5.2008 Fréttir Grunnskóli

Vorskóli fyrir börn fædd 2002 verður fimmtudaginn 29. og föstudaginn 30. maí n.k. frá kl. 8:20 – 11:00. Það eina sem nemendur þurfa að koma með í skólann er nesti (brauð/drykkur). Foreldrum á Höfn er bent á að koma börnum sínum á næstu biðstöð við heimili sitt eða á Krakkakot/Lönguhóla því bíllinn kemur þar við bæði að morgni og að loknum skóladegi. Mæting á biðstöðvar er kl. 7:50. Í Nesjum, Lóni, Mýrum og Suðursveit sækir skólabíll börnin heim á bæina og í Nesjahverfið. Lesa meira
 
nes_mai_08_lon_003

2. bekkur heimsækir Lónið - 21.5.2008 Fréttir Grunnskóli

Í liðinni viku fór 2 bekkur í vorferð. Að þessu sinni var haldið austur á bóginn og Lónið skoðað. Ferðinni var að heitið upp í Þórisdal og þaðan var gengið inn að Dímu og aurar Jökulsár skoðaðir gaumgæfilega á bakaleiðinni. Þegar komið var til baka í Þórisdal voru gömlu húsin skoðuð og síðan sest niður og borðað nesti. Lesa meira
 
Vorhátíð 2008

Vorhátíð 8. - 10. bekkjar - 16.5.2008 Fréttir Grunnskóli

Í gær þann 15. maí var haldin vorhátíð í Mánagarði. Hún fór vel fram og var byrjað á því að borða yndislega grillaða hamborgara og kjöt. Svo voru skemmtiatriði eftir 9. bekk og voru þau mjög góð. Krýnd voru konungur og drottning Heppuskóla og það voru þau Iðunn Tara og Freyr. Lesa meira
 
Ingólfshöfðaferð 2008

Ingólfshöfðaferð 5. bekkjar - 16.5.2008 Fréttir Grunnskóli

Þann 15. maí fór 5. bekkur í Ingólfahöfða. Við keyrðum frá Höfn í Öræfin og fórum út í Hofsnesi og fórum í vagn þaðan upp í Ingólfshöfða. Fyrst fórum við upp sandinn upp á Ingólfshöfða sem var soldið erfitt. Svo fórum við með Einari Sigurðssyni að skoða lunda. Við skoðuðum líka á svartbakshreiður. Svo gengum við smá spöl og þá komum við að RISA stórri sandbrekku og þar fengum við að leika okkur sem var mjög gaman og máttum borða nestið okkar. Næst kom Sigurður að ná í okkur á vagninum. Lesa meira
 
eyjalin_med_vidurkenningarskjalid

Sigurvegari í 4. bekk - 16.5.2008 Fréttir Grunnskóli

Eyjalín Harpa Eyjólfsdóttir vann til verðlauna í teiknimyndasamkeppni Alþjóðalega skólamjólkurdagsins sem Mjólkursamsalan stóð fyrir meðal nemenda í 4. bekk í grunnskólum landsins. Mikill fjöldi teikninga barst í keppnina en tíu nemendur fengu viðurkenningu fyrir teikningar sínar. Með keppninni vill Mjólkursamsalan vekja athygli á mikilvægu hlutverki mjólkur í daglegu mataræði barna. |nl| Lesa meira
 
nes_april_mai_08_075

1. bekkur gerir víðreist - 15.5.2008 Fréttir Grunnskóli

Mikið hefur verið um að vera hjá nemendum í 1. bekk. Þeir hafa verið duglegir í alls kyns skoðanaferðum sem hafa bæði verið til gagns og gamans. Fyrstu ferðinni var heitið að kirkjugarðinum við Laxá þar sem skoðaður var minnisvarði og kirkjugarðurinn sjálfur sem er í mjög svo vinalegu umhverfi. Lesa meira
 
nes_april_mai_08_045

1. bekkur heldur vor-föstudagshátíð - 15.5.2008 Fréttir Grunnskóli

Í dag, fimmtudag var haldin síðasta föstudagshátíð vetrarins í Nesjaskóla. En vegna anna nemenda í Nesjaskóla varð að hafa hátíðina á fimmtudegi. Hátíðin hófst með tískusýningu þar sem sýnd var hátískan frá París en samkvæmt kynni hátíðarinnar þá fór bekkurinn í höfuðborg hátískunnar og kynnti sér allra nýjustu strauma og stefnur í þeim málum.

Lesa meira
 
Namsferd_i_Sudursveit_08_031_a_vef

Námferð í Suðursveit hjá 4.-5.bekk - 14.5.2008 Fréttir Grunnskóli

Mánudaginn 5. maí fórum við í 4 og 5 bekk í Suðursveit. Strax og við komum þangað fórum við að ganga út á Breiðamerkursandi, svo hvíldum við okkur á Jökulsalóninu og þá var keyrt heim að Hrollaugsstöðum. Þegar við komum að Hrollaugsstöðum þá fóru allir að gera tilbúið fyrir kvöldið. Það var blásið í loft dýnurnar og sumir fóru að æfa skemmtiatriði fyrir kvöldvökna. Sumir fóru út að leika sér og síðan fóru svo flestir í fótbolta. Að því loknu fórum við inn að borða. Það var lasagne og kartöflumús í matinn og djús að drekka. Svo eftir matinn fóru allir að leika sér eða æfa. Lesa meira
 
Legoferd_Heidar_308_a_vef

Ameríkuferð Ísjakanna - 9.5.2008 Fréttir Grunnskóli

29. apríl. Við flugum til Reykjavíkur kl.11:40 og þaðan til Minneapolis. Þegar við komum þangað náðum við nú að villast í nokkra hringi og fengum þá að skoða Minneapolis aðeins, síðan tékkuðum við okkur inn á hótelið, borðuðum á Applebee’s og fórum síðan að sofa.  30. apríl.  Við fórum öll saman í Mall of America. Þar fórum við í sædýrasafn og sáum marga skrautlega fiska og önnur sjávardýr. Sumir fóru í tívolí en aðrir voru bara að versla. Eftir þetta fórum við aftur á Applebee’s. Lesa meira
 
Hreinsidagur_08_005_a_vef

Umhverfisdagur á miðstiginu - 9.5.2008 Fréttir Grunnskóli

Á fimmtudag var umhverfisdagur á miðstiginu í grunnskólanum. Þá fóru 4. - 7. bekkingar vítt og breytt um bæinn og tíndu rusl og enduðu daginn á því að taka skólalóðina í gegn. Í hádeginu grilluðu Ingólfur og Stjáni á Kaffi Horninu pulsur handa nemendum og starfsfólki og borðuðu allir úti í blíðskapar veðri. Í hádeginu voru ný leikföng vígð s.s. úti mikado, moonhopper og fleira. Lesa meira
 
Isjakar_i_Ameriku

Fréttir frá Ameríku - 3.5.2008 Fréttir Grunnskóli

Við vorum valin til þess að taka þátt í myndatöku fyrir allar auglýsingar á mótinu og svo fóru við í viðtal fyrir háskólann í Minnesota svo var opnunar athöfnin og þar voru kynnt liðinn og öll liðin sögðu takk fyrir á sínu tungumáli, svo sögðu stjórnendurnir frá aðalatriðunum og viðburðunum mótsins. Opnunar athöfnin fór fram í karla körfuboltahöllinni en heimastöðvarnar okkar voru í kvenna körfuboltahöllinni. Eftir opnunathöfnina var vísinda og eðlisfræði sýning sem var mjög fræðandi og skemmtileg. Lesa meira
 

Myndir af legókeppninni - 2.5.2008 Fréttir Grunnskóli

Hægt er að skoða myndir úr legókeppninni inn á www.umn.edu. Þar er mynd af okkar fulltrúum á forsíðunni eins og er.
 
DSC00052

Halló Hornfirðingar við erum komin alla leið - 30.4.2008 Fréttir Grunnskóli

Halló Hornfirðingar við erum komin alla leið! Ferðin gekk vel þó að við höfum villst aðeins á leiðinni á hótelið svo fórum við að borða á Appelbee's og maturinn var mjög góður og límonaðið þar er líka mjög gott. Núna er klukkan hjá okkur næstum níu að morgni til og við erum á leiðinni í morgun mat og svo ætlum við í Mall of America. Kveðja Ísjakarnir Lesa meira
 
Ad_leggja_af_stad_001_a_vef

Ísjakarnir lagðir af stað til Minneapolis - 29.4.2008 Fréttir Grunnskóli

Í morgun fóru Ísjakarnir okkar með Arnarflugi til Reykjavíkur þaðan sem ferðinni er heitið til Minneapolis í Bandaríkjunum síðdegis í dag. Í Minneapolis keppa Ísjakarnir á Opna Ameríska Legomótinu fyrir hönd Íslands. Eins og Hornfirðingar muna þá sigruðu Ísjakarnir First Lego League keppnina á Íslandi sem haldin var 10. nóvember s.l. í Reykjavík og unnu sér þar með inn rétt til að keppa fyrir Íslands hönd á erlendri grundu. Í ár er ekkert Evrópumót í Legókeppninni og því þurftu íslensku keppendurnir að leita út fyrir álfuna og fyrir valinu varð Opna Ameríska 1. – 3. maí http://www.hightechkids.org/. Lesa meira
 
Samundur_frodi_001_a_vef

Sæmundur fróði, eftir Pétur Eggertz - 28.4.2008 Fréttir Grunnskóli

Í morgun bauð foreldrafélag grunnskólans öllum nemendum í leikhús í Sindrabæ. Þessi leiksýning var um Sæmund fróða. Sæmundur vildi verða fróður maður. Sæmundur var leikinn af Pétri Eggertz. Hann fór til útlanda til að læra latínu af því að fróðustu menn kunnu latínu. Hann fór fyrst til Noregs og spurði um næsta skóla, en hann var í Þýskalandi. Svo fór hann til Danmerkur og spurði aftur til vegar. Konan sagði honum að ganga til Þýskalands. Þá var honum bent til Svartaskóla, fór hann í skólann og sat þar við lærdóm í þrjú ár. Hann plataði kölska tvisvar eftir það áður enn hann fór heim. Lesa meira
 
Arshatid_2008_001

Fyrsta árshátíðin undir merkjum Grunnskóla Hornafjarðar - 23.4.2008 Fréttir Grunnskóli

Í gær var haldin fyrsta árshátíðin undir merkjum Grunskóla Hornafjarðar. |nl|Ákveðið var að oddatölubekkir skólans sæju um skemmtiatriðin og ekki hægt að segja annað en að vel hafi tekist til. Lesa meira
 
IMG_1610_a_vef

Árshátíð Grunnskóla Hornafjarðar þriðjudaginn 22. apríl 2008 í Sindrabæ - 21.4.2008 Fréttir Grunnskóli

Í sameinuðum grunnskóla breytast ýmsir hlutir og eitt af því er árshátíðin. Nú ætlum við að halda sameiginlega árshátíð með því að bjóða foreldrum og nemendum á sýningu til okkar. Það verða oddatölubekkirnir sem sjá um skemmtunina en hinir fá að njóta þess að horfa á þetta árið en sýna að sjálfsögðu á næsta ári. 10. bekkur sér um sölu á sýningunni og að innheimta aðgangseyri.

Aðgangseyrir verður 200 kr á árshátíðina, bæði fyrir börn og fullorðna en þó þarf hver fjölskylda ekki að greiða meira en 500 kr.

                                                                                                                Það verða tvær sýningar, sú fyrri kl. 17:00 fyrir nemendur og fjölskyldur í 1. – 5. bekk. Síðari sýningin verður kl. 18:30 og er sú sýning fyrir nemendur og fjölskyldur í 6. – 10. bekkinga. Ef það hentar fólki alls ekki að fara á þá sýningu sem því er ætlað þá er allt í lagi að koma á hina sýninguna. Þetta er einungis gert til að hafa einhverja stjórn á aðsókninni.

Lesa meira
 
Ora_Regina_og_Hafdis

Ferðalag í Öræfin - 18.4.2008 Fréttir Grunnskóli

Við lögðum á stað klukkan 8:30 og vorum rosalega spennt. Fyrsta stopp var hjá Jökulsárslóni síðan var keyrt að Hofgarði þar sem við gistum. Þegar við komum að Hofgarði fórum við inn með dótið okkar og síðan var okkur keyrt í Skaftafell. Þar hlustuðum við á Regínu þjóðgarðsvörð og Hafdísi aðstoðarþjóðgarðsvörð. Svo var farið í langa göngu inn í Bæjarstaðarskóg, þar stoppuðum við á mjög fallegum stað og borðuðum nestið okkar. Við fengum öll heitt kakó en Þórgunnur var með prímusa, pott og ketil, það var rosalega hressandi. Eftir klukkutíma hlé við að borða og leika okkur í fossinum fórum við að hlusta á Hafdísi, hún sagði okkur frá trjánum og mörgu öðru fræðandi. Lesa meira
 

Heimkoma úr Öræfum - 16.4.2008 Fréttir Grunnskóli

Nemendur í 6. og 7. bekk Grunnskóla Hornafjarðar koma úr námsferðinni í Öræfum kl. 17 - 17:30.
 
Krakkar í Grunnskólanum Hofgarði

Árshátið Grunnskólans Hofgarði - 16.4.2008 Fréttir Grunnskóli

Árshátíð Grunnskólans í Hofgarði verður haldin fimmtudagskvöldið 17. apríl kl. 20:00. Aðgangseyrir er kr. 1500,- (kaffiveitingar innifaldar) og skólablaðið er selt á kr. 500, Nemendur skólans eru 10 og þau taka öll þátt í að flytja u.þ.b. klukkustundar langa dagskrá. Að þessu sinni er umgjörðin tengd heimabyggðarverkefni 8. bekkjar, sem þær tóku þátt í ásamt nokkrum öðrum skólum á landinu. Hugmyndavinna þeirra í verkefninu kemur til skila í þessari dagskrá. Allir eru velkomnir Nemendur og kennarar Lesa meira
 
SAFT-malting

Saft málþing - þú ert það sem þú gerir á netinu - 16.4.2008 Fréttir Grunnskóli

SAFT, vakningarverkefni um jákvæða og örugga netnotkun barna og unglinga á Netinu og tengdum miðlum, stendur fyrir opnum málþingi í Nýheimum mánudaginn 21. apríl kl. 20:00. Markmið málþingsins er að draga annars vegar fram sýn nemenda og hins vegar foreldra og kennara á helstu kostum og göllum Netsins. Einnig verður áhersla lögð á að fá fram framtíðarsýn hópanna varðandi örugga og ánægjulega notkun og þróun Netsins. Þátttakendur vinna fyrst í tveimur málstofum en málþinginu lýkur með sameiginlegri málstofu nemenda, foreldra og kennara þar sem gerð verður grein fyrir niðurstöðum. Lesa meira
 
Gudlaug_Erla

Uppeldi til ábyrgðar - 14.4.2008 Fréttir Grunnskóli

Í dag kom Guðlaug Erla Gunnarsdóttir í heimsókn í skólann og var með fræðslu um uppeldi til ábyrgðar bæði fyrir starfsmenn og foreldra. Guðlaug Erla Gunnarsdóttir er aðstoðarskólastjóri í Álftanesskóla á Álftanesi en þar hefur verið unnið eftir kenningum Uppeldis til ábyrgðar í nokkur ár. Meistaraprófsverkefni Guðlaugar Erlu fjallar um Uppeldi til ábyrgðar og er hún einn af brautryðjendum stefnunnar hér á landi. Lesa meira
 
Gisli_ad_utskyra_fyrir_nemendum

Gísli Arason kennir nemendum í 6. og 7. bekk - 14.4.2008 Fréttir Grunnskóli

Í morgun var sú nýbreytni í kennslu 6. og 7. bekkjar að fenginn var "gestakennari". Fagið sem var til umfjöllunar var jarðfræði og kennarinn er Gísli Arason sem Hornfirðingum er að góðu kunnar. Gísli er eins og sagt er kominn af léttasta skeiði , en hann er á 91. aldurári. Það kom samt ekki í veg fyrir að hann næði prýðisgóðu sambandi við börnin sem hlýdddu á hann útskýra hinar ýmsu steintegundir sem hann hefur fundið og safnað. Það sem Gísli sýndi og kynnti börnunum voru m.a.steingerðar skeljar. Þær fundust á Hallmundarstaðakambi við Húsavík. Hinar tegundirnar eru fengnar á okkar svæði hér í A- Skaftafellssýslu. Þar má nefna baggalút, jaspís og bergkristalla. Einnig djúðbergið gabbró og líparít. Er þá fátt eitt talið. Lesa meira
 
7R_april_08_avextir

Ávaxtakarfa - 11.4.2008 Fréttir Grunnskóli

Þetta byrjaði allt þegar að við skráðum okkur í heilsuátakið sem var í gangi fyrir páska, þá fórum við í eitthvern pott á Rás 2. Svo fékk Rósa (kennarinn okkar) tölvupóst og þá kom í ljós að við höfðum verið dreginn út. Allir voru búnir að ímynda sér trékörfu með hinum ýmsu ávöxtum en í vikunni fengum við girnilegan ávaxtabakka sendan í skólann. Þetta heilsuátak gekk útá það að hreyfa sig sem mest á daginn og skrá svo daginn eftir. Að meðaltali hreyfðu sig allir a.m.k 1 klst. á dag. Lesa meira
 
17. júní hátíðarhöld á Höfn

Uppeldi til ábyrgðar - 8.4.2008 Fréttir Grunnskóli

Mánudaginn 14. apríl kl 12 verður haldin almennur fræðslufundur fyrir foreldra í Sindrabæ.Á fundinum ætlar Guðlaug Erla Gunnarsdóttir að fara yfir helstu þætti uppeldiskenningarinnar Uppeldi til ábyrgðar og skýra út á hvað hún gengur. Eins og foreldrum er kunnugt hefur starfsfólk grunnskólans unnið að því að tileinka sér þessa kenningu í vetur og ætlar að halda því áfram. Mikilvægt er fyrir foreldra að vita út á hvað þessi hugmyndafræði gengur þannig að þeir geti stutt við þá vinnu sem fram fer í skólanum og nýtt sér kosti þessarar kenningar heima við því þeir eru vissulega margir. Lesa meira
 
íslensku menntaverðlaunin

Íslensku menntaverðlaunin - 5.4.2008 Fréttir Grunnskóli

Nú í vor verða íslensku menntaverðlaunin afhent í fjórða sinn. Verðlaun þessi eru sannkölluð þjóðarverðlaun því hver og einn getur sent inn sínar tilnefningar. Við höfum flest skoðanir á því hvað sé góður kennari, frábært námsefni ellegar góður skóli. Því viljum aðstandendur verðlaunanna hvetja alla til að senda inn tilnefningar um þá sem þeir telja að hafi gert góða hluti og eigi skilið að fá íslensku menntaverðlaunin, og þannig vekja athygli á því sem vel er gert í íslenskum grunnskólum. Lesa meira
 
Thordis_Imsland

Sigraði í Melodi grandprix - 20.3.2008 Fréttir Grunnskóli

Það er alltaf gaman að segja frá þegar fyrrverandi nemendum skólans gengur vel á nýjum stöðum og jafnvel í nýju landi. Einn af þessum nemendum er Þórdís Imsland en hún býr núna í Danmörku. Skólinn sem Þórdís gengur í heitir Havnbjergskole og er á eyjunni Als á suður jótlandi. Árlega er haldinn melodi grandprix keppni og tóku 14 skólar þátt í keppninni. Keppnin snýst um tónlist eins og nafnið gefur til kynna og þurfa krakkarni sjálf að semja lagið, útsetja og flytja. Skemmst er frá að segja að Þórdís og félagar hennar í skólanum unnu keppnina með glæsibrag. Lesa meira
 
DSC09335

Nemendur í 9. bekk á heimleið - 14.3.2008 Fréttir Grunnskóli

Þá er dvöl krakkanna að Laugum í Sælingsdal lokið og er reiknað með að þau komi heim mill klukkan 19:00 og 19:30. Rútan mun stoppa við Mánagarð og síðan við Heppuskóla. Ferðin hefur gengið vel og allir eru hressir og kátir. Lesa meira
 
Picture_019

Á skíðum í Oddsskarði - 12.3.2008 Fréttir Grunnskóli

Nemendur í 8. bekk grunnskóla Hornafjarðar fóru s.l. þriðjudag í skíðaferð í Oddsskarð. Á þriðjudaginn gátu krakkarnir skíðað til klukkan 17:00 og þá var farið í sund og snæddur kvöldverður. Um kvöldið var síðan slappað af eftir strembin dag. Í dag, miðvikudag var barnalyftan í Oddskarði opnuð fyrir krakkana klukkan 10:00 og hafa þau átt fínan dag á skíðum. |nl| Lesa meira
 
Sigurvegarar stóru upplestrarkeppninni

Sigurvegarar í stóru upplestrarkeppninni - 12.3.2008 Fréttir Grunnskóli

Gabríel Örn Björgvinsson frá Grunnskólanum á Djúpavogi sigraði stóru upplestrarkeppnina sem haldin var í Hafnarkirkju í gær. Í verðlaunasætum lentu einnig Dóra Björg Björnsdóttir og Ingvi Þór Sigurðsson. Sparisjóður Hornfjarðar var sá aðili sem hefur styrkt keppnina undafarið og var svo einnig nú. En peningaverðlaun eru fyrir þrjú fyrstu sætin. Lesa meira
 
DSC09293

Fréttir frá Laugum - 11.3.2008 Fréttir Grunnskóli

Allt gengur eins og í sögu hjá 9. bekk, en eins og alþjóð veit eru þau núna stödd að Laugum í Sælingsdal. Í dag átti Símon afmæli og vitanlega var bökuð handa honum afmæliskaka. Seinna í dag munu krakkarnir ganga á Tungustapa og þar verður þeim sögð þjóðsagan um Álfakirkjuna í Tungustapa. Í kvöld fá þau síðan heimsókn frá 10. bekk í Búðardal og verður þá örugglega mikið fjör. |nl| Lesa meira
 
Nes_snjor_i_mars_001

Snjór og fjör í Nesjaskóla - 11.3.2008 Fréttir Grunnskóli

Í Nesjaskóla er mikið byggt og mokað þessa dagana enda hafa veðurguðirnir verið örlátir á byggingarefni við okkur undanfarið. Lesa meira
 
Torrablot_Heppuskola_051_a_vef_a_vef

Laugaferð nemenda í 9. bekk. - 11.3.2008 Fréttir Grunnskóli

Ferð nemenda að Laugum á sunnudag gekk mjög vel og voru ferðalangarnir komnir að Laugum í Sælingsdal fyrir kl. 21.00. Á mánudag var nemendum strax skipt í hópa og hafist var handa við hópavinnu sem verður út vikuna. Snjór er yfir öllu fyrir vestan og voru nemendur duglegir að nota tækifærið að vera úti og leika sér í snjónum þegar tími gefst til. Lesa meira
 
Maria_Hjordis_a_vef

Fleiri Myndir af 6. bekkingum - 10.3.2008 Fréttir Grunnskóli

Hér koma fleiri myndir af 6. bekkingum að flytja verkefnin sín
 
6._bekkur_001_a_vef

Bókmenntavinna í 6. bekk - 10.3.2008 Fréttir Grunnskóli

Á hverju ári er fastur liður í námi barna í Grunnskóla Hornafjarðar að fjalla um tiltekna bók sem kennari velur. Nú var komið að sjötta bekk og í dag (mánudag) sýndu nemendur afrakstur vinnu sinnar. Að þessu sinni varð sagan Saltfiskar í strigaskóm fyrir valinu en hún er eftir Guðrúnu H.Eiríksdóttur. Það var gert með þeim hætti að bókinni var skipt bróðurlega á milli allra nemandanna sem komu komu upp í ræðupúlt og fluttu sína ritgerð. Lesa meira
 
Skolakeppnin_013_a_vef

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar - 10.3.2008 Fréttir Grunnskóli

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fer fram í Hafnarkirkju þriðjudaginn 11. mars kl. 16:00. Þetta er í áttunda skiptið sem nemendur á Djúpavogi og Hornafirði taka þátt í keppninni. Fyrir 11 árum var haldin upplestrarkeppni í Hafnarfirði og er það upphafið að þessari keppni sem nú er haldin á landsvísu. Skemmtileg hefð hefur skapast í kringum keppnina hér á suðausturlandi og er öruggt að hún er komin til að vera. Á degi íslenskrar tungu 16. nóvember hefst undirbúningur nemenda. Eftir áramót er haldin bekkjarkeppni og síðan fer fram skólakeppni en þá kemur í ljós hvaða keppendur fara og taka þátt í lokahátíðinni. Lesa meira
 

Kurteisi - 3.3.2008 Fréttir Grunnskóli

Eftir kurteisisvikuna sem við tókum í Grunnskólanum var tekið á framkomu við skólafélagann og aðra sem við umgöngumst hvern dag. Almennt var talið að það að vera kurteis gæti hjálpað okkur að bæta framkomu okkar. Ljóðið sem kemur hér á að höfða til okkar allra og ættum við taka boðskap þess til fyrirmyndar. Lesa meira
 
Skolakeppnin_025_a_vef

Úrslit úr skólakeppni stóru upplestrarkeppninnar - 3.3.2008 Fréttir Grunnskóli

Föstudaginn 29. febrúar fór skólakeppni stóru upplestrarkeppninnar fram í Nýheimum. Þau sem komust áfram í lokakeppnina eru; Ásdís Pálsdóttir, Dóra Björg Björnsdóttir, Ingvi Þór Sigurðsson, Siggerður Aðalsteinsdóttir, Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir, Sædís Harpa Stefánsdóttir, Vigdís María Borgarsdóttir, Þorgeir Dan Þórarinsson og Þorkell Óskar Vignisson. Lesa meira
 
Blus_i_Sindraba_002_a_vef

Blús fyrir grunnskólann í Sindrabæ - 28.2.2008 Fréttir Grunnskóli

Í dag var nemendum grunnskólans boðið á blústónleika í Sindrabæ. Þar spilaði hljómsveitin ADHD 800 fyrir nemendur sem komu í tveimur hópum í Sindrabæ. Fyrst 1. – 5. bekkur og síðan 6. – 10. bekkur. Hljómsveitarmeðlimir kynntu hljóðfærin sem þeir spiluðu á og sögðu hver væri galdurinn á bak við jassinn og leyfðu nemendum að taka þátt með því að kalla og klappa. Hljómsveitin er skipuð fjórum tónlistarmönnum og eru tveir þeirra "Meisalingar" eins og þeir kölluðu sig, þeir bræður Óskar og Ómar Guðjónssynir. Auk þeirra eru í hljómsveitinni Magnús Tryggvason Elíassen og Davíð Þór Jónsson. Lesa meira
 
Skidaferdalag_6._bekk_069_a_vef

Skíðaferðalag í 6. bekk - 28.2.2008 Fréttir Grunnskóli

Þá eru nemendur í 6. bekk komnir heim úr vel heppnuðu skíðaferðalagi í Oddsskarð. Þar renndi fólk sér á skíðum og snjóbrettum í tvo daga. Þrátt fyrir að fæstir hefðu komið á skíði áður gekk fólki vel að ná grunnatriðum skíðaíþróttarinnar og komu þreyttir og sælir heim. Lesa meira
 
Torrablot_Heppuskola_052_a_vef

Þorrablót í Heppuskóla - 28.2.2008 Fréttir Grunnskóli

Þann herrans dag 26. febrúar héldu efstu bekkir Grunnskóla Hornafjarðar sitt Þorrablót. Skemmtiatriðin voru alls ekki af verri endanum, enda vel æfð og uppsetningin skemmtileg. Kynnar kvöldsins voru Kristín Hallsdóttir og Sveinbjörg Zophoníasdóttir, og þau sem sáu um skreytingar og uppsetningu skemmtiatriðana voru 10. bekkirnir. Maturinn var auðvitað þorramatur og átu allflestir krakkarnir hangikjöt og harðfisk, og nokkrir treystu sér út í hákarl, sviðasultu og hrútspunga. Undir servíettunum voru svo nefndir happadrættismiðar, veglegir vinningar sem voru veittir í boði Nettó. Þegar flestir voru búnir að borða voru sungin þorralög og afmælissöngur fyrir Guðmund Inga og Sindra Örn. Lesa meira
 
Friminutur_18._jan__o8_028_a_vef

Skíðaferðalag í 6. bekk - 26.2.2008 Fréttir Grunnskóli

Í dag fóru nemendur í 6. bekk í skíðaferðalag í Oddskarð og munu skemmta sér þar á skíðum í dag og á morgun. Gott veður var í Oddskarði þegar okkar fólk kom þangað, logn og örlítil ofankoma. Í lok dagsins voru allir farnir að renna sér á skíðunum og spenningur fyrir að halda áfram á morgun. Krakkarnir koma heim kl. 16:45. Lesa meira
 
Skolahreysti_2008_019

Skólahreysti 2008 - 26.2.2008 Fréttir Grunnskóli

Þann 21. febrúar sl. fóru um það bil 50 krakkar frá Grunnskólanum í Hornafirði úr 8. – 10. bekk á hina frægu keppni, Skólahreysti. Keppnin var haldin á Egilstöðum annað árið í röð og verður keppnin bara stærri með árunum. |nl|Þess má til gamans geta að áhorfendamet var slegið eða um 1000 áhorfendur mættu í íþróttahúsið á Egilstöðum. Lesa meira
 
Danssýning

Dansskemmtun í íþróttahúsinu - 25.2.2008 Fréttir Grunnskóli

Undanfarin ár hefur verið Jón Pétur frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru komið og kennt börnum í Grunnskóla Hornafjarðar dans með góðum árangir. Þessa vikuna hefur danskennsla verið í fullum gangi hjá 1. – 7. bekk og þar hafa nemendur fengið tækifæri á að kynnast leyndardómum danslistarinnar. Lesa meira
 
Tessi_komust_afram_i_bekkjarkeppninni_003_a_vef

Stóra upplestrakeppnin - 15.2.2008 Fréttir Grunnskóli

Í dag var bekkjakeppni stóru upplestrarkeppninnar. Þá kepptu nemendur í hvorum bekk fyrir sig og komust 6 áfram úr hvorum bekk. Þeir sem áfram komust voru Alexander Alvin Einarsson, Ásdís Pálsdóttir, Dóra Björg Björnsdóttir, Eiríkur Snær Jóhannesson, Ingvi Þór Sigurðsson, Jara Kjartansdóttir, Siggerður Aðalsteinsdóttir, Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir, Sædís Harpa Stefánsdóttir, Vigdís María Borgarsdóttir, Þorgeir Dan Þórarinsson og Þorkell Ó Vignisson. Lesa meira
 
Vidtalsdagur_feb_08_002

Viðtalsdagur í grunnskólanum - 11.2.2008 Fréttir Grunnskóli

Í dag er viðtalsdagur í grunnskólanum. Nemendur mæta þá í viðtal til umsjónarkennarans með foreldrum sínum. Að þessu sinni eru öll foreldraviðtöl í Heppuskóla og reynt var að samræma viðtalstíma hjá systkinum eftir því sem við var komið. Með þessu er reynt að koma sem mest til móts við foreldra og gefa þeim færi á að hittast í anddyrinu í skólanum, spjalla þar saman og skiptast á skoðunum.
Á morgun er skipulagsdagur í grunnskólanum og því frí hjá nemendum.

Lesa meira
 
oskudagur_i_Nesjaskola_050

Mikið um að vera á öskudag - 11.2.2008 Fréttir Grunnskóli

Það var mikið um að vera á öskudag í grunnskólanum. Á öllum skólastigum mætti undarlegasta fólk í skólann og allstaðar var öskudagsball. Hér koma nokkrar myndir frá deginum Lesa meira
 
Heimsokn_Valgerdar_ABC_004_a_vef

ABC hjálparstarf - 31.1.2008 Fréttir Grunnskóli

Á morgun hefst söfnun á vegum ABC hjálparstarfs víðsvegar um land. Söfnunarféð í ár rennur til byggingar heimavistar í Pakistan og til byggingar heimavistar í Kenýa en leiguhúsnæðið þar er allt og lítið og óhentugt. Söfnunarféð rennur óskert til þessara málefna. Síðustu ár hefur 4. bekkur grunnskólans safnað hér um slóðir og verður það einnig svo í ár. Lesa meira
 
Madur_arsins

Hornfirðingur ársins - 31.1.2008 Fréttir Grunnskóli

Eins og flestum er kunnugt um var Eiríkur Hansson kennari og Ísjakarnir, legó lið skólans, valin Hornfirðingur ársins 2007. Það er mikill heiður fyrir allan skólann að fá þessa útnefningu og erum við svo sannarlega stolt af henni. Nú hefur verið ákveðið að Ísjakarnir fari til Minneapolis og keppi þar fyrir hönd Íslands á Opna Ameríska mótinu 1.- 3. maí næstkomandi. Ísjakarnir hafa þegar hafið undirbúning fyrir keppnina því snúa þarf öllu efninu á ensku auk þess sem þau ætla að bæta og breyta ýmsu í brautinni sjálfri. Lesa meira
 
Bondadagur_08_012_a_vef

Bóndadagur í grunnskólanum - 26.1.2008 Fréttir Grunnskóli

Að vanda hófst bóndadagur í Hafnarskóla á því að hraustir drengir skólans ”buðu þorra í garð” að gömlum sið með því að hlaupa eða hoppa kringum skólann, sumir berfættir, á brókinni eða í annarri buxnaskálminni og sumir jafnvel berir að ofan. Það er gamall siður að á fyrsta degi þorra áttu bændur að bjóða þorra í garð eða fagna þorra með því að fara fyrstir á fætur. “Áttu þeir að fara ofan og út í skyrtunni einni, vera bæði berlæraðir og berfættir, en fara í aðra brókarskálmina og láta hina svo lafa eða draga hana eftir sér á öðrum fæti, ganga svo til dyra, ljúka upp bæjarhurðinni hoppa á öðrum fæti í kringum allan bæinn, draga eftir sér brókina á hinum og bjóða þorra velkominn í garð eða til húsa” (Saga daganna 1977 bls. 19) Margir drengjanna vildu bæta um betur og fara úr fleiru en forfeður þeirra gerðu og létu þar snjó og kulda engin áhrif á sig hafa. Á síðustu árum hefur þessi siður verið endurvakinn í skólanum og aðlagaður þeim aðstæðum sem þar eru. Mikill meirihluti drengja tók þátt í þessum viðburði að þessu sinni og skemmtu sér hið besta. Lesa meira
 
Friminutur_18._jan__o8_027_a_vef

Forföll í skólanum - 18.1.2008 Fréttir Grunnskóli

Eins og margir foreldrar hafa orðið varir við hefur verið mikið um forföll hjá kennurum og starfsmönnum skólans að undanförnu og oft hefur verið erfitt að manna þessi forföll svo vel sé. Orsök forfallanna eru margvísleg en fyrst og fremst eru það þó veikindi og námsleyfi og hefur þetta mest bitnað á unglingastiginu að undanförnu. Það er neyðarúrræði að þurfa að senda nemendur heim eða láta þá vera án kennara hluta af kennslustund en þó hefur það komið fyrir þegar ekki hafa verið kennarar til að manna kennsluna. Lesa meira
 
Faduhringurinn

Heilsueflandi grunnskóli - 11.1.2008 Fréttir Grunnskóli

Um 300 manns hlýddu á fyrirlestra Fríðu Rúnar Þórðardóttur næringarfræðings í Sindrabæ í gær. Fríða Rún sem kom hingað á vegum grunnskólans og foreldrafélagsins hélt sex fyrirlestra og samtals mættu á fyrirlestrana um 300 manns. Á fyrirlestrunum lagði hún áherslu á að halda réttu jafnvægi á milli hreyfingar, hollustu og hugarfars. Þessir þrír þættir væru allir jafn mikilvægir þegar kemur að heilbrigðu líferni og fór hún yfir ýmis atriði sem geta hjálpað okkur við að halda þessu jafnvægi. Lesa meira
 
Logo-GH

470 8400 - 8.1.2008 Fréttir Grunnskóli

Nýtt símanúmer hefur verið tekið í notkun í Grunnskóla Hornafjarðar 470 8400. Ef hringt er í það er svarað á skiptiborði og gefið samband áfram eftir því sem við á. Á næstu dögum detta gömlu númerin úr sambandi.  

470 8400

Lesa meira
 
itrottadagur_19._des_003_a_vef

Fríða Rún Þórðardóttir næringarfræðingur í heimsókn - 8.1.2008 Fréttir Grunnskóli

Fimmtudaginn 10. janúar kemur Fríða Rún Þórðardóttir næringarfræðingu í heimsókn til okkar og fjallar um mataræði, næringu, hreyfingu og fleira. Hún hittir alla nemendur í 6. - 10. bekk auk þess sem hún ræðir við starfsfólk skólans. Síðdegis verður hún með tvo opna fyrirlestra í Sindrabæ. Sá fyrri verður kl. 17:00 og er hann fyrst og fremst ætlaður íþrótta- og heilsuræktarfólki, þjálfurum, foreldrum írþóttafólks og öðru áhugafólki um íþróttir og næringu.  Þar fjallar Fríða Rún m.a. um mikilvægi þess að huga vel að mataræði við þjálfun, hvernig samsetning fæðunnar getur haft áhrif á árangur, þyngd og fleiri áhugaverð atriði.     


 

Lesa meira
 
jola_heppa_(9)

Mikið um að vera á elstastigi - 20.12.2007 Fréttir Grunnskóli

Nemendur á elsta stiginu hafa haft ýmislegt fyrir stafni núna síðustu dagana fyrir jól. Á þriðjudaginn var sameiginleg skólaskemmtun þar sem hægt var að spila og spjalla og eiga notalega stund yfir kakóbolla og smákökum. Íþróttadagur var í gær, miðvikudag og tóku nemendur þátt í ýmsum þrautum undir styrkri stjórn Steinars íþróttakennara. Mikil stemning var í íþróttahúsinu og tóku krakkarnir hraustlega á. Stofujól voru síðan í dag, fimmtudag, kl. 11:00-12:00 og þá komu nemendur saman ásamt umsjónarkennara og áttu rólega samverustund. Lesa meira
 
19._des,_litlu_jol_hja_nem_og_kenn_106

Jólafrí - 20.12.2007 Fréttir Grunnskóli

Að loknum stofujólum hefst jólafrí í Grunnskóla Hornafjarðar. Kennsla hefst aftur föstudaginn 4. janúar samkvæmt stundatöflu.
Starfsfólk grunnskólans sendir sínar bestu jóla og nýjárskveðjur til allra Hornfirðinga og þakkar samstarfið á árinu sem er að líða. Lesa meira
 
Lopi_jolaleikrit_015_a_vef

Jólagjafalistinn - 19.12.2007 Fréttir Grunnskóli

Leikhópurinn Lopi hefur á síðustu dögum verið að sýna leikverkið Jólagjafalistann í Mánagarði undir leikstjórn Magnúsar J. Magnússonar. Verkið fjallar um hóp krakka sem reyna að færa jólasveinunum jólagjafalistann því pósturinn er veikur. Á leiðinn hitta þau margar undarlegar verur. Öllum nemendum grunnskólans var boðið á sýningu auk þess sem tvær almennar sýningar voru og ein upptökusýning. Almenn ánægja var með sýninguna jafnt hjá börnum sem fullorðnum og voru yngstu nemendur grunnskólans sérstaklega ánægðir enda efnið sérstaklega vel við hæfi þeirra. Lesa meira
 
Litlu_jolin

Liltlu Jólin í Nesjaskóla miðvikudaginn 19.des kl 17:30- 18:30 - 18.12.2007 Fréttir Grunnskóli

Á morgun miðvikudag kl 17:30 til 18:30 verða litlu jólin haldin í Mánagarði. Akstur fram og til baka verður í boði fyrir þá sem það vilja og fara rúturnar frá fyrstu stöð kl 17:00. Hefðbundin dagskrá með leik og söng auk þess sem jólasveinninn kemur í heimsókn og færir nemendum skólans glaðning. Við bjóðum foreldra velkomna til að njóta þessarar stundar með okkur. |nl|
 
Nes_2.HL_001

Föstudagshátíðir í Nesjaskóla - 18.12.2007 Fréttir Grunnskóli

Nú er 2. HL búin að halda föstudagshátíð fyrir okkur hér í Nesjaskóla. Krakkarnir flutt ævintýrið um Rauðhettu og úlfinn þar sem Óli Björn lék sjálfan úlfinn, Díana lék Rauðhettu, Sóley Lóa lék ömmuna og Dagbjört var veiðimaðurinn sem öllu bjargaði. Lesa meira
 
jolasamv_hepp_(3)

Jólasöngur í desember - 14.12.2007 Fréttir Grunnskóli

Jólasöngur hefur ómað um ganga Heppuskóla nú í desember. En nemendur í 8. – 10. bekk hafa hist á sal og sungið jólalög undir stjórn Jóhanns Moravék. Krakkarnir hafa tekið vel undir í söngnum og hafa þetta verið virkilega skemmtilegar stundir, sem lífgað hafa upp á skóladaginn. Í dag, föstudag, tóku þeir bræður Andri Snær og Bragi Fannar nikkurnar með í skólann og spiluðu nokkur jólalög við góðar undirtektir samnemenda og kennara. Lesa meira
 
fullveldisf_(2)

Fullveldisfagnaður - 7.12.2007 Fréttir Grunnskóli

Fimmtudaginn 29 nóvember sl. Var haldinn fullveldisfagnaður á vegum Þrykkjunnar og Grunnskólans. Elsta stigið (8.-10. bekkur) stóð fyrir þessari geysimögnuðu skemmtun. Skemmtinefndin var búin að æfa hin frábæru skemmtiatriði í mánuð og skreytinefndin var búin að vinna hörðum höndum við frábærar skreytingar. Einnig var búið að panta Dj Óla Geir, fyrrverandi herra Ísland, til að halda uppi stuðinu fram eftir kvöldi. Krakkarnir byrjuðu að týnast inn um kl. 19:30 þ.e.a.s þegar húsið opnaði. Þá var skreytinefndin tilbúin með rosa flottann fordrykk. Þegar flestir voru mættir á staðinn hófst gamanið með söngvakeppni og pizzu. Lesa meira
 
6._des_003

Rithöfundaheimsókn - 6.12.2007 Fréttir Grunnskóli

Í dag komu rithöfundarnir Hrund Þórdóttir og Sigurður Pálsson og lásu upp úr bókum sinum Loforðið og Minnisbók´. Hrund las upp úr Loforðinu í Hafnarskóla og Sigurður upp úr Minnisbókinni í Heppuskóla. Þau munu síðan lesa upp í Pakkhúsinu í kvöld ásamt öðrum rithöfundum. Lesa meira
 
songur_003

Jólasöngur á sal - 5.12.2007 Fréttir Grunnskóli

Fyrsta jólasamveran á sal var í dag, nemendur sungu af krafti og auðheyrt að jólasöngurinn var kærkominn og skemmtileg tilbreyting í skólastarfinu. Lesa meira
 
Nes_dot_og_snjor_049

Snjór er skemmtilegur - 27.11.2007 Fréttir Grunnskóli

Snjór, snjór loksins kom alvöru snjór. Það er ekki oft sem við Hornfirðingar fáum að njóta þess að snjór liggi yfir öllu en þannig var það nú á mánudaginn og það sem meira var að hann var úrvals byggingarefni. Krakkarnir í Nesjaskóla nýttu sér þann kost óspart og rúlluðu upp stærðar snjóboltum í gríð og erg. Lesa meira
 
Nes_dot_og_snjor_017

Dótadagur í Nesjaskóla - 27.11.2007 Fréttir Grunnskóli

Á föstudaginn var dótadagur í Nesjaskóla. Dótadagur er hefðbundin dagur í skólastarfinu og er haldin u.þ.b. fjórum sinnum á ári. Þrír dagar þar sem nemendur koma með innidót og einn til tveir þar sem komið er með útidót. Þegar leiktíminn hefst er opnað inn í allar stofur og nemendur fá að leika sér um allan skólann. Lesa meira
 
Nes_dot_og_snjor_002

Heimsókn í Nesjaskóla - 27.11.2007 Fréttir Grunnskóli

Í liðinni viku komu elstu nemendur leikskólans í heimsókn ásamt kennurum sínum. Krakkarnir fóru í frímínútur með nemendum Nesjaskóla, heimsóttu síðan bekkina, skoðuðu íþróttahúsið og mötuneytið ásamt því að kynna sér myndmenntakennslu hjá Magnhildi. Lesa meira
 
snjorinn_26._nov_097_a_vef

Loksins, loksins snjór - 26.11.2007 Fréttir Grunnskóli

Unga fólkinu til mikillar gleði var alhvítt í morgun og góður snjór til að leika sér í. Kennarar notuðu því tækifærið og fóru út með nemendum að leika sér. Við höfum lært það að fyrsti tíminn er bestur þegar nota á snjóinn. Í hádeginu hafði hlýnað verulega og spáð er rigningu og hlýindum næstu dag. En það var gaman að fá þennan snjó og kannski endist hann okkur í nokkra daga. Lesa meira
 
themav

Þemavika - 23.11.2007 Fréttir Grunnskóli

Undanfarna þrjá daga hefur verið þemavika í elstu bekkjum Grunnskólans þ.e.a.s 8.-10. bekk. Meginþemað var 7. áratugurinn í máli og myndum, söng og gleði. Sýning á vinnu nemenda í þemavikkunni var í dag föstudaginn 23. nóvember. Fjölmargir heimsóttu okkur á milli kl. 11:30-13:30 til að skoða afrakstur vikunnar. Hljómsveit flutti nokkur lög, nemendur sýndu Jive og einnig var tískusýning í gangi. Auk þess voru aðrir með sýningar eins og t.d. Ólympíuhópurinn, hópur sem fjallaði um Víetnamstríðið, bílahópurinn og fjölmiðlahópurinn gaf út blað í gær. Nokkrir nemendur sáu um að baka vöfflur og selja og runnu þær út eins og heitar lummur. Lesa meira
 
A_granni_grein

Skóli á grænni grein - 23.11.2007 Fréttir Grunnskóli

Eitt af þeim verkefnum sem unnið er að þessa dagana í grunnskólanum er að móta stefnu í umhverfismennt. Af því tilefni sótti skólinn um að ganga til liðs við verkefnið "Skóli á grænni grein" en það er verkefni sem Landvernd stendur fyrir. Með þeirri aðild gefur grunnskólinn út yfirlýsingu um að hann vilji auka menntun og þekkingu og efla virðingu fyrir náttúru og umhverfi lands og hafs. Einnig vill grunnskólinn stuðla að góðri umgengni og sjálfbærri nýtingu allra auðlinda og vinna gegn hvers konar mengun og umhverfisspjöllum. Lesa meira
 
lego_991

Bæjarstjórn býður legóhópnum í pizzu á Hótelið - 21.11.2007 Fréttir Grunnskóli

Í tilefni góðs gengis í First Lego League bauð bæjastjórn Ísjökunum í pizzuveislu á hótelinu. Við það tækifæri afhenti bæjarstjórinn okkar Hjalti Þór Vignisson, Eiríki Hanssyni Sögu Hafnar fyrir framlag hans til legóhópsins en hann hefur eins og flestir vita leitt starfið frá upphafi. Hjalti hvatti nemendur til að líta á þennan sigur sem einn áfanga af mörgum á lífsleiðinni og velja sér strax næsta markmiði til að stefna að. Eins og fram hefur komið hefur grunnskólinn tekið þátt í þessari keppni frá byrjun eða í þrjú skipti og alltaf gengið vel. Þegar nemendur fóru að tínast í burtu kom Óðinn Eymundsson einnig færandi hendi og gaf hverju barni gjafabréf fyrir 16" pizzu á hótelinu. Sannarlega gleðistund á hótelinu og þökkum við bæjarstjórn og þeim Hóteleigendum hlýhug í garð hópsins og skólans. Lesa meira
 
IMG_0247

Þemavika í 8. – 10. bekk - 21.11.2007 Fréttir Grunnskóli

Nú er þemavika hjá 8. - 10. bekk og umfjöllunarefnið er hippatímabilið og 7. áratugurinn. Í upphafi fengu allir að horfa á myndina Hárið og einnig American graffity. Nemendur fengu að velja sér hópa eftir áhugasviði hvers og eins. Allir fá einnig einn tíma í dansi en Eyrún Unnur kennir öllum grunnsporin í Jive. Tónlistarhópur er starfandi og æfa tónlistarmennirnir lög frá tímabilinu og ætla að flytja afraksturinn á föstudaginn. Hópur nemenda fjallar um Víetnamstríðið. Hópurinn vinnur í því að segja frá stríðinu og lýsa því. Bílahópurinn vinnur í því að finna bíla frá þessum tíma. Fjölmiðlahópurinn gefur út blað og tekur myndir. Tískuhópurinn vinnur í því að skreyta stofurnar, ein er skreytt eins og á hippatímanum og hin er eins og á sixties-tímabilinu.

Ólympíuhópurinn sér um að afla upplýsinga um ólympíuleikana í Munchen 1972.

Fjölmiðlahópurinn

Lesa meira
 
Föstudagshátíð 1. M

Fyrsta föstudagshátíðin hjá 1. M - 20.11.2007 Fréttir Grunnskóli

Föstudaginn 16. nóvember var föstudagshátíð hjá yngsta stiginu. Í þetta sinn var það 1. M sem steig á stokk með ýmis skemmtiatriði. |nl|Hófst hátíðin á því að nemendur sungu lagið um Hafið bláa til að ná góðri stemmingu í salinn og tókst það með ágætum. |nl|Í tilefni að degi íslenskrar tungu fluttu börnin ljóðið, Ég á þessi föt eftir Jónas Hallgrímsson sem flestir þekkja undir nafninu Buxur, vesti, brók og skór. Lesa meira
 
Dagur_isl._tungu

Dagur íslenskrar tungu - 19.11.2007 Fréttir Grunnskóli

Á degi íslenskrar tungu hefst formlega stóra upplestrarkeppnin hjá 7. bekk. Af því tilefni fóru nemendur í 7. bekk á leikskólana og lásu fyrir börnin þar. Einnig voru þau með einskonar maraþonlestur á Menningarmiðstöðinni þar sem þau skiptust á að lesa upp úr bókinni Eyja glerfisksins eftir Sigrúnu Eldjárn. Gestir og gangandi gátu notið þess að hlusta á þau en þess má geta að bæjarstjórinn okkar hann Hjalti hitaði stóinn fyrir börnin áður en þau byrjuðu. Lesa meira
 
Lego_012

Evrópukeppnin í Tokíó - 19.11.2007 Fréttir Grunnskóli

Svo undarlegt sem það kann að virðast þá hefur verið ákveðið að Evrópukeppni First Lego League verði haldin í Tokíó á næsta ári. Þetta kom sigurliði okkar svo sannarlega á óvart því það er jú töluvert meira mál að ferðast til Japan en til Evrópu. Í ljós hefur þó komið að liðið á að öllum líkindum líka möguleika á að keppa á tveimur stöðum í Bandaríkjunum og nú liggur Eiríkur liðstjóri ásamt foreldrum yfir því hvert sé best að fara. Keppendur þurfa sjálfir að bera kostnað af ferðum sínum og uppihaldi og þess vegna er um að gera að skoða málin vel. Lesa meira
 
Heimsókn á bókasafnið

Nesjaskóli heimsækir menningarmiðstöðina - 15.11.2007 Fréttir Grunnskóli

Síðasta mánudag var nemendum Nesjaskóla boðið í heimsókn á menningarmiðstöðina. Þegar þangað var komið bauð Björg Erlingsdóttir alla velkomna og sagði frá Norrænu bókasafnsvikunni, sýndi nemendum Helvítisgjána og bauð síðan upp á Línu-klatta og djús. Eftir að veitingunum höfðu verið gerð góð skil var farið í reiptog yfir Helvítisgjána og síðan las Bryndís kafla úr Línu Langsokk. Þegar lestrinum var að ljúka tóku krakkarnir eftir því að dularfullir menn læddust inn á safnið. Krakkarnir voru fljótir að láta vita af þessum mönnum en áður en illa fór birtist Lína Langsokkur öllum að óvörum og skömmu síðar lögreglan. Það kom í ljós að menn þessir voru þekktir ræningjar. Úr þessu varð hinn mesti hasar en að lokum náðist að handsama ræningjana með hjálp krakkanna og Línu. Lesa meira
 
lego1

Sigursælir Ísjakar - 13.11.2007 Fréttir Grunnskóli

Lið Grunnskóla Hornafjarðar Ísjakarnir sigraði í FIRST LEGO league keppninni sem fram fór í Náttúrufræði húsi Háskóla Íslands s.l. laugardag. Ísjakarnir fengu flest stiga og unnu sér því rétt til þátttöku í Evrópumóti FIRST LEGO league í maí n.k. Lesa meira
 
Föstudagshátíð 2.HG

Föstudagshátíð í Nesjaskóla - 12.11.2007 Fréttir Grunnskóli

Nú er 2. H búin að halda sína föstudagshátíð og tókst hún í alla staði mjög vel. |nl|Nemendur fluttu leikrit um Mjallhvíti og dvergana sjö. Sögumenn voru Arnar Ingi, Arndís Ósk og Sigurborg. Hafþór Logi, Hildur, Guðbjörg, Guðný, Halldóra Dröfn Guðjón, Ægir og Svandís léku dvergana og stjórnuðu söngnum, Lesa meira
 
Lego_002

Ísjakarnir á leið í Lego keppnina - 7.11.2007 Fréttir Grunnskóli

Liðið okkar heitir Ísjakarnir og við heitum Anna Regína Heiðarsdóttir, Dóra Björg Björnsdóttir, Guðlaug Jóna Karlsdóttir, Guðmundur Kristján Sigurðsson, Magnús Ágúst Magnússon, Maríus Sævarsson, Perla Sólveig Reynisdóttir, Siggerður Aðaslteinsdóttir, Vigdís María Borgarsdóttir og Þorgils Snorrason. Liðsstjórinn okkar er Eiríkur Hansson. Við erum í 7. bekk og erum að fara að keppa laugardaginn 10. nóvember í First lego league keppninni í Reykjavík. Keppnin verður haldin í Öskju í Sturlugötu Náttúrufræði húsi Háskóla Íslands frá kl 8:30-17:00. Lesa meira
 
jol_i_skokassa_010

Jól í skókassa - 30.10.2007 Fréttir Grunnskóli

Í gær hittust nemendur og foreldrar á yngsta stigi grunnskólans og gengu frá jólapökkum í skókassa. Margir nemendur mættu og heill haugur af jólapökkum safnaðist. Þó enn séu tæpir tveir mánuðir í jól þá er ekki seinna vænna en huga að jólagjöfum sem fara erlendis en þessir jólapakkar verða sendir til Úkraínu. Lesa meira
 
5._H_a_sal_001

Skemmtun á sal hjá 5. H - 26.10.2007 Fréttir Grunnskóli

Í dag var 5. H með skemmtun á sal fyrir nemendur skólans. Þeir voru með fjölbreytt skemmtiatriði sem tókust með afar vel. Hér eru nokkrar myndir frá skemmtuninni. Lesa meira
 
Mer_finnst_rigningin_god_001

Mér finnst rigningin góð - 25.10.2007 Fréttir Grunnskóli

Á rigningardögunum undanfarið höfum við áþreifanlega orðið vör við að mörg börn koma illa klædd í skólann og alls ekki undir það búin að vera úti í frímínútum. Við leggjum hinsvegar mikla áherslu á að nemendur í 1. – 7. bekk séu úti í frímínútum og þá setjum við rigningu ekki fyrir okkur. Við minnum því á að regngalli og stígvél er nauðsynlegur hlífðarfatnaður hverju hornfirsku barni. Lesa meira
 
Tonlist_fyrir_alla_og_tonmennt_009

Tónlist fyrir alla - 25.10.2007 Fréttir Grunnskóli

Það var mikið líf og fjör í Sindrabæ þegar tríó Björns Thoroddsens ásamt Andreu Gylfadóttur hélt tónleika fyrir nemendur grunnskólans og elstu nemendur leikskólanna. Alls voru haldnir þrír tónleikar þar sem sungin voru ýmis þekkt íslensk lög. Nemendur tóku hraustlega undir og þegar þau áttu að syngja eins hátt og þau gátu er ekki laust við þakið hafi lyfst aðeins á Sindrabæ. Lesa meira
 
sundst

Frá foreldrafélagi 8.bekkjar - 23.10.2007 Fréttir Grunnskóli

Þriðjudaginn 16. október héldu tenglar foreldrafélags 8. bekkjar foreldrafund til að kynna fyrirhugað vetrarstarf. Í haust var gerð könnun meðal nemenda 8. bekkjar til að sjá hvað það væru sem þeir hefðu helst áhuga á að gera og í framhaldi af því var síðan vetrarstarfið skipulagt. Í október/nóvember ætla krakkarnir að gista í Araseli, grilla og halda kvöldvöku, í janúar/febrúar á að fara í skautaferð með heitt kakó og sætabraut og svo þegar hlýna fer næsta vor, á að halda sundlaugarpartý og pizzuveislu. Ákváðu tenglarnir að halda fund með foreldrunum til að kynna það sem fyrirhugað er og fá foreldrana til samstarfs. Á fundinn voru boðaðir foreldrar allra barna í 8. bekk í Grunnskóla Hornafjarðar. Lesa meira
 
Nes föstudagshátíð 19.10

Föstudagshátíð í Nesjaskóla - 23.10.2007 Fréttir Grunnskóli

Föstudaginn 19. október sá 3. S um föstudagshátíðina í Nesjaskóla. Nemendur settu á svið söngleik um Skúla Óskarsson lyftingakappa, fluttu lag með frumsömdum texta og sögðu nokkra góða brandara. Þetta var hin best skemmtun og í lokin skoraði 3. S á 2. HG að halda næstu hátíð.
 
raunverul

Raunveruleikurinn í 10. bekk - 22.10.2007 Fréttir Grunnskóli

Í ár ætla 10. bekkir Grunnskóla Hornafjarðar að taka þátt í Raunveruleiknum í fyrsta sinn. Leikurinn er gagnvirkur hermileikur spilaður á netinu, hannaður sem fjármála og neytendafræðsla fyrir efsta bekk grunnskólans. Leikurinn stendur yfir í 4 vikur og þurfa nemendur að leysa verkefni á vefnum á hverjum degi. Þess má geta að leikurinn fékk verðlaun norrænu ráðherranefndarinnar fyrir besta námsefnið í neytendamálum. Í upphafi leiks byrjar leikmaður sem 20 ára einstaklingur á leið út í lífið eftir framhaldsskóla. Leikmaðurinn fær ákveðna upphæð á bankareikning í upphafi leiks en líf hans er að öðru leyti óskrifað blað. Lesa meira
 
Tonlist_fyrir_alla_017_a_vef

Tónlist fyrir alla- skólatónleikar á Höfn 24. október. - 21.10.2007 Fréttir Grunnskóli

 

Næsta miðvikudag á skólatíma verða tónleikar í Sindrabæ fyrir alla nemendur grunnskólans og elstu nemendur leikskólanna.  Björn Thoroddsen og Andrea Gylfadóttir hafa sett saman skemmtilega dagskrá sem ætluð er til flutnings í grunnskólum landsins og gert er ráð fyrir þátttöku barnanna að hluta til og þá einna helst í söng. Söngtextana er hægt að nálgst hér. Dagskráin, sem tekur um 40 mínútur í flutningi, kallast "Söngvar afa og ömmu". Byggist hún fyrst og fremst á lögum af tveimur geisladiskum sem þau Björn og Andrea hafa gefið út; Vorvindum (2006) og Vorvísum (2007). Þessir diskar hafa fengið afar góðar viðtökur og góða umsögn gagnrýnenda.

Lesa meira
 
4._og_7._bekkur_a_leid_i_samramd_prof_001

Samræmd próf í 4. og 7. bekk - 17.10.2007 Fréttir Grunnskóli

18. og 19. október eru hin árlegu samræmdu próf í 4. og 7. bekk í íslesnku og stærðfræði. Í grunnskólanum leggjum við áherslu á að skólastarf riðlist sem minnst vegna prófanna og það eina sem í raun breytist er að valtími fellur niður á fimmtudegi. Við lítum fyrst og fremst á samræmdu prófin sem könnunarpróf fyrir okkur starfsfólk skólanna. Lesa meira
 
a_leid_i_sveitina,_vefmynd

Annað valtímabil að hefjast í 5. - 7. bekk - 17.10.2007 Fréttir Grunnskóli

Á morgun fimmtudag velja nemendur í 5. - 7. bekk hvað þeir ætla að gera í valtímum fram að jólum. Í hverri viku er einn valtími fyrir nemendur í þessum bekkjum og velja þeir fyrir 6- 8 tíma í einu. Nemendur hafa um 10 völ að velja sem eru; heimanám, heimilisfræði, útilvist, sveitahópur, tölvur, myndlist og föndur, bjöllukór, íþróttir, dans og leiklist. Þetta er fyrsti veturinn sem boðið er upp á val á miðstigi í hverri viku, fram að þessu höfum við stundum tekið einn til tvo daga á vetri þar sem hægt hefur verið að velja um ýmis viðfangsefni.
Lesa meira
 
mikid_dansad

10. bekkur á Fjarðarball - 15.10.2007 Fréttir Grunnskóli

Þann 13. október sl. skellti 10. bekkur sér á Fjarðarball austur á Eskifjörð. Kl. 16:30 að staðartíma lögðum við í hann, á vit ævintýranna, galvösk og glöð í okkar fínasta pússi (hér um bil). Misjafnt ástand var á okkur, sumir með matareitrun (samt ekki eftir laxerolíu eins og fyrir sunnan), aðrir þreyttir eða bílveikir… Flest vorum við samt nýklippt, hress og spennt. Lesa meira
 
Arnina_og_Ylfa_Beatrix

Líf og fjör í Lengdri viðveru - 15.10.2007 Fréttir Grunnskóli

Það er sannarlega líf og fjör hjá yngstu krökkunum í Grunnskóla Hornafjarðar. Fyrir utan að þau eru á fullu frá því snemma á morgnana í hefðbundinni skólagöngu mæta mörg þeirra í lengda viðveru sem er til húsa í Hafnarskólanum gamla. |nl| |nl|Þessi þjónusta er til reiðu frá klukkan 13.40 - 17.00 og um 20 börn dvelja þar samtals á hverjum virkum degi. Lengd viðvera er hugsuð fyrir börn á aldrinum sex til níu ára auk þess sem skólabörn úr sveitunum hér í Hornafirði bíða þar eftir að skólabíllinn komi og aki hverjum og einum til síns heima. Lesa meira
 
oktober07_1_bekkur_itrottahus_005

1. bekkur í heimsókn á Krakkakot - 8.10.2007 Fréttir Grunnskóli

Fimmtudaginn 4. október brá 1. bekkur undir sig betri fætinum og fór í heimsókn á Krakkakot. Heimsóknin er liður í samstarfi á milli skólanna sem kallast Brúum bilið. Það er gaman fyrir börnin að koma í heimsókn í sinn gamla skóla að hitta vini og starfsmenn sem tóku vel á móti hinum nýju grunnskólanemum. Það var glatt á hjalla og tíminn leið hratt við leik og störf. En þegar komið var til baka inn í skóla var tekið til við að læra sem 1. bekkingar stunda nú af kappi þessa dagana. Lesa meira
 
Fostudagshatid_3_B_5_okt

Föstudagshátíð - 8.10.2007 Fréttir Grunnskóli

Föstudaginn 5. október var haldin fyrsta föstudagshátíð vetrarins í Nesjaskóla. Það var 3. B sem reið á vaðið með flutningi á söngleik sem fjallaði um Þursinn í Ketillaugarfjalli auk þess sem nemendur fluttu nokkra skemmtilega brandara. Hátíðin tókst að venju mjög vel og skoraði 3. B á 3.S að halda næstu hátíð. Lesa meira
 
Skemmtun_a_sal_hja_4._S_001_a_vef

Skemmtun á sal - 5.10.2007 Fréttir Grunnskóli

Í dag voru nemendur í 6. bekkur með fyrstu skemmtun vetrarins á sal á miðstiginu. Þeir sýndu nokkra stutta leikþætti, sögðu brandara og sungu. Allir nemendur í bekknum komu fram og stóðu þeir sig með prýði. Í hópnum voru margir áhugasamir leikendur og nokkrir þeirra eiga örugglega eftir að verma fjalir leikhúsanna í framtíðinni. Hér koma nokkrar myndir frá sal en því miður var myndavélin eitthvað að stríða okkur og gæði myndanna eru lítil. Lesa meira
 
mentornamskeid_008

Námskeið í mentor - 3.10.2007 Fréttir Grunnskóli

Í dag fóru allir kennarar, ritarar og skólastjórnendur á námskeið í upplýsingaforritinu mentor. Af þeim sökum komu nemendur á elsta stigi heldur fyrr heim en venjulega. Þrátt fyrir að við höfum notað mentor síðustu árin þá eru sífellt að koma nýjungar í því sem við erum að tileinka okkur. Á næstu vikum og mánuðum munu foreldrar örugglega verða varir við breytingar t.a.m. erum við að velta fyrir okkur að taka inn nýung í kerfinu sem tengist foreldraviðtölum. Ef af því verður þá verðu það kynnt vel áður en foreldrar og nemendur þurfa að fara að nota það. Lesa meira
 
Bikarinn_001_a_vef

Hafnarskóli nýsköpunarskóli ársins - 2.10.2007 Fréttir Grunnskóli

30. september var lokahóf Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda haldið í Grafarvogskirkju. Þar hlaut Hafnarskóli annað árið í röð tilnefninguna Nýsköpunarskóli ársins. Það er mikill heiður fyrir okkur í grunnskólanum að fá þennan titil en þar sem tillögur í keppnina voru sendar inn á síðast skólaári þá var það gert undir nafni Hafnarskóla, á þessu skólaári verða hugmyndir sendar inn í nafni Grunnskóla Hornafjarðar.

Í nokkur ár hefur Eiríkur Hansson kennt nýsköpun í 4. og 5. bekk grunnskólans og hefur hann hvatt nemendur til að taka þátt í keppninni og leiðbeint þeim eins og hægt er. Eldri nemendur fá að spreyta sig í Lego keppninni og í frumkvöðlavinnu þar sem Eiríkur hefur einnig verið einn aðalforsprakkinn á vegum skólans. Það lá því í augum uppi að hann tæki á móti verðlaunum úr hendi menntamálaráðherra. Við það tækifæri sagði Eiríkur meðal annars.

Lesa meira
 
A,_hvad_er_gott_ad_teygja_ur_ser

Fáni grunnskólans - 27.9.2007 Fréttir Grunnskóli

Það er vel við hæfi að fána grunnskólans sé skartað í fyrsta sinn á kynningardeginum sem er í dag fimmtudaginn 27. sept. Kynningafundirnir fyrir foreldra verða sem hér segir: Nesjaskóli kl .17:00 Hafnarskóla kl. 18:00 |nl|Heppuskóla kl. 20:00 Lesa meira
 
Grunnskoli_001

Kynningafundir í Grunnskólanum - 26.9.2007 Fréttir Grunnskóli

Fimmtudaginn 27. september eru kynningafundir fyrir foreldra í grunnskólanum sem hér segir. Nesjaskóla kl. 17:00. Hafnarskóla kl. 18:00.  Heppuskóla kl. 20:00.  Við hvetjum foreldra til að mæta vel og kynna sér starfið í grunnskólanum. Gott samstarf heimilis og skóla skilar sér alltaf í betra gengi nemenda í skólanum. Lesa meira
 
busun_07_(1)

Nýnemahátíð hjá efstastigi grunnskólans - 21.9.2007 Fréttir Grunnskóli

Fimmtudaginn 20.september var hin árlega nýnemahátíð haldin hjá 8. – 10. bekk. Hefðbundin kennsla var fram að hádegi. Eftir hádegishlé var haldið í íþróttahúsið þar sem nýnemar, þ.e.a.s. nemendur í 8.bekk voru boðnir velkomnir í skólann á viðeigandi hátt. Keppt var í hinum ýmsu greinum og var greinilega ætlunin að nemendur í 8.bekk töpuðu sem flestum keppnum. Nýnemar stóðu sig einstaklega vel og ef öllu réttlæti hefði verið fullnægt þá hefðu þeir staðið uppi sem sigurvegarar! Skemmtunin í íþróttahúsinu var krökkunum til mikils sóma, en þetta var samt bara upphafið á enn betri degi. Um kvöldið var nefnilega matur, skemmtun og dansleikur í Mánagarði. |nl| Lesa meira
 
Nemendarad_2007-2008_003_a_v

Nemendaráð 6. – 10. bekkjar - 17.9.2007 Fréttir Grunnskóli

Í nýjum grunnskólalögum sem samþykkt voru á síðasta ári er kveðið á um að í hverjum skóla skuli skipað nemendaráð þar sem sitji a.m.k. einn fulltrúi nemenda í hverjum árgangi í 6. – 10. bekk sem nemendur velja sjálfir. Í Grunnskóla Hornafjarðar hefur nú verið kosið í nemendaráð og var ákveðið að tveir nemendur yrðu kosnir í hverjum árgangi. Nýskipað nemendaráð sat sinn fyrsta fund fimmtudaginn 13. september. Lesa meira
 
Skolasetning_07_002

Foreldrafélag Grunnskóla Hornafjarðar - 17.9.2007 Fréttir Grunnskóli

Fyrsti fundur í sameinuðu foreldrafélagi grunnskóla Hornafjarðar var haldinn þriðjudaginn 11. september. Foreldrafélagið er fyrir foreldra nemenda í 1. – 10. bekk. Á fundinn mættu Gauti Árnason og kynnti á starfsemi foreldraráðs ásamt Nönnu Dóru Ragnarsdóttur sem sagði frá starfsemi foreldrafélags Hafnarskóla s.l. ár. Ný stjórn var skipuð og eru aðalmenn: Konný Guðmundsdóttir, Erla Berglind Antonsdóttir og Anna Kristín Hauksdóttir. Varamenn eru Sólveig María Hauksdóttir og Jóna Bára Jónsdóttir. Lesa meira
 
IMG_0014_a_vef

Námskeið um tilfinningar fyrir grunnskólanemendur - 13.9.2007 Fréttir Grunnskóli

Nemendum í Grunnskóla Hornafjarðar gefst tækifæri til að taka þátt í námskeiði er kallast Baujan-tilfinninganámskeið. Námskeiðið snýst um að byggja upp þekkingu á tilfinningum og þjálfa leiðir til sjálfstyrkingar og sjálfstjórnar. Markmiðnámskeiðsins er að þátttakendur læri undirstöðuatriði í tilfinningavinnu ásamt slökunaröndun til sjálfshjálpar og séu færari um að stjórna líðan sinni, hegðun og aðstæðum og að þátttakendur eigi auðveldara með að setja sig í spor annarra. Námskeiðið leggur til góða þekkingu á mannlegum tilfinningum sem þátttakendur geta síðan nýtt sér áfram.

Lesa meira
 
Berjaferð Nesjaskóla

Frí í grunnskólanum föstudaginn 14. september - 11.9.2007 Fréttir Grunnskóli

Við minnum á að það er frí hjá nemendum á föstudag vegna skipulagsdags hjá kennurum. Lengda viðveran er einnig lokuð vegna námskeiðs starfsfólks. Lesa meira
 
gongud_14

Unglingarnir á leið í gönguferð - 10.9.2007 Fréttir Grunnskóli

Skólastarf á unglingastiginu er að komast í fullan gang núna þessa dagana. Undirbúningur fyrir legókeppnina er hafinn og taka tvö lið úr grunnskólanum þátt í henni, annað úr 9. bekk og hitt úr 7. bekk. Legó hönnunarkeppnin 2007 fer fram laugardaginn 10. nóvember í Öskju við Sturlugötu. Nemendur skólans stóðu sig mjög vel í fyrra. Fjáröflun 9. bekkjar fyrir námsferð að Laugum í Sælingsdal er hafin og hafa nemendur opnað sjoppu og selja þar nýbakað bakkelsi og ýmislegt annað við góðar undirtektir samnemenda sinna. Lesa meira
 
val_011_a_vef

Val á miðstigi farið af stað - 7.9.2007 Fréttir Grunnskóli

Í vetur ætlum við að prófa okkur áfram með valhópa á miðstiginu. Til að byrja með verður valið í 5. – 7. bekk einn tíma á viku. Nemendur velja sér hóp til nokkurra vikna í einu og var boðið upp á 10 valhópa í fyrstu lotu. Í valhópum blandast nemendur þvert á árganga. Lesa meira
 
Berjaferð Nesjaskóla

Skólastarfið komið á fullt hjá yngstu krökkunum - 7.9.2007 Fréttir Grunnskóli

Nú er skólastarfið komið á fullt á yngsta stiginu og hefur það farið vel af stað. Í 1. bekk eru 24 nemendur í einni bekkjardeild og hefur mæting þeirra vakið athygli því hver einasti nemandi 1. bekkjar hefur mætt fyrstu vikurnar og lofar það góðu með framhaldið. Í 2. bekk eru 38 nemendur í tveimur bekkjardeildum og í 3. bekk eru 35 nemendur í tveimur bekkjardeildum. Margt hefur verið til gamans gert í skólabyrjun. Fyrst ber að telja berjaferð í Haukafell sem tókst frábærlega í yndislegu veðri og ekki spillti fyrir að það fundust fullt af berjum sem er ekki endilega vaninn í berjaferðum hér um slóðir. Svo eru það fleiri haustverk sem standa til en hin árlega kartöfluupptaka hefur dregist en það stendur vonandi allt til bóta. Svo er einnig verið að sinna bóknámi sem tengist líka því sem er að gerast í náttúrunni enda hefur veðrið verið hlýtt og gott og tilvalið til útivistar. Lesa meira
 
skolabyrjun

Skólabyrjun á miðstigi - 31.8.2007 Fréttir Grunnskóli

Skólastarf hefur byrjað mjög vel á nýju starfsári. Nemendur koma glaðir og kátir eftir ánægjulegt sumarfrí og eru tilbúnir til að takast á við fjölbreytt verkefni skóladagsins. Allir nemendur miðstigsins byrja á þemavinnu um heimabyggðina núna næstu daga og í dag fer 7. bekkur í göngutúr og húsaskoðun um Höfn undir leiðsögn Sigurðar Hannnessonar. Lesa meira
 
Teir_sem_komust_afram_i_nyskopunarkeppninni_2007

Nýsköpunarkeppni grunnskóla - 29.8.2007 Fréttir Grunnskóli

Síðustu ár hefur Eiríkur Hansson kennt nýsköpun í 4. og 5. bekk grunnskólans við góðan orðstýr. Afraksturinn hefur skilað sér vel til skólans og flest árin hafa nokkrir nemendur komist áfram í lokakeppnina sem fram fer í Reykjavík. Í fyrra var skólinn m.a. tilnefndur sem nýsköpunarskóli ársins og vorum við afar stolt af þeirri tilnefningu og geymum bikarinn stolt þetta árið. Í ár komust fjórir keppendur áfram og gefst þeim kostur á að fara í vinnusmiðju til Reykjavíkur 8. september næstkomandi þar sem þeir vinna frekar með hugmyndina Lesa meira
 
Skolasetning_07_016

Fjölmenni við skólasetningu Grunnskólans - 24.8.2007 Fréttir Grunnskóli

Mikið fjölmenni var við setningu Grunnskóla Hornafjarðar í dag. Athöfnin hófst í íþróttahúsinu á Höfn þar sem skólastjórarnir þrír sögðu nokkur orð við allan hópinn. Að því loknu fór hver bekkur í sína stofu. Það var stutt að fara fyrir elstu nemendurna sem einungis þurftur að fara yfir ganginn inn í Heppuskóla og ekki mikið lengra fyrir miðstigið að tölta niður í Hafnarskóla. En nemendur á yngsta stigi þurftu að sjálsögðu bílferð inn í Nesjaskóla. Erfiðlega hefur gengið að ráða kennara fyrir þetta skólaárið og var m.a. gripið til þess ráðs að sameina bekki í tveimur árgöngum 4. og 6. bekk auk þess sem ein bekkjardeild er í 1. bekk. Með þessum ráðstöfunum er nú fullráðið við grunnskólann og koma 62 starfsmenn að grunnskólanum með einum eða öðrum hætti. Margir í fullu starfi en einnig nokkrir í hlutastarfi, stundakennslu, Lesa meira
 
Logo-GH

Skólasetning í Grunnskóla Hornafjarðar - 23.8.2007 Fréttir Grunnskóli

Skólasetning í Grunnskóla Hornafjarðar 1. - 10. bekk verður kl. 11.00 föstudaginn 24. ágúst í íþróttahúsinu á Höfn. Eftir setninguna fer hver nemandi í sína starfsstöð. Þar sem enginn skólaakstur er í tengslum við skólasetninguna verða foreldrar nemenda í 1.-3. bekk að sjá um að koma þeim í Nesjaskóla að lokinni setningarathöfn. Allir velkomnir

Skólastjórnendur

Lesa meira
 
Namskeid_agust_07_006

Góð mæting á námskeið um uppbyggingarstefnuna - 23.8.2007 Fréttir Grunnskóli

Um 80 manns sátu námskeið um Uppeldi til ábyrgðar (restitution) á vegum skólaskrifstofu Hornafjarðar 15. og 16. ágúst. Námskeiðið sóttu starfsmenn leikskóla, grunnskóla og íþróttamiðstöðvar og var almenn ánægja hjá þátttakendum. Námskeiðið fjallaði um leiðir til að auka ábyrgð fólks á eigin lífi og stuðla að meiri ánægju í lífinu. Á næstu vikum ætla þeir sem á námskeiðinu voru að æfa sig að nota þessar uppeldiskenningar og kenna þær og kynna fyrir nemendum og foreldrum. Aðalfyrirlesari á námskeiðinu var Diane Gossen en héðan fór hún til Reykjavíkur og síðan Ísafjarðar þar sem hún heldur þrjú önnur námskeið. Með henni var Hildur Karlsdóttir kennari sem sérhæfir sig nú í því halda námskeið um Uppeldi til ábyrgðar. Lesa meira
 
Mánagarður

Námskeiðið - 8.8.2007 Fréttir Grunnskóli

Námskeiðið Uppeldi til ábyrgðar verður haldið 15. og 16. ágúst inn í Mánagarði. Mæting 15. ágúst er kl. 9:30. Þá er skráning og afhending námskeiðsgagna. Námskeiðið er ætlað öllu starfsfólki grunnskólans ásamt starfsfólki leikskólanna og starfsfólki íþróttamiðstöðvar. Lesa meira
 
Nýsköpunarskóli

Grunnskóli Hornafjarðar - 3.8.2007 Fréttir Grunnskóli

1. ágúst var fyrsti dagur í ný sameinuðum grunnskóla, Grunnskóla Hornafjarðar. Skólastarfið er þó með rólegra móti fyrstu dagana enda flestir í sumarfríi enn og undirbúningur fyrir unglingalandsmót í algleymingi. Eftir verslunarmannahelgi færist svo líf í skólana. Eins og flestum er kunnugt samþykkti skólanefnd nýja skólastefnu um síðustu áramót þar sem ákveðið var að sameina yfirstjórn í Nesjaskóla, Hafnarskóla og Heppuskóla. Í staðinn fyrir þrjár sjálfstæðar stofnanir verður um einn skóla að ræða með einni stjórn. Guðmundur, Þorvaldur og Þórgunnur sem verið hafa skólastjórar mynda nú skólastjórn og auk þess að vera hvert á sínu skólastiginu þá munu þau einnig skipta með sér verkum. Þorvaldur sér um starfsmannamálin í öllum grunnskólanum, Guðmundur Ingi um fjármálin og í Þórgunnar faglegu málin. Lesa meira
 
Grunnskóli Merki_1

Merki skólans - 1.8.2007 Fréttir Grunnskóli

Nýtt merki eða logo hefur verið valið fyrir Grunnskólann. Í kjölfar margra tillagna sem bárust í samkeppni um merki síðast vetur valdi skólanefnd þetta merki sem hér birtist. Hugmyndin að merkinu varð til í samræðum við nemendur og útfærðu grafískir hönnuðir hana.  Lesa meira
 
Veggskreyting

Veggskreyting í tilefni 110 ára afmælis Hafnar - 16.5.2007 Maí

Á dögunum bauð Menningarmálanefnd nemendum í Hafnarskóla að mála vegginn við Brautarholt í tilefni 110 ára afmælis Hafnar. Þessu boði var að sjálfsögðu vel tekið og flestir nemendur fullir áhuga bæði við hugmyndavinnu og málun segir Þórgunnur Torfadóttir skólastjóri. "Það sjaldan sem við fáum svona verðug verkefni til að spreyta okkur á og erum við að sjálfsögðu afar stolt yfir þessu trausti og vöndum okkur eins og við getum" sagði Þórgunnur. Veggskreytingin er unnin út frá hugmyndum nemenda og markmiðið er að allir nemendur eigi hlut í myndinni. Nú þegar hafa allir nemendur fengið að fara einu sinni og mála og í næstu viku mega allir fara aftur. Lesa meira
 
arshatidin

Skíðaferð og árshátíð - 16.5.2007 Fréttir Grunnskóli

Á miðvikudaginn í síðustu viku tóku nemendur í 10.bekk Heppuskóla síðasta samræmda-prófið. Sama dag hélt síðan hópurinn í ferðalag upp á jökul þar sem þau skemmtu sér á skíðum, sleðum og snjóbrettum að deginum en skemmtu síðan hvert öðru í skálanum er kvölda tók. Hópurinn fékk frábært veður og færi og ekki spillti þjónustan sem þau fengu í Jöklaseli fyrir ánægjunni. Komið var af jökli uppúr hádegi á föstudag. Á föstudagskvöldið var síðan árshátíð skólans haldinn að Hrollaugsstöðum í samvinnu við Þrykkjuna. |nl| Lesa meira
 
skolaferd_256

Upp á jökul og vorhátíð Heppuskóla - 3.5.2007 Fréttir Grunnskóli

Miðvikudaginn 9. maí leggja nemendur í 10. bekk af stað frá Heppuskóla í ferð á Vatnajökul. Gist verður í svefnpokaplássi í Jöklaseli í tvær nætur. Farið verður í útsýnisferð á jöklinum ásamt selflutningi í skíðabrekkur á jeppum Ákveðið hefur verið að halda vorhátíð nemenda í Heppuskóla að Hrollaugsstöðum föstudaginn 11. maí n.k. Að hátíðinni standa Heppuskóli og Félagsmiðstöðin Þrykkjan. Að sögn Guðmundar Inga Sigbjörnssonar skólastjóra þá verður rútuferð frá tjaldstæðinu á Höfn kl. 19:15 og til baka frá Hrollaugsstöðum kl. 00:15. Einnig er akstur í sveitirnar í tengslum við hátíðina. Lesa meira
 
forv1

Forvarnarmyndbönd hjá 8.bekk - 25.4.2007 Fréttir Grunnskóli

Nemendur í 8.bekk Heppuskóla hafa í vetur unnið að forvarnarverkefni eins og gert hefur verið undanfarin ár. Í vetur hafa verið unnar stuttar auglýsingar eða stuttmyndir. Árganginum var skipt upp í átta hópa og tók hver hópur fyrir ákveðið atriði. Mánudaginn 23.apríl var afraksturinn síðan sýndur fyrir nemendur skólans og var ekki annað að sjá og heyra en að allir væru ánægðir með hvernig til hafði tekist. Myndirnar verða sýndar á sérstakri foreldrasýningu miðvikudaginn 2.maí kl. 20:00 í Sindrabæ. |nl| Lesa meira
 
Frá Laugum 2007

Fréttir frá Laugum - 7.3.2007 Fréttir Grunnskóli

Nú er runninn upp dagur þrjú á Laugum. Allt hefur gengið að óskum. Krakkarnir eru til fyrirmyndar og njóta sín vel hér í sveitinni. Í gær komu krakkar frá Eyrarbakka og Hofsósi og þau eru að byrja að hrista sig saman við okkar krakka. Námskeiðin byrjuðu í gær og krakkarnir voru ánægð.Í dag er einn hópur í gönguferð, annar í skyndihjálp og enn annar í leikjum og sprelli í íþróttahúsinu svo eitthvað sé nefnt. Hér er nóg við að vera og alltaf fjör í borðtennis- og pool herberginu! Lesa meira
 
Stóra upplestrarkeppnin 2005

Úrslit í Stóru upplestrarkeppninni - 18.4.2005 Fréttir Grunnskóli

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram á Djúpavogi í gær. Allir upplesararnir stóðu sig mjög vel. Jóhann Atli Hafliðason frá Grunnskóla Djúpavogs sigraði, í öðru sæti var Karitas Björt Óskarsdóttir frá Hafnarskóla og í þriðja sæti Iðunn Tara Ásgrímsdóttir einnig úr Hafnarskóla. Á meðan dómarar réðu ráðum sínum sungu nemendur Grunnskóla Djúpavogs nokkur lög undir stjórn Berglindar Einarsdóttur við undirleik Snæbjörns Sigurðarsonar. Lesa meira
 
Litla hjúkrunarkonan

Líf og fjör á Öskudag - 25.2.2004 Febrúar

Þá er Öskudagurinn runnin upp með öllu því fjöri sem honum fylgir. Í Nesjaskóla og Hafnarskóla mæta börnin í grímubúningum í skólann og skólastarfið snýst allt um þennan ágæta dag. Þorvaldur Viktorsson skólastjóri Nesjaskóla sagði að þar yrði margt sér til gamans gert, börn og kennarar væru grímubúin og vegleg skemmtun með tilheyrandi dansleik yrði í Mánagarði, mötuneyti skólans býður upp á hamborgara í tilefni dagsins og hápunkturinn yrði síðan þegar kötturinn yrði sleginn úr tunnunni. Lesa meira
 
Gudlaug_Erla

Uppeldi til ábyrgðar - Fréttir Grunnskóli

Guðlaug Erla Gunnarsdóttir var í dag með fræðslu fyrir starfsfólk og foreldra Grunnskóla Hornafjarðar um Uppeldi til ábyrgðar. Eins og flestum er kunnugt er það hugmyndafræði sem starfsfólk grunnskólans hefur verið að tileinka sér í vetur og ætlar að halda áfram að tileinka sér. Guðlaug Erla Gunnarsdóttir er aðstoðarskólastjóri í Álftanesskóla á Álftanesi en þar hefur verið unnið eftir kenningum Uppeldis til ábyrgðar í nokkur ár. Meistaraprófsverkefni Guðlaugar Erlu fjallar um Uppeldi til ábyrgðar og er hún einn af brautryðjendum stefnunnar hér á landi.

                                                                                                       Tilraun var gerð til að halda fræðslufund fyrir foreldra í hádeginu en reynslan af þessum fundi sýnir að það er ekki hentugur tími fyrir foreldra því einungis 10 foreldrar mættu á fundinn. Því verður væntanlega reynt að hafa svipaðan fund síðar og þá að kvöldi til svo fleiri sjái sér fært að mæta.                                                                                                               

                                                                         Starfsfólk gerði góðan róm að heimsókn Guðlaugar Erlu og fannst gott að fá upprifjun og viðbótarfræðslu.

Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica