Námsaðstoð

Námsaðstoð

Sérkennsla

Nemendur með námserfiðleika eiga rétt á aðstoð við hæfi hvers og eins. Sérkennsla fer fram sem einstaklingsþjónusta eða4. E í Ekru hópkennsla eftir aðstæðum, í lengri eða skemmri tíma og fer ýmist fram í bekk eða í námsveri. Sérkennarar starfa í nánu samstarfi við umsjónarkennara og aðra starfsmenn skólans vegna  þeirra nemenda sem þurfa námsaðstoð. Höfð er í heiðri meiginreglan um að þjónustan valdi nemandanum sem minnstri aðgreiningu frá bekkjarfélögum sínum.

Námsefni og val á viðfangsefnum er byggt á greiningum nemenda, niðurstöðum úr prófunum eða ábendingum frá sérfræðingum að höfðu samráði við foreldra.

Gerð er einstaklingsnámskrá eða einstaklingsvarða fyrir nemendur sem fá aðstoð sem víkur frá bekkjarnámskrá. Einstaklingsnámskrá er heildaráætlun fyrir nemanda sem víkur verulega frá bekkjarnámskrá. Einstaklingsvarða er stutt útgáfa af einstaklingsnámskrá og er gerð þegar nemandi víkur frá bekkjarnáskrá í einni grein eða öðru mjög afmörkuðu sviði

Sérkennari ber, í samvinnu við umsjónarkennara ábyrgð á að einstaklingsáætlun sé gerð. Hann boðar  foreldra, sérgreinakennara og fleiri aðila ef við á til samstarfs við gerð áætlunarinnar. Sérkennari ber ábyrgð á uppsetningu áætlunarinnr og að hú sé geymd á viðeigandi stað. Nemandi tekur sjálfur þátt í undirbúning og gerð  áætlunarinnar ef við á.

Einstaklingsnámskrá / einstaklingsvarða hefur ákveðinn gildistíma og er undirrituð af foreldrum og umsjónarkennara. Nemandi undirritar sjálfur einstaklingsnámskrá ef við á.

Stuðningur

Stuðningsfulltrúar vinna náið með kennurum í bekkjum eða utan þeirra. Hlutverk þeirra er að vera kennara í viðkomandi kennslustund innan handar við að styðja nemendur sem víkja frá í námi eða hegðun. Viðkomandi kennari og sérkennari veita stuðningsfulltrúa leiðbeiningar um verklag og viðfangsefni.

Þroskaþjálfun

Þroskaþjálfi heldur utan um þjónustu við nemendur með þroskahömlun eða fötlun í samvinnu við umsjónarkennara. Þroskaþjálfi ber, ásamt umsjónarkennara ábyrgð á gerð einstaklingsnámskrár og er í samvinnu við greiningaraðila eftir því sem við á. Þroskaþjálfi sinnir persónulegri aðstoð við nemandann og gerir tillögur um úrbætur í ferlimálum ef við á. Þroskaþjálfi leiðbeinir stuðningsfulltrúa og örðu starfsfólki um verklag eftir því sem við á.

Aðstoð við próftöku og verkefnaskil

Nemendur með sértæka námserfiðleika, lestrarerfiðleika eða eiga vegna fötlunar erfitt með að leysa verkefni og taka próf á sömu forsendum og aðrir nemendur eiga rétt á að sérstaklega sé tekið tillit til þeirra. Sérkennarar skipuleggja í samráði við umsjónarkennara í hverju aðstoðin er falin hverju sinni.

Aðstoð getur verið falin í próftöku í fámennri stofu, að nota tölvur eða spilara fyrir hljóðbækur, notkun hjálparforrita eða tækja við lestur eða ritun ofl.

 


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica