Móttaka nýrra nemenda
Móttaka nýrra nemenda
Nemendur sem tala íslensku
Áður en nemendnur hefja skólagöngu fá verðandi 1. bekkingar bréf sent heim þar sem þeir eru boðnir velkomnir í skólann. Á sama tíma er sent bréf til foreldra þar sem starfsemi skólans er kynnt. Á haustdögum er haldið skólafærninámskeið fyrir foreldra nemenda í 1. bekk þar sem farið er yfir helstu áherslur í skólastarfinu, þroska barna og hvernig foreldrar geta best styrkt barnið í námi. Svipað námskeið er haldið fyrir foreldra 7. bekkinga sem snýr þá að þroska elstu nemenda skólans, áherslur skólans á því aldursstigi og því hvernig foreldrar geta sem best stutt barnið í gegnum það breytingaferli sem unglingsárin eru.
Þegar nýr nemandi byrjar í eldri bekkjum skólans hittir hann, ásamt foreldrum, skólastjóra og umsjónarkennara áður en skólaganga hefst.
Umsjónarkennari ræðir um komu nýja nemandans við bekkinn og undirbýr komu hans. Tryggt skal að honum verði tekið með opnum huga frá byrjun. Ákveðnir nemendur eru valdir til að liðsinna nýjum nemanda fyrstu vikurnar og sýna honum skólann og nánasta umhverfi.
Umsjónarkennari sér um að sérgreinakennarar viti af nýja nemandanum áður en hann mætir í tíma hjá þeim.
Nemendur sem ekki tala íslensku
Mikilvægt er að styðja nemendur sem koma í skólann og tala ekki íslensku vel strax frá byrjun svo þeir verði fljótari að komast inn í skólastarfið og skólagangan nýtist þeim sem best. Því hefur skólinn samið móttökuáætlun sem unnið er eftir og birtist hún hér í heild sinni.


